Morgunblaðið - 16.05.2009, Page 42
42 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009
✝ Magnús Finn-bogason fæddist á
Lágafelli 13. mars
1933. Hann lést á
Dvalarheimilinu
Kirkjuhvoli á Hvols-
velli 5. maí síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Finnbogi Magn-
ússon, f. 26.2. 1903, d.
22.6. 1959, og Vil-
borg Sæmundsdóttir,
f. 30.1. 1902, d. 1.8.
1990. Systir Magn-
úsar er Hólmfríður, f.
1.7. 1931, maður
Reynir Jóhannsson, f. 14.2. 1927.
Þau eiga eina dóttur. Fóstursystir
Magnúsar er Guðrún Árnadóttir, f.
16.8. 1927, maður Jónas Helgason,
f. 5.10. 1924. Þau eignuðust þrjú
20.7. 1991, Guðný Helgadóttir, f.
23.9. 1994. 3) Ragnhildur, f. 3.7.
1975, maður Guðmundur Erlends-
son, f. 16.8. 1965. Börn Guð-
mundar: Erlendur Jón, f. 9.8. 1990,
og Helga Rut, f. 28.7. 1992.
Magnús ólst upp á Lágafelli og
stundaði nám í farskóla Austur-
Landeyja og lauk síðan gagn-
fræðaprófi frá Héraðsskólanum á
Laugarvatni 1951. Auk hefðbund-
inna sveitastarfa stundaði Magnús
vetrarvertíðir á yngri árum. Við
fráfall föður síns árið 1959 tók
Magnús við búi á Lágafelli, í byrj-
un í félagsbúi með móður sinni.
Hann bjó á Lágafelli ásamt konu
sinni til 2001 er þau hjón fluttu á
Hvolsvöll. Félagsmál voru Magnúsi
hugleikin og var hann öflugur
þátttakandi í starfi ýmissa félaga
og nefnda.
Útför Magnúsar fer fram frá
Krosskirkju í Austur-Landeyjum í
dag kl. 14.
börn. Magnús kvænt-
ist 1.4. 1961 Auði
Hermannsdóttur, f.
27.8. 1935. Foreldrar
hennar voru Her-
mann Björnsson, f.
21.8. 1898, d. 7.10.
1984, og Una Jóns-
dóttir, f. 16.6. 1903,
d. 10.6. 1991 Börn
Magnúsar og Auðar
eru: 1) Vilborg, f. 4.3.
1962, maður Gunnar
Hermannsson, f. 6.2.
1956. Börn: Almar, f.
17.3. 1988, Andri, f.
17.3. 1988, og Magnús, f. 17.5.
1995. 2) Finnbogi, f .24.2. 1971,
kona Þórey Pálsdóttir, f. 5.9 1966.
Börn: Pálmi Hólm Halldórsson, f.
17.10. 1985, Laufey Helgadóttir, f.
Fallinn er frá vinur minn, Magnús
Finnbogason, fyrrum bóndi á Lága-
felli. Liðin eru 62 ár frá því við kynnt-
umst. Gunnlaugur, föðurbróðir minn,
deildi stofu á Landspítala í upphafi
árs 1947, ásamt Sæmundi Ólafssyni,
bændahöfðingja á Lágafelli, afa
Magnúsar. Faðir minn var duglegur
að heimsækja bróður sinn á spítal-
ann. Kynntist hann þá Sæmundi vel.
Sæmundur var þá orðinn ekkjumað-
ur og við búrekstri hafði tekið dóttir
Sæmundar, Vilborg, og maður henn-
ar Finnbogi, frá Reynisdal í Mýrdal.
Ákveðið var, að ég yrði sveita-
drengur á Lágafelli næsta sumar.
Síðari hluta maí 1947 var haldið aust-
ur. Bíll föður míns fullpakkaður, öku-
maður Hafsteinn Björnsson, starfs-
maður föður míns; aftur í móðir mín,
Björn Jóhannesson, forseti bæjar-
stjórnar, vinur pabba frá bæjarpóli-
tíkinni í Hafnarfirði, og Friðfinnur,
föðurbróðir minn, fyrrum múrara-
meistari en þá bóndi í Hafnarfirði.
