Morgunblaðið - 12.02.2009, Side 38

Morgunblaðið - 12.02.2009, Side 38
38 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Antík Maddömurnar flytja! Maddömurnar á Selfossi eru fluttar í annað húsnæði, opið á föstudögum 13-18 og eftir samkomulagi. Hægt að hringja í 866-9269 og 483-3083. www.maddomurnar.com Húsnæði í boði 2 herb. íbúð, Kópavogsmegin í Fossvogsdal Til leigu 2 herb. 54 m² íbúð Kópavogs- megin í Fossvogsdal. Laus strax, verð 80 þús. á mánuði. Uppl. í síma 845-0304 / 554-3174 / 693-1404. Íbúð í hverfi 108 til leigu Tæplega 80 fm, 4ra herbergja íbúð ásamt risherbergi til leigu í Hólmgarði í Reykjavík. Sérinngangur og garður en sameiginlegt þvottahús. Verð 120 þús. á mán. Uppl. í síma 822-9006. 4ra herbergja, 110 m² í Engihjalla til leigu 4ra herb. 110 m² íbúð í Engihjalla, Kópavogi, til leigu. Verð 125.000.- með hita og hússjóði. Laus frá 1. mars nk. Langtímaleiga. Uppl. s. 868-0465 / 692-2665. Húsnæði óskast Einbýlishús óskast til leigu Traustur aðili óskar eftir einbýlishúsi á Stór-Reykjavíkursvæðinu til leigu, ca. á tímabilinu 15. maí - 15. sept. Þarf að geta hýst 8 manns og hafa rúmgóðan bílskúr. Má gjarnan vera í útjaðri Rvk. Uppl. í síma 691-0108. Einbýlishús í Garðabæ/Arnarnesi 5 manna fjölskylda óskar eftir að taka á leigu einbýli í Garðabæ eða Arnarnesi frá lok ágúst 2009 í eitt ár. Lágmark 4 svefnherbergi. Ársleiga staðgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Margréti á maggamog@gmail.com Sumarhús Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Stéttarfélag Vesturlands auglýsir eftir sumarhúsi í Borgarfirði (helst í Húsafelli) til leigu í allt að eitt ár. Húsið þarf að vera í góðu standi með svefnpláss fyrir 6 – 8 manns og heitum potti. Æskilegt er að húsið sé fullbúið húsgögnum og öðrum búnaði. Félagið hefur einnig áhuga á að leigja sumarbústað á Suðurlandi frá maí til september. Upplýsingar gefur formaður í síma 430 0432 eða 894 9804. Stéttarfélag Vesturlands, Orlofssjóður. Iðnaðarmenn Rafvirkjar Rafverktaki getur bætt við sig verkefnum. Nýlagnir, viðgerðir og breytingar. Sími 893 5214. Námskeið Frábært, rafrænt námskeið í netviðskiptum. Notaðu áhugamál þitt, kunnáttu og sérþekkingu til að skapa þér góðar og vaxandi tekjur á netinu. Við kennum þér hvernig! Skoðaðu málið á http://www.menntun.com Leirkrúsin- Námskeið í leirmótun Helgarnámskeið í febrúar - fyrir byrjendur og lengra komna. Opin vinnustofa alla virka daga. Uppl. og skráning hjá leirkrus@leir.is og s: 661 2179. www.leir.is Viltu læra undirstöðuatriði förðunar á 1 til 2 kvöldstundum? Sólveig Birna Þóra Ólafs Bestu kveðjur, Sólveig Birna Gísladóttir og Þóra Ólafsdóttir förðunarmeistarar/ kennarar. Í boði eru stutt kvöldnám- skeið fyrir allt að 12 manna hóp þar sem hver og ein lærir undirstöðuatriðin í dag- og kvöldförðun. Jafnframt er hægt að óska eftir tilboðum í lengri og ýtarlegri námskeið. Námskeiðin eru á fimmtu- dagskvöldum í ca 2½ klst. frá kl. 19.30–22.00. Verð kr. 6.900 á mann. Innifalið í námskeiðum: Námsgögn, penslar og förðunarvörur, hreinsikrem til afnota og einnig fær hver kona