Morgunblaðið - 21.02.2009, Page 44

Morgunblaðið - 21.02.2009, Page 44
44 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009 Fólk Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@mbl.is ÞÝSKI plötusnúðurinn Stephan Bodzin starfar af mikilli nákvæmni og gerir gífurlegar kröfur þegar kemur að hljóð-, ljósa- og skjákerfi á tón- leikum hans. Bodzin, sem spilar á NASA í kvöld á vegum PartyZone, var með þvílíkar tæknikröf- ur til aðstandenda að þeim varð ljóst að tækja- búnaður NASA var ekki nægilega fullkominn til þess að uppfylla sett skilyrði. „Við þurfum að leigja allt upp á nýtt, hljóð- kerfi og allt draslið,“ segir Helgi Már Bjarnason, annar helmingur PartyZone-tvíeykisins. „Hann setur líka voða kröfur er kemur að öllu öðru. Hann vill bara gista á Hótel 101, bara borða á Fiskmarkaðnum og drekkur aðeins sérstaka teg- und af kampavíni. Hann er svolítill töffari. Það eru til nýstirni sem poppa upp og eru nöfn í stuttan tíma. Svo eru kappar eins og hann, sem eru alltaf hluti af senunni.“ Þetta verður í annað skipti sem Stephan Bodz- in heimsækir Íslendinga en hann spilaði í lokuðu einkapartíi CCP á Nasa fyrir um tveimur árum. „Þá var hann með afskaplega líflega sviðs- framkomu. Sveiflaði einhverjum analóg- hljóðtöfrasprota um loftið eins og hann væri að stjórna hljómsveit. Úr þessu komu einhver rosa- lega skrítin teknóhljóð. Hann er líka með vídeó- listaverk í gangi allan tímann sem hann spilar.“ Biggi Veira og Oculus hita upp á NASA í kvöld. Tækjabúnaður NASA uppfyllti ekki kröfurnar Stephan Bodzin Mjög víraður plötusnúður sem spilar „bodzin, bodzin, bodzin“-tónlist.  Listinn yfir vinsælustu lög lands- ins sem birtist í Morgunblaðinu á fimmtudag vakti töluverða athygli því mörgum til mikillar undrunar reyndist lagið „Got No Love“ með stúlknasveitinni Elektru mun vin- sælla en sigurlag Söngvakeppn- innar, „Is It True“ með Jóhönnu Guðrúnu. Hvernig gat þetta stað- ist? spurðu margir sig og í kjölfarið fóru samsæriskenningarnar á kreik. Mikið var bloggað við fréttina og virtust sumir bloggarar harðir á því að þarna væri komin sönnun þess að það hefðu verið mistök hjá þjóðinni að velja Jóhönnu Guðrúnu út til Rússlands í maí. Málið er þó ekki svo einfalt – því miður – því Lagalistinn sem birtist síðasta fimmtudag tekur í raun yfir spilun á útvarpsstöðvum landsins vikuna fyrir Söngvakeppni Sjón- varspsins (nánar tiltekið mánud. 9. feb - sunnud. 15. feb) og því ekki skrýtið að fjölmiðlafárið í kringum Elektru skyldi smitast inn í út- varpsspilunina. Á hinn bóginn leiðir þetta mann að þeirri spurningu hvort plögg- meistarinn Valli Sport hafi látið Elektru toppa of snemma og þjóðin hafi einfaldlega verið komin með nóg af stúlknarokkinu þegar á hólminn var komið. Lagalistinn: Toppaði Elektra of snemma?  Hinn 6. mars nk. verður stutt- mynd Braga Þórs Hinrikssonar, „Aldrei stríð á Íslandi“, frumsýnd og verður hún sýnd á undan frum- sýningu nýjustu og jafnframt síð- ustu kvikmyndar Clints Eastwood sem leikara, Gran Torino. Nauð- synlegt var að fá samþykki hjá- Eastwood sjálfum til þess að fá að sýna myndina á undan Gran Tor- ino. Logs.is spáir því að myndin muni þ.a.l. fá mun betri dreifingu hér- lendis en stuttmyndir almennt og því verði forvitnilegt að sjá hvort framhald verði á því að sýna stutt- myndir á undan lengri myndum. Fékk leyfi hjá sjálfum Clint Eastwood Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is TRAUSTATAK það sem hljóm- sveitin Dúndurfréttir hefur á önd- vegisverkum Pink Floyd hefur vakið aðdáun margra og er svo komið að Floyd-þyrstir utan land- steina hafa sælst eftir þessum kröftum. Þannig er hljómsveitin nú stödd hjá bræðrum vorum og systrum í Færeyjum og mun flytja The Wall á þrennum tón- leikum í Norræna húsinu. Pétur Örn Guðmundsson söngvari, „Pét- ur Jesú“, var hinn kátasti þegar blaðamaður sló á þráðinn til hans og var auðheyranlega kominn í mikinn Færeyjagír, ástand sem margir Frónbúar þekkja vel. „Þetta er dásamlegt,“ segir hrærður Pétur. „Við erum að koma hingað í fyrsta skipti og er- um satt að segja snortnir. Verst að við komumst ekki fyrr út en við lendum á þriðjudag.