Morgunblaðið - 21.02.2009, Page 36
36 MessurÁMORGUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Spádómar
! "#$
%&' ()*)
+++,-$ ,
Ferðalög
Til leigu raðhús á Costa Blanca,
Spáni. Frábær staðsetning rétt við
ströndina, 40 mín. sunnan við Ali-
cante. Mjög vel búið hús: þvottavél,
uppþvottavél, heimabíó, frábær rúm.
Barnvænt, sundlaug, öll þjónusta,
þ.m.t. 40 veitingastaðir, í göngufæri,
golfvellir. Svefnaðst. fyrir 4+2. Viku-
leiga 300-500 evrur (45-75 þús. kr.).
Sími 824-5820.
S T Y K K I S H Ó L M U R
Stresslosandi gæðagisting með heit-
um pottum. Helgar- og/eða vikuleiga.
orlofsibudir.is gsm: 861 3123.
Heilsa
Frelsi frá streitu og kvíða
hugarfarsbreyting til betra lífs
með EFT og sjálfsdáleiðslu.
Viðar Aðalsteinsson
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694 5494,
vidar@theta.is, www.theta.is
Hljóðfæri
PÍANÓ ÓSKAST
eða lítill flygill. Má þarfnast stillingar
og smáviðgerðar. Verðhugmynd:
50 - 100 þ. Uppl. í síma: 553 5054
897 0003.
Húsgögn
Vantar borð í veislusal
Óskum eftir langborðum og/eða
hringborðum í 100 manna veislusal.
Uppl. s. 897-5246, 421-4242.
Húsnæði í boði
Íbúð til leigu
Í Salahverfinu er til leigu mjög falleg
90 fm íbúð á jarðhæð. Íbúðin er laus.
Leiga kr. 80 þúsund auk húsgjalda og
rafmagns. Uppl. í síma 581-1303 eða
894-1816.
Atvinnuhúsnæði
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til leigu er atvinnu- og skrifstofuhús-
næði á tveimur hæðum, samtals 257
fm á Fiskislóð. Rými á neðri hæð er
132 fm, í salnum er 42 m³ kælir
(frystir), húsnæðið uppfyllir kröfur
heilbrigðiseftirlits um matvæla-
vinnslu, stórar innkeyrsludyr, góð
aðkoma, gott plan og leyfi fyrir
gámastöðu. Á efri hæð 125 fm, er
8 m³ frystiklefi og annar 7 m³, einnig
er á efri hæð loftræstiháfur fyrir stór
eldhús (matvælaframleiðslu) ásamt
skrifstofuaðstöðu.
Frekari uppl. í síma 866 1844.
Sumarhús
Sælureitur í sveitinni
Til sölu sumarhús byggt 2003, stærð
48,5 m², staðsett í fallegu umhverfi
við Eyrarvatn í Hvalfjarðarsveit. Ásett
verð 14,5 m. eða tilboð. Bátur o.fl.
fylgir. Uppl. í síma 896 1422.
Sumarhús - orlofshús.
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Frábært, rafrænt námskeið í
netviðskiptum. Notaðu áhugamál
þitt, kunnáttu og sérþekkingu til að
skapa þér góðar og vaxandi tekjur á
netinu. Við kennum þér hvernig!
Skoðaðu málið á
http://www.menntun.com
Til sölu
Vilt þú frelsi eða öryggi?
Endalok Ameríku eftir Naomi Wolf.
Frá lýðræði til einræðis í tíu
einföldum skrefum. Kr. 2.354, frí
heimsending. Pantið á bendill.com
eða í síma 695-8918.
Tékkneskar og slóvenskar
handslípaðar kristalljósakrónur til
sölu. Gott úrval. Gott verð.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Til sölu
Tveir þýskir gæða nuddbekkir
frá Schupp. Einnig Thermala-
tor Whitehall vatnshitari.
Uppl. í síma: 895 9404.
Bókhald
Bókhald, vsk.-skil, skattframtal
og kærur fyrir einstaklinga með
rekstur og félög. Aðstoðum við kærur,
stofnun ehf. og léna og gerð heima-
síðna. Áralöng reynsla.
Dignus ehf. - dignus.is - s: 699-5023.
