Morgunblaðið - 21.02.2009, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 21.02.2009, Qupperneq 32
32 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009 ✝ Guðmundur Óla-son húsasmíða- meistari fæddist á Ísafirði 1. september 1927. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Ísafirði 17. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Óli Pétursson fisk- sali, f. 14.4. 1901, d. 21.10. 1988 og Guð- rún Ásgeirsdóttir húsfreyja, f. 31.5. 1902, d. 11.2. 1935. Systkini Guðmundar eru Ásgeir Elías Sigurður, f. 26.4. 1925, d. 22.10. 2002, Elín Val- gerður Jóna, f. 22.10. 1929, d. 1.2. 1996, og Gunnar Pétur, f. 14.12. 1933. Síðari kona Óla var Sveinsína Vigdís Jakobsdóttir, f. 21.1. 1909, d. 5.5. 1983. Hálfbræður Guð- mundar eru: Kristján Þórarinn, f. 15.10. 1937, d. 3.7. 1996, Birgir Smári, f. 23.11. 1940, og Jakob Jó- hannes, f. 20.10.46. Guðmundur kvæntist Ólöfu Finn- bogadóttur, f. 7.1. 1932, d. 8.10. Bergmann Magnússon, f. 25.11. 1975, börn Magnús Bergmann, f. 9.10. 1998, Birgitta Saga, f. 12.8. 2002 og Örn Vikar, f. 5.6. 2007. b) Hrönn, f. 30.3. 1984, sambýlis- maður Haukur Ísfeld Ragnarsson, f. 20.8. 1984. c) Salvar Finnbogi húsasmíðameistari, f. 15.12. 1957, maki Jóna Þórdís Magnúsdóttir verslunarmaður, f. 16.5. 1956. Börn Salvars og Birnu Jennadótt- ur af fyrra hjónabandi: eru: a) Heiða, f. 11.10. 1982, dóttir henn- ar Birta Guðrún, f. 21.5. 2006 og b) Jenni Ólafur, f. 10.9. 1988. Syn- ir Jónu eru: a) Ragnar Páll Dyer, f. 30.3. 1977, maki Ágústa Ahrens Georgsdóttir, börn þeirra Styrmir og Andrea, og b) Andri Már Birg- isson, f. 16.12. 1988. 4) Vignir húsasmiður, f. 22.6. 1968, maki Rebekka Rut Rúnarsdóttir nemi, f. 28.8. 1978, dóttir þeirra er Björk, f. 4.4. 2004. Börn Vignis og Önnu Málfríðar Jónsdóttur af fyrra hjónabandi eru Ólöf, f. 10.12. 1989, sambýlismaður Rútur Sigurjónsson, f. 17.4. 1985, og Hildur, f. 18.5. 1994. Sonur Rek- bekku er Rúnar Örn Jónasson, f. 3.9. 1996. Útför Guðmundar fer fram frá Ísafjarðarkirkju í dag kl. 14. 1988. Foreldrar hennar voru Salvör Kristjánsdóttir, f. 20.10. 1903, d. 9.8. 1989 og Finnbogi Björnsson, f. 1.5.1898, d. 11.3. 1978. Sambýliskona Guð- mundar eftir lát Ólaf- ar var Stefanía Sig- urðardóttir, d. 1. 9.2000. Guðmundur var síðar í sambúð með Sigríði Halldórs- dóttur. Börn Guðmundar og Ólafar eru: 1) Kristján Bjarni rafvirkjameist- ari, f. 6.9. 1951, maki Helga Krist- jana Einarsdóttir heimilis- fræðikennari, f. 25.11. 1956. Börn þeirra: Þórólfur, f. 19.1. 1980 og Salvör, f. 3.2. 1984, sambýlismaður Jón Þór Gunnarsson, f. 18.11. 1985. 2) Guðrún Ólöf skrif- stofumaður, f. 10.3. 1954, maki Örn Sveinbjarnarson múrarameist- ari, f. 30.9. 1951. Börn þeirra eru: a) Björk, f. 30.11. 1977, maki Jónas „Ég legg nú á djúpið.“ – Já, þessi orð koma mér til hugar þegar ég hugsa til undanfarinna daga. Góður vinur hvetur mig til að koma hið snarasta vestur, þar sem hann taldi að faðir minn væri á förum. En pabbi dó næstu nótt. Faðir minn var fæddur inn í kreppuna á þriðja tug síðustu aldar og ólst því upp við miskunnarleysi lífsbarátt- unnar á Vestfjörðum frá blautu barnsbeini. Ekki þurfti faðir minn að leita langt að lífsförunaut, móður mína fann hann inni á Kirkjubæ, hún þá nýflutt þangað frá Eyri í Mjóafirði. Þau hófu sinn búskap að