Morgunblaðið - 21.02.2009, Qupperneq 18
18 FréttirVIÐSKIPTI/ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009
Eftir Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
Í UPPGJÖRI Century Aluminum,
móðurfélags Norðuráls, sem birt var
í fyrrakvöld kemur fram að bygging
nýs álvers í Helguvík sé enn í endur-
skoðun. Framkvæmdum á svæðinu
sé haldið í lágmarki.
Century tapaði 898 milljónum
Bandaríkjadala á síðasta ári. Þar af
töpuðust 700 milljónir dala á síðasta
ársfjórðungi. Stærsti hluti tapsins
stafar af skattatilfærslum upp á 742
milljónir dollara. Reksturinn á síð-
asta ári skilaði hins vegar 365 millj-
ónum dollara fyrir afskriftir og fjár-
magnskostnað.
Tap ársins jafngildir um 102 millj-
örðum íslenskra króna miðað við
gengisskráningu Seðlabankans í
gær.
Erfitt á Íslandi næstu árin
Logan W. Kruger, forstjóri Cent-
ury, sagði þegar uppgjörið var kynnt
greinendum að efnahagslegt og póli-
tískt umhverfi á íslandi hefði haft lítil
áhrif á starfsemina á Grundartanga.
Hins vegar myndi rekstrarumhverf-
ið verða erfitt næstu ár vegna minni
hagvaxtar, verðbólgu og atvinnu-
leysis. Það hefði verið gripið til að-
gerða til að endurheimta stöðugleika
í hagkerfinu.
Það kom skýrt fram í máli for-
svarsmanna Century á fundinum að
þeir voru mjög ánægðir með þann
árangur sem náðst hefur í álverinu á
Grundartanga. Framleiðslan hefði
farið fram úr áætlunum og þeir væru
bjartsýnir á framhaldið þar.
Í tilkynningu frá Norðuráli í gær
kom fram að áform um byggingu ál-
vers í Helguvík hefðu ekki breyst.
Hægt hefði verið á framkvæmdum
þar síðasta haust þegar íslensku
bankarnir lentu í vandræðum og
leita þurfti nýrra aðila við fjármögn-
un bæði álvers- og orkufram-
kvæmda.
Áform í mikilli óvissu
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra sagði í samtali við mbl
sjónvarp eftir ríkisstjórnarfund í
gær að erfiðleikar í áliðnaði þyrftu
ekki að koma á óvart.
„Ég hef haft þá tilfinningu að öll
þessi áförm væru í mikilli óvissu ein-
faldlega vegna þess hvernig mark-
aðsaðstæður hafa þróast og afkoma
fyrirtækjanna,“ sagði Steingrímur.
Morgunblaðið/Ómar
Stjórinn Logan W. Kruger er bjart-
sýnn þrátt fyrir 100 milljarða tap.
Álver í Helguvík
enn háð óvissu
Mikil ánægja með Grundartangaálverið
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
BEINAR peningalegar eignir Ís-
lendinga í Hollandi rúmlega áttatíu-
földuðust frá árinu 2001, þegar þær
voru samtals 5,9 milljarðar króna, til
ársloka 2007 þegar þær stóðu í um
483 milljörðum króna, samkvæmt
hagtölum Seðlabankans.
Mest fé flutt til Hollands
Holland er sá staður sem íslenskir
aðilar kjósa að flytja langmest af pen-
ingunum sínum beint til.
Vert er að taka fram að ekki er víst
að allir þessir fjármunir séu geymdir
í Hollandi því þaðan er hægt að flytja
þá áfram hvert sem er án þess að þær
upplýsingar komi fram í tölum Seðla-
bankans.
Á þeim tölum sést að þessi mikla
tilfærsla á fé frá Íslandi til Hollands
hófst fyrst fyrir alvöru á árinu 2005,
en á því ári jukust beinar pen-
ingaeignir Íslendinga þar um 143
milljarða króna. Árið eftir voru síðan
fluttir þangað rúmlega 50 milljarðar
króna til viðbótar.
Mestu peningaflutningarnir áttu
sér þó stað á árinu 2007 þegar beinar
peningalegar eignir í Hollandi jukust
úr um 201 milljarði króna í 483 millj-
arða króna, eða um 140 prósent. Ís-
lenskir aðilar hafa einnig styrkt
tengsl sín við Lúxemborg mikið á
undanförnum árum. Allir gömlu við-
skiptabankarnir: Kaupþing, Lands-
banki og Glitnir ráku þar dótturfélög
sem unnu náið með íslensku við-
skiptalífi. Þau tengsl sjást vel á því að
alls stunduðu 398 félög sem skráð
voru í Lúxemborg viðskipti á Íslandi
samkvæmt upplýsingum frá fyr-
irtækjaskrá. Mörg þeirra voru eig-
endur stærstu fyrirtækja Íslands.
Þau voru nánast undantekning-
arlaust í eigu íslenskra aðila.
Fé í Lúxemborg áttfaldast
Íslendingar áttu samtals um 131
milljarð króna í beinum peninga-
legum eignum þar í landi í árslok
2007. Þær áttfölduðust frá árinu 2001.
Líkt og kom fram í Morgunblaðinu
á fimmtudag þá komu um 82,5 pró-
sent af allri beinni peningalegri fjár-
festingu erlendra aðila á Íslandi frá
Hollandi og Lúxemborg, eða samtals
um 749 milljarðar króna í árslok 2007.
Þorri félaganna frá þessum tveimur
löndum sem voru að fjárfesta á Ís-
landi voru, og eru, í eigu íslenskra að-
ila. Því er líklegt að um hringrás
sama fjármagns sé að ræða.
