Morgunblaðið - 21.02.2009, Side 41
Velvakandi 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HÆ!
ÞÚ ERT
EKKI MJÖG
ÞUNGUR!
MIÐAÐ VIÐ ÞAÐ
HVAÐ ÞÚ ERT
FEITUR!
TAKK
KÆRLEGA
ÉG VISSI
ÞAÐ
HVAÐ
ERTU AÐ
GERA?
ÉG ER AÐ
BÍÐA EFTIR
GRASKERINU
MIKLA!
JÁ, EN
ÞAÐ KEMUR
EKKI NÆRRI
ÞVÍ STRAX!
MÉR ER
SAMA... ÞAÐ
ER MJÖG
FRIÐSÆLT
HÉRNA
FLESTIR SÁLFRÆÐINGAR ERU
SAMMÁLA UM AÐ ÞAÐ SÉ
MJÖG HOLLT AÐ SLAPPA
AF INNAN UM GRASKER!
ÞAÐ ER ÖLLUM SAMA
UM MIG! ÞAÐ HUGSAR
ENGINN UM MIG OG
MÍNAR ÞARFIR!
AF HVERJU GETUR FÓLK
EKKI BARA SÝNT MÉR SMÁ
ATHYGLI?!? ER ÉG KANNSKI
AÐ BIÐJA UM OF MIKIÐ?!?
VILTU FAÐMA MÖMMU ÞÍNA? ÞAÐ ER ÖLLUM SAMA UM
MIG! ÞAÐ ÞYKIR ENGUM
VÆNT UM MIG!
VILTU
GEFA MÉR
ÞÚSUND-
KALL?
HRÓLFUR, MIG LANGAR AÐ RÆÐA
VIÐ ÞIG UM EFTIRLAUNIN MÍN...
Í DAG NEYÐIST ÉG,
LÖGUM SAMKVÆMT, AÐ
HÆTTA AÐ VINNA
ÉG VEIT HVERNIG
VIÐ GETUM ORÐIÐ
OKKUR ÚT UM SMÁ
AUKAPENING...
VIÐ
LEIGJUM
BARA
KÖTTINN
ÚT!
JÓNA, ÞÚ HEFUR
VERIÐ REIÐ ÚT Í MIG Í
MARGA MÁNUÐI OG ÉG
VISSI EKKI AF ÞVÍ!
VIÐ ERUM
VINKONUR! ÞÚ
HEFÐIR ÁTT AÐ
TAKA EFTIR ÞVÍ!
FYRST VIÐ ERUM
VINKONUR ÞÁ HEFÐIR
ÞÚ ÁTT AÐ SEGJA
EITTHVAÐ VIÐ MIG!
ÞÚ ERT MEÐ SKRÍTNAR
HUGMYNDIR UM VINÁTTU!
ÉG?!?
SHOCKER BÝST EKKI VIÐ
ÞVÍ AÐ SJÁ MIG!
DRÍFUM OKKUR!
KÓNGULÓARMAÐURINN
VERÐUR Á UNDAN OKKUR!
GOTT AÐ ÉG FER ALDREI ÚT ÚR HÚSI
ÁN ÞESS AÐ HAFA LÖGREGLUTALSTÖÐ!
OG
AUÐVITAÐ
ALDREI
ÁN MÍN!
Í DAG LIGGUR LEIÐIN
TIL BEVERLY HILLS...
ÞESSAR myndir eru teknar á ár-
unum 1941-1945. Myndin af mann-
inum er sennilega tekin einhvers
staðar á Reykjanesi. Myndin af kon-
unni og hestinum er ekki vitað hvar
er tekin. Geti einhver borið kennsl
á þetta fólk eru allar upplýsingar
vel þegnar í síma 553-0717 eða net-
fang: icebacom@mmedia.is
Gamlar myndir
Ferðaþjónusta í
björgunarliðinu
SÍÐUSTU vikurnar
hefur mikið verið rætt
um hvernig styrkja
mætti atvinnuvegi okk-
ar Íslendinga til að
koma okkur út úr
kreppunni. Meðal ann-
ars hefur verið bent á
að íslensk ferðaþjón-
usta væri hér vaxandi
atvinnugrein og gæti
því kannski verið í
björgunarliðinu. Þetta
eru heilmikil tíðindi því
að sjaldan hefur verið
talað um íslenska ferða-
þjónustu sem alvöru atvinnugrein
sem gæti gefið af sér tekjur. Allra síð-
ustu daga hafa fréttamenn t.d. verið
að spyrja hverjir yrðu væntanlegir
ráðherrar í hinum ýmsu ráðuneytum
s.s. iðnaðarráðuneyti, sjávarútvegs-
ráðuneyti, landbúnaðarráðuneyti
o.s.frv. Enginn enginn þeirra spurði
hver yrði næsti ferðamálaráðherra.
Reyndar nefndi fyrrverandi ferða-
málaráðherra sjálfur einu sinni hug-
takið „ferðamálaráðherra, en það var
ekki vegna þess að fréttamenn hefðu
spurt hann um það.
