Morgunblaðið - 16.05.2009, Síða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009
Bjartari tímarFangaðu ljósið og færðu stofuna út í sumar
Lambo Lounger
69.900,-
einfaldlega betri kostur
30
%
af
slá
ttu
r
af
öll
um
Si
len
ce
dý
nu
m
Lambo Lounger. NÝTT. Garðsófi. Ø165cm. Innifalið í verði er sessa og 5 púðar.69.900,-
einfaldlega betri kostur
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19
s: 522 4500 www.ILVA.is
Skoðaðu hann á www.ILVA.is
NÝRSUMARBÆKLINGUR
NÝTT KORTATÍMABIL
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
FORYSTUMENN VR hafa óskað
eftir því við fulltrúa félagsins í stjórn
Lífeyrissjóðs verslunarmanna að
þeir stígi til hliðar svo unnt sé að
skipa nýja menn. Forstjóri lífeyris-
sjóðsins hefur sagt upp störfum.
Þorgeir Eyjólfsson, sem verið hef-
ur forstjóri Lífeyrissjóðs verslunar-
manna í 25 ár, tilkynnti stjórn félags-
ins uppsögn sína í gær. „Ákvörðunin
er tekin í framhaldi nýlegra breyt-
inga í baklandi sjóðsins,“ sagði Þor-
geir við mbl.is í gær.
Í vetur var kosinn nýr formaður í
stjórn VR og voru málefni Lífeyr-
issjóðs verslunarmanna mikið til um-
ræðu fyrir kosningarnar og síðan.
Þannig er stjórn VR að undirbúa til-
lögu sem lögð verður fyrir ársfund
lífeyrissjóðsins 25. maí nk. þess efnis
að laun forstjóra lækki. Laun for-
sætisráðherra verði viðmiðið.
Gunnar Páll Pálsson, fyrrverandi
formaður VR, er formaður stjórnar
lífeyrissjóðsins og á eitt ár eftir af
kjörtímabilinu.
Kristinn Örn Jó-
hannesson, for-
maður VR, stað-
festir að rætt hafi
verið við fulltrúa
VR í stjórninni
um „að þeir skapi
svigrúm fyrir
nýja menn í
stjórnina“, eins
og hann tekur til
orða. Þær samræður séu í gangi.
„Ég tel að niðurstöður kosninganna í
VR sýni að menn vilja breytingar,“
segir Kristinn.
Gunnar Páll segir að stjórnin muni
fara vel yfir þessi mál á fundi sínum
nk. mánudag. Þar verður jafnframt
rætt um ráðningu nýs forstjóra.
Rými fyrir nýjum mönnum
Forysta VR vill nýja menn í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna og lækka laun
forstjóra Þorgeir Eyjólfsson hefur sagt upp störfum sem forstjóri sjóðsins
Þorgeir
Eyjólfsson
Gunnar Páll
Pálsson
Kristinn Örn
Jóhannesson
Í HNOTSKURN
»Stjórn Lífeyrissjóðs versl-unarmanna er skipuð átta
mönnum. Fjórir eru tilnefndir
af stjórn VR og fjórir af sam-
tökum atvinnurekenda.
»Kjörtímabil stjórnar erþrjú ár. Núverandi stjórn
var skipuð frá 1. mars 2007 og
situr að óbreyttu fram á næsta
ár.
»Þorgeir Eyjólfsson hefursex mánaða uppsagn-
arfrest sem hann fær greidd-
an en ekki sérstakar starfs-
lokagreiðslur.
Gerðu betur en Birgitta Haukdal
Morgunblaðið/Eggert
Evróvisjón 2003 í flutningi Birgittu Haukdal.
Stúlkurnar gerðu því betur. Tvær stúlkur döns-
uðu í myndbandinu og allir bekkurinn var með.
Þátttakendur sendu inn myndbönd og í gær voru
gefin stig. Tvær stúlkur úr fjórða bekk sungu
lagið „Open your heart“ sem varð í níunda sæti í
FULLTRÚAR Íslands urðu í 4. sæti í „Schoolo-
vision“-söngkeppninni. Flataskóli í Garðabæ tók
þátt í keppninni ásamt 30 evrópskum skólum.
EITT þeirra fjöl-
mörgu listverk-
efna sem lands-
menn fá að njóta
á vegum Listahá-
tíðar í Reykjavík
tengist fjórum
vitum á landinu.
Ásdís Sif Gunn-
arsdóttir sýnir í
Kópaskersvita
við Öxarfjörð,
Curver Thorodd-
sen sýnir í Bjargtangavita á Vest-
fjörðum, Unnar Örn sýnir í Dala-
tangavita á Austfjörðum og
Gjörningaklúbburinn í Garð-
skagavita á Suðurnesjum.
