Morgunblaðið - 16.05.2009, Blaðsíða 31
31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009
Þegar tíminn skiptir máli
Eimskip býður hagkvæma, trausta og hraðvirka
flugfraktþjónustu í samvinnu við DB Schenker.
EIMSKIP FLUGFRAKT
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
9
0
2
9
6
Frekari upplýsingar veita viðskiptastjórar í síma 525-7260 og viðskiptaþjónusta í síma 525-7800, eða sendið fyrirspurnir á flugfrakt@eimskip.is
ingatækni. Hann er helsti ráðgjafi minn og
besti vinur minn. Gæddur ótrúlega miklu
innsæi, réttsýnn og sanngjarn maður, ein-
lægur vinstrimaður, kröfuharður femínisti og
umhverfissinni. Frábær bandamaður.“
Torfi er seinni maðurinn þinn. Var skiln-
aðurinn við fyrri mann þinn erfiður, eins og
skilnaðir eru oftast?
„Einn af lærdómsríkustu köflunum í lífi
mínu var að ganga í gegnum skilnað. Ég nýt
þess hins vegar að fyrrverandi maðurinn
minn, Ástráður Haraldsson, er vinur minn,
alveg einstakur maður. Hann syngur með
mér og Torfa í Dómkórnum og það gerir líka
konan hans Ástráðs. Við fjögur gætum auð-
veldlega myndað blandaðan kvartett. Það er
mjög langt síðan við Ástráður skildum, fimm-
tán ár. Okkur lánaðist að setja hagsmuni
barnanna okkar í forgrunn eftir skilnaðinn.
Við gerðum það vel og vönduðum okkur
gagnvart þeim. Svo hafa okkar seinni makar
verið frábær liðsauki í uppeldinu.
Ég á fjögur börn en tvö þeirra eru orðin
nokkur stór og svo er ég að verða amma í
haust og það finnst mér dásamlegt.“
Ætlarðu að horfa á Evróvisjón?
„Ekki spurning! Mér finnst Jóhanna Guð-
rún syngja íslenska lagið mjög vel. Öll fjöl-
skyldan hoppaði hæð sína í loft upp þegar
lagið komst áfram. Allir segja mér að Nor-
egur vinni og mér finnst það lag hressilegt
og skemmtilegt. Ég fell ekki fyrir flytjand-
anum sem söngvara en hann er sjarmör og
hefur flotta útgeislun á sviðinu. Annars gæti
Una dóttir mín, sem er átta ára, svarað
spurningunni um væntanlegan sigurvegara
betur en ég.“
Margir sjá þig sem sigurvegara í pólitík og
framtíðarleiðtoga Vinstri grænna. Þú hlýtur
að stefna hátt í pólitík?
„Ég hef aldrei verið upptekin af því að ná
frama. Ég er uppteknari af pólitískum og
persónulegum leiðarljósum, því að heildar-
hugsun sé á bak við verk mín. Nú sit ég í
þessu ráðuneyti og þarf að læra mjög margt.
Svo hef ég ekki áður setið á þingi þannig að
ég þarf líka að læra það. Ég er með fangið
fullt af verkefnum.
Þegar ég var unglingur og var að fara á
böll sagði mamma: „Vertu sjálfri þér til
sóma.“ Mér finnst hún allt eins hafa getað
sagt þetta við mig núna þegar ég er orðin
umhverfisráðherra.“ Morgunblaðið/Kristinn
» „Pabbi hefur einlæganáhuga á manneskjum og
ég vona að ég hafi erft eitthvað
af þeim áhuga hans. Hann hef-
ur ekki bara áhuga á fólki á
miðjum aldri og þeim sem
vinna með honum heldur hefur
hann líka mjög mikinn áhuga á
því hvað börnum finnst. Þess
vegna fannst mér ég strax á
unga aldri vera fullgildur við-
mælandi hans í umræðum um
stjórnmál. Ég þakka honum
ekki síst það hvað ég hef verið
óhrædd við að hafa skoðanir og
leggja eigið mat á hlutina.
Mamma hafði líka mikil áhrif á
mig. Hún var óskaplega
skemmtileg kona, mikill lífs-
spekingur og algjörlega laus
við dómhörku. “
» „Ég ætla ekki að tjá migum atkvæðagreiðsluna í
þinginu á þessu stigi en ég tel
að það sé lýðræðislegur réttur
alls almennings að taka afstöðu
til þessa máls. Reyndar finnst
mér að þjóðaratkvæðagreiðslu
ætti að innleiða í miklu ríkara
mæli en gert hefur verið. Á
hinu nýja Íslandi eiga stjórn-
málamenn ekki að leysa málin
bak við luktar dyr heldur á að
hafa opið samráð við almenn-
ing.“