Morgunblaðið - 21.02.2009, Qupperneq 25
Daglegt líf 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
É
g á þá ósk heitasta að
hér sé upprætt mein
sem er falið og við-
gengst í samfélaginu,“
segir móðir sem lifað
hefur þá martröð að barnið hennar
hefur orðið fyrir einelti árum saman í
grunnskóla á Selfossi. Hún segir
jafnframt að meinið hafi verið fyrir
hendi í bænum í gegnum árin. „Kerf-
ið sem á að vera til staðar virkar
ekki,“ segir hún. „Olweus-áætlunin
virkar ekki, enda er ekki unnið eftir
henni, hún er bara plagg á veggjum
skólans.“
Móðirin segir kerfið einblína á þol-
endur en gerendur sleppi alveg. „Það
er viðhorfið að eitthvað sé að þolanda,
hann er svona og hann er hinsegin, og
fjölskyldan hans líka.“ Hún segir þol-
andanum gert að fara til sálfræðings,
„… það hljóti að vera eitthvað að hon-
um!“ en varla sé rætt við gerendur og
þeirra aðstandendur. „En það er mín
skoðun að þetta þurfi að breytast og
að unnið sé með gerendur, því það er
eitthvað mikið að hjá þeim sem haga
sér með þessum hætti. Ég fagna um-
ræðu um þessi mál því áður en hægt
er að bregðast við þarf að viðurkenna
ástandið, svo hægt sé að huga að því
að laga það, og það er tími til kom-
inn,“ segir móðirin og bætir við að
óþolandi sé að fólk þurfi að flýja stað-
inn vegna „veikra einstaklinga“ sem
líðst að níðast á börnum og fjöl-
skyldum þeirra. „Þetta er árás á það
sem er manni heilagast; barnið
manns. Það þekkir enginn nema sá
sem hefur reynt það hversu sárt það
er fyrir þolanda og aðstandendur að
vera í þeim sporum. Það myndast sár
á sálinni sem gróa seint,“ segir móð-
irin. Hún treysti sér ekki til að koma
fram undir nafni þar sem aðeins hef-
ur dregið úr eineltinu gagnvart
barninu hennar og hún vill ekki
hætta á að martröð undangenginna
ára hefjist að nýju.
Ábyrgð hvílir á
skólastjórnendum
Ábyrgð í eineltismálum er í hönd-
um skólastjórnenda. Í grunn-
skólalögum er fjallað um velferð
nemenda og gert ráð fyrir því að
skólar viðhafi forvarnar- og við-
bragðsáætlanir, m.a. til að vinna gegn
einelti og skýrt kemur fram að skól-
inn á að vera griðastaður fyrir börn.
„Það er lögbundið í grunnskólalög-
unum að börn eiga að njóta bernsku
sinnar,“ segir
Guðni Olgeirsson, sérfræðingur í
menntamálaráðuneytinu. Skólastjóri
ber ábyrgð á því að framfylgja nám-
skránni en ekki er haft eftirlit með
framfylgninni. Starfsháttaviðmiðun í
eineltismálum hefur verið í aðal-
námskrá í 10 ár.
Undanfarin ár hefur verið í boði
fyrir grunnskóla að undirgangast Ol-
weus-áætlunina. „En það er aldrei
hægt að leysa svona mál í eitt skipti
fyrir öll. Það þarf alltaf að vinna að
þeim markvisst. Einelti er aldrei
átaksmál,“ segir Guðni.
Þegar foreldrar eru í þeim sporum
að þeim finnst þeir ekki fá andsvar
við umkvörtunum sínum í einelt-
ismálum geta þeir snúið sér til sér-
fræðiþjónustu viðkomandi skóla.
„Það eiga allir skólar að hafa eitt-
hvert svoleiðis bakland innan síns
sveitarfélags,“ segir Guðni.
Jafnframt leita margir foreldrar til
samtakanna Heimilis og skóla og
Þorlákur Helgason, framkvæmda-
stjóri Olweus-verkefnisins, hefur
einnig fengið mörg mál inn á sitt
borð. „Það hefur komið til okkar sú
ábending að það þyrfti að vera til ráð-
gjafarskrifstofa á landsvísu, en svo er
bara ekki,“ segir Guðni. „Við heyrum
það hins vegar úr öllum áttum að
menn vilji að það sé tekið á þessum
málum á samræmdari hátt,“ segir
hann og bætir við að ekki sé hægt að
líða að ekki sé brugðist við. „Þetta er
svo alvarlegt,“ segir hann.
Skólafulltrúi í minni
sveitarfélögum
Kristinn Breiðfjörð Guðmundsson,
formaður Skólastjórafélags Íslands,
segir að þegar foreldrar fái ekki við-
brögð innan skólans taki sveitarfélag-
ið við. „Ef við tökum stærsta sveitar-
félagið, Reykjavík, þá er þar
sérstakur starfsmaður sem er fulltrúi
foreldra. Foreldrar geta snúið sér til
hans,“ segir Kristinn og bætir við að
hann geri ráð fyrir að svipuð embætti
séu í öllum sveitarfélögum. „Þá er
kannski sá sem er skólafulltrúi hjá
minni sveitarfélögum sá aðili sem fólk
ætti að snúa sér til,“ segir Kristinn.
