Morgunblaðið - 21.02.2009, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 21.02.2009, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009 MARGRÉT Guð- mundsdóttir, for- stjóri Icepharma, var kjörin for- maður Félags ís- lenskra stór- kaupmanna (FÍS) á aðalfundi fé- lagsins í á fimmtudaginn síðastliðinn. Margrét á langan feril að baki í stjórn- unarstörfum og hefur haft umsjón með samruna stórfyrirtækja eins og Q8 og BP í Danmörku, Aust- urbakka, Icepharma og Ismed á Ís- landi. Margrét nýr for- maður FÍS Margrét Guð- mundsdóttir GEÐHJÁLP stendur fyrir fyr- irlestrum í dag, laugardag, í húsa- kynnum sínum á Túngötu 7. Fyr- irlestrarnir, sem byrja kl. 13, fjalla um að taka ábyrgð á eigin lífi sem aðstandandi fólks með geðraskanir. Gunnhildur Bragadóttir, umsjón- armaður stuðningshóps aðstand- anda með geðraskanir, flytur er- indið „Þegar ljúflingurinn veiktist“. Birgir Ásgeirsson, prest- ur í Hallgrímskirkju, mun tala um sorgina þegar fólk veikist á geði og Sigríður Jónsdóttir, aðstandi barns með geðröskun og starfsmaður Geðhjálpar, flytur erindi sem hún kallar: „Settu öndunargrímuna fyrst á þig …“ Í lokin leiðir Sesselja, móðir barns með geðröskun, starf Sjálfs- hjálparhópsins. Allir velkomnir. „Þegar ljúfling- urinn veiktist“ Í GÆR fór fram í Háskólabíói hin árlega hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema Háskóla Ís- lands. Rétt eins og í fyrra unnu nemendur í vél- og orkutæknifræði við Háskólann í Reykjavík. Vinningshafarnir, Kristján Finn- ur Sæmundsson og Hjörtur Már Gestsson, nemendur í vél- og orku- tæknifræði við HR, smíðuðu tækið og unnu keppnina. Aðstoðarmaður þeirra var Pétur Halldórsson, nem- andi í líffræði við Háskóla Íslands. HR-ingar unnu hönnunarkeppni GUNNAR Páll Pálsson, formaður VR, segir það ekki rétt sem haft var eftir framkvæmdastjóra Starfsgreinasambandsins í frétta- skýringu í gær um markaðslaun og kauptaxta, að VR hafi valið þá leið að vera eingöngu með tvo launataxta. Verslunarmenn séu með sömu taxtana og áður, auk fjölmargra fyrirtækjasamninga. Það eina sem hafi breyst í samn- ingum árið 2000 sé að inn kom ný grein um að félagsmenn ættu rétt á viðtali einu sinni á ári um sín störf og hugsanlega breytingu á launum. Í fréttaskýringunni misritaðist nafn Gunnars Páls á einum stað og er beðist velvirðingar á því. VR með sömu launataxta og áður Ekki fyrstu Íslend- ingarnir í hunda- sleðakeppni Í frétt um hundasleðakeppni í Alaska í Morgunblaðinu var fullyrt að þetta væri í fyrsta sinn sem Ís- lendingar tækju þátt í keppninni. Þetta er ekki rétt því að Aron Freyr Guðmundsson tók þátt í hundasleða- keppni á árinu 2001. Ekki hagfræðingur Þau leiðu mistök urðu í blaðinu 19. febrúar að Vilhjálmur Árnason, sem boðið hefur sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suður- kjördæmi, var sagður með viðskipta- og hagfræðipróf, en það rétta er að hann er með stúdentspróf af við- skipta- og hagfræðibraut. Beðist er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT TILLAGA að nýju deiliskipulagi miðbæjar Akureyrar liggur nú fyrir og bærinn býður af því tilefni til kynn- ingar og samráðs um hugmyndir sem mótaðar hafa verið í framhaldi hugmyndasamkeppninnar Akureyri í öndvegi. Enn er gert ráð fyrir síkinu margumtalaða sem hér sést; hér er horft til vesturs, upp að Hafnar- stræti. Bæjarstjórinn á Akureyri, formaður bæjarráðs, skipulagsstjóri og hönnuðir frá arkitektafyrirtæki Graeme Massie í Skotlandi, kynna hugmyndirnar í dag á Amtsbókasafninu frá kl. 14.00 til 15.30 og svara spurningum. Tillögurnar verða svo til sýnis á vegg- spjöldum á safninu til. 4. mars. Kynna tillögur að breyttum miðbæ LANDSBANKINN hefur nú fetaði í fótspor hinna ríkisbankanna og býður tímabundinn afslátt af upp- greiðslugjaldi vegna íbúðalána bankans og innborgunar á höf- uðstól. Veittur er 50% afsláttur af uppgreiðslugjaldinu á lánum sem eru með fasta vexti út lánstímann, og verður það 1% í stað 2% áður. Þá veitir bankinn 100% afslátt af upp- greiðslugjaldinu á lánum sem eru með endurskoðun vaxta á 5 ára fresti sé lánið greitt upp utan þess tímabils er vaxtaendurskoðun á sér stað, samkvæmt tilkynningu. Banki býður breytt kjör við greiðslu lána • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 Síðasti dagur lagersölu 90% afsláttur , Smáralind, sími 554 3960 • Kringlunni, sími 533 4533 Tax-free-bomba Fríhafnarverð Verið velkomi n Fríhafnarverð á öllum vörum í verslunum okkar þessa helgi fimmtudag til sunnudags LAGERSALA LÍN DESIGN www.lindesign.is/lagersala Úrval rúmteppa, púða, dúka, rúmfatnaðar ásamt ýmsu öðru. Sýniseintök og lítillega útlitsgallaðar vörur með allt að 80% afslætti. Lagersalan er á Malarhöfða 8, í brekkunni fyrir aftan Ingvar Helgason. Opið föstudag 16–20 & laugardag 10–14. AÐEINS ÞESSA EINU HELGI. www.feminin.is • feminin@feminin.is Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Nýjar vörur frá Str. 42-56 Bæjarlind 6 sími 554 7030 Opið í dag 10-16 NÝJAR VÖRUR Kjólar v/leggings-buxur Óska eftir olíumálverki í fallegum litum eftir Kjarval. Tilboð óskast send á box@mbl.is merktar: ,,K - 22175". Kjarval óskast

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.