Silfurgötu 7 í lítilli herbergiskytru með að- gangi að eldhúsi. Um það leyti sem faðir minn kynnist móður minni verður hann svo heppinn að fá skipsrúm á nýsköpunartogaranum Sólborgu. Úti á hafi var hann að draga björg í bú, þegar skeyti barst og honum tilkynnt að sonur hefði fæðst. Gjarnan legið undir Grænu- hlíð í brælu, jafnvel þótt gamlárs- kvöld væri því engan tíma mátti missa þegar veður lægði að komast aftur á Halamið. Sem barn minnist ég helst allra ævintýraferðana um Ísafjarðardjúp, er faðir minn var vélstjóri á gamla Djúpbátnum Fagranesi og stjórnaði þar Millers- snarvendu. Þegar lagt var úr höfn, var það einskonar ævintýraheimur að vera með pabba niðri í vél. Skip- stjórinn slær á vélasímann á kvart- ferð áfram og báturinn keyrir í springinn þannig að hann sígur frá bryggjunni, haldið skal í enn eina ferðina í „djúpið“. Það var gaman fyrir soninn að sitja á bekknum og horfa á pabbann taka við skipunum skipstjórans en hann varð algerlega að reiða sig á fumlaus handtök vél- stjórans til að koma skipi sínu heilu að bryggju. Siglt var um alla firði Ísafjarðardjúps, komið við á hverj- um bæ þar sem bændur reru fram á skektum sínum til móts við Fagra- nesið með afurðir sínar. Þegar faðir minn var um fertugt, tók hann sig til og nam húsasmíði. Það var örugglega ekki auðvelt að reka stórt heimili, vinna einungis hálfan daginn og sitja hinn helming dagsins á skólabekk. Fljótur var hann að ná tökum á iðngrein sinni og víða má sjá fallega smíði og trausta unna af hans höndum. Í rúm tuttugu ár undi faðir minn hag sínum vel í nýja starfinu og sér- staklega að hafa meiri tíma með móður minni. Þau byggðu sér lítinn sælureit í Tunguskógi og þess notið að dvelja í dalnum á fallegum sum- arkvöldum. Brátt bar skugga hér á, móðir mín greindist með alvarlegan sjúk- dóm og lést árið 1988 aðeins 56 ára gömul. þetta var föður mínum mikið áfall, en það var víst ekki hans sterkasta hlið að tjá tilfinningar sín- ar. Í dag færð þú þína hvílu við hlið móður minnar, sem þú hefur sakn- að svo mjög, en jafnframt trúi ég því að mikill ferðahugur sé í karli. Enn skal haldið á djúpið, en nú skulu kannaðar ókunnar slóðir og því vil ég trúa, kæri faðir minn, að þar muni verða endurfundir með þeirri sem þú annst svo mjög. Við hin komum á eftir og þá verður oft þröngt setinn bekkurinn eins og í Smiðjugötunni forðum og þar mun húsmóðirin halda utan um stóra hópinn sinn eins og hún gerði forð- um. Góða ferð, kæri faðir, far í guðs friði. Þess óskar þinn sonur Kristján Bjarni. Það gefur á bátinn við Grænland og gustar um sigluna kalt, en togarasjómanni tamast það er að tala sem minnst um það allt. En fugli, sem flýgur í austur, er fylgt yfir hafið með þrá. Og vestfirskur jökull, sem heilsar við Horn í hilling með sólroðna brá, segir velkominn heim, segir velkominn heim, þau verma hin þögulu orð. Sértu velkominn heim, yfir hafið og heim, þá er hlegið við störfin um borð. En geigþungt er brimið við Grænland og gista það kýs ekki neinn. Hvern varðar um draum þess og vonir og þrár, sem vakir þar hljóður og einn? En handan við kólguna kalda býr kona, sem fagnar í nótt og raular við bláeygan, sofandi son og systur hans þaggandi hljótt: Sértu velkominn heim, sértu velkominn heim. Að vestan er siglt gegnum ís. Sértu velkominn