Morgunblaðið - 12.02.2009, Page 21
smáauglýsingar
mbl.is
Daglegt líf 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009
Bónus
Gildir 12.-15. febrúar verð nú verð
áður
mælie. verð
Kf. nýtt kjötfars .......................... 399 499 399 kr. kg
Kf. sveitabjúgu .......................... 399 449 399 kr. kg
Kf. frosið sparhakk..................... 499 499 kr. kg
Nv. ferskir nautahamborg., 4 stk.. 498 598 125 kr. stk.
Holta ferskar kjúklingabringur ..... 1.798 2.398 1.798 kr. kg
Bónus ferskt kjúklingafillet.......... 1.689 2.339 1.689 kr. kg
Bónus nýb. kringlur, 4 stk. .......... 198 259 50 kr. stk.
Bónus kolsýrt vatn, 2 l................ 89 98 45 kr. ltr
Fjarðarkaup
Gildir 12.-14. febrúar verð nú verð
áður
mælie. verð
Svínagúllas úr kjötborði.............. 898 1.338 898 kr. kg
Hamborgarar m/brauði, 2x115 g 298 376 298 kr. pk.
Móa kjúklingabringur ................. 1.818 2.798 1.818 kr. kg
Heill ferskur kjúklingur frá Ísfugli.. 620 885 620 kr. kg
Reykt og saltað folaldakjöt ......... 462 771 462 kr. kg
FK jurtakryddað lambalæri.......... 1.580 2.430 1.580 kr. kg
Ali grísahnakki, beinlaus ............ 1.079 1.798 1.079 kr. kg
Hagkaup
Gildir 12.-15. febrúar verð nú verð
áður
mælie. verð
Nautaat fillet ............................. 1.971 3.398 1.971 kr. kg
Íslands ungnautahakk, 3% fita.... 1.259 1.798 1.259 kr. kg
Emmessís konfekt ísblóm........... 599 989 599 kr. stk.
Ms Abt gr/jarðarb/musli, 170 g .. 76 95 76 kr. stk.
Egils kristall Mexican Lime, 2 l .... 149 219 149 kr. stk.
Ítalía ólífuolía, 500 ml................ 399 689 399 kr. stk.
Engjabrauð ............................... 199 379 199 kr. stk.
Krónan
Gildir 12.-15. febrúar verð nú verð
áður
mælie. verð
Móa kjúklingabringur ................. 1.498 2.798 1.498 kr. kg
Móa kjúklingaleggir, magnp. ....... 569 949 569 kr. kg
Móa kjúklingavængir, magnp. ..... 199 475 199 kr. kg
Goða ½ sagaður lambaskr.......... 896 1.298 896 kr. kg
Myllu heilhveiti samlokubrauð ..... 149 279 149 kr. stk.
Heinz bakaðar baunir, 4x200 g ... 199 465 199 kr. pk.
Hreinol uppþvottalögur, 2 l ......... 499 989 499 kr. stk.
Papco risa eldhúsrúllur............... 499 599 499 kr. pk.
Nóa kropp, risapoki ................... 249 298 249 kr. pk.
Nóatún
Gildir 12.-15. febrúar verð nú verð
áður
mælie. verð
Kindafillet ................................. 2.198 2.698 2.198 kr. kg
Lambalæri ................................ 998 1.698 998 kr. kg
Kindainnanlærisvöðvi................. 1.498 2.398 1.498 kr. kg
Holta kjúklingalæri í hunangss. ... 974 1.499 974 kr. kg
Lamba framhryggjarsneiðar ........ 1.498 1.998 1.498 kr. kg
Holta partí kjúklingavængir ......... 449 690 449 kr. kg
Toscana brauð........................... 249 398 249 kr. stk.
Vínarbrauðslengja...................... 399 565 399 kr. stk.
Orville örbylgjupopp, 3 í pk. ........ 199 329 199 kr. pk.
Þín Verslun
Gildir 12.-18. febrúar verð nú verð
áður
mælie. verð
Ísfugl úrb. kjúkl.bringur............... 2.113 3.019 2.113 kr. kg
Daimt. frá Emmess, heimilispk.... 559 759 559 kr. pk.
Merrild Senseo kaffi, 125 g ........ 398 529 3.184 kr. kg
Hunts tómatar niðursoðnir, 411 g 125 154 305 kr. kg
Zendium tannkrem Sens., 75 ml . 329 419 4.387 kr. kg
helgartilboðin
Kjúklingur víða á tilboði
ÚRSKURÐUR vínsmakkara
getur ráðið úrslitum um það
hvernig gengur að markaðs-
setja vín. En hvað er að
marka vínsmakkarana?
Vísindamaðurinn Robert
Hodgson í Kaliforníu hefur í
fjögur ár kannað frammi-
stöðu vínsmakkara. Hann lét
sérfræðinga um vín smakka
blindandi, gaf þeim sama vín-
ið þrisvar og lét nokkurn
tíma líða á milli. Aðeins 10%
smakkaranna mátu vínið
með svipuðum hætti og voru
sjálfum sér samkvæmir þeg-
ar þeir fenguð vínið aftur.
Hjá hinum virtist fara eftir
skapinu hvort einkunnin
hækkaði eða lækkaði. Í eitt
skiptið þótti aukinheldur
koma til greina að verðlauna vínið, en nokkrum augnablikum síðar var vín
úr sömu flösku orðið ómögulegt.
