Morgunblaðið - 16.05.2009, Qupperneq 37
umræðan 37BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009
Stafir lífeyrissjóður boðar til ársfundar á Grand hóteli
Reykjavík á þriðjudaginn kemur, 19. maí, kl. 17:00.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og tillögur
að breytingum á samþykktum sem hægt er að kynna sér
á stafir.is.
Stafir boða jafnframt til sjóðfélagafundar kvöldið fyrir
ársfund, mánudaginn 18. maí, kl. 20:00.
Stjórnendur Stafa ætla þar að „rýna í stöðuna“ með
fundargestum og svara fyrirspurnum um afleiðingar hrunsins
og um niðurstöður ársreiknings 2008.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta og afla upplýsinga
eða leita svara við spurningum.
Allir sjóðfélagar eru hjartanlega velkomnir á báða fundina!
Stórhöfða 31 | 110 Reyk jav ík | S ími 569 3000 | www.staf i r . i s
Sjóðfélagafundur 18. maí
Ársfundur 19. maí
Stjórn Stafa lífeyrissjóðs
st
of
a1
08
Marokkó -
Atlasfjöllin
Gönguferð á færi flestra
Mikil þægindi (farangri trússað)
Hæsti tindur Norður-Afríku
Heillandi menning og landslag
Nánast allt innifalið (sjá vefsíðu)
*
V
ið
m
ið
un
ar
ge
ng
ie
vr
u
6
.
m
aí
22. - 30. september
Verð 194.900 kr.*
Nánari upplýsingar í s. 587 9999 eða á
FJALLALEIDSOGUMENN.IS
Í HAUST voru málaðir svo kallaðir
hjólavísar á nokkrar götur í Reykja-
vík. Það var á Suðurgötu sunnan
Hringbrautar og Einarsnes í póst-
númeri 107 og Langholtsveg og
Laugarásveg í póstnúmeri 104.
Hvað eru hjólavísar?
Á ensku heita hjólavísar „Bike-
and-chevron“. Þeir hafa verið notaðir
víða um heim. T.d. í San Francisco og
fleiri borgum í BNA, París í Frakk-
landi, Brisbane í Ástralíu, Zürich í
Sviss og Buenos Aires í Argentínu.
Hjólavísar eiga að gefa bæði hjól-
reiðamönnum og ökumönnum skýr
skilaboð um að hjólreiðamenn eigi
þarna rétt og það beri að taka tillit til
þeirra.
Gagnsemi hjólavísa
Það hefur sýnt sig að
þar sem hjólavísar eru
notaðir finnst hjól-
reiðafólki það örugg-
ara í umferðinni og
ökumenn víkja betur
frá hjólreiðafólki. Sum-
arið 2003 var gerð
rannsókn í San Franc-
isco á gagnsemi hjólav-
ísa og voru niðurstöð-
urnar afgerandi. Þar
sem hjólavísar voru á
götum hélt hjólafólk
sig 20 cm lengra frá
kyrrstæðum bílum og var þannig í
minni hættu á að lenda á bílhurð sem
opnaðist skyndilega. Þegar bílar fóru
fram úr hélt hjólafólk sig um 10 cm
lengra frá kyrrstæðum bílum en bílar
sem fóru fram úr juku fjarlægð sína
frá hjólreiðamanninum um 60 cm. Ef
enginn hjólreiðamaður var á ferð
höfðu hjólavísarnir samt þau áhrif að
umferðin hélst um 30 cm lengra frá
kyrrstæðum bílum. Hjólavísar eru
mjög ódýr lausn ef menn ætla að
bæta umferðaröryggi og öryggis-
tilfinningu hjólreiðafólks og fjölga
þar með þeim sem hjóla. Það þarf
ekki alltaf að breyta skipulagi og ráð-
ast í umfangsmiklar og dýrar fram-
kvæmdir eins og breikkun gatna,
lagningu hjólareina eða hjólastíga.
Markmiðið með hjólavísum
Að minna bílstjóra á að búast við
umferð hjólandi á götunni.
Að minna bílstjóra á að hjólreiða-
menn mega hjóla lengra inni á ak-
braut, jafnvel þó að þeir teppi aðra
umferð ef það er nauðsynlegt vegna
þrengsla.
Að minna bílstjóra á að víkja vel til
hliðar þegar þeir taka fram úr hjól-
reiðamanni.
Að upplýsa hjólreiðamenn um hvar
best er að staðsetja sig á götunni með
hliðsjón af kantinum eða kyrrstæðum
bílum til að auka öryggi sitt.
Að fjölga hjólreiðamönnum því
mörgum finnst betra að hjóla á sér-
merktum götum.
Á hvernig götum
henta
hjólavísar?
Hjólavísar henta
fremur á götum þar sem
fjöldi bíla og umferð-
arhraði er hóflegur, eins
og á mörgum safn- og
tengibrautum. Sér-
staklega vel reynast hjó-
lavísar á eldri húsagöt-
um sem nú flokkast sem
safn- eða tengibrautir
þar sem margar inn-
keyrslur eru beint frá götu og bílum
er lagt við gangstéttarbrún. Hjól-
reiðamaður sem freistast til að vera á
gangstétt er við þessi skilyrði í meiri
hættu en hjólreiðamaður sem er vel
sýnilegur úti á götu.
En að hjóla á götum?