Í svæsnum málum, eins og t.d.
þegar líkamsárás er gerð, kemur til
kasta barnaverndarnefnda. „Það eru
þó tiltölulega fá mál sem fara í slíka
vinnslu,“ segir hann.
Skólamálanefnd er innan Skóla-
stjórafélagsins sem tekur fyrir einelt-
ismál og á hverju ári er námsstefna
innan félagsins þar sem tekin eru fyr-
ir ákveðin fagefni.
Morgunblaðið/Heiddi
Einelti er aldrei átaksmál Vinna þarf markvisst að því að uppræta einelti. Ábyrgðin í eineltismálum hvílir á herðum skólastjóra, hann ber ábyrgð á því að námskrá sé framfylgt.
Lögbundið að börn njóti bernskunnar
Í 13. grein nýrra grunnskólalaga
segir m.a.:
„Réttur nemenda.
Grunnskóli er vinnustaður
nemenda. Allir nemendur
grunnskóla eiga rétt á kennslu
við sitt hæfi í hvetjandi náms-
umhverfi í viðeigandi húsnæði
sem tekur mið af þörfum þeirra
og almennri vellíðan. Grunn-
skóli skal í hvívetna haga störf-
um sínum þannig að nemendur
finni til öryggis og njóti hæfi-
leika sinna. Nemendur eiga rétt
á því að njóta bernsku sinnar í
öllu starfi á vegum skólans. […]
Taka skal tillit til sjónarmiða
þeirra eins og unnt er.
Hver nemandi skal hafa um-
sjónarkennara. Umsjónarkenn-
ari fylgist náið með námi nem-
enda sinna og þroska, líðan og
almennri velferð, leiðbeinir
þeim í námi og starfi, aðstoðar
og ráðleggur þeim um persónu-
leg mál og stuðlar að því að efla
samstarf skóla og heimila.“
Sjá nánar á slóðinni: ny-
menntastefna.is.
„Finni til örygg-
is og njóti hæfi-
leika sinna“
Ótrúleg sértilboð!
Moggaklúbburinn, í samstarfi við Heimsferðir, býður áskrifendum frábær tilboð á
ferðum til Kanarí í mars. Um er að ræða sértilboð 18. og 25. mars. Ferðin 18. mars
er í 18 nætur og ferðin 25. mars er í 11 nætur. Þú velur hvort þú vilt kaupa stökktu
tilboð (sértilboð 1) eða gistingu á Club Green Oasis með öllu inniföldu. Club Green
Oasis er íbúðagisting sem líkað hefur vel meðal farþega okkar í vetur. Gríptu þetta
einstaka tækifæri og smelltu þér í vetrarfrí með Heimsferðum og njóttu lífsins á
þessum vinsæla áfangastað á ótrúlegum kjörum.
Þú spa
rar allt
að
47.800
kr. á ma
nn
- allt að
191.20
0 kr. m
.v. að f
jórir fe
rðist sa
man *
18. mars – 18 nætur25. mars – 11 nætur
kr.99.990
– 11 nætur með allt innifalið
Kanarí
Ath. mjög takmarkaður fjöldi sæta og gistingar í boði á þessu sértilboði.
frá aðeins
kr. 79.990
– 11 nætur
Þú mætir með miðann sem fylgir Morgunblaðinu í dag til Heimsferða,
Skógarhlið 18, eða á einhverja af umboðsskrifstofum þeirra.
Einnig er unnt að bóka tilboðið á www.heimsferdir.is
Ath. mjög takmarkaður fjöldi sæta og gistingar í boði á þessu sértilboði.
Verð getur hækkað án fyrirvara.
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
25. mars í 11 nætur 18. mars í 18 nætur
Tilboð Alm. verð Tilboð Alm. verð
Sértilboð 1 – Hótel- eða íbúðargisting (án fæðis)
2-4 í herbergi / stúdíó / íbúð 79.990 106.390 99.990 126.390 26.400
Sértilboð 2 – Club Green Oasis (m/allt innifalið)
2-4 í íbúð / smáhýsi 99.990 137.790 129.990 177.790 47.800
Innifalið í verði er flug, skattar, gisting í 11 eða 18 nætur (fæði skv. því sem valið er) og fararstjórn.
Að lágmarki 4 dögum fyrir brottför er farþegum sem kaupa sértilboð 1 tilkynnt hvar þeir gista.
Almennt verð er m.v. sambærilegan gisti- og fæðisvalkost sem er í boði.
Aukagjald fyrir einbýli í 11 nætur kr. 25.000. Aukagjald fyrir einbýli í 18 nætur kr. 41.000.
*) Sparnaður m.v. við að fjórir ferðist saman. Sértilboð 2 í 18 nætur, brottför 18. mars.
Þú sparar
allt að
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
69
3
9