Morgunblaðið - 06.03.2009, Blaðsíða 28
28 Fermingar
Er góða veislu gjöra skal er
mikilvægt að gestirnir viti hvert
og hvenær þeir eiga að mæta til
veislunnar. Einnig að tekið sé
fram hver kirkjan er fyrir þá
sem vilja vera viðstaddir ferm-
inguna. Vinsælt er að senda
persónulegt boðskort með
mynd af fermingarbarninu, en
sumir vilja frekar senda látlaus
kort. Nóg er til af slíkum kortum
og mörg fyrirtæki starfrækt þar
sem hægt er að panta kort eftir
smekk og hentugleika hvers og
eins. Víða getur fólk valið hvort
það setur sjálft upp kortið á
netinu eða kemur á staðinn.
Skemmtileg Hjá Gallerí Lind bjóðast ýmsar út-
gáfur af persónulegum boðskortum.
Fjölbreytt
boðskort
Finnur Eiríksson hjá Frum segir einnig orðið vinsælt
að láta gera nafnspjöld fyrir gestina til að leggja við
disk hvers og eins þegar raðað er til borðs. Í sumum
tilfellum séu þá hafðir málshættir eða einhver góð
spakmæli í kortunum sem ef til vill séu lesin upp við
borðhaldið. Þetta geti verið skemmtilegt og fyndið
ef vel takist til með val á texta fyrir viðkomandi per-
sónu. Slíkt sé góð leið fyrir veislugesti til að brjóta
ísinn og taka þátt í veisluhaldinu.
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@mbl.is
Þ
að getur verið töluverð vinna
að útbúa veitingar fyrir ferm-
ingarveislu en vel mögulegt
sé byrjað snemma að huga að
veislunni. Guðrún Jóhanns-
dóttir, matgæðingur og höfundur mat-
reiðslubókanna Hollt og ódýrt og Hollt
og fljótlegt, hélt fermingarveislu fyrir
átta árum og hvetur fólk til þess að
huga snemma að veitingunum. „Löngu
áður er í raun hægt að hanna matseð-
ilinn, finna skreytingar og viða að sér
hugmyndum. Svona tveimur vikum áð-
ur má gera þá rétti sem þola frost og
tveimur til þremur dögum áður er
hægt að baka það sem þarf að baka.
Aðalvinnudagarnir eru dagurinn fyrir
ferminguna og kvöldið áður og ég mæli
því endilega með að fá vini og vanda-
menn til að hjálpa. Það sem skiptir
mestu máli er að vera afslappaður,
glaður og stressa sig ekki um of.“
Ódýrt í bland við dýrt
Guðrún talar líka um að hægt sé að
gera góðan veislumat úr ódýru hráefni.
„Gott hráefni skiptir öllu máli en það
þarf ekkert endilega að vera dýrt. Þá
skiptir máli að vera svo útsjónarsamur
að finna góðan og ódýran mat og þó að
allur matur hafi hækkað í verði þá er
sumt ódýrara en annað. Það er til
dæmis mjög sniðugt að blanda saman
glæsilegri réttum ásamt einfaldari og
ódýrari réttum. Til að auðvelda sér
vinnuna er líka tilvalið að hafa rétti
sem einfalt er að útbúa í bland við
flóknari rétti. Það má til dæmis baka
alls kyns brauð, til að mynda ávaxta-
brauð, ólífubrauð og fleiri. Þá má gera
salöt, fyllingar og kæfur til að hafa
með. Brauð er mjög bragðgott og fyll-
andi sem er sniðugt að hafa með ein-
hverjum öðrum og íburðarmeiri rétt-
um. Ostapinnar eru líka að koma aftur
í tísku en þeir eru einfaldir og góðir.
Svo má líka nefna fyllt egg sem eru
bæði saðsöm og ódýr.“
Skipulagt á veisluborðið
Það getur verið erfitt að áætla hve
mikinn mat þarf fyrir ákveðinn fjölda
gesta og sjálfsagt eru einhverjar reglur
um hvernig er best að áætla mat, að
sögn Guðrúnar. „Ein leiðin er að áætla
hvað maður sjálfur myndi borða mikið í
svona veislu og margfalda út frá því.
Sumir borða náttúrlega minna og aðrir
meira og því ætti magnið að nægja.
Upp á aðrar veislur í framtíðinni er
mjög sniðugt að skrifa hvað var borðað
í veislunni og hvað var í afgang því þá
verður mun auðveldara að áætla mat-
inn í næstu veislur. Svo má líka hringja
í veisluþjónustur og spyrja hvað sé
gert ráð fyrir mörgum bitum á mann
og reyna að áætla út frá því. Annað
sem mér finnst gott að gera fyrir veisl-
ur er að teikna upp veisluborðið,
hvernig ég ætla að hafa borðið og raða
á það. Þannig er auðvelt að sjá þetta
fyrir sér,“ segir Guðrún sem lætur
fylgja með þrjár uppskriftir sem eiga
heima á veisluborðinu.
Brauð með grilluðu grænmeti
Brauð eftir eigin vali
Rauð paprika
Rauður laukur (skorinn í fleyga)
Sveppir (skornir í sneiðar)
Kúrbítur (skorinn í sneiðar)
Fetaostur
Ólífuolía
Hunangs-dijonsinnep
Grænt blaðkrydd til skreytingar
Aðferð: Skerið grænmetið niður og setj-
ið botnfylli af því á bökunarpappír í
ofnskúffu. Bakið við 200 gráður þar til
grænmetið verður meyrt en ekki of
mjúkt og hefur kolast örlítið eða um
20-30 mínútur. Saltið og piprið græn-
metið þegar það hefur bakast og
dreypið dálitlu af ólífuolíu yfir.
Skerið brauðið í snittur og penslið
sneiðarnar með ólífuolíu (má nudda
þær með hvítlauk) og ristið þær aðeins
í ofni. Smyrjið sneiðarnar þá aftur með
hunangssinnepi og raðið grænmetinu
ofan á. Setjið litla bita af fetaosti eða
mozzarellaosti ofan á og skreytið síðan
að lokum með einhverju grænu blað-
kryddi, til dæmis steinselju, ferskum
kóríander eða vatnakarsa.
Frískleg flatkökupítsa
með hangikjöti
Flatkökur
Hangiálegg
Mangó
Rauð paprika (má vera fersk en er
Góður undirbúningur
Það þarf útsjónarsemi og vinnusemi að útbúa veitingar í
stóra fermingarveislu en það er vel mögulegt sé hugað
snemma að veitingunum. Þá er tilvalið að blanda saman rétt-
um sem fljótlegt er að útbúa og réttum sem eru flóknari.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Guðrún Jóhannsdóttir matgæðingur Gott hráefni skiptir öllu máli en það þarf ekk-
ert endilega að vera dýrt. Eins er hægt að blanda dýrari og ódýrari réttum saman.
Fermingar-
myndir
Svipmyndir
Hverfisgötu 50
Sími 552 2690
www.svipmyndir.is