Morgunblaðið - 21.02.2009, Page 19

Morgunblaðið - 21.02.2009, Page 19
Fréttir 19VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009 Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is NAFNABREYTING á Glitni í Ís- landsbanka í gær útilokar ekki að bankinn verði sameinaður öðrum banka, segir Birna Einarsdóttir bankastjóri. „Mikilvægt er að gerð efnahagsreikningar bankanna klárist áður en við förum í slíkar aðgerðir. Ég er alveg viss um að það verður skoðað þegar það er búið.“ Nafnabreytingin og auglýsinga- kostnaður nemur allt að 20 milljónum króna sem er um fimm til tíu prósent af þeirri upphæð sem breytingin kostaði þegar bankinn hlaut Glitnis- nafnið fyrir rétt tæpum þremur ár- um. Bankastjóranum finnst ekki of geyst farið þó að bankinn hafi aðeins bráðabirgðaefnahagsreikning. „Við höfum ekki litið svo á að við höfum engan efnahagsreikning. Við vitum hver útlánin og innlánin eru. Það eina sem er óljóst er verðlagning á skuldabréfinu við gamla bankann og endanleg tala á eignatilfærslum milli gamla og nýja bankans.“ Bank- inn hafi því unnið sem hann hafi efna- hagsreikning. „Það þýðir ekkert ann- að en að horfa fram á veginn og halda áfram.“ 100 starfsmenn bankans völdu gamla merkið, í Glitnislitnum, sem einkenni hans. Merkið er þrykkt, límt og prentað yfir það gamla á kynning- arvarningi bankans í sparnaðar- skyni. Einkunnarorð bankans verða nú: fagleg, jákvæð og framsýn. Bankastarfsemi ekki stopp Bankinn hefur frá bankahruninu fryst 8.000 lán einstaklinga. Birna segir því rangt að ákvarðanafælni hrjái bankana. Íslandsbanki hafi ekki aðeins fryst lán einstaklinga heldur einnig fyrirtækja. Bankinn hafi svig- rúm til að lána peninga og það geri hann. Hins vegar sé eftirspurnin ekki mikil vegna hárra vaxta. „Það hefur tekið tólf til fjórtán þús- und vinnustundir að gera þessar skil- málabreytingar,“ segir Birna. Bank- inn hafi einnig brugðist við efnahagsástandinu, lækkað vexti og tekið á málum þeirra sem tóku erlend bílalán svo eitthvað sé nefnt. „Á næstu átta mánuðum stendur fólki til boða að borga eingöngu 50% af jan- úargreiðslu bílasamningsins.“ Bank- inn gefi ekki mismuninn, heldur greiðist hann í lok lánstímans. Þetta rýri veðstöðu bankans. „En við sjáum að þetta er það mikilvægur hluti að við verðum að bregðast við með þess- um hætti.“ Bankinn skoðar nú tvær leiðir til að leysa vanda þeirra sem tóku er- lend húsnæðislán. Annars vegar að festa tölu lánanna í ákveðinni greiðslu, sem miði til dæmis við þá upphæð sem þeir greiddu í maí í fyrra. „[Viðskiptavinir] myndu þá greiða fasta tölu sem myndi breytast eftir greiðslujöfnunarvísitölu sem byrjað var að nota á síðasta ári. Síðan erum við að skoða aðra leið undir vinnuheitinu Tímavélin.“ Þá yrði lán- ið reiknað út eins og það væri innlent og verðtryggt frá þeim tíma sem það var tekið í erlendu. „Mismunurinn á þeim greiðslum sem viðskiptavinur- inn hefur verið að greiða og þeim greiðslum sem verðtryggða lánið byði myndi færast aftur fyrir lánið,“ segir hún. Mjög mikilvægt sé að jafnræðis sé gætt á milli þeirra sem tóku verð- tryggð lán og þeirra sem eru með er- lendu lánin. Bankinn vænti niður- stöðu fljótlega. „Við förum ekki af stað fyrr en við getum lagt lausnir fyrir fólk og það getur valið og tekið upplýstar ákvarðanir,“ segir hún og leggur til að enginn afsláttur verði gefinn af lánunum. „Ég tel að það skapi óróa í samfélaginu auk þess sem það kostar gríðarlega peninga og lendir á skatt- greiðendum.