Morgunblaðið - 06.03.2009, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 06.03.2009, Blaðsíða 20
20 Fermingar Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@mbl.is T æplega 130 börn fermast borg- aralega í ár en í gegnum árin hefur þeim börnum sem kjósa að láta ferma sig á þennan hátt fjölgað jafnt og þétt. Það er Siðmennt sem sér um fermingarund- irbúning og athöfnina en foreldranefnd sér að miklu leyti um skipulagningu henn- ar. Annar fjölmennasti hópurinn „Þetta er annar fjölmennasti hópurinn sem fermst hefur á þennan hátt en þetta er í 21. skiptið sem borgaraleg ferming er haldin hér á landi. Þær hófust með þeim hætti að formaður félagsins, Hope Knúts- son, var með börn á fermingaraldri og vissi að slíkar athafnir tíðkuðust erlendis. Hún skrifaði grein í dagblað þar sem hún sagði frá þessu og spurði hvort fleiri vildu vera með, en í fyrsta skiptið létu 16 börn ferma sig á þennan hátt. Í ár hefur orðið mikil aukning í þátttakendum utan af landi en þátttakendur í útlöndum hafa einnig sótt fræðslu hjá okkur í fjarnámi í gegnum tölvu,“ segir Jóhann Björnsson, MA í heimspeki og kennari sem hefur um- sjón með fermingarnámskeiðum. Gagn og gaman Fermingarfræðslan er 12 vikna nám- skeið þar sem fermingarbörnin læra ým- islegt sem gagnlegt er fyrir þau að fara í gegnum fyrir fullorðinsárin. Meðal mark- miða námskeiðsins er að þátttakendur til- einki sér gagnrýna hugsun, efli umhugs- unarvirkni sína og öðlist þekkingu á ýmsu sem gagnlegt er fyrir fullorðinsárin svo sem samskiptum kynjanna, skaðsemi áfengis- og vímuefna, siðfræði og svo framvegis. Einnig að nemendur læri á eig- in tilfinningar, jafnt gleði sem sorg og að þeir læri að treysta eigin dómgreind, bera ábyrgð á lífi sínu og taka ábyrga afstöðu. Foreldranefnd skipuleggur Hápunktur fermingarinnar er virðuleg lokaathöfn þar sem fermingarbörnum er frjálst að vera með atriði ef þau vilja, spila á hljóðfæri, flytja ræðu, lesa upp eða ann- að slíkt. Skipulagning athafnarinnar er í höndum foreldra sem sitja í foreldra- nefnd. Þeir leggja heilmikið til málanna við umgjörð athafnarinnar og koma með tillögur að utanaðkomandi ræðumönnum sem fengnir eru til að ávarpa hópinn. Fræðsla á tveimur stöðum „Í fyrsta tímanum þegar krakkarnir eru að kynnast hef ég varpað fram spurn- ingunni af hverju þau velja þetta og fæ mörg og mismunandi svör. Stór hópur þeirra tilheyrir ekki neinu trúfélagi og síð- an eru alltaf einhverjir sem tilheyra trú- félögum þar sem ferming tíðkast ekki, til að mynda krakkar sem eru í Ásatrúar- eða Búddistafélaginu. Síðan eru alltaf ein- hverjir sem koma úr þjóðkirkjunni en vilja af einhverjum ástæðum ekki vera með þar eða telja sig ekki alveg tilbúin til þess að strengja trúarheit. Þá er það nokkuð oft þannig að börnin sækja bæði fræðslu hjá okkur og þjóðkirkjunni og það er alveg frjálst af okkar hálfu,“ segir Jóhann. Morgunblaðið/Golli Fermingarfræðsla Jóhann með fermingarbörnunum sem læra ýmislegt sem gagnlegt er fyrir fullorðinsárin. Áhersla á gagnrýna hugsun Virðuleg lokaathöfn Skipulagning er í höndum foreldra sem sitja í foreldranefnd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.