Vel var tekið á móti okkur á Lága-
felli og þegar komið var að því að
kveðja úti á hlaði, sé ég föður minn
taka undir handlegginn á Finnboga
og leiða hann út á tún. Pabbi vildi ekki
segja mér, hvað þeim Finnboga hefði
farið á milli. 2 árum síðar sátum við
Vilborg í eldhúsinu á Lágafelli og
segir hún þá við mig. „Hrafnkell, ég
vil segja þér hvað honum pabba þín-
um og Boga fór á milli úti á túni, þeg-
ar þú komst fyrst hingað austur.
Pabbi þinn sagði þá: Finnbogi, þú
manst eftir að láta drenginn vinna
nógu mikið. „Þegar ég heyrði þetta,
var ég ákveðin í því að koma í veg fyr-
ir, að karlmennirnir myndu útjaska
þér í vinnu, 8 ára gömlum“! Ég átti 6
góð sumur á Lágafelli og minnist
hjónanna og barna þeirra Hólmfríðar
og Magnúsar með virðingu og þakk-
læti.
Ég fylgdist með miklum fram-
kvæmdum á jörðinni og skógrækt var
innleidd. Ég heimsótti fólkið á Lága-
felli næstum því hvert sumar, nú síð-
ustu árin á Hvolsvöll. Oft voru fleiri
með í bílnum og öllum var vel og
rausnarlega tekið. Um miðjan átt-
unda áratug síðustu aldar komu
tengdaforeldrar mínir með, þau
Kristín og Ragnar Ólafsson hrl.
Magnús var mikill samvinnumaður,
stjórnarmaður í Kaupfélagi Rang-
æinga og Sláturfélagi Suðurlands.
Ragnar var stjórnarformaður KRON
og í stjórn SÍS. Ólafur, faðir Ragnars
var einn af stofnendum Su. Umræðu-
efnið var ærið hjá Magnúsi og Ragn-
ari.
Í júní 2008 ákváðum við hjónin að
aka á Hvolsvöll og kynna dótturson
okkar, Höskuld Hrafn Valbjörnsson,
9 mánaða gamlan, sem var þá staddur
hjá okkur, fyrir „Lágafellsfólkinu“.
Þrátt fyrir erfið veikindi sýndi Magn-
ús okkur útskurð og silfursmíði sem
hann vann við. Oddný fékk hjá honum
eyrnalokka og hálsmen, gerð úr
hrútshorni.
Hann sagði mér þá, að hann hefði
flaggað í heila stöng daginn sem am-
eríski herinn yfirgaf Ísland. Hann
hefði verið sá eini á Hvolsvelli, sem
hefði flaggað. Ég vissi alltaf, að hann
var mikill herstöðvarandstæðingur.
Ég var annarrar skoðunar og höfðum
við oft rætt þau mál áður án niður-
stöðu.
Veikindi Magnúsar ágerðust en
hann tók því með sömu karlmennsku
og einkenndi hann.
Kveðjur frá okkur Oddnýju til
Auðar og fjölskyldu.
Hrafnkell Ásgeirsson
Þegar foreldrar mínir fluttu úr A-
Landeyjum á 5. áratug síðustu aldar
héldust lengi sterk tengsl á milli for-
eldra minna og gömlu Landeying-
anna og maður fékk það á tilfinn-
inguna að sveitin væri ein stór
fjölskylda. Margir af næstu kynslóð
treystu vinaböndin og gera enn þó sú
kynslóð sé líka farin að týna tölunni.
Þetta stórkostlega fólk úr minni
gömlu fæðingarsveit á auðvitað stór-
an sess í geymd minninganna. Magn-
ús frá Lágafelli var einn af þessum
tryggðatröllum sem ég skulda þakk-
ir. Vilborg móðir hans og mamma
voru frænkur og vinkonur alla tíð og
eftir að Villa dó tók Magnús upp þann
hátt að hringja reglulega í mömmu og
fylgjast með líðan hennar og heim-
sótti hana amk. árlega og eftir að
mamma var öll hélt hann sama sam-
bandi við Kalla bróðir á meðan hann
lifði, svona var artin og tryggðin.
Magnús var glæsilegur maður í sjón
og raun, stórhuga athafnamaður
fylginn sér í orði og verki.
