Morgunblaðið - 16.05.2009, Page 30
30 Daglegt lífVIÐTAL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009
S
vandís Svavarsdóttir er nýr um-
hverfisráðherra landsins. Líkt og
faðir hennar, Svavar Gestsson,
verður hún ráðherra um leið og
hún sest í fyrsta sinn inn á Al-
þingi. Svavar og Svandís eru fyrstu feðgin
Íslandssögunnar sem gegna ráðherraemb-
ættum á Íslandi.
„Ég hef aldrei skilið spurninguna: „Hvern-
ig er að vera komin í pólitík?“ því mér hefur
alltaf fundist lífið vera pólitík,“ segir Svandís.
„Ég hef alltaf litið svo á að það væri mik-
ilvægt að beina kröftum sínum í að að breyta
heiminum. Það er hægt að gera það á svo
margan hátt. Til dæmis með því að vera
blaðamaður eða með því að vinna á Sam-
skiptamiðstöð heyrnarlausra eins og ég gerði
um tíma. Svo er líka hægt að breyta heim-
inum með því að fara í stjórnmál. Ég byrjaði
reyndar óvenjuseint, var orðin fjörutíu og
eins árs þegar ég sneri mér að stjórn-
málum.“
Þú ólst upp í mjög pólitísku umhverfi og
faðir þinn var umdeildur og áberandi stjórn-
málamaður. Hafði pólitísk umræða á heim-
ilinu mótandi áhrif á þig?
„Þegar ég var barn var pabbi blaðamaður
og ritstjóri á Þjóðviljanum. Það var mikil
umræða um stjórnmál á heimilinu, þar var
pólitíkin daglegt líf en hún líka greind utan
frá í heild, eins og blaðamenn og fjölmiðla-
menn gera. Öll sú umræða var nesti inn í
mitt pólitíska líf síðar meir, fremur en það
tímabil þegar pabbi var ráðherra.
Pabbi var fyrirferðarmikill stjórn-
málamaður og þess vegna umdeildur en ég
man ekki eftir að það hafi truflað mig að
hann var milli tannanna á fólki. Hann var
alltaf tvennt fyrir mér: annars vegar stjórn-
málamaður og hins vegar pabbi minn. Ég réð
alveg ágætlega við þá aðgreiningu.
Ég er afskaplega glöð að eiga pabba minn
að vini af því hann er svo góður í því að vera
vinur. Pabbi hefur einlægan áhuga á mann-
eskjum og ég vona að ég hafi erft eitthvað af
þeim áhuga hans. Hann hefur ekki bara
áhuga á fólki á miðjum aldri og þeim sem
vinna með honum heldur hefur hann líka
mjög mikinn áhuga á því hvað börnum finnst.
Þess vegna fannst mér ég strax á unga aldri
vera fullgildur viðmælandi hans í umræðum
um stjórnmál. Ég þakka honum ekki síst það
hvað ég hef verið óhrædd við að hafa skoð-
anir og leggja eigið mat á hlutina.
Mamma hafði líka mikil áhrif á mig. Hún
var óskaplega skemmtileg kona, mikill lífs-
spekingur og algjörlega laus við dómhörku.
Hún hafði mikinn áhuga á listum og lífinu
öllu, kúnstugu fólki, sérkennilegheitum og
sérvisku. Bóhemískur mannkærleikur ein-
kenndi hana.“
Samkomulag um tengsl
Foreldrar þínir skildu, hafði sá skilnaður
mikil áhrif á þig?
„Þegar foreldrar mínir skildu var ég tutt-
ugu og fimm ára, átti tvö börn og var löngu
flutt að heiman en við skilnaðinn fannst mér
fyrst eins og Akrafjall og Skarðsheiði hefðu
farið í sundur og himnarnir hrunið. En ég
eignaðist við skilnaðinn tvo nýja vini, pabba
og mömmu sem einstaklinga en ekki sem
par. Svo eignaðist ég fóstru mína, Guðrúnu
Ágústsdóttur, sem er fítonskona, skemmtileg,
klár og greinandi og einn af mínum mestu
stuðningsmönnum í pólitík. Þannig að þetta
var kafli sem var snúinn en leiddi svo til
góðs.“
Móðir þín, Jónína Benediktsdóttir, dó fyrir
nokkrum árum. Dauði hennar hlýtur að hafa
verið skelfilegt áfall fyrir þig.
