Morgunblaðið - 21.02.2009, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 21.02.2009, Blaðsíða 43
Rauði þráðurinn í listaverkunum er hið svarta blý en veigamesti hluti sýningarinnar er blýantsteikningar á pappír. Helgi notar blýið einnig á lágmyndir og skúlptúra. Viðfangs- efnið er maðurinn, oft í samhengi við þau verkfæri sem hann hefur skapað til að mæla og kortleggja tilvist sína. Eintal listamannsins Listamaðurinn sjálfur mun ganga með gestum um sýninguna hinn 15. mars en þá fá gestir tækifæri til að ræða verkin við Helga. „Listsköpun er alltaf eintal listamannsins við verk sín, þess vegna sýnir maður verkin, til að fá viðbrögð og umræðu. Öll umræða um þau er jákvæð. Þetta verður samtal þriggja, milli mín, gestanna og listaverksins.“ Hluti sýningarinnar er tengdur hug- myndavinnu, skissum og teikningum sem eru mikilvægur hluti sköpunar- innar. Því hefur verið komið upp að- stöðu fyrir gesti til að teikna og spá í blýið og eiginleika þess. Sunnudag- inn 1. mars verður opin listsmiðja fyrir börn í umsjón safnsins. Sýningin Verund stendur yfir til 29. mars í Hafnarborg. Eftir Ingibjörgu Rósu Björnsdóttur Nemi í blaða- og fréttamennsku Í HAFNARBORG verður opnuð í dag sýning á verkum Helga Gísla- sonar myndhöggvara undir heitinu Verund. Orðið er í raun samheiti yfir grunneiginleika og kjarna tilver- unnar. „Það má segja að þetta orð skapi umgjörð um verkin, vísi veg- inn,“ segir Helgi en bætir við að hann velji titla og nöfn á verk og sýningar eftir á, þegar sköpuninni er lokið og listamaðurinn fær yfirsýn yfir það sem hann hefur gert og hyggst sýna. Verkin á sýningunni hafi því ekki verið unnin með þeim formerkjum að þau eigi að sýna tilveruna í ákveðnu ljósi heldur einfaldlega lýsi þau tilvist mannsins sem er lista- manninum hugleikin. Samtal milli þriggja Helgi Gíslason opnar sýningu á verkum sínum í Hafnarborg Helgi Gíslason „Listsköpun er alltaf eintal listamannsins við verk sín.“ Morgunblaðið/Heiddi Menning 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009 Morgunblaðið/Ásdís Atli Ingólfsson „Það einkenndist af dramatískri andstæðu vélrænna tón- hendinga og lífræns hljómamisturs,“ segir m.a. um Is Anybody There? Listasafn Íslands Myrkir músíkdagar – kammertónleikar bbbnn Verk eftir Zemek, Stochl, Graham, Jón- as Tómasson og Atla Ingólfsson. Flytj- andi: Kammersveit Reykjavíkur ásamt einleikurum. Stjórnandi: Bernharður Wilkinson. Sunnudagur 8. febrúar. JÓNAS SEN TÓNLIST ÉG er hissa á því að enginn fékk hjartaáfall á tónleikum Kamm- ersveitar Reykjavíkur á Myrkum músíkdögum sunnudagskvöldið 8. febrúar. Eitt verkanna á efnis- skránni, kammerkantata eftir Peter Graham, hófst með ofsafengnum slagverksleik og manni snarbrá. Frank Aarnink barði þar stóra bassatrommu og hljóðin voru svo ægileg að ég skimaði yfir salinn til að sjá hvort einhver tónleikagesta væri í krampaflogum. Sem betur fer reyndist það ekki vera. Kammerkantatan er samin við texta úr bréfi eftir Kafka, en þar er að finna ljóðið Í kvöldsólarskininu, sennilega fyrsta ljóð höfundarins. Ljóðið er þrungið trega, og lág- stemmd tónlistin, sem tók við eftir fimbulhöggin, var angurvær, en með angistarfullri undiröldu. Ingi- björg Guðjónsdóttir söng ljóðið og gerði það einkar fallega, söngurinn var hófstilltur og gæddur fínlega mótuðum blæbrigðum sársauka og eftirsjár. Graham heitir réttu nafni Jar- oslav Stastny-Pokorn og mun