Morgunblaðið - 21.02.2009, Qupperneq 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
Landsins mesta úrval af íslenskum sófum
Patti húsgögn
Íslensk framleiðsla - Íslensk hönnun - Íslensk framtíð
DÚFURNAR í Laugardalnum fagna án efa snjó-
leysinu undanfarna daga því auðveldara er fyrir
þær að komast að ýmiskonar matarmolum sem
hægt er að hirða upp af gangstéttum og götum.
Þótt oft þurfi nokkuð til að raska matarró dúfn-
anna hefur eitthvað styggt þær að þessu sinni,
hvort sem það er nú ágengni ljósmyndarans eða
geltið í hvutta sem mænir á fiðurféð þar sem
hann stendur álengdar hjá húsbónda sínum.
Morgunblaðið/Ómar
Rónni raskað við matarborðið
Lífið í Laugardalnum gengur sinn vanagang
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@mbl.is
ENGINN munur er á launum karla
og kvenna undir þrítugu. Þetta er
meðal niðurstaðna launakönnunar á
vegum Samtaka atvinnulífsins, Al-
þýðusambands Íslands og ParX sem
gerð var í byrjun september í fyrra.
Minni mun hjá þessum aldurshópi
en öðrum má að einhverju leyti
skýra með því að störf eru líkari hjá
yngri aldurshópum en eldri, að því
er segir í skýrslu um könnunina.
Könnunin sýnir að í heildina voru
konur með 17 prósentum lægri föst
laun en karlar í þeim 37 fyrirtækjum
sem tóku þátt en upplýsingarnar eru
byggðar á launum rúmlega sex þús-
und starfsmanna.
Kynferði skýringin
Eftir að margvíslegar skýribreyt-
ur höfðu verið teknar með í reikn-
inginn stóð eftir að konur voru með
rúmlega 7 prósentum lægri laun en
karlar án þess að aðrar skýringar
fengjust á því en kynferði.
Rannsakað var hvaða áhrif breyt-
urnar kyn, starfsheiti, aldur, starfs-
aldur í fyrirtæki, menntun, vinnu-
tími og fyrirtæki höfðu á föst laun.
Óreglulegar yfirvinnugreiðslur voru
ekki teknar með.
Í svipaðri könnun í fyrra, byggðri
á gögnum frá 2006, reyndust konur í
heildina vera með 18 prósentum
lægri föst laun en karlar. Eftir að
sömu skýristærðir, aðrar en vinnu-
tími, höfðu verið teknar með í reikn-
inginn reyndist óskýrður launamun-
ur vera um 12 prósent. Starfsmenn
og fyrirtæki í fyrri könnuninni voru
ekki þau sömu.
Að þessu sinni voru hlutfallslega
fleiri háskólamenntaðir þátttak-
endur í rannsókninni, hlutfallslega
fleira yngra fólk, fleiri iðnmenntaðir
og fleiri stjórnendur. Aðstandendur
könnunarinar segja að þess vegna sé
ekki hægt að draga þá ályktun að
óskýrður launamunur fari minnk-
andi.
Jafnlaunastaðall þróaður
Gera á fleiri launakannanir í ár og
þá kemur í ljós hvaða áhrif kreppan
hefur á launamun kynjanna.
„Ég tel allar líkur á því þegar
gögn fara að berast í hús varðandi
þróun launa og aðferðafræði sem
fyrirtæki beita að launamunur milli
kynja minnki. Það er vegna þess að
launin eru í meiri mæli lækkuð hjá
þeim tekjuhærri, sem eru oftar karl-
ar, og líka vegna þess að verið er
taka af ofurlaunum,“ segir Gylfi
Arnbjörnsson, forseti Alþýðu-
sambands Íslands.
Hann tekur það hins vegar fram
að hann telji að það sé ekki markmið
kvenna að launamunurinn minnki
með því að lækka laun karla.
Það er með svokölluðum jafn-
launastaðli sem á að jafna launin og
koma í veg fyrir að launamun-
urinn aukist á ný. „Það á að móta
staðal sem væri stjórnendum fyr-
irtækja til leiðsagnar og starfinu á
að ljúka fyrir áramót,“ segir Gylfi.
Enginn munur undir þrítugu
Konur með rúmlega 7 prósentum lægri laun en karlar án þess að aðrar skýr-
ingar finnist en kynferði Líkur á að launamunurinn minnki í kreppunni
MANNI sem úrskurðaður var í
gæsluvarðhald eftir lát konu sem
fannst í dúfnakofa í Kapelluhrauni,
sunnan Hafnarfjarðar, að kvöldi 5.
febrúar hefur verið sleppt úr haldi.
