Morgunblaðið - 16.05.2009, Side 35
HÓTUNUM um
greiðslustöðvun frá
heimilum fjölgar. Eðli-
legt framhald áfalla
síðustu mánaða og
skorts á heildarlausn
fyrir heimili landsins?
Ferli greiðsluaðlög-
unar er flókið, langt og
skaðlega seinvirkt.
Þessi dómstólaleið
virðist ætla af alvarleika ástandsins
að dæma að verða aðalleið frekar en
varaleið fyrir of mörg heimili. Óör-
yggi er m.a. mikið vegna vöntunar á
reglugerð um túlkun á því hvað er
hóflegt, eðlilegar þarfir, óráðsía og
hvar er skilgreining á að vera ófær
um að standa í fullum skilum? Hver á
að meta hóflegar þarfir fjölskyldna í
erfiðleikum? Hver ætlar að setja
skýrar leikreglur? Hver tekur að sér
að vera örlagavaldur alls þessa
fólks? Hverjir geta orðið umsjón-
armenn þessara fjölskyldna? Ef
beiðni um greiðsluaðlögun er sam-
þykkt boðar héraðsdómari til þing-
halds þar sem krafan um nauða-
samning er tekin fyrir. Hjá
héraðsdómara liggur lokaafgreiðsla.
En auk hefðbundinna skilyrða sam-
kvæmt gjaldþrotalögum eru auka-
skilyrði sem eru mjög opin og teygj-
anleg. Ámælisverður háttur og/eða
greinilega ófær – allsstaðar loðið
orðalag sem gerir að gerðar eru nær
óframfylgjanlegar kröfur til umsjón-
armanna og dómstóla um túlk-
unarhæfni. Og í lokin „Að ætla megi
að einstaklingur hafi hagað gerðum
sínum svo sem raun varð á með ráðn-
um hug um að leita greiðsluaðlög-
unar.“ Hver ætlar að skoða „ætlun“
hegðunar einstaklingsins? Hvar er
ábyrgð lánveitanda í ferlinu?
Aðgerða er þörf núna! Beinna og
skjótvirkra aðgerða sem stöðvar
áhlaup vísitölu- og/eða geng-
istryggðra lána á heimilin. Leiðin að
beiðni um greiðsluaðlögun verður að
vera skýr og einföld, einnig hvar og
hvernig hún gerð. Á hún að kosta
eitthvað? Fjölgun starfsfólks vegna
úrvinnslu beiðna hjá ráðgefandi að-
ilum og héraðsdómstólum varðandi
greiðsluaðlögun á að vera komin í
gang. Skýrar auglýsingar verða að
vera á skiljanlegu máli um ferli og
skilyrði þessari mála. Íbúðalánasjóð-
ur er með skýrar reglur um samning
vegna greiðsluerfiðleika. Hann er
einhverskonar undanfari hugs-
anlegrar greiðsluaðlögunar? Því
sjóðurinn miðar við að komið sé eig-
inlega næstum því alveg í þrot. Hvar
eru „áður en næstum því er komið í
þrot“ fyrirbyggjandi langtíma að-
gerðir ríkisstjórnar og Alþingis?
Þetta eru neyð-
arúrræði, hvar eru
bráðar langtíma lausn-
ir?
Á að færa vísitölu
verðtryggðra lána aftur
til janúar 2008 og þar
með allar greiðslur?
Líta á hækkunina sem
hugsanlega refsiverða
vanvirkni þáverandi
ríkisstjórnar? Lækka
vexti og lengja lán? Á að
sjá til þess að ekkert
heimili greiði meir en 30% af tekjum
af lánum vegna „hóflegs“ húsnæðis?
Á að breyta vaxta- og húsa-
leigubætur í húsnæðisgreiðslur
vegna bæði eigna- og leiguhúsnæðis?
Og leiðrétta innbyggðar skekkjur í
núverandi vaxtabótakerfi? Á að
byggja upp nýtt samfélag með not-
hæfum öruggum valmöguleikum á
húsnæðislausn hvers og eins okkar?
Er ekki tími harðrar íslenskrar eign-
arstefnu um garð genginn?
Eftir Percy B.
Stefánsson
Percy B. Stefánsson
»Er ekki tími
harðrar íslenskrar
eignastefnu um
garð genginn?
Höfundur er ráðgjafi.
Hvar er lausnin og
hver metur lífsleikni okkar?
Umræðan 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009
Söluaðilar AGA Gasol:
SELFOSS: Vélaverkstæði Þóris, s. 482 3548
SAUÐÁRKRÓKUR: Byggingavörudeild KS, s. 455 4626
REYÐARFJÖRÐUR: Heildverslunin Stjarna, s. 474 1114
ÍSAFJÖRÐUR: Þröstur Marsellíusson hf., s. 456 3349
AKUREYRI: Sandblástur og málmhúðun hf., s. 460 1515.
* Kópavogsbraut 115, Kópavogi
IS
A
-3
5
2
–
ÍD
E
A
g
ra
fí
sk
h
ö
n
n
u
n
Heimsendingarþjónusta
MORGUNBLAÐIÐ birtir alla út-
gáfudaga aðsendar umræðugreinar
frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt
til að hafna greinum, stytta texta í
samráði við höfunda og ákveða hvort
grein birtist í umræðunni, í bréfum
til blaðsins eða á vefnum mbl.is. Blað-
ið birtir ekki greinar, sem eru skrif-
aðar fyrst og fremst til að kynna
starfsemi einstakra stofnana, fyrir-
tækja eða samtaka eða til að kynna
viðburði, svo sem fundi og ráðstefn-
ur.
Innsendikerfið
Þeir sem þurfa að senda Morgun-
blaðinu greinar eru vinsamlega beðn-
ir að nota innsendikerfi blaðsins.
Móttaka að-
sendra greina