vera tékkneskur. Fyrir utan nokkur ís- lensk verk á dagskránni voru tón- leikarnir helgaðir tékkneskri nú- tímatónlist. Í heildina var hún hin skemmtilegasta. The Way to the Common Language eftir Ondrej Stochl var túlkuð af sannfærandi innileika af Hrafnkatli Orra Egils- syni sellóleikara. Verra var að spila- mennska annarra strengjaleikara Kammersveitarinnar var ögn ósam- stæð, sem var fremur áberandi á tímabili. Svipaða sögu er að segja um Hommage to Lord Jesus eftir Pavel Zemek. Einleikur Matthíasar Nar- deau á enskt horn var glettilega fók- useraður og tær. Guðrún Edda Gunnarsdóttir söng líka stuttan einsöngskafla í lokin og gerði vel, en hefði kannski mátt vera skýrmælt- ari. Hljómsveitarleikurinn var auk þess fullsterkur á köflum fyrir söng- inn. Tvær íslenskar tónsmíðar voru á efnisskránni. Sú fyrri, Diaphane eft- ir Jónas Tómasson skartaði einleik Áshildar Haraldsdóttur flautuleik- ara. Þrátt fyrir góðan flautuleik náði tónlistin aldrei flugi. Verkið var ein- kennileg samsuða hálfkaraðra lag- lína og groddalegs slagverksleiks, sem virtist ekki hafa neinn tilgang og samsvaraði sér illa. Útkoman var hálfgerður óskapnaður. Verk Atla Ingólfssonar, Is Any- body There? var mun athyglisverð- ara. Það einkenndist af dramatískri andstæðu vélrænna tónhendinga og lífræns hljómamisturs. Þessar tvær hliðar tókust á og sköpuðu skýrt mótaða framvindu sem var marg- brotin og spennandi. Einleikur Rún- ars Óskarssonar á bassett klarin- ettu var að vísu hrjúfur og dálítið flausturslegur, en svei mér ef það fór ekki tónlistinni vel. Tónninn í klarinettunni var á köflum and- styggilegur, en mjúkur strengja- leikurinn skapaði skemmtilegt mót- vægi við ljótleikann, hampaði honum og gerði hann undarlega fagran. Já, fegurðin er svo sann- arlega afstæð. Hjartveikum ögrað EINU sinni, áður en tók að tínast sitthvað misdægurt úr ferli fyrrum byltingarhetju 68-kynslóðar, Maós Zedong, þóttu tilvitnandi orð hans um að „láta þúsund hríslur blómstra“ – s.s. að fjölbreytni ætti að ríkja í sem flestu. En ætli verði samt ekki að hrósa Myrkum mús- íkdögum fyrir hve fjölbreytnin hefur á síðari árum átt æ greiðari aðgang að þessari aðalhátíð íslenzkrar nú- tímatónlistar – hjá því sem áður var þegar aðeins reyndustu fram- úrstefnuhöfundar komust á pall. A.m.k. hvað varðar nýgræðinga með fortíð úr poppi eða enn afmarkaðri utangarðsgrein á við kvikmynda- músík, eins og átti við fulltrúa sl. laugardagskvölds. Reyndar hafði hvor þeirra þegar skapað sér talsvert nafn á sínu sviði og hefðu því e.t.v. mátt sanka að fleiri hlustendum en þeim liðlega 70 sem skipuðu sæti Salarins – er þætti að vísu ágæt aðsókn að nútíma- tónleikum hjá mun fjölmennari ná- grannaþjóðum. Allt um það bar sitt- hvað forvitnilegt á hlusthimnur, og undirtektir voru að sama skapi ágætar. Hvor höfunda átti hér þrjú verk. Hin fyrri voru fyrir hlé, öll eftir Ragnhildi Gísladóttur og fyrir ofan- greinda „uppmækaða“ áhöfn. C-iss og Gullfoss [6’; 2009] var þeirra sparneytnast og sagði mér líka minnst, enda á mörkum þess að geta staðið sjálfstætt utan hlutverks hljóðtalda við náttúrulífskvikmynd. Hávaðinn í sólinni [17’; 2008] við ljóð Kristínar Ómarsdóttur af lífs- upplifun heyrnarlauss barns frá fæðingu var í fyrstu álíka tilhöfð- unarsnautt í þurri effektaveröld sinni. Eða allt þar til við tóku barns- hljóð og að lokum kórkafli, að virtist „yfirdöbbaðar“ og ögn tölvubreyttar