Morgunblaðið - 21.02.2009, Síða 42
42 Menning
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009
LISTASTOFNANIR í Bandaríkj-
unum fagna því að helsti styrkt-
arsjóður listanna þar í landi, The
National Endowment for the Arts,
NEA, fær þrátt fyrir allt brot af 787
milljarða dala stuðningi rík-
isstjórnar Baracks Obama við at-
vinnulífið. NEA fær 50 milljónir
dala og Smithsonian-safnið í Wash-
ington fær að auki 25 milljónir
dala, vegna viðhalds og endurbygg-
ingar.
Þegar lögin fóru gegnum full-
trúadeild þingsins, var gert ráð fyr-
ir því að NEA fengi 50 milljónir
dala í sinn hlut. Í meðförum öld-
ungadeildarinnar var sá styrkur
hinsvegar afnuminn með öllu. Að
auki var bætt við séráliti öld-
ungadeildarþingmannsins Toms
Coburn, þar sem tekið var fram að
söfn, leikhús og listamiðstöðvar
ættu ekki að fá neina styrki, og
voru þau flokkuð með verkefnum
sem teljast „sóandi“, eins og spila-
vítum og hreinsun hraðbrauta.
NEA útskýrði hvað gera ætti við
féð og fyrir tilstilli demókrata var
styrkurinn settur aftur inn í lögin í
lokaumræðunni.
Listirnar
njóta líka
stuðnings
NEA fær 50 milljónir
og Smithsonian 25
The Smithsonian Höfuðstöðvar
safnsins í Washington.
FÉLAG um átjándu aldar
fræði heldur í dag, laugardag,
málþing í tilefni þess að liðnar
eru tvær aldir frá valdaskeiði
Jörundar hundadagakonungs.
Málþingið er í fyrirlestrasal
Þjóðarbókhlöðu, 2. hæð, og
hefst kl. 13.30.
Flutt verða fjögur erindi.
Sigurður Líndal fjallar um
réttarstöðu Íslands árið 1809,
Jörundur í Íslandssögunni
nefnist erindi Braga Þorgríms Ólafssonar, Sveinn
Einarsson fjallar um Jörund í skáldskap og erindi
Önnu Agnarsdóttur nefnist „Stjórnleysis- og kúg-
unarástand“. Endurmat á byltingunni 1809.
Fræðaþing
Jörundarþing í
Þjóðarbókhlöðunni
Jörundur hunda-
dagakonungur
SUNNA Gunnlaugs djasspían-
isti er að senda frá sér nýjan
disk með New York-kvartett
sínum, þeim sama og lék á
disknum Mindful. Nýi disk-
urinn ber heitið Songs (from
Iceland) og á honum eru fimm
íslensk þjóðlög í búningi og
flutningi Sunnu, sem leikur
ásamt Tony Malaby á saxófón,
Drew Gress á bassa og Scott
McLemore á trommur.
Sunna leikur þessi lög ásamt eigin tónsmíðum á
Tíbrártónleikum í Salnum í kvöld, kl. 20. Með
henni leika Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og
Scott McLemore, eiginmaður Sunnu, á trommur.
Tónlist
Tríó Sunnu Gunn-
laugs í Salnum
Sunna Gunnlaugs
KRÖKKUM á öllum aldri er
boðið í Gerðuberg á morgun,
sunnudag, á milli 14 og 16. Þar
á að kenna gestum að búa til
ekta öskupoka og bolluvendi.
Þeir siðir tíðkuðust til
skamms tíma að flengja for-
eldrana að morgni bolludags
með bolluvendi og segja „bolla,
bolla“ og fá jafnmargar bollur
að launum. Einnig var vinsælt
að hengja öskupoka aftan á
bak einhvers, án þess að hann yrði þess var.
Gerðuberg býður upp á þetta námskeið í sam-
starfi við Heimilisiðnaðarfélag Íslands. Allt efni er
á staðnum og aðgangur ókeypis.
Handverk
Búið til öskupoka
og bolluvendi
Öskupoki hengdur
á vegfaranda.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
ÞÆR eru fjórar og sprækar og ann-
að kvöld kl. 20 koma þær fram sem
einsöngvarar með Gradualekór
Langholtskirkju. Þær Guðrún Matt-
hildur Sigurbergsdóttir, Kristín
Einarsdóttir Mäntylä, Kristín
Sveinsdóttir og Sigrún Ósk Jóhann-
esdóttir syngja einsöng í verkinu
Håb eftir John Høybye.
Það er Guðrún sem svarar í sím-
ann: „Það er mjög djassað og létt,“
segir hún aðspurð um stóra verkið.
Hún segir mér að þær stelpurnar
séu flestar búnar að syngja saman
frá því þær voru sex ára í Krútta-
kórnum. „Við erum bestu vinkonur –
mjög, mjög góðar. Við höfum oft
„hittinga“ og þá gerum við ekkert
annað en að syngja. Þá syngjum við
oftast ættjarðarlög, því það er svo
gaman að syngja þau, og líka aðrar
flottar melódíur.“
Og hvað er nú það skemmtileg-
asta við það að syngja í kór? Guðrún
nefnir góðan félagsskap. „Það er al-
veg pottþétt að maður kynnist frá-
bæru fólki í kór. Það er líka frábær
tónlist og gaman að vinna að því að
búa til svona flotta tónlist, það eru
algjör forréttindi. Hmmm … það
sem stendur uppúr? Ætli það sé ekki
þetta verk, af því það er í léttari
kantinum og svolítið poppað; bíddu
ég ætla að spyrja hinar …“ og úr
símanum hljóma kappsfullar raddir:
„Það er bara svo skemmtilegt; og
frjálslegt; mjög lifandi, og á dönsku
– fyndið að bera hana fram!“
Hljóðfæraleikarar eru Einar Val-
ur Scheving, Kjartan Valdemarsson,
Lára Bryndís Eggertsdóttir, Sig-
urður Flosason og Valdimar Kol-
beinn Sigurjónsson. Auk Håb flytur
kórinn verk eftir baskneska tón-
skáldið Javier Busto og þrjú lög úr
myndinni Mamma mia!. Stjórnandi
er Jón Stefánsson.