“ Útilokar ekki sameiningu Þrátt fyrir að Glitni hafi aftur verið breytt í Íslandsbanka telur bankastjórinn að sam- eining við annan banka verði skoðuð þegar nýi efnahagsreikningurinn liggur fyrir Morgunblaðið/Golli Nýr banki? Birna Einarsdóttir bankastjóri kynnti í gær að Glitnir hefði nú aftur hlotið nafnið Íslandsbanki. Bankinn bar Glitnisnafnið í þrjú ár. Í HNOTSKURN » Nafnabreytingin kostarallt að tuttugu milljónir. »Viðskiptavinir geta notaðGlitniskredit- og debet- kortin út gildistímann. »Bankinn einblínir enn ásjávarútveg og orkugeir- ann og telur orðspor þeirra ekki hafa skaðast þrátt fyrir ástandið. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, blæs á gagnrýn- israddir um að fjársterkir aðilar komist ekki að kjötkötlunum í bönkunum. Ekki sé komið að því að selja fyrirtæki í rekstr- arvanda, utan Árvakurs útgáfu- félags Morgunblaðsins. Önnur fyrirtæki séu ekki í opnu sölu- ferli. „Við erum enn að reyna að leysa málin með viðskiptavin- um okkar. Að sjálfsögðu veit ég að það kemur að þeim tíma- punkti að við þurfum að leysa til okkar fyrirtæki. En sem bet- ur fer er ekki komið að því enn en það fer að gerast í ein- hverjum tilvikum,“ segir hún. „Þá þurfum við samkvæmt lög- um um fjármálafyrirtæki að flytja þau fyrirtæki í eignaum- sýslufélag og megum ekki halda þeim hlut nema í átján mánuði.“ Birna segir að miklu máli skipti að ferli við sölu fyrirtækja sé opið og hún finni að það skipti máli í samfélaginu. „Hér innan- húss ætlum við að gera þetta eins vel og við mögulega getum og eins faglega og hægt er.“ Skuldbindandi tilboð í Árvakur voru opnuð í gær. Þrjú tilboð bárust og á starfsmannafundi kom fram að tvö þeirra þyki vert að skoða nánar. Á mbl.is kom fram að Almenningshluta- félag, undir forystu Vilhjálms Bjarnasonar og fleiri, skilaði til- boði, sem og hópur sem Óskar Magnússon hæstaréttar- lögmaður leiðir auk þess sem tilboð frá ástralska fjárfest- inum Steve Cosser barst. Fyrirtæki til sölu AÐALFUNDUR ICELANDAIR GROUP HF. 2009 DAGSKRÁ: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á síðastliðnu starfsári 2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar 3. Ákvörðun um ráðstöfun tekjuafgangs félagsins, þ.m.t. greiðslu arðs 4. Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf 5. Ákvörðun um þóknun til stjórnar 6. Kosning stjórnar félagsins 7. Kjör endurskoðenda (endurskoðunarfyrirtækis) 8. Starfskjarastefna 9. Önnur mál löglega fram borin Framboð til stjórnar skal tilkynna skriflega til stjórnar félagsins, aðalskrifstofu á Reykjavíkurflugvelli, skemmst fimm dögum fyrir aðalfundinn. Í tilkynningunni skal greina nafn frambjóðanda, kennitölu, heimilisfang, upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu, hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% í félaginu. Óski hluthafi eftir að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á fundinum skal ósk hans komið skriflega til aðalskrifstofu félagsins sjö dögum fyrir aðalfund. Reikningar félagsins og