“ Villtust á hringtorgi Meðlimir búa í miðbæ Þórs- hafnar og fór fríður flokkurinn á flandur um nærsveitir á öðrum degi. Ekki vildi þó betur til en svo að hersingin villtist á einu hring- torginu og lenti í einhverjum afdal sem þykir lítil túrhestaprýði. „En annars höfum við bara ver- ið að æfa þetta með sinfóníusveit- inni,“ segir Pétur. „Það voru víst fluttir hingað spilarar frá Dan- mörku sérstaklega vegna tón- leikanna þannig að tilstandið er mikið. Það er gríðarleg stemning fyrir tónleikunum og allir alveg óskaplega glaðir með þetta.“ Pétur á þá vart til orð til að lýsa sjálfu húsinu, en Norræna húsið í Færeyjum er stórt að vöxt- um og sérdeilis vel heppnað sem tónleikahús. Arkitektúrinn sækir þá á vissan hátt í forna tíma. „Þetta er nokkurs konar túrbó- torfkofi,“ segir Pétur og hlær að sjálfum sér. „Ef fjármálavæðingin hefði átt sér stað á landnámsöld en ekki í dag hefðu híbýli forn- manna litið svona út!“ Grætur karlmannlega Pétur og Co hafa þá verið sveip- aðir annálaðri gestrisni Fær- eyinga síðan þeir stigu frá borði á flugvellinum í Vági. „Það er undarlegt að vera í fyrsta skipti frá stærri þjóð,“ seg- ir Pétur hugsi. „Maður hefur van- ist því að vera frá litla Íslandi. Fólkið hérna er yndislegt, ég verð bara að segja það. Talar meira að segja við mann á íslensku ef því er að skipta. Þeir hafa greinilega samsamað sig öllu því besta sem þrífst á Norðurlöndum og sneitt frá öllum daunillum dreggjum. Hvað get ég sagt: Hér vil ég vera!“ Pétur segir blaðamanni að það sé nokkuð ljóst að þetta verði ekki síðasta heimsókn sveitarinnar til eyjanna. „Við vorum að renna í gegnum settið í gær og við litum hvor á annan og lyftum upp handleggj- unum til að sýna hvor öðrum gæsahúðina. Þetta er þannig efni að það er ekki annað hægt. Þegar við bætist snilldarleg útsetning Halla (Haraldar Vignis Svein- björnssonar) og heil sinfóníusveit er ekki að spyrja að því. Ég græt karlmannlegum gráti yfir fegurð- inni – og er stoltur af því!“ Pink Floyd í Færeyjum  Dúndurfréttir flytja The Wall í Færeyjum ásamt sinfóníuhljómsveit eyjanna  Þrennir tónleikar í gerðarlegu Norrænu húsi eyjaskeggja og uppselt á þá alla „Fínur tónleikur“ Dúndurfréttamenn á æfingu í gær í Norræna húsinu í Þórshöfn, sannkölluðum „túrbó-torfkofa“. Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@mbl.is TROMMULEIKARINN Björn Stefánsson hefur ákveðið að flytjast til Danmerkur í næsta mánuði ásamt fjölskyldu sinni, þar sem hann stefn- ir á að fara í nám. Björn hefur verið afar áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu ár, gegnt lykilhlutverki í Mínus, komið fram í gervi Micks Jaggers í íslenskri heiðrunarsveit Rolling Stones auk þess að fylla poppsveitina Motion Boys nýju lífi eftir mannabreytingar þar. „Mínus mun halda sínum sessi en mun ekki starfa eins stíft á meðan ég er úti en ég segi skilið við Motion Boys í bili,“ segir Björn sem hefur trommusettið sitt með sér til Dan- merkur. „Ég vil hverfa frá því þæg- indasvæði sem ég hef verið á yfir í eitthvað sem víkkar hugann aðeins. Ég þrái eitthvert nýtt verkefni.“ Björn segir það ekki hafa verið rætt innan Mínuss að skipta um trommuleikara í fjarveru hans. Sveitin hefur verið að semja ný lög upp á síðkastið og hugmyndin er að hljóðrita hans parta áður en hann flýgur á brott á vit nýrra ævintýra. Björn segist vera í óðaönn að ganga frá lausum endum áður en hann flyt- ur út. Kona hans og barn hafa búið þar úti í einhvern tíma og því hafi það legið í loftinu að hann myndi fylgja í kjölfarið. Hann ætlar þó að kveðja klakann með stæl. „Ég kem fram á Nasa á föstudaginn næsta með Rolling Stones-bandinu mínu, sem er hálfgert kveðjupartí fyrir mig. Þetta er skrítið, ég er alveg með „mixed emotions“ yfir þessu, bæði kvíðinn og spenntur,“ segir Björn að lokum. Bjössi hættir í Motion Boys og flytur til Danmerkur Morgunblaðið/Árni Sæberg Björn Stefánsson Einn litríkasti trommuleikari landsins er á leiðinni út. Starfar þó áfram með Mínus, en ekki eins stíft og áður Dúndurfréttir fluttu fyrst The Wall á hljómleikum sumarið 2007 en áður höfðu þeir leikið The Dark Side of the Moon við góðan orðstír. Pétur segir að þá hafi alltaf langað til að fara með Vegginn víðar og Færeyjar hafi verið eyrnamerktar fyrir slíkt í október í fyrra. Kreppan setti strik í þann reikning en það var svo Bernard Wilkinson, sem hefur stjórnað verkinu á tón- leikum, sem greiddi götuna en hann er með annan fótinn í eyj- unum. Þrándur í Götu?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.