Morgunblaðið - 06.03.2009, Blaðsíða 39
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
É
g vígðist árið 1995 og var prestur
í Grafarvogi til ársins 2004. Þar
eru fermd mörg börn á hverju
ári svo ég öðlaðist reynslu þar af
slíkum preststörfum. Það er oft krefj-
andi að vinna með þessum aldurshópi
því unglingarnir hafa margar spurn-
ingar og margt að breytast hjá þeim.
Það eru forréttindi að hafa fengið að
hitta allt þetta unga fólk og kynnast
því,“ segir Sigurður sem auk prests-
starfa gegnir störfum fyrir utanríkis-
ráðuneytið og tekur á móti sjúklingum
sem koma að heiman til lækninga í
London.
Notast við tölvusamskipti
Í London segir Sigurður að stefnt sé
að því að ná um fimm klukkutímum
saman með börnunum einu sinni í mán-
uði sem helgist fyrst og fremst af því að
fólk komi mjög víða að. Sumir þurfi að
ferðast langar leiðir en inn á milli sé þá
notast við tölvu til að gera verkefna-
vinnu og heimavinnu með dyggri aðstoð
foreldra og forráðamanna. Í fyrra var
boðin fræðsla þar sem foreldrar sátu
með en hana sá Sigurður um ásamt
Friðfinni Þorsteinssyni, sem hefur
reynslu af fermingarfræðslu frá Íslandi
og er í framhaldsnámi í London. Flestir
af unglingunum fermast síðan á Íslandi,
en Sigurður fór í fyrsta skipti heim til
Íslands í fyrra og fermdi þar nokkra
sem höfðu verið í fræðslu hjá honum í
London, líkt og íslenski presturinn í
Noregi hefur gert nokkrum sinnum. Þá
hefur hann líka fermt unglinga í London
og víðar í Bretlandi. Í Lúxemborg
ganga til spurninga fjögur til fimm börn
á ári og þau fá fræðslu nokkrum sinnum
yfir árið og síðan á netinu og með tölvu-
póstssamskiptum þess á milli. Þau ferm-
ast að öllu jöfnu heima á Íslandi en einn
til tveir fermast að jafnaði á ári í Lúx-
emborg. Hjá sumum fermingarbörn-
unum er íslenska ekki fyrsta mál og því
er notast við bókina Fylgið Jesú, sem
þýdd er af ensku á íslensku. Sum skila
þá líka verkefnum á ensku eða þýsku
fyrir þau sem fædd eru og uppalin í
Lúxemborg, en annars fer öll fræðsla
fram á íslensku.
Ferðalag til Íslands
„Síðastliðin þrjú ár höfum við farið til
Íslands á fermingarnámskeið yfir eina
helgi í Skálholt og við fengið styrki fyrir
mat og uppihaldi, ættingjar og vinir
hafa síðan aðstoðað með gistingu á Ís-
landi og við hóað okkur saman í bíla til
að keyra austur og eitt foreldri fylgt
okkur til halds og trausts. Þessar ferðir
hafa mikið að segja, meðal annars vegna
þess að unglingarnir koma víða að og
þekkjast flest ekkert áður en fræðslan
hefst að hausti og hafa náð mikilvægum
tengslum í þessari ferð og í framhaldi af
henni þróast með þeim vinátta og sam-
skipti. Sökum aðstæðna í þjóðfélaginu
verður ekki hægt að fara í slíka ferð í
ár en með vorinu ætlum við að reyna að
hittast einn dag fyrir utan London í
staðinn,“ segir Sigurður.
Morgunblaðið/Kolla
Prestur í London Sigurður fermir börn sem búa í Englandi og Lúxemborg.
Fermt í London
og Lúxemborg
Sigurður Arnarson er sendiráðsprestur í London og sér um
fermingarfræðslu barna í Bretlandi og Lúxemborg. Sum
fermingarbörnin ferðast langar leiðir til að taka þátt í mán-
aðarlegri fermingarfræðslu í London.
Fermingar 39
Engjateigi 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is
Skólavörðustíg 7 • 101 Reykjavík • Sími 551 5814 • www.th.is
M
b
l1
09
27
61
Til fermingagjafa
FERÐATÖSKUR
ÍÞRÓTTATÖSKUR
BEAUTYBOX
BAKPOKAR
SEÐLAVESKI
TÖLVUTÖSKUR
Komið í miðbæinn og
skoðið fermingatilboðin
okkar