tillögur liggja frammi á aðalskrifstofu hluthöfum til sýnis viku fyrir fundinn, en verða síðan afhent ásamt fundargögnum til hluthafa á fundarstað. Stjórn Icelandair Group hf. Aðalfundur Icelandair Group hf. verður haldinn mánudaginn 2. mars 2009 kl. 16.00 á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu. ÍS L E N S K A /S IA .I S /I C E 45 26 1 02 /0 9 Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is TVEIR menn voru í gær sakfelldir í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa vísvitandi sent hlutafélagaskrá ranga tilkynningu vegna einka- hlutafélagsins FS13. Voru þeir dæmdir til að greiða, hvor um sig, 500 þúsund króna sekt til ríkissjóðs auk málsvarnarlauna verjenda sinna. Snemma árs 2007 leitaði Árni B. Sigurðsson fjárfestir til fyrirtækja- sviðs KPMG. Hann sóttist eftir að- stoð við að stofna einkahlutafélag og finna fjárfesta til samstarfs um viðskiptahugmynd sína, rekstur við- arkurlsverksmiðju í Króatíu. Úr varð að hann keypti félag af lager hjá fyrirtækinu CF fyrirtækjasölu, sem er í eigu KPMG. Félagið sem Árni keypti heitir FS13 ehf. Til liðs við hann kom annar fjárfestir. Brot á einkahlutafélagalögum Samkvæmt ákæru, útgefinni af ríkislögreglustjóra á hendur tveim- ur fyrrverandi starfsmönnum KPMG, þeim Ágústi Þórhallssyni héraðsdómslögmanni, sem þá var lögfræðingur fyrirtækjasviðs KPMG, og Hirti J. Hjartar, sem þá var ráðgjafi hjá KPMG, eru þeir sakaðir um að hafa gert tilraun til að hafa FS13 af Árna B. Sigurðs- syni með ólögmætum hætti. Þeir voru sakfelldir fyrir að hafa brotið gegn lögum um einkahluta- félög með því að senda ranga til- kynningu til fyrirtækjaskrár ríkis- skattstjóra vegna FS13. Tilkynningin var um breytingu á prókúru, stjórn og firmaritun og um nýjar samþykktir. Í tilkynningunni kemur fram að breytingarnar á fé- laginu hafi verið ákveðnar á lögleg- um hluthafafundi, en þeim Ágústi og Hirti átti alltaf að vera ljóst að hann var ólöglegur. Ágreiningur og tortryggni Fram kom í málinu að þessar ráðstafanir voru gerðar í kjölfar ágreinings og tortryggni milli hlut- hafanna. Hjörtur og Ágúst báru því meðal annars við að ráðstafanir þeirra hefðu verið neyðarréttarverk til að koma í veg fyrir að Árni drægi sér fjármuni af bankareikningi kró- atísks dótturfélags. Dómurinn benti á að þeim hefði verið í lófa lagið að neyta annarra úrræða í þeim til- gangi. Við ákvörðun refsingar var horft til þess að ákærðu hafa ekki áður gerst sekir um refsiverða sáttsemi, svo vitað sé. Hins vegar var horft til þess að brotavilji var að mati dóms- ins einbeittur og brotin beindust gegn þeim mikilvægu hagsmunum sem felast í réttri skráningu félaga hjá hlutafélagaskrá svo að treysta megi upplýsingum sem skráin geymir. Loks beindust brot ákærðu gegn ríkum einkahagsmunum Árna Benónýs Sigurðssonar en aðgerðir þeirra miðuðu að því að svipta hann hlut í einkahlutafélaginu FS13. Ragnheiður Harðardóttir, settur héraðsdómari, dæmdi í málinu. Björn Þorvaldsson aðstoðarsak- sóknari flutti málið fyrir ákæruvald- ið en verjendur voru Sigmundur Hannesson hrl. og Sigurður G. Guð- jónsson hrl. Dæmdir fyrir að senda ranga tilkynningu Reyndu að hafa FS13 ehf. af eiganda

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.