heim, yfir hafið og heim. Og Hornbjarg úr djúpinu rís. (Kristján frá Djúpalæk.) Elsku pabbi. Það er komið að kveðjustund og mig langar sérstaklega að fá að kveðja þig með þessu ljóði. Mér er það sérstaklega minnisstætt hvað þetta ljóð var þér kært. Þú varst ekki mikill söngmaður, en ef það kom til tals að syngja eitthvað, þar sem fjölskyldan kom saman, þá var þetta óskalagið þitt og ef þú hefðir fengið að ráða, þá átti bara að syngja þetta allt kvöldið. Það var ekki að ástæðulausu að þetta var þér efst í huga, þar sem þú ungur maður stundaðir sjó- mennsku á Grændlandsmiðum, nýbúinn að stofna fjölskyldu og fjarvistir langar og strangar. Já pabbi, þú sagðir okkur sögur af þessu ævintýri þegar þú varst á Sólborginni á Grænlandsmiðum. Þetta var stærsta og glæsilegasta skipið í flotanum á þeim tíma og kom alltaf drekkhlaðið af afla í land. Þú varst svo stoltur af þessu skipi, að alla tíð hefur stór og glæsileg mynd af skipinu verið heimilisprýði hjá þér, hvar svo sem þú hefur dval- ið. Sjómennskan var þér ætíð ofar- lega í huga, en síðar á lífsleiðinni kom að því að þú söðlaðir um og hófst nám í húsasmíði og ekki þurfti að spyrja að, það átti hug þinn all- an. Það var sama hvað þurfti að gera, smíða snúna stiga, glæsilegar útihurðir, eða hvað annað, allt lék í höndunum á þér. Það var ekki slæmt að eiga þig að þegar við hóf- um að byggja okkar fyrsta hús. Það var sama hvað þurfti að smíða, glugga, hurðir, elhúsinnréttingar, eða bara hvað sem var, þú vildir gera þetta allt fyrir okkur. Og til að geta gert þetta á þinn hátt, þá keyptir þú bara þína eigin tré- smíðavél og vannst við þetta öllum stundum. Þegar þú sökum aldurs hættir að vinna, var þér ómögulegt að slíta þig frá smíðunum og þú tókst til við að skera út og renna allskyns muni, s.s. klukkur, skálar og penna. Elsku pabbi, í dag veit ég að þú ert hvíldinni feginn eftir langa og farsæla ævi. Megi guð vera hjá þér. Guðrún Ólöf Guðmundsdóttir. Örn Sveinbjarnarson. Elsku afi. Mér datt ekki í hug að þegar við hittumst á Ísafirði síðasta sumar væri það okkar seinasta skipti sam- an. Þá bjóstu ennþá heima í íbúðinni þinni á Hlíf, klæddur vesti og skyrtu eins og alltaf. Svona týpískur afi. Ég hugsa svo hlýtt til þeirra stunda sem við áttum saman á Ísafirði. Í gamla daga hóaðir þú saman öll- um barnabörnunum í bíltúr um helgar og við keyrðum öll saman út úr bænum. Við stoppuðum oft í fjöru þar sem við gátum leikið okkur og maður gat alltaf treyst á að fá smá bland í poka eftir bíltúrinn. Þegar tími var kominn til að fara heim og þú keyrðir upp Brautarholt- ið bentir þú alltaf á húsið mitt og spurðir hver ætti eiginlega heima hér. Alltaf sami brandarinn en mér fannst kjáninn hann afi alltaf jafn sniðugur. Það var alltaf gott að koma í heimsókn til þín hvort sem það var í Smiðjugötunni eða í sumarhúsinu inni í skógi. Þar var yfirleitt boðið upp á pönnukökur með sykri og kók sem var í miklu uppáhaldi hjá þér. Þú tókst mér alltaf opnum örmum og ég er svo þakklát fyrir þann tíma sem við vorum saman. Mér þykir vænst um sumarið sem ég fékk að búa hjá ykkur Stefaníu inni í skógi. Það var mér mikils virði að fá að verja síðasta sumri mínu á Ísafirði með ykkur og kynnast ykkur á alveg nýjan hátt. Við elduðum saman, spil- uðum og tíndum ber uppi í fjalli. Þú