Morgunblaðið - 12.02.2009, Side 52
FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 43. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Morðinginn
gengur ennþá laus
Pistill: Bjargráð eða bráðræði?
Staksteinar: Það sem skiptir máli
Forystugreinar: Heiðursgestur
á Íslandi | Að bjarga barni
Baugur stefnir í þrot
Tækifæri handan við hornið
136 Tortolafélög á Íslandi
Vonbrigðin komu fram á mörkuðum
VIÐSKIPTI»
4
!5"( /
", !
67889:;
(<=:8;>?(@A>6
B9>96967889:;
6C>(B"B:D>9
>7:(B"B:D>9
(E>(B"B:D>9
(3;((>#"F:9>B;
G9@9>(B<"G=>
(6:
=3:9
.=H98?=>?;-3;H(B;@<937?"I:C>?
J
J'
' 'J J
J
'
J ?
""#"/ " ' 'J J
J '
J 'J'
'
.
B2 (
J'
'J
'J J
J '
J
'
J
'J Heitast 2° C | Kaldast -12° C
Austan- og suð-
austan 8-15 m/s og
snjókoma en síðan
slydda eða rigning.
Enn frost n-lands » 10
Jóhann Bjarni Kol-
beinsson fjallar um
viðbrögð fólks við
því að Kompás var
kippt af dagskrá
Stöðvar 2. »45
AF LISTUM»
Umbúðir og
innihald
TÓNLIST»
Emilíana stelur toppsæti
Tónlistans. »48
Óskar Ericsson
listamaður gefur
fólki tækifæri til að
fá stundarkornsfrí
frá skammdeginu.
»44
MENNING»
Á sólbekk í
skammdegi
FÓLK»
Birgir Nielsen er í þrem-
ur tökulagasveitum. »49
MENNING»
Daníel Bjarnason í fyrsta
sinn með Sinfó. »42
Menning
VEÐUR»
1. Fannst látin í Kapelluhrauni
2. Öruggur sigur á Liechtenstein
3. Skapstóri forsetinn
4. „Ég mun alltaf muna“
Íslenska krónan veiktist um 1,30%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
VÍÐA í innsveitum hefur kuldinn bitið und-
anfarna daga. Í Bárðardal og við Mývatn hefur
frostið farið í 26 stig. Fjölskyldurnar þrjár í
Svartárkoti kippa sér þó lítið upp við kuldakastið.
„Þetta hefur ekki verið til mikilla vandræða und-
anfarið og þegar kuldinn er hvað mestur þá er
bara að trekkja ofnana,“ segir Guðrún Tryggva-
dóttir í Svartárkoti.
Hún segir að það sem af er febrúar hafi hitinn
sveiflast nokkuð, legið marga daga í 18 gráðum,
farið niður í 26 gráður tvisvar sinnum þegar kald-
ast hefur verið og bestu dagana hefur hitastigið
farið upp í mínus 10 gráður.
Á Svartárvatni búa systurnar Guðrún og Sig-
urlína Tryggvadætur og fjölskyldur þeirra með
um 450 fjár. Foreldrar þeirra, Tryggvi og Elín,
eru hættir búskap, en vinna meðal annars við að
veiða og reykja silung. Ekki væsir um fólk eða
fénað, rafmagnskyndingin hitar íbúðarhúsið en
féð hefur hita hvað af öðru.
Á bloggsíðu Einars Sveinbjörnssonar veð-
urfræðings kemur fram að 26 stig sé mesta frostið
þennan veturinn í byggð en Mývetningum sjálfum
þykir frostið ekki mikið fyrr en það fer yfir 30
stigin. „Eins og svo oft áður er þetta bitra frost
einvörðungu á vissum stöðum í innsveitum,“ segir
Einar.
Krakkar læra kvikmyndagerð
í 20 stiga gaddi í Kiðagili
Um 20 kílómetra frá Svartárkoti eru skólabúð-
irnar og ferðaþjónustan í Kiðagili. Fólkið í Svart-
árkoti og systkinin frá Bjarnarstöðum reka þessa
starfsemi og hefur mikið verið um að vera í skóla-
búðunum síðustu vikurnar. Í Kiðagili voru í gær
35 nemendur frá Húsavík og var í nógu að snúast.
„Krakkarnir eru að læra að gera stuttmyndir
og fara í gegnum allan ferilinn; handritsgerð,
klippingar, leikstjórn, kvikmyndatöku og allt sem
þessu fylgir,“ segir Guðrún. „Það er mikið fjör
sem fylgir krökkunum og frostið bítur ekkert á
þau þótt það hafi verið tæplega 20 stig í gærmorg-
un. Þau klæða sig bara í samræmi við veðrið og
svo fáum við rauðar tölur um helgina, reikna ég
með,“ sagði Guðrún í Svartárkoti að lokum.