Það er ein af þversögnunum í ör-
yggismálum hjólreiðafólks að það er í
raun öruggara að hjóla á götum borg-
arinnar en á gangstéttum eða stígum
sem þvera götur og innkeyrslur. Ef
stutt er á milli gatnamóta og inn-
keyrslna eru fleiri punktar á ferð hjól-
reiðamanns þar sem árekstur getur
orðið milli ökumanns og hjólreiða-
manns. Til að koma í veg fyrir árekst-
ur þarf hjólreiðamaður á gangstétt
eða stíg að gæta sín við hver gatna-
mót og við hverja innkeyrslu. Hraði
hans verður minni og gildi hjólsins
sem samgöngutækis rýrnar. Að auki
þarf hjólreiðamaður að taka tillit til
gangandi umferðar enda er hann
gestur á mannvirki sem er hannað
fyrir hraða gangandi manns. Hætt er
við að ökumaður sjái ekki gangandi
eða hjólandi sem eru utan sjónsviðs
hans á stígum og gangstéttum. Flest-
ar rannsóknir á raunverulegum slysa-
tölum víðsvegar um heim sýna að þeir
sem hjóla eftir gangstéttum og stíg-
um og þvera götur og innkeyrslur eru
í meiri hættu á að lenda í árekstri en
þeir sem deila akbrautum með bílum
og eru þar innan sjónsviðs ökumanna.
Hjólavísarnir eru einmitt málaðir á
götuna þar sem hjólreiðamaður á að
staðsetja sig til að vera innan sjón-
sviðs ökumanns. Á fáförnum húsagöt-
um er mestan part óþarfi að mála hjó-
lavísa enda henta þær götur vel til
hjólreiða eins og þær eru nú.
Landssamtök hjólreiðamanna
mæla með því að meðfram stofn-
brautum verði byggðar brautir fyrir
hjól til að tengja saman hverfi og
sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu
sem nú eru sundurskorin af umferð-
aræðum. Þessar stofnbrautir þarf að
byggja samkvæmt stöðlum þannig að
þær henti til hjólreiða á 30 km hraða.
Þær eru því öruggari sem færri
gatnamót eru þar sem umferð hjól-
andi skarast við bílaumferð. Flestir
stígar höfuðborgarsvæðisins uppfylla
því miður ekki reglur fyrir hönnun
hjólreiðabrauta og eru þar að auki
með blandaðri umferð gangandi og
hjólandi.
Fyrstu skrefin hafa nú verið stigin
í að nota hjólavísa á Íslandi. Eins og
með margar nýjungar er eitt og ann-
að sem má lagfæra. Meðal þess er að
kynna hjólavísana betur og þróa við-
mið varðandi staðsetningu hjólavísa á
gatnamótum.
Ítarefni:
Landssamtök hjólreiðamanna:
www.lhm.is
Fjallahjólaklúbburinn: www.ifhk.is
Þversagnir í öryggismálum hjólreiða-
fólks: http://tiny.cc/d9aCE
Samgönguhjólreiðar: http://tiny.cc/
YOcxO
Brýnustu aðgerðir í málefnum hjólreiða-
manna: http://tiny.cc/PwSAW
Skýrsla um hjólavísa San Fransisco
(pdf;1,2mb): http://tiny.cc/reKai
Eftir Árna Davíðsson
Árni Davíðsson
Höfundur er félagi í
Fjallahjólaklúbbnum.
Hjólavísar við þrengingu í Einarsnesi
Hjólavísar á götum Reykjavíkur
» Þar sem hjólavísar
eru notaðir finnst
hjólreiðafólki það
öruggara í umferðinni
og ökumenn víkja betur
frá hjólreiðafólki.
UNG VINSTRI græn og nokkrir
einstaklingar innan VG hafa sett
fram nokkuð harðorða gagnrýni á
forystu flokksins þar sem henni er
legið á hálsi að virða ekki kvenfrels-
isstefnu flokksins við ráðherraskip-
an ríkisstjórnarinnar. Þessi gagn-
rýni er ekki allskostar sanngjörn.
Ekki er hægt að segja annað en að
kvenfrelsisstefnu flokksins sé fylgt í
hvívetna og erfitt að sjá að halli á
konur. Það sést vel þegar rýnt er í
stærstu stofnanir og stöður flokks-
ins.
Af 30 manna flokksráði eru
sautján konur og þrettán karlar.
Í ellefu manna stjórn flokksins
eru átta konur og þrír karlar. Emb-
ætti varaformanns, ritara og gjald-
kera eru öll skipuð konum.
Í þingflokknum eru sjö konur og
sjö karlar.
Framkvæmdastýra flokksins er
kona.
Þingflokksformaðurinn er kona.
Í nýafstöðnum kosningunum
leiddu konur þrjá lista og karlar
þrjá. Á fjórum listanna af sex voru
fleiri konur en karlar í efstu fimm
sætunum.
Í stjórn UVG
eru hins vegar
fimm karlar en
fjórar konur í
stjórn sem er
samskonar staða
og í landstjórn-
inni þar sem
flokkurinn hefur
fimm ráðherra,
þrjá karla og
tvær konur. Það er erfitt að skipta
oddatölu í tvennt. Hvað landstjórn-
ina varðar liggur hinsvegar fyrir að
uppstokkun verður á kjörtímabilinu
þegar ráðherrum verður fækkað úr
tólf í níu.
HEAFNKELL TUMI
KOLBEINSSON
kennari.
Öndum með nefinu
Frá Hrafnkeli Tuma Kolbeinssyni:
Tumi Kolbeinsson
Fréttir á SMS