gjöf, auk þess 20% afslátt af vörum. Námskeiðin eru haldin á Köllunarklettsvegi 4, 2. hæð, rétt við Olísstöðina hjá Sæbraut. Förðun f. árshátíðir og fleiri tilefni. Skráning í símum: 896-3362 (Þóra Ólafs) og 863-3476 (Sólveig Birna) Þjónusta Fyrir fyrirtæki, heimili og stofnanir Gerðu heimilið og vinnustaðinn öruggari. Sterkar sérsmíðað- ar gluggagrindur varna innbrotum. Gerum tilboð í smíði og uppsetningu. Vélsmiðja Heiðars ehf. S. 554 2570/895 5584. INNBROTSVÖRN Byggingavörur www.vidur.is Harðviður til húsbygginga. Vatns- klæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði. Sjá nánar á vidur.is. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Málarar Málningarvinna Þaulvanur málari ætlar að bæta við sig verkefnum. Inni og úti. Vönduð og öguð vinnubrögð. Sanngjarnt verð. Uppl. í síma 897 2318. Ýmislegt KARI MORGAN! Kæri faðir viltu hafa samband við mig í síma 867 1008. ÚTSALA Triumph Triumph bikiní í úrvali. Hamraborg 7, 200 Kópavogi, sími 564 0035, gengið inn frá Hamrabrekku. www.aquasport.is Teg. OLIVIA - virkilega haldgóður og flottur í D,DD,E,F,FF,G,GG,H,HH,J skálum á kr. 8.850, Teg. LOTTIE - mjög smart og heldur vel í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 4.990, Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Gæða skór fyrir góða menn. Úrval af herramokkasíum úr leðri, skinnfóðraðir og á vönduðum sóla. Verð: 10.850.- 11.500.- 12.450.- Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070, opið: mán. - fös. 10 - 18. laugard. 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Bílaþjónusta Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, FWD. Öruggur í vetraraksturinn. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Húsviðhald Eruð þið leið á baðherberginu? Breytum, bætum og flísaleggjum. Upplýsingar í síma 899 9825. Stigahúsateppi Strönd ehf. Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík, sími 533-5800. Þjónustuauglýsingar 5691100 Smáauglýsingar sími 569 1100 Elsku afi, þetta eru merk tímamót í lífi okkar allra. Fæð- ing og dauði eru tveir viðburðir í flóknum leik sem við nefnum lífið og á milli þeirra er tímaskeið sem allir menn ættu að njóta. Þú færðir mér ást og umhyggju, sem ég þáði með þakklæti. Þú varst góður og vitur um lífsins gang. Þú varst virkilega hógvær en um leið ótrúlega lífsglaður. Ef ég einblíndi á sorgina yfir skyndi- legu fráhvarfi þínu bæri það vott um tóma eigingirni. Því mun ég ávallt minnast stundanna sem við áttum saman heima hjá þér á Dragaveginum fyrir framan enska boltann, í sveitinni og í Ásgeir S. Olsen ✝ Ásgeir S. Olsenfæddist á Eski- firði 26. febrúar 1933. Hann lést á Landspít- alanum í Fossvogi hinn 30. janúar síðast- liðinn. Útför Ásgeirs var gerð frá Áskirkju 9. febrúar sl. fjölskylduboðunum þar sem ég gat að- eins talað við þig einan um hin ýmsu málefni, eitthvað sem náði ekki at- hygli annarra fjöl- skyldumeðlima. Ég minnist sérstaklega þegar við bræðurnir fórum í fjallgöngu með þér í Kjósinni. Ég hljóp upp fjallið á undan þér og Óla bróður. Þegar ég var kominn upp á fjallið missti ég sjónar á ykkur og