Kippa sér ekki upp við 26 stiga frost í Bárðardal Mesta frostið í byggð
þennan veturinn Rauðar tölur um helgina Krakkarnir klæða af sér kuldann
Sprett úr spori Krakkarnir í skólabúðunum í Kiðagili brugðu sér í gönguferð yfir brúna á Skjálfandafljóti til að skerpa einbeitinguna við kvikmyndagerðina.
Ljósmynd/Lilja Þuríðardóttir.
Þá er bara að trekkja ofnana
ALLS voru 664 einstaklingar á
aldrinum 18 til 22 ára á van-
skilaskrá nú í febrúarbyrjun, sam-
kvæmt úttekt Creditinfo á Íslandi.
Árangurslaust fjárnám hafði verið
gert hjá 343 úr hópnum.
Vanskil hafa aukist um 27,4 pró-
sent frá því í janúarbyrjun í fyrra.
Fjölgun skráninga varð 36,7 í kjöl-
far bankahrunsins.
Ungir karlar á vanskilaskrá eru
65,8 prósent þeirra sem eru á
skránni en ungar konur 34,2 pró-
sent. | 2
Morgunblaðið/Ásdís
Vanskil Bílakaup valda ungu fólki oft vandræðum. Lán vegna þeirra, yf-
irdráttur og greiðslukortaskuldir koma ungum á vanskilaskrá.
Rúmlega 660 ungmenni á vanskilaskrá
„ÉG GET viðurkennt að tárin trilluðu
niður kinnarnar þegar ég fór í loftið í
gær. Ég hafði verið með miklar vænt-
ingar og var í raun komin í gegnum
erfiðasta hlutann,“ segir Þóra Hrönn
Njálsdóttir, sem hefur neyðst til að
hætta keppni í Iron-Dog vél-
sleðakeppninni í Alaska, ásamt Sig-
urjóni Péturssyni eiginmanni sínum.
Þóra er kalin á kinnunum eftir að
hafa ekið tíu mílur án hlífðargler-
augna í 60 gráða frosti. | 10
Hætt keppni
í Alaska
Hvað hefur valdið kuldakastinu
undanfarið?
Lægðakerfi hafa verið víðs fjarri, ekkert hlýtt loft
borist af Atlantshafi og landið hefur kólnað
hægt og bítandi.
Af hverju hefur verið svo kalt í
Bárðardal og við Mývatn?
Í svona veðri verður kaldast inn til landsins, t.d.
við Mývatn og á Þingvöllum, á sama tíma og oft
er lítið frost við sjávarsíðuna. Kalda loftið hefur
tilhneigingu til að setjast í lægðir þegar það
verður þyngra en loftið umhverfis.
Hvenær varð kaldast hér á landi?
Mesta frost sem mælst hefur hér á landi er 38
stig, frostaveturinn 1918, á Grímsstöðum og
Möðrudal á Fjöllum. Janúar 1918 er kaldasti
mánuður á Íslandi á 20. öld og ekki hefur enn
orðið jafnkalt það sem af er þeirri 21. Vitað er
um fáeina ámóta eða kaldari mánuði á 19. öld.
S&S
Skoðanir
fólksins
’Er þetta opinber stefna bæjarinsog er Kópavogsbær aðili að Félagiáhugamanna um skynsamlega nýtingunáttúruauðlinda? Eða er þetta eins ogmeð svo margt annað í Kópavogsbæ,
ákvörðun eins manns tekin á ólýðræð-
islegan hátt? Hverjir hafa hagsmuna
að gæta? » 24
MARGRÉT JÚLÍA RAFNSDÓTTIR
’Forsætisráðherra setti á dög-unum upp gúmmíhanska og gafút skotleyfi á þrjá embættismenn;tveir þeirra hafa það eitt til saka unniðað vinna við hlið Davíðs Oddssonar.
Skríllinn stillir sér upp fyrir framan
Seðlabankann þar sem trúbadorinn,
sem forðum var eineltur, eineltir
öskrandi landráð. » 25
HALLUR HALLSSON
’Ef þetta gengur hins vegar ekkieftir er hugsanlega nærtækast aðsækja um aðild að Evrópusambandinuí von um að þeirra regluverk losi okkurundan forræði íslenskra stjórnmála-
manna og reynist eitthvað skárra og
færi okkur betra líf en það kerfi sem
við höfum sjálf soðið saman. » 28
GESTUR ÓLAFSSON
’Athugið að á þúsundum lána íþessum flokki eru ábyrgðarmenn,svo sem foreldrar, eigendur smærrifyrirtækja ofl. ofl. Vammlaust fólk semábyrgðist kannski 3 milljónir, er nú
krafið um tíu milljónir og þaðan af
meira. Þegar þið reiknið út fjölda ein-
staklinganna sem nú skal aflífa á sál-
ina, þá takið mið af þessu. » 29
BALDUR BORGÞÓRSSON