Morgunblaðið - 06.03.2009, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 06.03.2009, Blaðsíða 33
Fermingar 33 Ábúðarfullt Með þessari fermingarkveðju er barninu bent á hina þungu ábyrgð sem nú hvílir á því. Skrautlegt Kort þar sem ferming- arstúlkan sprettur upp úr miðju þess. Kortið er frá árinu 1969. Fermingaróskir Litríkt kort með hug- heilum óskum og ákveðnum undirtóni. Ferskleiki og bjartir litir Morgunblaðið/Heiddi „Skreyting í svona háum vasa er frábær á veisluborðið því hún vekur alltaf athygli. Þessa skreytingu getum við gert fyrir fólk eða kennt því að gera hana sjálft en við seljum allt efni sem til þarf í skreyt- inguna. Í botninum eru klakasteinar sem við festum vír í og setjum í rósirnar, síðan notum við steina sem við köllum daggar- dropa með, sem sumir sökkva og aðrir fljóta eða sitja ofan á rósunum og mynda þannig þetta tæra útlit,“ segir María Más- dóttir, eigandi Blómahönnunar í Listhús- inu. Diskókúlur og rósir Þegar keypt eru blóm í versluninni er hægt að fá lánaða vasa af ýmsum stærð- um og gerðum auk þess sem hægt er að leigja vasa. Með stórum vösum segir María að fólk geti útbúið fallega hlað- borðsskreytingu með nokkrum rósum og fylgihlutum til að dreifa á borðið. „Við eig- um til skraut til að dreifa á borðið fyrir hvaða þema sem er, litlar diskókúlur í fjórum litum, fíngerða steina í ýmsum lit- um og daggardropana sem er líka hægt að nota í kringum skreytinguna, svo og perl- ur, kuðunga og fjaðrir. Í ár eru bjartir litir vinsælir og íslensk blóm en þessa skreyt- ingu má gera með flestum blómum. Í anda árstíðarinnar finnst mér flott að skapa ferskleika, til dæmis með því að nota sam- an bleikt, appelsínugult og límónugrænt á fermingarborðið,“ segir María. Orkedíur í skreytingar Hún segir mikla vakningu hafa orðið í íslenskum blómum, til dæmis rósum í alls konar litum en einnig noti hún orkídeur í skreytingar. Eina grein sé hægt að nota í tvær, þrjár skreytingar og eins sé hægt að klippa knúppana niður og dreifa á veislu- borðið þar sem þær þoli að vera án vatns í þó nokkurn tíma. Þá séu oft gerðar per- sónulegar skreytingar sem festar séu við fótboltaskó, tennisspaða eða annað sem tengist fermingarbarninu. maria@mbl.is Íþróttamiðstöðinni í Laugardal sími 588 9900 fyrirspurn@itferdir.is www.itferdir.is Falleg gjöf fyrir fermingarbarnið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.