Fjórar efnilegar stúlkur syngja einsöng með Gradualekór Langholtskirkju
Frjálslegt, létt
– og á dönsku!
Morgunblaðið/Golli
Léttar og djassaðar Kristín Einarsdórttir Mäntylä, Guðrún Matthildur Sig-
urbergsdóttir, Sigrún Ósk Jóhannesdóttir og Kristín Einarsdóttir.
Í HNOTSKURN
» Håb eftir John Høybye ersamið fyrir kór, einsöngv-
ara, orgel, píanó, altsaxófón,
bassa og slagverk.
» Verkið er í átta köflum semfjalla um síðustu daga Krists
frá ýmsum sjónarhornum. Kom-
ið er við í Getsemanegarðinum,
á Golgatahæðinni, konunum
fylgt að gröfinni sem reynist
tóm og upprisunni fagnað.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÉG las Frankenstein eftir Mary
Shelly fyrst fyrir um 20 árum og
málaði málverk út frá sögunni. Sag-
an hafði mikil áhrif á mig,“ segir
Didda Hjartardóttir Leaman, en
sýning á verkum hennar verður opn-
uð í Suðsuðvestur í Keflavík í dag kl.
16. Didda kallar sýninguna „Skynj-
un og sköpun skrímslis“ og sýn
hennar beinist að innra lífi skrímsl-
isins, tilfinningum og skynjun þess,
þráhyggju og samvisku Victors
Frankensteins. Á sýningunni verða
ný málverk, ætir skúlptúrar og ljós-
myndir.
Didda segir að ímynd Franken-
steins í dægurmenningu sé mjög
stöðluð. „Það kom mér á óvart hvað
skáldsagan fjallar vel um innra líf
skrímslisins og líka vísindamannsins
sem skapar hann. Þar er tekist á við
innri baráttu og þær mórölsku
spurningar sem vakna. Núna tutt-
ugu árum síðar leita ég aftur í þessa
sögu og það sem tengist fortíðinni og
hugmyndunum um Frankenstein.“
Didda talar um einmanaleika
þeirra beggja, Frankensteins og vís-
indamannsins. „Þessar tvær sögu-
persónur hafa sömu rödd, sem eru
tengdar órjúfanlegum böndum og
eru nokkurs konar andhverfir pól-
ar.“
Suðsuðvestur er opið laugardaga
og sunnudaga kl. 14-17 og eftir sam-
komulagi.
Didda Hjartardóttir Leaman og Frankenstein í Suðsuðvestur
Innra líf skrímslis og
móralskar spurningar
Húsið í skóginum Mynd eftir Diddu af húsinu þar sem Frankenstein
faldi sig, en hann fylgdist með fólkinu sem þar bjó.
ER það ekki víst, að
allir kunni lagið um
Gamla Nóa? Höf-
undur lagsins hét
Carl Michael Bell-
man og var Svíi.
Dagskrá tileinkuð
söngvaskáldinu
góða verður flutt í
sal Tónskóla Sig-
ursveins D. Krist-
inssonar, Engjateigi
1, á morgun kl. 15.
Þar verða sungin
Bellmanslög úr laga-
flokkunum Pistlum
og Söngvum Fredmans. Inn í dag-
skrána verður fléttað fróðleik um
Stokkhólm seint á 18. öld, það svið
sem söngljóðin eru sprottin úr.
Sagt verður frá útbreiðslu söngva
Bellmans um höf og lönd, en meg-
ináhersla lögð á kynni Íslendinga af
Bellmanssöngvum. Með söngvunum
verður brugðið upp myndum af
listaverkum sem orðið hafa til und-
ir áhrifum af ljóðum Bellmans.
Við undirbúning
dagskrárinnar hefur
Tónskólinn notið að-
stoðar annálaðra
Belmansmanna,
þeirra Árna Björns-
sonar og Gunnars
Guttormssonar, og
eru þeir meðal flytj-
enda ásamt þeim Æv-
ari Kjartanssyni, Mar-
íu Cederborg, Guðna
Franzsyni, Þorvaldi
Þorvaldssyni, Sigrúnu
Valgerði Gestsdóttur,
Ásgeiri Böðvarssyni,
Sigursveini Magnússyni, Mörtu
Guðrúnu Halldórsdóttur og nem-
endum hennar. Sigursveinn og
John Speight hafa gert nýjar út-
setningar við sönglögin.
Í upphafi dagskrár verður flutt-
ur forleikur sem John Speight
hefur samið gagngert af þessu til-
efni. Stjórn tónlistarflutningsins
er í höndum Guðna Franzsonar.
begga@mbl.is
Bellman sunginn í
Tónskóla Sigursveins
Höfundur Gamla Nóa er sígildur og
Íslendingar hafa dáð hann lengi
Carl Michael Bellman
Ég græt karlmann-
legum gráti yfir feg-
urðinni … 44
»