Stórbóndinn á Lágafelli lætur eftir
sig gróinn og gildan sjóð í ræktun
lands og lýðs með áratuga löngu og
farsælu forystustarfi í margþættum
félags- og menningarmálum. Þennan
þátt í lífshlaupi Magnúsar þekkja
amk. allir Sunnlendingar og ætla ég
ekki að víkja frekar að því hér en þess
í stað að enda þessi kveðjuorð með
minningu um þegar við Kalli bróðir
komum að Lágafelli sumarið 1996 en
þá voru 50 ár liðin frá því foreldrar
okkar fluttu frá Önundarstöðum.
Magnús vissi af þessu og keyrði okk-
ur eins og fært var að gamla bæj-
arstæðinu. Eftir að hafa svipast um á
fornum slóðum nutum við gestrisni
Magnúsar og Auðar og sýndi Magnús
okkur m.a. gróðurreit skógræktar
sem hann var stoltur af og eins korn-
rækt og alla þá umsetningu sem
henni fylgdi í byggingum og tækjum.
Höfðinginn var þarna farinn að reskj-
ast en áhuginn á verkefnunum var
eins og eldmóður ungs manns sem er
að hefja lífsgönguna. Vænt þykir mér
um að eiga þessa minningu um Magn-
ús þar sem hann blómstraði í sínu ríki
fullur lífsgleði og sjálfstrausts, eins
og hann reyndar var alltaf. Í öllum
sínum umsvifum naut Magnús stuðn-
ings sinnar góðu og atorkusömu konu
sem nú lifir mann sinn.
Kæra Auður, ég votta þér og börn-
unum mína innilegustu samúð og bið
aðstandendum öllum Guðs friðar.
Ársæll Þórðarson.
Elsku pabbi minn, mig langar til
þess að kveðja þig með nokkrum orð-
um.
Ég var yngst af okkur systkinun-
um og var langt fram eftir aldri titluð
sem litla barnið. Ég var nú ekki endi-
lega alltaf sátt við það.
Ég var líka pabbastelpa langt fram
eftir aldri og þótti fátt betra en að
sitja í fanginu á þér við morgunverð-
arborðið. Ég sóttist líka lengi vel eftir
því að leiða þig. Það var eitthvað svo
öruggt. Mér þótti notalegt að fara
með þér í gegningarnar og hjálpa til
þótt ég hafi nú aldrei verið neitt sér-
staklega liðtæk í sveitastörfum. Mér
fannst þú nú heldur ekki alltaf sann-
gjarn þegar ég var að hjálpa til. Þeg-
ar ég lít til baka held ég þó að þú hafir
haft sterka tilfinningu fyrir hvað ég
gat og gat ekki. Þótt ég reyndi að
vera hörð af mér, þá held ég að þú
hafir oftast séð í gegnum það. Þegar
ég varð eldri áttum við margar góðar
stundir saman í sauðburðinum. Þegar
vel gekk hafðir þú stundum á orði að
ég ætti að læra að verða ljósmóðir.
Það var þín leið til að hrósa mér fyrir
vel heppnaða fæðingarhjálp. Þú settir
ekki mörg orð á tilfinningar en maður
vissi samt sem áður hvað þér líkaði og
mislíkaði. Ég bar mikla virðingu fyrir
þér og það skipti mig miklu máli að
standa mig vel í öllu sem ég tók mér
fyrir hendur.
Þú hafðir marga eiginleika sem ég
vona að ég bæði hafi lært af eða komi
til með að gera það. Þegar ég lít til
baka sé ég hvernig þú bæði beint og
óbeint hefur mótað mig á mörgum
sviðum. Eitt af því sem ég hef alltaf
dáðst að er hversu óbilandi trú þú
hafðir á hugmyndum þínum. Ef þú
fékkst góða hugmynd, þá skipti engu
hversu mikilli vantrú þú mættir frá
öðrum. Þú hrintir þeim í framkvæmd.
Það sem þú ætlaðir þér að gera, það
gerðir þú. Þú hafðir sterkar skoðanir
og stóðst fast á þínu. Þú varst heldur
ekki hræddur við að prófa nýja hluti
og komst oft á óvart í þeim efnum.
