Morgunblaðið - 12.02.2009, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 12.02.2009, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2009 Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó 650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM HÖRKUSPENNANDI MYND ÚR SMIÐJU LUC BESSON 650k r. Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Sími 551 9000 Bride Wars kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ Revolutionary Road kl. 5:30 - 8 B.i. 12 ára Underworld 3 kl. 10:30 B.i. 16 ára Seven pounds kl. 5:30 - 8 LEYFÐ Australia kl. 8 B.i. 12 ára Taken kl. 6 - 10:30 B.i. 16 ára SÝND Í SMÁRABÍÓI Frá leikstjóra The Hours og Billy Elliott SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI BRÁÐSKEMMTILEG MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI Þegar tvö brúðkaup lenda upp á sama daginn fara bestu vinkonur í stríð! Frábær gamanmynd! Hve langt myndir þú ganga til að varðveita leyndarmál? SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI AUKASÝNINGA R Á VINSÆLUSTU MYNDINNI FRÁ FRANSKR I HÁTÍÐ Refurinn og barnið m. ísl. texta Fyrsti kafli Underworld myndanna. Hrikalegri og flottari enn nokkru sinni fyrr! 550 kr. fyrir b örn 650 kr. fyrir f ullorðna SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI 650k r. Hrikalegri og flottari enn nokkru sinni fyrr! - E.E., DV 650k r. 650k r. 3 - S.V. Mbl. - K.H.G., DV 650k r. 650k r. The Reader kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.14 ára Valkyrie kl. 10:30 B.i.12 ára Vicky Cristina Barcelona kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ Refurinn og barnið ísl. texti kl. 6 LEYFÐ Revolutionary Road kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára Sólskinsdrengurinn kl. 5:30 LEYFÐ Bride Wars kl. 8 - 10 LEYFÐ Skógarstríð 2 kl. 6 550 kr. f. börn, 650 kr. f. fullorðna LEYFÐ Underworld 3 kl. 10:10 Síðasta sýning B.i.16 ára Villtu vinna milljarð kl. 8 Síðasta sýning B.i.12 ára Sólskinsdrengurinn kl. 6 LEYFÐ Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú - S.V., MBL - DÓRI DNA, DV - S.V. Mbl. Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞETTA eru fyrstu opinberu tónleik- arnir okkar í mörg ár,“ segir Birgir Nielsen, trommuleikari 80’s- hljómsveitarinnar Moonboots, sem ætlar að halda tónleika á Players í Kópavogi á laugardagskvöldið. „Þessi sveit hefur reyndar alltaf komið fram einu sinni á ári, fyrir lokuðum dyrum á Broadway – það er að segja á árlegu 80’s-balli Menntaskólans við Sund. Sveitin kemur sérstaklega saman einu sinni á ári til að gleðja ungviðið þar,“ segir Birgir. „Núna var hins vegar ákveðið að blása í herlúðra, enda er eins og þjóð- ina hreinlega vanti eina svona skemmtun, og við erum klárir í slag- inn,“ segir Birgir um tónleikana á laugardaginn. Í lagningu Hljómsveitin Moonboots var stofn- uð í Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1995, en hefur gengið í gegnum töluverðar mannabreytingar síðan þá. Í dag er sveitin skipuð þeim Svavari Knúti söngvara, Birgi Kárasyni bassa- leikara, Snorra Barón Jónssyni á gít- ar, Ólafi Ágústi takkahnoðara og hljóð- smala, auk Birgis á trommum, en hann gekk til liðs við sveitina fyrir sex árum. „Það vildi þannig til að fyrrverandi trommari bandsins flutti til Danmerk- ur í nám og átti ekki heimangengt á eina tónleika. Ég leysti hann af í eitt skipti og síðan þá hefur hann bara ekki komið heim þannig að ég hef verið þarna síðan. En ég kann mjög vel við mig þarna, enda er ég fæddur 1974 og þekki þessa tónlist því mjög vel.