Íslenskir peningar flæddu
í miklu magni til Hollands
Peningalegar eignir Íslendinga í Hollandi rúmlega áttatíufölduðust á sex árum
2'
3*.-' &
4
5
% '*
4
26)7
'/ $
-
"0238.
9:;-
48',
3 < -*
"'5
)
Amsterdam Íslenskir aðilar flytja peningana sína helst til Hollands.
#= #=
>
>
#= 4=
>
>
%?
$
>
>
A"B
% =
>
>
#=
#=
>
>
SKULDIR heimilanna hafa aukist
hratt undanfarin ár og mun hrað-
ar en ráðstöfunartekjur sam-
kvæmt fréttabréfi greiningar Ís-
landsbanka. Skuldir heimilanna
voru þannig um 2.017 milljarðar
króna samkvæmt áætlun grein-
ingar Íslandsbanka í lok síðastlið-
ins árs. Ráðstöfunartekjur heim-
ilanna á síðasta ári námu um 741
milljarði króna. Skuldir sem hlut-
fall af ráðstöfunartekjum stóðu þá
í 272% en til samanburðar var
þetta hlutfall 178% árið 2000 og
hefur því hækkað um 94 prósentu-
stig síðan.
Þetta hlutfall er að meðaltali
134% í Bandaríkjunum, 180% á Ír-
landi, 140% á Spáni svo einhver
lönd séu nefnd.
Um 18% af skuldum heimilanna
eru gengisbundin og því til við-
bótar eru áhrif gengisins talsverð
óbeint.
2.017 millj-
arða skuld
Um 18% skulda
gengisbundin
SAMKOMULAG hefur orðið um að
Ingólfur V. Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Byrs verðbréfa, láti af
störfum hjá fyrirtækinu frá og með
deginum í gær.
Samkomulagið er gert í fullri sátt
á milli aðila, að því er segir í tilkynn-
ingu frá Byr.
Mjöll Flosadóttir sem er for-
stöðumaður innri endurskoðunar
hjá Byr mun tímabundið stýra Byr
verðbréfum og á sama tíma mun
Björn Steinar Pálmason tímabundið
stýra innri endurskoðun Byrs.
Stjórnandi í
Byr hættur
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
SKILANEFND Landsbankans
reiknar með því að um 72 milljarðar
króna muni falla á íslenska skatt-
greiðendur vegna Icesave-reikninga
bankans í Bretlandi og Hollandi.
Eignir bankans eftir afskriftir eru
taldar nema 1.195 milljörðum króna
en forgangskröfur, sem eru skuld-
bindingar vegna Icesave, eru 1.338
milljörðum króna. Munurinn er 144
milljarðar króna og reiknar skila-
nefndin með því að um helmingur
þeirrar upphæðar lendi á íslenska
ríkinu.
Lárus Finnbogason, formaður
skilanefndar Landsbankans, segist
reikna með því að það taki þrjú til
sjö ár að fá inn fyrir öllum eignum.
„Mjög stór hluti eignanna er lána-
söfn. Við gerum ráð fyrir því að lán-
in greiðist upp á lánstímanum. Ef
það verður eitthvað lítið eftir mun-
um við reyna að selja lánin.
Aðrir kröfuhafar fá ekkert
Aðrir kröfuhafar munu ekki fá
neitt upp í kröfur sínar. Meðal
þeirra eru allir eigendur skulda-
bréfa sem útgefin voru af bank-
anum, en þar á meðal eru margir ís-
lenskir lífeyrissjóðir. Alls mun tap
íslenskra aðila vegna verðbréfaút-
gáfu og annarra lána Landsbankans
nema 1.381 milljarði króna. Skila-
nefndin áætlar að Landsbankinn
þurfi að afskrifa 1.452 milljarða
króna að lokinni skuldajöfnun og er
mestur hluti þeirra afskrifta vegna
tapaðra útlána til viðskiptavina
bankans og krafna á önnur fjár-
málafyrirtæki.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landsbankinn Afskriftir eftir skuldajöfnun nema 1.452 milljörðum króna.
Icesave kostar
um 72 milljarða
Hilmar Ragnarsson, og Þórhallur
Guðlaugsson, sem Samkeppniseft-
irlitið skipaði í stjórn Teymis í byrjun
febrúar, sendu á miðvikudag bréf til
Teymis þar sem þeir harma birtingu
annars bréfs frá þeim í fjölmiðlum. Í
fyrra bréfinu var Teymi meðal ann-
ars sakað um viðskiptasóðaskap. Þeir
sögðu sig úr stjórn Teymis eftir að
hafa setið þar í fjóra daga.
Hilmar og Þórhallur segja að fjöl-
miðlar hafi ruglað hugtakinu við-
skiptasóðaskapur saman við „önnur
hugtök sem koma málinu ekkert við,
s.s. eins og viðskiptaóreiðu. Það er
rangt og byggt á misskilningi […]
Efnisatriði deilunnar, hver svo sem
sökin er, eru með þeim hætti að við
kusum að nota umrætt hugtak um
reynslu okkar og treystum okkur
ekki til að starfa áfram í stjórninni.“
Hilmar og Þórhallur segjast eftir sem
áður hafa ýmislegt við framkomu
Teymis að athuga. Meðal annars hafi
Teymi sett fram mjög alvarlegar
ásakanir á hendur öðrum þeirra í
bréfi og þeir hafi ekki séð aðra leið en
að hætta í stjórninni. thordur@mbl.is
Morgunblaðið/Heiddi
Tal Deilurnar snúast um setu í
stjórn Tals, sem Teymi á hlut í.
Birting á
bréfi hörmuð