varst algjör berjakarl og varst orð- inn sérfræðingur í hvar og hvenær væri best að leita uppi bestu berin. Elsku afi, ég veit að þú ert á betri stað núna og ert sæll með að fá að hvílast í faðmi fjalla blárra við hlið Lufu ömmu. Þó að það sé sárt að kveðja þá veit ég að Lufa og Stef- anía taka vel á móti þér. Hvíldu í friði. Þitt barnabarn, Hrönn. Með þessum fátæklegu orðum langar mig að kveðja mág minn og góðan vin, Guðmund Ólason. Í nær fjóra áratugi hafa leiðir okkar legið saman og aldrei borið skugga á. Fjölskyldur okkar hafa alla tíð verið nánar og deilt mörgum stundum bæði í gleði og sorg. Gummi bróðir eða Gummi frændi, eins og hann var oftast kallaður á okkar heimili, var með ólíkindum traustur og góður vinur sem tók öllu með miklu jafn- aðargeði. Hann fékk þó að reyna mikil áföll í sínu lífi. Móður sína missti hann barn að aldri og þurfti að sjá á bak tveimur lífsförunautum; fyrst Lufu og síðar Stefaníu. Bless- uð sé minning þeirra. Ég held að Gummi hafi tekið þennan missi nær sér en hann lét nokkru sinni uppi. Þegar ég lít til baka og rifja upp minningar líðandi ára sem tengjast mági mínum, kemur ótalmargt upp í huga minn. Má þar nefna ferðina okkar norður á Strandir 1978, þar sem stórfjölskyldan skemmti sér saman. Önnur eftirminnileg ferð var farin að Látrabjargi fyrir um það bil 25 árum. Ég minnist þess líka þegar Kobbi og Össi, tengdasonur Gumma, tóku upp á því að sjá um sameiginlegar matarveislur fyrir fjölskyldurnar á gamlárskvöld ár hvert, þrátt fyrir reynsluleysi á því sviði. Þá leist Gumma ekki meir en svo á blikuna. Hann taldi að það færi betur á að konurnar sæju um matinn eins og hefð var fyrir. En þeim tókst með árunum að fá við- urkenningu frá Gumma, þó hann hafi stundum fengið að smakka ýmsa furðurétti. Við Kobbi, börn okkar og barna- börn vottum fjölskyldu Guðmundar; börnum, tengdabörnum, barnabörn- um og Sigríði sambýliskonu hans okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi þessi góða sál hvíla í friði. Eygló Eymundsdóttir. Meira: mbl.is/minningar Guðmundur Ólason ✝ Halldóra Jóns-dóttir fæddist á Grýtu í Öng- ulsstaðahreppi 10. apríl 1926. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 13. febr- úar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Jón Þorleifsson bóndi á Grýtu og kona hans Rósa Jónasdóttir. Halldóra var yngst sex barna þeirra hjóna en eldri systk- ini hennar voru Lúð- vík, Þóra, Jón, Eiður og Jónas. Þau eru öll látin. Á gamlársdag 1958 giftist Hall- dóra Eysteini Sigurðssyni, bónda á Arnarvatni í Mývatnssveit, f. 6.10. 1931, d. 16.1. 2004. Foreldrar hans voru Sigurður Jónsson skáld á Arn- arvatni og síðari kona hans, Hólm- fríður Pétursdóttir. Halldóra og Ey- steinn eignuðust tvær dætur, sveit og öðrum sveitum auk þess að sauma ýmislegt fyrir hina og þessa. Hún tók virkan þátt í bú- skapnum með eiginmanni sínum, vann öll almenn störf og sá um bú- ið þegar Eysteinn þurfti að ferðast um landið og fara á fundi. Hall- dóra hafði oft marga menn í fæði á þeim árum þegar Eysteinn vann við vegagerð og eins var oft gest- kvæmt á Arnarvatni í tengslum við störf Eysteins í þágu nátt- úruverndar og félagsmála. Halldóra söng í kirkjukór Skútustaðakirkju í fjölda ára og sat lengi vel í sóknarnefnd. Einnig var hún félagi í Ungmennafélag- inu Mývetningi og tók þátt í leik- starfi og öðru félagsstarfi á vegum þess. Að sama skapi tók hún þátt í starfi Slysavarnadeildarinnar Hrings og sat í stjórn hennar um tíma. Eysteinn lést árið 2004 en Hall- dóra bjó á Arnarvatni til dán- ardags ásamt Bergþóru dóttur sinni. Útför Halldóru fer fram frá Skútustaðakirkju í dag og hefst at- höfnin kl. 14. Bergþóru, f. 29.5. 