“ Aðspurður segir Birgir þá félaga auðvitað leggja mikið upp úr klæða- burði og útliti á tónleikum sínum, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. „Við erum í nánu samstarfi við hárgreiðslu- stofuna Glerbúrið. Þangað fer sveitin í lagningu fjórum tímum fyrir gigg, og svo í smink.“ U2 og Guns N’Roses Birgir er ekki við eina fjölina felld- ur þegar kemur að ábreiðu-sveitum því hann er í tveimur slíkum til við- bótar, og jafnvel þremur, eftir því hvernig á það er litið. Í öllu falli hlýt- ur hann að teljast ókrýndur cover- kóngur Íslands. „Ég er í U2 Project og það vill einmitt þannig til að sú sveit ætlar að halda tónleika núna í mars, hún hefur ekki gert það í nokk- ur ár,“ segir Birgir en eins og nafnið bendir til sérhæfir sú sveit sig í tón- list Íranna góðkunnu. „En svo var ég líka fenginn í Guns N’Roses tribute band um daginn þannig að þetta kemur allt í einni súpu,“ segir Birgir sem er einnig trommuleikari Klaufa, sem hafa gert töluvert af því að breiða yfir vel þekkt lög. „Þetta er hálfgerð tilviljun, að mað- ur hafi dottið í þetta allt saman. En þetta er allt mjög gaman enda er ekk- ert af þessu eins tónlist,“ segir Birgir og bætir því við að eftirspurnin eftir tónlist sem þessari sé mikil. „Það virðist vera sérstaklega mikið núna. Til dæmis var Stones-band stofnað um daginn þannig að það virðist vera góður fílingur fyrir þessu, enda eru allir til í að heyra góða mús- ík.“ Cover-kóngur Íslands  Trommuleikarinn Birgir Nielsen spilar með þremur ábreiðu-sveitum  80’s-sveitin Moonboots heldur loksins tónleika á Players á laugardaginn Svalir Liðsmenn Moonboots ásamt fríðum flokki stúlkna á árlegu 80’s balli MS fyrir skömmu. Tónleikar Moonboots verða á Pla- yers á laugardagskvöldið og hefj- ast um miðnættið. Miðaverð er 1.500 krónur. BRESKA fyrirsætan Kate Moss missti af BAFTA-verðlaunahátíð- inni vegna þess að hún gat ekki ákveðið hvaða kjól hún ætti að klæðast. Vinur fyrirsætunnar sagði í viðtalið við Daily Telegraph að Moss hefði í fyrstu ákveðið að taka það rólega uppi í sófa með kærasta sínum og gítarleikara The Kills, Ja- mie Hince. „Á síðustu stundu hringdi hún í okkur og sagði að hún hefði skipt um skoðun og kæmi um leið og hún hefði ákveðið kjólinn.“ Þegar vinirnir voru um það bil að gefast upp á biðinni mun Moss hins vegar hafa hringt og sagt að hún gæti ekki ákveðið í hverju hún ætti að fara og að ekkert klæddi hana. Á dauða sínum á maður von en að Moss sem hannar föt fyrir Topshop og hefur það að atvinnu að klæðast fötum frá öllum helstu hönnuðum heims, finni ekki spjör á sig – ja, það hljómar eiginlega eins og lyga- saga. Líklegt er hins vegar að Moss hafi metið það svo að ef hún liti ekki þeim mun glæsilegar út væru sigurlíkur hennar á rauða dregl- inum litlar við hliðina á alheims- stjörnum og fegurðardrottningum á borð við Angelinu Jolie. Og því ákveðið að halda sig við upprunalega planið. Kate Moss Þarf að koma sér upp almennilegum fataskáp. Gat ekki ákveðið sig Á meðal þeirra laga sem Moonboots tekur á tónleikum sínum má nefna slagara á borð við „Rio“ með Duran Duran, „Wake Me Up“ með Wham!, „Take On Me“ með A-ha, „How Will I Know?“ með Whitney Houston, „Dancing With Tears In My Eyes“ með Ultravox, „Tarzan Boy“ með Balti- mora, „Þrisvar í viku“ með Bítlavinafélaginu, „Vertu ekki að plata mig“ með HLH-flokknum og að sjálfsögðu „Súperman“ með Ladda. Retró lagalisti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.