„Hún dó langt fyrir aldur fram og það var
mér mjög mikill missir af því að við vorum
afar nánar vinkonur, sérstaklega eftir að þau
pabbi skildu. Hún greindist með krabbamein
sem dró hana til dauða á skömmum tíma.
Það var stutt og snörp barátta. Mamma var
flink í að lifa og hún var líka flink í að deyja
– hún gerði það ótrúlega vel.
Rétt áður en mamma dó gerðum við með
okkur samkomulag um að vera í tengslum
þrátt fyrir móðuna miklu. Það samkomulag
varð til þegar ég sagði henni að ég gæti ekki
hugsað mér lífið án hennar. Þá sagði hún:
„Þá finnum við leið.“ Og við fundum okkar
leið. Mamma sagði: „Kannski er best að við
tengjumst á þann hátt að eitthvað sem þú
sérð minnir þig á mig. Kannski planta eða
ský?“ Við veltum upp ýmsum möguleikum.
Svo ákváðum við að þetta ætti að vera fugl af
því að fuglar koma og fara og minna mann á
eitt og annað. Við sammæltumst loks um að
velja maríuerlu. Við völdum hana vegna þess
að maríuerlan er sjálfstæð, vill vera innan
um fólk en hafa samt sitt í friði og er þannig
lík mömmu. Og svo heitir hún eftir Maríu
guðsmóður sem er móðir allra.
Við mamma vorum ákaflega sáttar við
þetta val. Og síðan hefur það verið þannig að
ég sé hana iðulega – á sumrin.“
Ást við fyrstu sýn
Þú ert lærður táknmálsfræðingur. Af
hverju lærðirðu táknmál?
„Í mastersnámi mínu í málfræði í Háskóla
Íslands var kynningarnámskeið um íslenska
táknmálið. Það var ást við fyrstu sýn, ég féll
gjörsamlega fyrir því. Þarna var mál sem var
algjörlega órannsakað. Mál sem tvö hundruð
manns eiga sem sitt móðurmál og þjónar öllu
því sem fullskapað tungumál gerir, er leið til
að tjá hugsanir og hugmyndir, væntingar og
vonbrigði. Mér fannst þetta stórkostleg upp-
götvun. Ég vann um tíma hjá Samskipta-
miðstöð heyrnarlausra og tók síðan þátt í því
mikla brautryðjendaverkefni að búa til náms-
braut í táknmálsfræði og táknmálstúlkun við
Háskóla Íslands. Ég er mjög stolt af því að
hafa tekið þátt í að búa þetta fag til á Íslandi
því lykill heyrnarlausra inn í samfélagið er í
gegnum sterka, faglega túlkaþjónustu.
Svo tóku stjórnmálin við. Eitt leiddi af
öðru og hér sit ég.“
Þú ert í erfiðu ráðuneyti og umhverf-
isráðherrar hafa ekki slegið nein vinsælda-
met.
„Umhverfisráðuneytið getur verið flagg-
skip grænna stjórnmála. Umhverfismál
snerta daglegt líf allra og það er viðfangsefni
mitt að styrkja þau í sessi gagnvart almenn-
ingi. Það er afar mikilvægt að fólk átti sig á
því að hugmyndafræðin sem kennd er við
sjálfbæra þróun snýst um það að ákvarðanir
séu alltaf teknar með hagsmuni barnanna og
framtíðarinnar að leiðarljósi. Það að ganga
ekki á gæðin, þannig að næstu kynslóðir
lendi í vanda, er aðferðin við að takast á við
21. öldina.“
Þýðir þetta að þú sért á móti álverum?
