Morgunblaðið - 06.03.2009, Page 34
34 Fermingar
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
S
íðustu ár höfum við farið út með
um 100 krakka, bæði stelpur og
stráka, en í skólanum eru krakk-
ar alls staðar að úr heiminum og
eru þarna um 300 krakkar þegar
mest er. Skólinn er alvöru æfingabúðir þar
sem starfa bæði þjálfarar og sjúkraþjálf-
arar og eru oft þrjár æfingar á dag en við
dveljum þarna í 10 daga. Krakkarnir eru
því oft þreyttir eftir daginn og verða eig-
inlega að hafa eitthvað æft fótbolta áður
því annars er þetta svo líkamlega erfitt.
Það er nú samt ekki bara æfður fótbolti í
ferðinni því einnig er farið í hálfsdags
skoðunarferð á fótboltavöll þar sem krakk-
arnir geta valið um að heimsækja annað
hvort Anfield eða Old Trafford. Síðan er
líka farið að minnsta kosti á einn leik í
hverri ferð. Krakkarnir hafa verið mjög
áhugasamir og duglegir og koma gjarnan
nokkrir vinir saman en þó eru líka alltaf þó
nokkrir sem koma einir en sjá strax í flug-
stöðinni að þeir kannast við hina og þessa
sem þeir hafa keppt við einhvern tímann
heima,“ segir Hanna.
Lagst á eitt
Hanna stóð á sínum tíma fyrir því að
fara með elsta strákinn sinn og hóp úr
Aftureldingu til útlanda í ferð. Með í för
var þá Anna vinkona hennar sem starfar
við hlið hennar í ferðunum í dag. Þær
hjálpuðu á þessum tíma mörgum krökkum
sem vildu fara í slíkar ferðir á eigin vegum
og þetta vatt þannig upp á sig að ÍT ferðir
ákváðu að skipuleggja slíkar ferðir á sín-
um vegum og fengu þær Önnu og Hönnu
til liðs við sig sem fararstjóra. Hanna segir
aðsókn í ár vera góða þrátt fyrir ástandið í
þjóðfélaginu. Þetta geti að hluta til skýrst
af því að minna verði um skipulagðar ferð-
ir hjá íþróttafélögunum og foreldrar og
ættingjar leggist þá frekar saman á eitt til
að krökkunum gefist kostur á að fara í slík-
ar ferðir.
Pínu heimþrá
Hanna og Anna eru sannkallaðar fót-
boltamömmur sem leysa úr vandamálum
sem kunna að koma upp og draga úr
heimþrá sem á til að gera vart við sig.
„Krakkarnir geta leitað til okkar með allt
og við erum boðnar og búnar ef þeir vilja
spjalla. Eins þarf stundum að túlka ef eitt-
hvað vefst fyrir krökkunum, kenna þeim
að þvo þvottinn og vera stundvís. Við höf-
um séð munstur í þessu þar sem fyrstu
dagana er allt mjög spennandi en síðan
byrja sumir að fá pínu heimþrá sem síðan
lagast, en undir lokin tekur gjarnan við
heimþrá hjá þeim sem eru orðnir spenntir
að komast heim,“ segir Hanna.
Íþróttaiðkun afar mikilvæg
„Ég er mikil áhugamanneskja um fót-
bolta og hef alltaf verið þó ég hafi aldrei
æft fótbolta en ég ólst upp í sveit þar sem
ekkert slíkt var í boði. Strákarnir mínir
þrír æfa allir og keppa í fótbolta og dóttir
mín er í dansi núna en æfði áður frjálsar
íþróttir. Lífið snýst því að miklu leyti um
fótbolta á heimilinu og hér eru heilög kvöld
þegar fótboltaleikir eru í sjónvarpinu.
Maður leggur allt á sig til að styðja við
íþróttaiðkun barnanna enda er slíkt mjög
mikilvægt. Í ferðunum er líka afar dýr-
mætt fyrir krakkana að vera í svona hóp
sem heldur kannski saman meira og minna
allt lífið. Strákurinn minn sem fermdist í
fyrra fór til dæmis með í ferðina þá og er
núna í msn-sambandi við stóran hóp
krakka víðs vegar af landinu sem hann var
með þar. Það gefur okkur mikið hvað
krakkarnir eru ánægðir og finnst gaman í
ferðunum,“ segir Hanna.
Teygjutími Oft eru þrjár æfingar á dag og mikilvægt að fá sér vatn og teygja á milli.Fjör Um 100 stelpur og strákar fara árlega frá Íslandi í fótboltaskóla í Englandi.
Fótboltamömmur Fararstjórarnir Hanna og Anna leiðbeina hópnum með ýmislegt.
Ferðir í fótboltaskóla Bobby
Charlton í Englandi hafa
verið vinsælar hjá íslensk-
um unglingum og nokkuð
um að stórfjölskyldur taki
sig saman og gefi slíkar
ferðir í fermingargjöf. Þær
Hanna Símonardóttir og
Anna Grétarsdóttir eru far-
arstjórar í ferðunum og
sannkallaðar fótbolta-
mömmur.
Þróttmiklir krakkar í fótboltaskóla
Íslenskt handverk
Tákn heilagrar þrenningar
til styrktar blindum
Smáralind | sími 544 2332 | adesso@adesso.is | adesso.is
FERMINGARVEISLUR
Glæsilegar fermingartertur og kransakökur í öllum stærðum.
Getum einnig töfrað fram girnilegar tapasveislur.
Hafðu samband!