grét. Innan skamms voruð þið komnir upp og ég húðskammaði þig fyrir drollið, líkt og amma gerði þegar þú lést mig ríða hest- inum í Kjósinni, hnakklaus. Ég minnist þess einnig þegar við bræðurnir ræstum sendiferðabíl- inn þinn í Grænumýrinni og tók- um hann úr handbremsu. Þú komst hlaupandi úr húsinu, stökkst upp í bílinn eins og fjalla- geit og slökktir á honum. Við fengum engar skammir í kjölfarið þó svo að það skorti rúman ára- tug upp á bílprófsaldurinn. Þá rifjast upp fyrir mér þær stundir þegar þú varst á fleygiferð um bæinn í stóra rauða sendiferða- bílnum. Ég og Óli kröfðumst þess jafnan að vera í flutningarýminu þegar við fengum að sitja í bíln- um og þú leyfðir okkur það stöku sinnum, en gættir að sjálfsögðu að öllum öryggisatriðum. Af þér erfði ég rauða hárlitinn, ákefðina, húmorinn og viljann til að lifa fyrir það sem ég trúi í rauninni á. Þú varst sá eini í ætt- inni sem taldi mig vera góðan bíl- stjóra, en hrós frá atvinnubíl- stjóra var það eina sem ég þurfti til að öðlast sjálfsöryggi í um- ferðinni. Ég keyri aldrei of ná- lægt næsta bíl, afi minn, og það mun ég aldrei gera. Þegar ég horfi til baka átta ég mig á því að þú varst mjög stór hluti af lífi mínu. Þótt sorgin sé yfirþyrm- andi er hún þó gleði blandin. Þú kenndir mér að horfa á björtu hliðarnar í lífinu og því mun ég ekki gleyma. Ég er með þér í anda, alltaf. Sigurður Ásgeir Árnason Olsen. Til minningar um hann Sigga frænda. Hann Siggi frændi yfirgaf þennan heim í vikunni á jafnhæg- látan hátt og hann hafði alltaf lif- að lífinu. „Ekki mála gluggann.“ Mín fyrsta reynsla af vatnslitum. Pabbi, Eiríksgata 13, risið. Þarna man ég svona nokkur veginn fyrst eftir mér. Þetta er líklega árið 1948. Ótrúlega gaman að prófa litina. Amma og afi bjuggu á Leifsgötu 28. Þetta var allur stóri heimurinn, lítill og indæll og öll fjölskyldan á litlum bletti. Þegar ég var sendur í pössun var það til ömmu og afa á Leifsgötu. Amma Elísa var norsk og afi Jón ís- lenskur. Þau fluttu til Íslands Sigurður Jón Jónsson ✝ Sigurður JónJónsson fæddist í Álasundi í Noregi 9. febrúar 1916. Hann andaðist á Landspít- alanum í Fossvogi 21. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Grafarvogskirkju 2. febrúar. þegar mamma var 9 ára. Hún talaði sér- stakt tungumál, sem enginn skildi, nema börnin hennar og við krakkarnir. Sam- bland úr norsku og íslensku. Að fara í pössun til ömmu og afa á Leifsgötu var ævintýri. Afi Jón var leikfangasmiður. Þetta var eins og að vera Gosi. Settur upp á stól. „Sittu kjur.“ Smíðaverk- stæðið var líklega 10 fermetrar. Þarna voru smíðaðir vörubílar, dúkkuvagnar, rugguhestar og alls konar dót í litlum stærðum, t.d. kökukefli, kjöthamrar og sleifar. Þetta var málað í hárauðum lit og skreytt með listilegum strokum af gullbronsi. Afi átti dós af gulli, ríkur. Þessi leikföng voru seld hjá K. Einarsson og Björnsson á Laugaveginum. Í einu herbergi hjá ömmu og afa bjó Siggi frændi. Það fór ekki mikið fyrir honum. Hann lifði mikið í sínum eigin heimi og áttum við börnin ekki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.