Morgunblaðið - 21.02.2009, Side 23

Morgunblaðið - 21.02.2009, Side 23
nokkrum frambjóðendum Samfylk- ingarinnar lið fyrir síðustu kosn- ingar en enginn úr forystu Sam- fylkingarinnar hefur átt orðastað við mig eftir kosningar.“ Hvernig meturðu Ingibjörgu Sólrúnu sem stjórnmálamann? „Ég hef ekkert nema gott um hana að segja. Ég studdi hana sem formann Samfylkingarinnar á sín- um tíma vegna þess að hún hafði sameinað sundurleita hjörð vinstri- manna í Reykjavíkurlistanum og hélt þeim meirihluta þrátt fyrir harðar atlögur valdakjarna Sjálf- stæðisflokksins. Það er hennar stóra afrek. Síðan fór hún í lands- málapólitíkina og þar tókst ekki betur til en svona. Staðreyndin er sú að á hennar vakt hrundi þetta allt saman. Og pólitíkin er harður húsbóndi.“ Af hverju ertu viss um að Ingi- björg Sólrún dragi sig í hlé og hleypi Jóhönnu að? „Ég sagðist ekki vera viss um það, ég sagðist ganga út frá því sem gefnu. Ingibjörg Sólrún hefur á ferli sínum lagt áherslu á að hún sé ekki venjulegur valdstreitu- pólitíkus sem keppi að völdum valdanna vegna og sitji á valdastóli hvað sem í hefur skorist. Stundum hefur hún lagt áherslu á að konur í stjórnmálum séu öðruvísi en karlmenn og ég held að það sé al- veg rétt hjá henni að konur hafa ríkulegri ábyrgðartilfinningu en karlmenn. Alla vega á það við um þær konur sem ég þekki.“ Hefurðu talað við Jóhönnu Sig- urðardóttur nýlega? „Nei.“ Ætlar þú í prófkjör fyrir Sam- fylkinguna eða einhvern annan flokk? „Ég veit ekkert hvernig Sam- fylkingin ætlar að haga sínum framboðsmálum. Ef hún gerir það með prófkjöri innan flokks þá úti- loka ég það ekki. Og ef efnd verða loforð um að breyta kosn- ingalögum á þann veg að kjósand- inn fái loks þann lýðræðislega rétt að velja sér einstaklinga, með öðr- um orðum að persónukjör verði leyft, þá finnst mér framboð vel koma til greina. En það hugnast mér ekki að fara í prófkjörsbar- áttu með auglýsingamennsku, glimmer og skrípalátum. Ég er vaxinn upp úr því.“ En þú stefnir aftur í pólitík? „Ég hitti Hjörleif Guttormsson á götu um daginn. Hann sagði: „Sá maður sem sækist eftir því að fara í pólitík núna er náttúrlega ekki með öllum mjalla. Er það ekki rétt, Jón Baldvin?“ Ég svaraði: „Jú, mikið rétt, Hjörleifur, en leit- ar ekki klárinn þangað sem hann er kvaldastur. Og getum við horft upp á þetta ógrátandi?““ Hverjir voru skúrkarnir? Ýmsir telja að þú getir ekki skorast undan því að bera ábyrgð á því hvernig komið er þar sem þú stofnaðir til Viðeyjarstjórnarinnar og komst þar með Davíð Oddssyni til valda. „Viðeyjarstjórnin var mynduð um eitt stórt mál, EES-samning- inn. Fyrir kosningarnar 1991 gerð- ist það undur að samstarfsflokkar mínir, Framsóknarflokkur og Al- þýðubandalag, hlupust brott frá ábyrgð sinni á þessum samningi og notuðu kosningabaráttuna til að afflytja hann og saka mig nánast um landráð og gengu sumir svo langt að það var engin leið að treysta því að þeir myndu greiða EES-samningnum atkvæði eftir það sem þeir höfðu um hann sagt. Til að tryggja þessum samningi framgang átti ég ekki annarra kosta völ en að spyrja Davíð Odds- son hvort hann væri tilbúinn að falla frá andstöðu við samninginn og tryggja honum framgang. Um það var stjórnin mynduð. Það var bráðnauðsynlegt á þeim tíma að mínu mati. Nú heyrast raddir sem segja að EES-samningurinn hafi verið upp- hafið að hruninu. Menn eru á harðahlaupum við að finna skýr- ingar annars staðar en þar sem skýringar er að finna. EES- samningurinn breytti öllu. Ég tek alla ábyrgð á því. EES-samning- urinn er örugga hraðbrautin með margar akreinar sem við byggðum til grannlanda okkar. Hann bein- tengdi okkur við innri markað Evrópusambandsins og við tókum upp alla löggjöf Evrópusambands- ins á sviði viðskipta með vörur og þjónustu og fleira. Þeir sem nú segja, eins og Geir Haarde og Björn Bjarnason, að öll þessi ósköp hafi byrjað með EES- samningnum réttlættu það áður að Ísland þyrfti ekki að ganga í Evr- ópusambandið með því að segja: „EES-samningurinn er svo góður að við þurfum ekki að ganga í Evrópusambandið.