1958, og Þórgunni, f. 10.5. 1961, d. 16.1. 1994. Dóttir Þór- gunnar er Ásta Krist- ín Benediktsdóttir, f. 18.10. 1982. Halldóra ólst upp á Grýtu og bjó þar að mestu fram undir þrí- tugt. Hún vann nokk- ur ár á saumastofum í Reykjavík og á Ak- ureyri en árið 1955 hóf hún störf í eldhúsi Laugaskóla í Reykja- dal og varð síðar ráðskona þar. Á Laugum kynntist hún Eysteini sem var þar bryti og kenndi við skól- ann. Þau unnu á Laugum í fjóra vetur eða til ársins 1959 þegar þau fluttu í Mývatnssveit og stofnuðu nýbýlið Arnarvatn 4 árið eftir. Saumaskapur fórst Halldóru einkar vel úr hendi og hún hélt saumanámskeið bæði í Mývatns- Amma mín yndisleg er nú horfin yfir í annan heim og þótt við „stúlkurnar hennar“, ég og Berg- þóra, höfum vitað í mörg ár að þessi stund gæti verið handan við hornið er áfallið mikið. Amma var einstök kona sem öll- um þótti vænt um. Æskuvinkona mín og frænka sagði mér um dag- inn að fyrsta minningin hennar um ömmu Halldóru væri dillandi hlát- ur úr eldhúsinu heima á Arnar- vatni og ég held að margir hafi svipaða sögu að segja. Amma var glaðlynd og alltaf var stutt í hláturinn en einmitt þessi lífsgleði ásamt ótrúlegri jákvæðni og æðruleysi held ég hafi gert það að verkum að hún stóð alltaf upp aftur eftir hvert veikindakastið á fætur öðru á undanförnum áratug. Hún var ekki að fela neitt eða breiða yfir erfiðleika heldur fann hún að þetta var besta leiðin til að takast á við veikindin. Ég á erfitt með að ímynda mér ástríkari manneskju en hana ömmu mína sem ól mig upp að miklu leyti og gekk mér í móður stað. Eftir að ég komst til vits man ég til dæmis aldrei eftir því að hafa verið skömmuð. Ef ömmu eða afa mislíkaði það sem ég sagði eða gerði þögðu þau bara eða sögðu „Æ, Ásta mín, viltu nokkuð vera að því?“ og þá gat ég auðvitað ekki annað en hugsað minn gang. Þau voru líka ánægð með allt sem ég gerði eftir að ég varð sjálfráða, í það minnsta varð ég ekki vör við annað. Amma studdi mig í einu og öllu – jafnvel þótt hún skildi nú ekki alveg allt sem ég tók mér fyrir hendur – og var miklu stoltari af mér en ég sjálf hef nokkurn tím- ann verið. Sú skilyrðislausa ást og umhyggja sem hún sýndi mér alla tíð kom þó kannski best í ljós á síðasta ári þegar ég sagði frá því að ég væri komin út úr skápnum. Amma tók þessum fregnum ekki aðeins með skilningi heldur raun- verulegri gleði og áhuga og fyrir það – sem og allt annað – verð ég henni alltaf óendanlega þakklát. Amma var svo sannarlega stoð mín og stytta og skarð hennar verður aldrei fyllt. Engu að síður er minningin um hana full af hlátri, ást og gleði og með hennar eigin lífsviðhorf að vopni höldum við áfram sem eftir sitjum. Amma mín var ein af þeim manneskjum sem gera lífið léttara og heiminn bjartari og ég veit að hún heldur áfram að hlæja með fólkinu sínu hinum megin. Ásta Kristín Benediktsdóttir. Halldóra Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.