upptökur af söng Ragnhildar sjálfr- ar, er upphóf fötlun barnsins í æðra og heiðríkara vitundarstig. Að minni hyggju fór hér kannski mest heillandi framlag kvöldsins, enda þótt sumt úr kyrrstöðusíhreyfi flug- unnar í Túnfífli [5’; 2005] við kín- verskt fornljóð Hanns Jujs (d. 824) gæti einnig sperrt eyru hlustandans. Að ekki sé minnzt á glæsilegan „óp- eru“söng Ásgerðar Júníusdóttur, er jók vídd verkanna til muna við sam- stilltan meðleik hópsins. Áratuga reynsla af nútíma- tónleikum hefur því miður ekki stælt langlundargeðið sem skyldi, einkum gagnvart kyrrstöðu og/eða hjakki, sem á móti virðist frekar hafa færzt í tízku heldur en hitt. Sízt ber raunar að væna eitt reyndasta kvikmynda- tónskáld okkar um að tolla meðvitað í henni. Þó var stundum erfitt að verjast slíkum fordómum í fyrstu tveim af þrem höfundarkynntum verkum Hilmars Arnar Hilm- arssonar, Skjálfta [7’] og Bóreas [7’], sama hvað maður reyndi að lifa sig inn í djúpmarrandi flekaskil Reykja- nesskagans eða kosmískan samhvin norðurljósa og Kára í jötunmóð. Það var fyrst eftir frumflutning verkanna tveggja að hjartað tók heilnæman kipp í Stemmu [8’; frumfl. í núv. mynd]. Ekki sízt þökk sé seiðandi aldaniði af angurværri kveðandi Steindórs Andersens undir vikhendum bragarhætti – er að vísu keyrðist nokkuð í kaf við sam- anlagðan upptökuundirleik tölvu- hljóða og strengjasveitar. Fallegt verk, og spunnið úr dýpstu þjóð- arrótum. Morgunblaðið/Kristinn Ragga Gísla „Að minni hyggju fór hér kannski mest heillandi framlag kvöldsins,“ segir gagnrýnandi um brot úr verki Ragnhildar Gísladóttur. Salurinn Myrkir músíkdagar – kammertónleikar bbbnn Ný og eldri verk eftir Ragnhildi Gísla- dóttur og Hilmar Örn Hilmarsson. Pétur Grétarsson slagverk, Borgar Magnason kontrabassi, Ásgerður Júníusdóttir söngur, Kjartan Óskarsson klarínett, Ív- ar Ragnarsson hljóðleikur [„sound pro- duction“]. Ragnhildur Gísladóttir hljóð- myndir [„soundscapes“] og Steindór Andersen kvæðamaður. Laugardaginn 7. febrúar kl. 17. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Kyrrstaða tízkunnar Menningarmálanefnd auglýsir eftir myndlistamönnum sem óska eftir að bjóða Mosfellsbæ listaverk til kaups á árinu 2009. Menningarmálanefnd setur innkaupum skilyrði hverju sinni í samræmi við verklagsreglur. Forsendur listaverkakaupa 2009 1. Myndlistarmenn sem fyrir vali verða skulu uppfylla eitt eða fleiri af eftirfarandi skilyrðum: • Hafi lagt skerf til listalífs í Mosfellsbæ t.a.m. með sýningarhaldi. • Eigi lögheimili í sveitafélaginu. • Teljist með einum eða öðrum hætti hafa með list sinni lagt íslenskri menningu lið. 2. Ljósmynd af verki, ferilskrá listamanns, verð og texti um verkið skal skila inn á rafrænu formi eigi síðar en 13. mars, 2009. Leyfilegt er að senda inn tvö verk að hámarki. 3. Umsóknir skulu merktar Menningarsviði Mosfellsbæjar og skal skilað í Þjónustuver Mosfellsbæjar á geisladiski eða sent með rafrænum hætti á netfangið: mos@mos.is 4. Nefndin áskilur sér rétt til að hafna umsókn umsækjanda að hluta eða alfarið. 5. Niðurstöður menningarmálanefndar Mosfellsbæjar munu liggja fyrir eigi síðar en 16. apríl 2009 og eru háðar samþykki bæjarstjórnar. Fræðslu- og menningarsvið Mosfellsbæjar Þverholti 2, 270 Mosfellsbær Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir listaverkum til kaups te fá n / FÍ T S

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.