Þjónusta
Gullskartgripir - gull
Kaupum til bræðslu allar tegundir
gullskartgripa, gamla, nýlega, ónýta,
gegn staðgreiðslu.
demantar.is
Pósthússtræti 13, sími: 699-8000.
Ýmislegt
Vantar þig peninga?
Gullskartgripir sem liggja í skúffum
og skrínum og fólk er hætt að nota er
nú hægt að selja. Kaupum til bræðslu
allar tegundir gullskartgripa, gamla,
nýlega, ónýta, gegn staðgreiðslu.
demantar.is
Pósthússtræti 13, sími: 699-8000.
Tískuverslunin Smart,
Grímsbæ/Bústaðavegi
Nýkomið – Stuttbuxur
Litir: Mosagrænn, drapp,
hvítt.
St. S – XXXL. Verð kr. 5.990,-
Sími 588 8050.
TILBOÐ
Herrainniskór á tilboðsverði
Tvö verð 900 og 1900
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Teg. 77660 - BH létt fylltur í BC
skálum úr mjúku microfiber á kr.
3.850,- boxer buxur í stíl í S,M,L,XL á
kr. 1.950,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Nautakjöt beint frá bónda. Nánari
upplýsingar á www.njalunaut.is
Mjúkir og þægilegir götuskór úr
leðri, skinnfóðraðir og með
gúmmísóla. Litir: svart og rautt.
Stærðir: 36 - 42. Verð: 11.900.
Léttir og þægilegir uppháir
leðurskór með flísfóðri. Mjúkur
gúmmísóli, litir: svart og rautt.
Stærðir: 36 - 41. Verð: 14.400.
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Lífsorka. Frábærir hitabakstrar
Betra líf, s. 581 1380, Kringlunni.
Gigtarfélag Íslands, s. 530 3600,
Umboðsm. Hellu, Sólveig sími
863 7273. www.lifsorka.com
Bátar
Terhi-bátur
Vil kaupa Terhi-bát, stærri gerð. Helst
með vagni og mótor. Staðgreiðsla.
Sími 565-6401 eða 618-5401.
Bílar
Volvo XC70
Til sölu Volvo XC70 árg. 2008. 2,4
diesel, ssk., 4x4, ekinn 44 þús. km.
Bíllinn er sem nýr utan sem innan,
hlaðinn búnaði, leður og fl.
Ekkert áhvílandi. Uppl. s. 869-8836.
Dodge Caravan, árg. ‘97
til sölu. Ekinn 200 þús. Þarfnast
lagfæringar.
Upplýsingar í síma 864 1619.
Hópbílar
Sportrútan ehf.
Vel útbúnir hópferðabílar bæði á
Akureyri og Reykjavík. Uppl. í síma
820 0980 eða sportruta@internet.is
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Öruggur í vetraraksturinn.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i ´07.
Bifhjólakennsla .
8921451/5574975.Visa/Euro.
Húsviðhald
Þarftu að breyta eða bæta heima
hjá þér?
Eða þarftu aðstoð í nýbyggingunni?
Við erum til í að aðstoða þig við alls-
konar breytingar. Við erum til í að
brjóta niður veggi og byggja upp nýja,
breyta lögnum, flísaleggja eða
parketleggja og fl. Bjóðum mikla
reynslu og góð vinnubrögð.
Upplýsingar í síma 899 9825.
Stigahúsateppi
Strönd ehf. Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík. Sími 533-5800.
Skipti um rennur og bárujárn
á þökum, einnig smávægilegar
múrviðgerðir og ýmislegt fl.
Þjónum landsbyggðinni einnig.
Upplýsingar í síma 659-3598.
Bílar aukahlutir
Óskast keypt
Gírkassi í Skoda Octavia árg. 1999
óskast keyptur.
Nánari uppl. í síma 669-1262.
Hreingerningar
Heimilisþrif
Tek að mér að koma heim, vikulega
eða sjaldnar og þrífa. Góð meðmæli
ef óskað er. 100% trúnaður.
Upplýsingar í síma 659 6158.
Óska eftir
Ljósritunarvél óskast
Nýleg og lítil.
