Morgunblaðið - 21.02.2009, Page 12

Morgunblaðið - 21.02.2009, Page 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is „MEÐ versnandi efnahag grípa fleiri til þess óyndisúrræðis að stela úr verslunum,“ sagði Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar, á fundi um þjófnað úr verslunum. Hann segir að nauðsynlegt sé að lögum verði breytt til að hægt sé að taka á þessu vandamáli. Áætlað hefur verið að árlega hafi verið stolið úr verslunum fyrir 5-6 milljarða á ári undanfarin ár. Andrés segir flest benda til að þessi upphæð hafa verið að hækka umtalsvert að undanförnu. Tölur lögreglunnar um tilkynnta þjófnaði á höfuðborgarsvæðinu benda til að kostnaður verslunarinnar vegna þjófnaða úr búðum sé að aukast. Á árinu 2007 voru tilkynntir 200-400 þjófnaðir að jafnaði í hverjum mánuði. Flestar þessar tilkynn- ingar eru vegna þjófnaða úr versl- unum. Um mitt síðasta ár fór þess- um tilkynningum að fjölga og í desember voru tilkynntir 684 þjófnaðir en í sama mánuði árið á undan 264 þjófnaðir. Tölur um fjölda innbrota sýna sömu þróun. Tilkynnt voru 284 innbrot í desem- ber en 119 í desember 2007. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir að það eigi að vera sameiginlegt verk- efni lögreglunnar og verslunar- innar í landinu að takast á við þennan vanda. Auðvelt að stela á Íslandi Stefán segir að það orðspor fari af verslunum á Íslandi að þar sé auðvelt að stela. Starfsmenn séu almennt ungir og hafi ekki kunn- áttu til að verjast þjófnuðum. Vægt sé tekið á þjófnuðum hér á landi. Eyþór Víðisson, öryggis- fræðingur hjá VSI, hefur sömu sögu að segja. Sama fólkið sé tekið aftur og aftur, einnig sé það oft komið úr landi áður en takist að stöðva það. Stefán segir ljóst að hluti af þessum þjófnaði sé til kominn vegna skipulagðrar glæpastarf- semi. Lögreglan hafi í samvinnu við Póstinn og tollyfirvöld, lagt hald á nokkur tonn af þýfi sem var á leið úr landi. Persónuvernd gerði athugasemdir Samtök atvinnulífsins hafa í tæplega tvö ár unnið að verkefni sem kallast „Endurheimt verð- mæta“. Verkefnið miðar að því að þeir sem stela úr verslunum og eru gripnir greiði verðmæti þess hlut- ar sem stolið er og að auki upphæð sem hugsuð er sem greiðsla á kostnaði sem verslunin ber við ör- yggiseftirlit og öryggiskerfi. Guð- rún Björk Bjarnadóttir, lögmaður SA, segir sanngjarnt að þjófarnir, frekar en heiðarlegir við- skiptavinir, greiði eitthvað af þeim kostnaði sem verslunin ber vegna aðgerða sem miða að því að koma í veg fyrir þjófnaði. Guðrún Björk segir að núver- andi ástand í þessum málum sé óviðunandi. Mörg þjófnaðarmál séu felld niður þó að sök sé sönn- uð. Viðurlög séu lítil og almennum sektum sé ekki beitt. Guðrún Björk segir að fyrirmynd að verk- efninu „Endurheimt verðmæta“ sé sótt til Bretlands, Hollands, Bandaríkjanna, Kanada og Ástr- alíu. Verkefnið gengur út á að sá sem staðinn er að þjófnaði gangi frá samningi við verslunina um að greiða til baka það sem stolið er, auk upphæðar sem felur í sér kostnað við öryggisgæslu. Ekki er gert ráð fyrir að málinu sé vísað til lögreglu nema um háar upphæðir sé að ræða eða viðkomandi hafni því að greiða sektina. Miðað er við að greitt sé á staðnum, en hægt verði að semja um greiðslufrest. Persónuvernd hefur gert at- hugasemdir við verkefnið og telur Guðrún að þess vegna sé óhjá- kvæmilegt að styrkja lagagrund- völl með lagabreytingu áður en því er hrundið í framkvæmd. Málið hefur verið rætt við nýjan dóms- málaráðherra sem hefur heitið því að skoða vandlega hugmyndir SA. Morgunblaðið/RAX Þjófur Áætlað er að stolið verði úr verslunum fyrir 7,2 milljarða á Íslandi á þessu ári og kostnaður við öryggisgæslu er áætlaður 2 milljarðar. Fleiri stela í kreppu  Það orðspor fer af Íslandi að auðvelt sé að stela úr verslunum hér á landi  Starfsfólk sé ungt og tekið sé vægt á brotum ef þjófarnir séu stöðvaðir                         !  "  #  $  %              !  "  #  $  %       & ' ()*   +*,-./ 01. - ÓTRÚLEGAR litasjónhverfingar, óvenjulegar gastegundir á sveimi og sprengingar er meðal þess sem verð- ur hægt að upplifa í Háskólabíói í dag klukkan 13. Þá stendur Sprengjugengið fyrir efnafræðisýningu á heimsmæli- kvarða. Sprengjugengið saman- stendur af efnafræðingum við Há- skóla Íslands sem hafa lagt nótt við dag síðustu vikurnar til að skapa hina fullkomnu efnabrellusýningu fyrir alla fjölskylduna. Sýningin er liður í framlagi HÍ til Háskóladagsins sem er í dag, þar sem allar námsleiðir í háskólanámi á Íslandi verða kynntar í HÍ og í Ráð- húsi Reykjavíkur. Þar kynna sjö há- skólar námsframboð sitt fyrir næsta skólaár. jmv@mbl.is Sprengjur og brellur Galdrar? Litasjónhverfingar og sprengingar verða á dagskrá. EKKI er hægt að halda fram að hugsanleg full aðild Íslands að ESB myndi hafa veruleg áhrif á stöðu okkar og möguleika varðandi yfir- ráðarétt og nýtingu jarðrænna auð- linda. Þetta er niðurstaða Guðna A. Jóhannessonar orkumálastjóra sem flutti erindi á aðalfundi Samorku um íslenskar orkulindir og ESB. Guðni sagði þó jafnframt að hugsanlegar viðræður þyrftu að byggjast á ná- kvæmri greiningu á þeirri aðlögun að reglum ESB sem þegar hefur ver- ið samið um og þeim reglum sem eft- ir er að semja um. Fyrirkomulag eignarhalds náttúruauðlinda væri hins vegar ekki viðfangsefni ESB, heldur alfarið á hendi aðildarríkj- anna. Fram kom hjá Guðna að á ann- an tug erlendra fyrirtækja hefur nú þegar óskað upplýsinga vegna hugs- anlegrar olíuvinnslu á Drekasvæð- inu. Hefur ekki veruleg áhrif „ÞETTA eru reyndar sömu bílnúmer og hafa alltaf verið. Þau eru sett í smelliramma og það er auðveldara að taka þau úr rammanum en að skrúfa númerin af. Þetta er fljótlegra. Það hefur alltaf verið svolítið um þetta en hef- ur ef til vill verið að aukast nýverið enda búið að vekja at- hygli á þessu. Það gæti verið skýringin á því að fleiri fá hugmyndina eða heyra af henni,“ segir Karl Sigurðsson, sviðsstjóri ökutækjasviðs hjá Frumherja, um þjófnaði á númerum í tengslum við bensínstuld. Karl bendir aðspurður um tilvik af þessum toga á bíl- númeraþjófnað við Garðatorg nýverið. Þar hafi kona uppgötvað að aftara númerið hafði verið tekið af bílnum. Konan hafi í framhaldinu óskað eftir annarri númera- plötu og svo í kjölfarið fengið upphringingu þar sem henni var tjáð að númerið hefði verið notað við bensín- þjófnað. Hann telur ekki að þjófar noti sömu númerin ítrekað heldur fari frekar þá leið að notast við ný númer. Inntur eftir því hvort til greina komi að hætta notkun ramma af þessum sökum segir Karl að notkun þeirra hafi hafist fyrir tíu árum, eða fyrir daga upptökuvéla við bensíndælur. Þeir hafi því litið dagsins ljós áður en bens- ínþjófnaðir urðu tíðir. Þá velji ökumenn sjálfir hvort smellt númer séu sett á bifreiðar þeirra. Lögreglan segir afbrot af þessum toga tíð. „Það er því miður algengt að númerum sé stolið af vinnuvélum eða vörubílum í iðnaðarhverfum og þau síðan notuð við bensínþjófnaði,“ segir Gunnar Hilmarson, aðal- varðstjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Að hans sögn hefur gengið vel að hafa hendur í hári bensínþjófa, enda bensínstöðvarnar yfirleitt með góð myndavélakerfi. Hann hafði aðspurður ekki á hraðbergi tölur yfir fjölda slíkra brota. baldura@mbl.is Tíðir númeraþjófnaðir Morgunblaðið/Þorkell Númer Myndin tengist fréttinni ekki á nokkurn hátt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.