“ Er samning- urinn allt í einu orðinn svo vondur að hann orsaki hrun þjóðfélagsins fimmtán árum seinna? Ef EES- samningurinn orsakaði þetta hrun, hvernig stendur þá á því að ekkert land á Evrópska efnahagssvæðinu er hrunið, nema Ísland? Þarna eru menn hlaupandi um víðan völl, segja eitt í gær og annað í dag, leitandi að skýringum aftur í for- tíð. Hvar ætli þeir staðnæmist á flóttanum? Við lýðveldistökuna 1944 eða við landnámið 874? Ef það verða slys á hraðbraut vegna ölvunaraksturs eða ofsa- aksturs eins og gerðist hjá mönn- unum sem áttu og stýrðu bönk- unum, er þá sá sem lagði veginn dreginn fyrir dóm og dæmdur? Ekki í réttarríkjum. Lögreglan hefur sitt hlutverk, í þessu tilviki Seðlabankinn og eftirlitsstofn- anirnar, og á að handsama þá sem brjóta reglur. Það er ekki EES- samningurinn sem gaf mönnum frelsi með ábyrgð sem er söku- dólgur eða undirrót. Það er fjar- stæða að halda því fram. Það eru íslenskar stofnanir sem brugðust. Þar var ekki farið að reglum. Tökum Icesave-málið. Lyk- ilspurningin þar er hver er skúrk- urinn og hver er fórnarlambið? Hverjir voru skúrkarnir? Það voru eigendur og bankastjórar Lands- bankans sem gerðu það sem þeir gerðu vitandi vits um að ábyrgðin myndi að lokum lenda á íslensku þjóðinni. Hverjir voru féflettir? Það voru sparifjáreigendur í Bret- landi og Hollandi og að lokum skattgreiðendur á Íslandi. Svo koma þessir menn og segja: „Þetta var allt reglugerðum frá Evrópu- sambandinu að kenna.“ Þvílíkir eymingjar, þeir ættu að skammast sín!“ Þú fagnar sjötugsafmæli þínu klukkan tvö í dag með málþingi í Iðnó. Umræðuefnin þar eru Nor- ræna velferðarríkið og óvinir þess og Endurreisn í anda jafn- aðarstefnu. Af hverju þetta efni? „Ég mátti velja efnið og valdi mín hjartans mál. Hafi einhvern tíma verið ástæða til umræðu um norræna velferðarríkið sem fyr- irmynd og sameiginlega framtíð okkar Evrópu þá er það núna. Við þurfum að hafna skrípamyndinni af amerískum kapítalisma sem nú er hvort eð er hruninn á Íslandi en óð hér uppi árum saman. Stjórn- málamenn þurfa að fá að ræða við þjóðina í rólegheitum og með rök- um um það hvers vegna Evrópa er ekki óvinur heldur sameiginlegur vettvangur lýðræðisríkja þar sem við eigum að skipa okkur í sveit til framtíðar. Þetta eru málin sem við eigum að ræða í kosningabarátt- unni.“ » Ef Ingibjörg Sól-rún heldur til streitu kröfu sinni um forystuna og víkur ekki þá mun ég bjóða mig fram. Ég hef engu að tapa en allt að vinna. Samfylkingin hefur líka allt að vinna. Morgunblaðið/RAX MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009 Í fermingarblaði Morgunblaðsins er fjallað um allt sem tengist fermingunni og fermingarundirbún- ingnum ásamt því hvernig þessum tímamótum í lífi fjölskyldunnar er fagnað. Blaðið í ár verður sérlega glæsilegt og efnismikið. Meðal efnis: • Veitingar í veisluna – heimatilbúnar eða keyptar • Mismunandi fermingar • Skreytingar í veisluna • Veisluföng og tertur • Fermingartíska, stelpur og strákar • Fermingarförðun og hárgreiðsla • Fermingarmyndatakan • Fermingargjafir – hvað er vinsælast? • Hvað breytist við þessi tímamót í lífi barnanna? • Hvað merkir fermingin? • Viðtöl við fermingarbörn • Fermingarskeytin • Ásamt fullt af spennandi fróðleiksmolum Fermingarblaðið verður borið út á hvert einasta heimili á höfuðborgarsvæðinu ásamt nágrannabyggðum. Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is Tekið er við auglýsingapönt- unum til kl. 16.00, mánudaginn 2. mars. fermingar kemur út föstudaginn 6. mars Efnismikið sérblað Morgunblaðsins um – meira fyrir auglýsendur Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.