Upplýsingar: bjorneh@simnet.is
ina upp í mitti. Það var alltaf nóg að
gera í sveitinni og þú stýrðir verkum
með styrkri hendi. Þegar þú hættir
búskap og fluttir um tíma til okkar í
Lerkilundinn, áður en þú fluttir á
Grenilund, fengum við systkinin gott
tækifæri til að kynnast þér betur og
áttum við oft skemmtilegar samræð-
ur. Okkur finnst eins og það hafi orðið
öllu léttara yfir þér þegar byrðar bú-
skaparins voru ekki lengur á herðum
þér. Við hlógum oftar saman og spjöll-
uðum meira. Alltaf varstu með á nót-
unum varðandi fjölskylduhagi okkar
og áhugasamur um hvað við höfðum
fyrir stafni hverju sinni. Það er okkur
systkinunum mikil huggun að þú skul-
ir hafa farið eins snöggt og raunin var,
alveg eins og þú óskaðir sjálfur og
ekki verið einn þegar kallið kom.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson.)
Elsku afi, við kveðjum þig með
söknuði. Minningin um þig mun alltaf
lifa í hjörtum okkar.
Unnur Ósk, Guðbjörg
Anna, Snæbjörn Ármann
og fjölskyldur.
Ég stend til brautar búinn,
mín bæn til þín og trúin
er hjartans huggun mín,
minn veiki vinaskari,
ég veit þótt burt ég fari,
er, Herra Guð, í hendi þín.
(Matthías Jochumson.)
Nú er Snæbjörn á Nolli allur.
Óhætt er að segja að hann hafi kvatt
sína jarðvistardaga saddur lífdaga.
Árin voru orðin mörg. Hann var
tilbúinn til farar þegar kallið kæmi.
Hann vissi svo vel að það nálgaðist að
hann lét vita að hann myndi ekki
mæta til þeirrar samkomu sem boðuð
var að kveldi þess dags sem hann dó.
Hann var sannarlega til brautar bú-
inn.
Snæbjörn tók við búi feðra sinna á
Nolli ungur maður. Sama ættin hafði
þá búið þar í meira en hálfa aðra öld.
Það varð hlutverk Snæbjarnar á
Nolli að byggja brú milli hinna fornu
búskaparhátta yfir til nútímans og
framtíðarinnar. Þetta lánaðist honum
vel. Hann var bæði áræðinn og
atorkusamur að eðlisfari, en umfram
allt þrautseigur.
Með þrautseigju byggði hann allt
upp á jörðinni, braut nýtt land og
ræktaði. Hann var vinnusamur og
nýtinn og natinn í senn. Hann kaus
líka frekar að hlutirnir gengju nokkuð
hratt og örugglega, og var ekki gefinn
fyrir að slæpast, né taldi hann það
nokkrum manni gott. Líkast til hefði
hann getað sagt, rétt eins og systir
hans og móðir okkar systkinanna þeg-
ar við vorum að snúa: „Hendurnar
þurfa ekki að stoppa þó að munnurinn
mali.“
Snæbjörn var afar ræktarsamur
við Fríðu systur sína í Dal. Nollar-
jeppinn sást þar oftar í hlaði en aðrar
bifreiðar, ekki síst á þeim árum þegar
börnin voru mörg og jeppar fáir. Aldr-
ei kom hann svo í Dal að ekki væri
eitthvað matarkyns með í för, enda
vissi hann að marga munna var að
metta og ekki alla ógráðuga. Ekki
kunnum við systkinin alltaf að þakka
að verðleikum það sem hann gaf.
Jafnvel ekki það hráefni sem við vit-
um nú að best þykir og dýrast á fín-
ustu veitingahúsum vestrænnar
menningar! Kálfskjöt.
Þegar árin liðu fjölgaði farþegum í
Nollarjeppanum en munnum fækkaði
í Dal. Þar uxu börnin úr grasi og fóru
að heiman, en barnalán fór vaxandi á
Nolli. Þess vegna dró úr samskiptum
við þennan frænda okkar og einkum
þeirra í systkinahópnum sem fluttu
lengra burt frá Dal. Þó var að hitta
hann alltaf eins og síðast hefði það
verið í gær. Og þannig verður það líka
um síðir á degi endurfundanna.
Við systkinin kveðjum Snæbjörn á
Nolli, biðjum honum fararheilla og
felum hann Guðs miskunn. Guð blessi
fjölskyldu hans og ástvini.
Kristján Valur Ingólfsson.
Snæbjörn Ármann Björnsson