Eins og við vitum byggist atvinnu-
greinin ferðaþjónusta á mörgum
þjónustuliðum s.s. gistingu, veit-
ingum, hestaferðum, sleðaferðum,
gönguferðum, flúðasiglingum, akstri
og ferðaleiðsögn svo að eitthvað sé
nefnt. En hvaða hagnaði skilar þessi
atvinnugrein til þjóðarbúsins? Eða til
íslenskra atvinnurekenda og laun-
þega í þessari atvinnugrein? Getur
verið að stór hluti hagnaðarins fari til
erlendra launþega og atvinnurekenda
þ.e. erlendra fyrirtækja/aðila sem
reka hér ferðaþjónustu? Og getur
verið að þessir erlendu aðilar und-
irbjóði íslenska aðila? Er það rétt að
erlendir ferðarekendur hafi keypt
hér hótel svo að þeir þurfi ekki að
borga gistingu til íslenskra hóteleig-
enda og þar með til íslenska þjóð-
arbúsins? Getur verið að erlendir
ferðaleiðsögumenn, sem jafnvel
þekkja lítið til Íslands, kynni landið
okkar útlendingunum og fái aðeins
50% af þeim launum sem íslenskur
ferðaleiðsögumaður myndi fá fyrir
það starf?
Í sambandi við hugsanlega inn-
göngu Íslands í ESB hefur því verið
velt upp hvort Íslendingar myndu (ef
svo yrði) missa eignarétt sinn á nátt-
úruauðlindum eins og t.d. jarðhita,
vatnsorku, olíulindum o.fl. Enginn
hefur í þessu sambandi
nefnt íslenska ferða-
þjónustu. Veist þú, les-
andi góður, á hvaða
náttúruauðlind íslensk
ferðaþjónusta byggir?
Og hvað sú atvinnu-
grein skilar af sér
stórum hluta af heildar-
tekjum ríkisins á hverju
ári?
Og hvað ætli það sé
sem dregur erlenda
ferðamenn aðallega til
Íslands? Eru það
kannski stórhýsin og
auðu blokkirnar, sem
sjá má út um allt? Ætli
það sé kynlífsþjónustan
í miðborg Reykjavíkur sem er aug-
lýst af miklum krafti á erlendum vett-
vangi? Hugsaðu málið.
Hugsandi eldri borgari.
Skammtastærð á lyfinu Toilax
Í PISTLI sem birtist í Velvakanda
nýlega var verið að kvarta um
skammtastærð á lyfinu Toilax þar
sem talað er um að viðkomandi hefði
þurft að kaupa 24 töflur í pakka en
ekki þurft að nota nema 4 töflur. Lyf-
ið Toilax er notað, held ég, sér-
staklega fyrir ristilspeglanir. Ég
hringdi í þrjú apótek, Rima apótek í
Grafarvogi – þar getur maður fengið
þessar 4 töflur afgreiddar og borgað
fyrir þær og sama er í Lyfju á Sel-
fossi, aftur á móti í Lyfi og heilsu í
Hveragerði þarf að koma með lyfseðil
ef maður þarf eingöngu 4 töflur.
Í framhaldi af þessu vil ég benda
fólki á að athuga málið á fleiri en ein-
um stað.
Guðrún Magnúsdóttir.
Svartur leður-bakpoki
SÍÐASTLIÐINN fimmtudag á milli
kl. 16 og 17 var brotist inn í bíl við
Þverholt og stolið svörtum leður-
bakpoka. Búast má við að þjófurinn
hafi hent bakpokanum eftir að hafa
hirt það sem í honum var. Ef einhver
finnur slíkan bakpoka á þessum slóð-
um er sá vinsamlegast beðinn um að
hringja í síma 567-1662 eða koma
honum til lögreglunnar.
Ungbarnaskór í óskilum
SKÆRBLEIKUR ungbarnasokka-
skór fannst fyrir u.þ.b. mánuði í
strætó. Uppl. í síma 772-2413.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Félag eldri borgara í Kópavogi | Op-
ið hús í Gullsmára í dag kl. 14. Arn-
hildur Jónsdóttir les upp og Gunnar
Rögnvaldsson staðarhaldari á Löngu-
mýri í Skagafirði fer með gamanmál
og syngur við undirleik Kjartans Sig-
urjónssonar. Kaffiveitingar í boði
FEBK.
Félagsheimilið Gjábakki | Krumma-
kaffi kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10.
Hraunbær 105 | Kynning á þurr-
burstun á keramik 25. feb. kl. 13,
garðálfar, englar o.fl. Skartgripagerð
úr silfurleir, penslað á laufblöð o.fl.
Hraunsel | Sparidagar á Hótel Örk
eru 8.-13. mars. Skráning og nánari
uppl. í s. 555-0142. Sjá febh.is
Hæðargarður 31 | Gönghópurinn „Út
í bláinn“ gengur kl. 10, teygjuæfingar
og vatn. Bókmenntahópur þriðjudag
kl. 20-21.30. Kynnt verður vorferð í
Borgarfjörð og ljóðadagskrá Hæð-
argarðs og Dalbrautar í Landnáms-
setrinu í apríl. Fastir liðir eins og
venjulega. Uppl. í síma 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Snæ-
landsskóla v/Víðigrund kl. 9.30-10.30.
Uppl. í síma 564-1490 og 554-2780.