„Mér finnst ekki skynsamlegt að vera með
svarthvítar yfirlýsingar í þeim efnum. Álver
er eitt af því sem nútíminn hefur fært okkur
en álvers- og stóðiðjuvæðing síðustu ára
gekk alltof langt. Við þurfum að staldra við,
ekki bara af umhverfisástæðum heldur ekki
síður af efnahagsástæðum. Stóriðjustefnan
leiddi til mikillar þenslu sem hefur að hluta
til leitt okkur þangað sem við erum núna.
Svo er vitanlega ekki skynsamlegt að setja
öll eggin í sömu körfu. Við eigum að leggja
áherslu á fjölbreytt, lítil og meðalstór fyr-
irtæki. Ísland er að mörgu leyti viðkvæmt
samfélag vegna smæðarinnar og stór fyr-
irtæki geta komið með harkaleg inngrip í litl-
ar byggðir.“
Ríkisstjórnin stefnir að því að minnka
gróðurhúsaáhrif um 50-75 prósent, er það
ekki algjörlega óraunhæft?
„Það held ég ekki. Hér í ráðuneytinu hefur
lengi staðið yfir fagleg og metnaðarfull vinna
hvað varðar loftlagsmálin. Við Íslendingar
erum í alþjóðlegri samvinnu um loftslagsmál
og um þau verður fundur í Kaupmannahöfn
seinna á þessu ári. Ekkert land getur ætlast
til þess að njóta sérmeðferðar í þessum mál-
um. Við verðum að axla okkar ábyrgð og að
mörgu leyti þýðir það breytingar á lifn-
aðarháttum. En um leið getum við lagt enn
meiri áherslu á sjálfbæra nýtingu orkuauð-
lindanna. Ef einhverjir hafa tækifæri til að
stíga metnaðarfull skref í orku- og loftslags-
málum eru það Íslendingar.“
Hver er afstaða þín til aðildarviðræðna við
ESB?
„Það er mín eindregna skoðun að það sé
ekki skynsamlegt fyrir Ísland að gerast aðili
að Evrópusambandinu. Ég er hins vegar
jafnframt þeirrar skoðunar að almenningur
eigi að fá að taka upplýsta afstöðu til að-
ildar.“
Muntu greiða atkvæði með þingsályktun-
artillögu um viðræður við sambandið?
„Ég ætla ekki að tjá mig um atkvæða-
greiðsluna í þinginu á þessu stigi en ég tel að
það sé lýðræðislegur réttur alls almennings
að taka afstöðu til þessa máls. Reyndar
finnst mér að þjóðaratkvæðagreiðslu ætti að
innleiða í miklu ríkara mæli en gert hefur
verið. Á hinu nýja Íslandi eiga stjórn-
málamenn ekki að leysa málin bak við luktar
dyr heldur á að hafa opið samráð við almenn-
ing.“
Frábær bandamaður
Nú ertu orðin ráðherra með tilheyrandi
vinnuskyldu og álagi. Finnurðu fyrir því að
hafa minni tíma fyrir fjölskylduna?
„Ennþá er þetta eins og ævintýri líkast.
Ég er endalaust þakklát og auðmjúk að vera
trúað fyrir þessu verkefni. Það eru mikil
verkefni framundan og það þarf mikla sam-
stöðu meðal þjóðarinnar til að allt gangi upp.
Ég er búin að vera í pólitísku ati í nokkur
ár og það er þeirrar gerðar að maður ræður
ekki tíma sínum. Það koma mikil álagstímabil
og svo minna að gera þar á milli. Maður þarf
á umburðarlyndi fjölskyldunnar að halda og
þess nýt ég. Maðurinn minn, Torfi Hjart-
arson, er lektor í kennslufræði og upplýs-
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra
Ekki upptekin af frama
Ráðherra Ennþá er þetta eins og ævintýri líkast.
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@mbl.is