Hodgson birti grein um rannsókn sína í tímaritinu Journal of Wine
Economics í lok janúar og sagði að tilviljun ein réði því hvort vín ynni til
verðlauna.
Franski vísindamaðurinn Gil Morrot gaf 54 sérfræðingum um Bordeaux-
vín hvítvín sem hann hafði litað rautt. Við lyktarpróf áttaði enginn þeirra
sig á blekkingunni og sumir hrósuðu sterkum skógarberjakeim.
Þá virðist ekkert hafa jafn mikil áhrif á mat á víni og vitneskja um verð-
ið. Meðalvín í dýrum flöskum fær iðulega háa einkunn.
Niðurstaða Hodgsons er sú að til séu margir lélegir vínsmakkarar, en
eiginlega engir góðir. Þetta ættu að vera velunnurum ódýrs glundurs
gleðifréttir.
Gæði Ræður verðmiðinn á flöskunni ein-
kunninni sem vínið fær?
Hvað er að marka sérfræðinga um vín?
Er glundur í glasinu?
Morgunblaðið/Kristinn
Vísan „Ekki er þessi fylkingfrýn“ eftir Sigurhjört Pét-
ursson er löngu landskunn.
Ekki er þessi fylking frýn
full af viskí þambi.
Hani, krummi, hundur, svín
og Haraldur frá Kambi.
Kristján Bersi Ólafsson lýsir til-
urð vísunnar þannig:
„Þennan dag leit ég inn á há-
degisbarinn og settist þar hjá Sig-
urhirti Péturssyni sem ég hafði
hitt þar í nokkur skipti áður.
Skömmu síðar gekk nýr maður í
salinn og var mér sagt að þar
væri komið stórskáldið Haraldur
frá Kambi. Fljótlega eftir þetta
flutti hópurinn frá barnum og
fékk sæti við borð framarlega í
veitingasalnum. Þar fór Sig-
urhjörtur með þessa vísu. Ég man
að ég hikstaði dálítið á orðinu
Frýn og þurfti að fá það end-
urtekið nokkrum sinnum. En
þetta orð var þarna auðvitað
kvenkynsmyndin af orðinu
FRÝNN. Eftir að vísan komst í
umferð var algengt að menn
breyttu þessu í Fín og í þeirri út-
gáfu hefur vísan flogið víða.
Ég er ekkert viss um að dýrin í
vísunni hafi verið persónugerð
mann fyrir mann. Miklu frekar
held ég að upptalningin hafi haft
þann tilgang einan að sýna hvers-
konar lið þarna var á ferðinni. En
við borðið sátu sex til sjö eða í
mesta lagi átta menn, þar á meðal
Haraldur og Sigurhjörtur auk
mín. Hverjir hinir voru man ég
ekki og enn síður man ég hverjir
komu að borðinu án þess að fá
þar sæti, en þeir voru þó nokkrir.
Við þetta hef ég engu að bæta. Ef
ég reyndi það yrði það hrein
ágiskun, ef ekki hreinn skáld-
skapur.“
VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is
Af tilurð
vísu
13:00 Setning
Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður stjórnar
Faxaflóahafna sf. og skipulagsráðs Reykjavíkur.
13:10 Saga skipulagsmála í Reykjavík
Þorvaldur S. Þorvaldsson arkitekt.
13:25 Staða skipulagsmála í og við Gömlu
höfnina
Ólöf Örvarsdóttir skipulagsstjóri.
13:40 Framtíðarsýn Faxaflóahafna sf.
Gísli Gíslason hafnarstjóri.
13:50 Form og tilhögun samkeppninnar
Ásdís Ingþórsdóttir arkitekt.
14:00 Austurhöfnin – umgjörð Tónlistar-
og ráðstefnuhúss
Sigurður Einarsson arkitekt.
14:40 Kaffihlé
15:00 Intergration of port and city in Hamburg
Prófessor Jörn Walter skipulagsfræðingur flytur
erindi um þróun hafnarinnar í Hamborg í ljósi
hagfræði, skipulags og umhverfismála og kynnir
jafnframt HafenCity-verkefnið stuttlega.
Erindið flutt á ensku.
15:45 14 years experience in developing port
and city
Karl-Gustav Jensen, fyrrverandi þróunarstjóri
hafnarinnar í Kaupmannahöfn, flytur erindi
um þróun skipulagsmála í og við höfnina í
Kaupmannahöfn. Erindið flutt á ensku.
16:30 Umræður og fyrirspurnir.
17:00 Samantekt og námstefnuslit.
Léttar veitingar og enn léttari óformlegar
umræður til kl. 18:00.
Námstefnustjóri: Júlíus Vífill Ingvarsson.
Námstefna í tilefni hugmyndasamkeppni um
framtíðarskipulag Gömlu hafnarinnar í Reykjavík
HORFT T I L FRAMT ÍÐAR
Verið velkomin í Loftkastalann á morgun, föstudaginn 13. febrúar; námstefnan er opin öllum!
Júlíus Vífill
Gísli
Þorvaldur S.
Ásdís
Jörn Walter Karl-Gustav
Ólöf
Sigurður
Nánari upplýsingar um samkeppnina er að finna
á faxafloahafnir.is/is/hugmyndasamkeppni
Hugmyndasamkeppnin verður líka kynnt
á opnum fundi í Loftkastalanum
á fimmtudaginn kemur, 19. febrúar, kl. 17:00.
A
T
H
Y
G
L
I