Listamennirnir eru í samstarfi við
Lesbók Morgunblaðsins vegna verk-
efnisins og munu verk sem þeir hafa
unnið sérstaklega fyrir Lesbókina
rata á síður hennar af þessu tilefni á
næstu vikum. Curver Thoroddsen
ríður á vaðið þessa helgi og birtist
verk hans tengt Bjargtangavita á
baksíðu Lesbókarinnar í dag.
Sýningarstjórar verkefnisins eru
þau Dorotheé Kirch og Markús Þór
Andrésson. Samstarfsaðilar eru, auk
Listahátíðar, Siglingastofnun Ís-
lands, vitaverðir vitanna og menn-
ingarfulltrúar viðkomandi sveitarfé-
laga.
Leiftur af öðru tagi
Heiti sýningarinnar er sótt í ljóð
Davíðs Stefánssonar, sem ort var í
tilefni Alþingishátíðarinnar 1930.
Þar er vitum lýst sem leiðarljósum
sjófarenda. Í verkum myndlist-
armannanna er vitunum ætlað að
beina leiftri af öðru tagi inn í landið.
Fólk er hvatt til að ferðast á milli
vita í sumar og taka þátt í þessum
menningarviðburði og njóta um leið
einstakra mannvirkja og náttúrufeg-
urðar. Sýningarnar munu standa
fram yfir Listahátíð og lýkur ekki
fyrr en í byrjun ágúst. fbi@mbl.is
Brennið þið vitar
Samstarf Lesbókar við Listahátíð
OFSAAKSTRI 16 ára ökumanns í
gær lauk með því að bíllinn sem
hann ók hafnaði á hvolfi ofan í skurði
á móts við Gljúfrárholt í Ölfusi.
Eldur kom upp í bílnum og
slökktu lögreglumenn hann með
handslökkvitæki. Kalla þurfti út
slökkviliðsmenn frá Hveragerði til
að koma piltinum út úr bílnum. Sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar á
Selfossi er hann ekki talinn alvar-
lega slasaður.
Lögreglunni barst tilkynning um
tvöleytið í gær um ofsaakstur fólks-
bifreiðar við Rauðavatn á leið aust-
ur. Fleiri tilkynningar bárust síðar
um ofsaakstur piltsins.
Lögreglumenn við umferðareft-
irlit mættu bílnum rétt austan við
Hveragerði og var ökuhraðinn þá
118 km á klst. Lögreglumennirnir
sneru við á eftir bílnum en pilturinn
hélt ferð sinni áfram með fyrr-
greindum afleiðingum. Bíllinn er
ónýtur. ingibjorg@mbl.is
Ofsaakstri
lauk með
bílveltu
Ökumaður bifreið-
arinnar aðeins 16 ára
Morgunblaðið/Guðmundur Karl
Á slysstað Lögreglumenn og
slökkvilið að störfum.
ORKUSTOFNUN bárust tvær um-
sóknir um sérleyfi til rannsóknar
og vinnslu kolvetnis á Drekasvæði.
Umsóknarfrestur rann út í gær.
Umsóknirnar verða opnaðar
næstkomandi mánudag og nöfn fyr-
irtækjanna kunngjörð ásamt núm-
erum reitanna sem sótt var um.
Orkustofnun fagnar áhuga um-
sækjenda á útboðinu og vekur at-
hygli á að leitin sé kostnaðar- og
áhættusamt langtímaverkefni fyrir
væntanlegan leyfishafa en ávinn-
ingur geti orðið mikill ef leitin ber
árangur. helgi@mbl.is
Tveir vilja
Drekasvæði
HÓPUR fólks gagnrýndi í gær
stefnu stjórnvalda í málefnum
flóttamanna sem hér leita hælis
með setuverkfalli í dómsmálaráðu-
neytinu. Í hópnum voru um þrjátíu
manns.
Lögregla var kölluð til. Hópurinn
yfirgaf ráðuneytið án þess að til
átaka kæmi. Fólkið notaði einnig
tækifærið til að vekja athygli á máli
hælisleitanda sem hefur verið 24
daga í hungurverkfalli.
Setuverkfall í
ráðuneytinu
SLÖKKVILIÐIÐ slökkti eld sem
kom upp í íbúð í fjölbýlishúsi við
Suðurhóla í Reykjavík í gærkvöldi.
Íbúarnir yfirgáfu húsið ásamt öðr-
um íbúum stigagangsins.
Slökkviliðsmenn unnu að reyk-
ræstingu í gærkvöldi. Eldurinn
kom upp í eldhúsi íbúðarinnar.
Ekki var vitað um eldsupptök.
Eldur í blokk