Maðurinn var sambýlismaður hinn-
ar látnu konu.
Maðurinn var úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 20. febrúar en
sleppt sl. miðvikudag. Friðrik
Smári Björgvinsson, aðstoðaryf-
irlögregluþjónn hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu, segir að ekki
sé talið að það spilli rannsókn máls-
ins þótt maðurinn gangi laus. Hann
er þó enn grunaður um að hafa átt
aðild að dauða konunnar.
Friðrik Smári segir að ekki sé
enn ljóst hvernig dauða konunnar
bar að höndum. Ekki er komin nið-
urstaða úr blóðrannsóknum og
DNA-rannsóknum sem m.a. eru
gerðar í útlöndum.
Sambýlis-
manni sleppt
úr haldi
GUÐRÚN Nor-
dal, prófessor í
íslenskum bók-
menntum fyrri
alda við Há-
skóla Íslands,
hefur verið
skipuð í emb-
ætti forstöðu-
manns Stofn-
unar Árna
Magnússonar í
íslenskum fræðum. Skipunin er
frá 1. mars nk. til fimm ára.
Fjórar umsóknir bárust um
embættið. Skipaði Katrín Jak-
obsdóttir menntamálaráðherra
Guðrúnu í stöðuna að fenginni
umsögn dómnefndar Árnastofn-
unar í íslenskum fræðum um pró-
fessorshæfi umsækjenda og
stjórnar stofnunarinnar.
Forstöðumaður
Árnastofnunar
Guðrún
Nordal
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
ÞRJÚ skuldbindandi tilboð bárust í
nýtt hlutafé Árvakurs hf., útgáfu-
félags Morgunblaðsins, en frestur
til þess rann út í gær. Fyrirtækja-
ráðgjöf Íslandsbanka, sem hefur
umsjón með söluferlinu, mun áfram
vinna með tvö hæstu tilboðin. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
reyndist tilboð almenningshluta-
félags undir forystu Vilhjálms
Bjarnasonar og fleiri lægst og mun
félagið því ekki eignast fyrirtækið.
Rétt um þúsund manns skráðu sig
fyrir hlutafé í félaginu.
Annað af hærri tilboðunum kom
frá hópi sem Óskar Magnússon
hæstaréttarlögmaður leiðir en hann
vill ekki upplýsa hverjir standa að
tilboðinu með honum nema því verði
tekið. Hitt hærra tilboðið kom frá
ástralska fjárfestinum Steve Cos-
ser.
Upphaflega átti að skila skuld-
bindandi tilboðum þriðjudaginn 17.
febrúar en fresturinn var tvívegis
framlengdur. Fimm félög sendu
óskuldbindandi tilboð og voru fjögur
þeirra valin til áframhaldandi þátt-
töku. Tilboðin þrjú voru opnuð í dag
klukkan 14 í viðurvist Margrétar
Flóvenz, löggilts endurskoðanda frá
KPMG, sem var tilnefnd sem óháð-
ur matsaðili og samþykkt af öllum
bjóðendum.
Tilkynnt verður í næstu viku hver
hæstbjóðandi er eftir að fyrirtækja-
ráðgjöf Íslandsbanka hefur unnið úr
tveimur hæstu tilboðunum og skoð-
að forsendur og skilyrði þeirra.
Áfram unnið með tvö tilboð í
Árvakur af þremur sem bárust
EINN var fluttur á slysadeild eftir
árekstur rútu, pallbíls og fólks-
bifreiðar á Hafnarfjarðarvegi um
miðjan dag í gær. Atvikið varð með
þeim hætti að pallbíllinn lenti aftan
á fólksbifreiðinni þar sem hún beið
á aðrein að Hafnarfjarðarveginum.
Við það kastaðist fólksbíllinn í veg
fyrir rútuna sem ók í suður eftir
Hafnarfjarðarveginum, en umferð
var þétt á þeim tíma sem slysið
varð.
Fjórir voru í rútunni en einn í
hvorum hinna bílanna tveggja og
varð að flytja ökumann annars
þeirra á slysadeild. Að sögn lög-
reglu voru áverkar hans þó ekki al-
varlegir. Loka varð Hafnarfjarð-
arvegi í suður í um 40 mínútur milli
klukkan þrjú og fjögur vegna at-
viksins. ben@mbl.is
Þrír bílar í
árekstri