Gott dæmi um það er þegar þið
mamma hættuð búskap, þá byrjaðir
þú að gera ýmis listaverk í skúrnum
og fékkst sífellt nýjar hugmyndir. Ég
man að ég átti mjög erfitt að með trúa
þessu, þar sem ég vissi ekki til að þú
hefðir áhuga á slíku föndri. Ég átti
sérstaklega erfitt með að ímynda mér
þig með þínar stóru hendur vinna að
einhverju svona fínlegu. En þú gerðir
það bara á þinn hátt. Þú byrjaðir líka
að syngja í kór, nokkuð sem ég heldur
ekki hefði getað ímyndað mér að þú
myndir gera. Ég hafði ekki hugmynd
um að þú hefðir gaman af að syngja.
Eftir að þú veiktist hefur mér þótt
mjög erfitt að vera svona langt í
burtu, en þú barðist af ótrúlegri
hörku við veikindin og komst sífellt á
óvart.
Mér þykir sárt að hugsa til þess að
þú eigir ekki eftir að sjá ófætt barna-
barn þitt, eða leiða mig upp að alt-
arinu þegar að því kemur, en ég veit
Magnús Finnbogason
Elsku afi okkar.
Þú sem bjóst með
okkur svo lengi sem
við munum. Þú sem varst okkur
sem faðir þegar pabbi var á sjó. Þú
sem stalst af nafna þínum húfu sem
á stóð „Pearl Jam“ og gekkst með
hana í heilan vetur án þess að vita
hvað það táknaði og fékkst viður-
nefnið „gamli rokk“. Þú sem fórst
með okkur í berjamó á „Súðinni“
sem kom yfirleitt einni dæld eða
rispu ríkari heim. Þú sem ætlaðir
að dunda þér við að fella gráslepp-
unet í bílskúrnum en dundið var
aldrei til staðar heldur stóðstu nán-
ast við þar til allt var búið. Þú sem
klæddir þig upp á í smóking og
blankskó og smelltir á þig Old Spice
fyrir gömludansaböllin. Þú sem
varst í kartöfluræktinni með afa Óa.
Þú sem sigldir með okkur í Flatey á
sumrin á Örinni. Þú sem prjónaðir
sjálfur alla þína ullarsokka. Þú sem
hélst alltaf í hornið á Mogganum
þegar við vorum að fletta honum til
að verða örugglega næstur til að
lesa hann. Þú sem talaðir alltaf um
„blessað gamla fólkið“, þó umrætt
fólk væri 20 árum yngra en þú. Þú
sem lást aldrei á þínum skoðunum
Ragnar Hermannsson
✝ Ragnar Her-mannsson fæddist
á Bjargi í Flatey á
Skjálfanda 11. febr-
úar 1922. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga 29. apríl
síðastliðinn og var út-
för hans gerð frá
Húsavíkurkirkju 9.
maí.
Meira: mbl.is/minningar
heldur sagðir þær
hátt og stóðst við þín-
ar meiningar. Þú sem
tókst upp á því að
spila „pool“ heilu og
hálfu dagana eftir að
þú fluttir á Hvamm.
Þú sem slóst um þig
með ensku þegar vel
lá á þér, „goodfine“
heyrðist oft þegar þér
líkaði eitthvað. Þú
sem varst orðinn
þekktur á Húsavík
fyrir hatt þinn og staf
því án þeirra fórstu
aldrei í göngutúrana niður á
bryggju. Þú sem varst listamaður.
Elsku afi, við vitum að þér líður
vel þar sem þú ert núna og ert án
efa kominn í félagsskap ömmu aftur
eftir allan þennan tíma.
Við munum aldrei gleyma þér og
kveðjum þig með þakklæti í huga
fyrir allt það sem þú varst okkur
systkinunum.
Nú sýnist okkur svefn og ró
þig sveipa í friðarlín,
þú hverfur ei til okkar heim,
en eitt sinn við til þín.
Við fylgjum þér svo langt á leið,
sem leyfir mátturinn,
og biðjum okkar ættarmold,
að annast beðinn þinn.
(Hulda)
Þín barnabörn,
Þorbjörg, Ragnar og Ásta.
Elsku afi minn, þó þú hafir ekki
verið hár í loftinu þá hef ég alla tíð
litið mjög mikið upp til þín. Þú
varst hress, kröftugur og lést ekk-
ert stoppa þig. Komst í gegnum öll
veikindin þín og fórst sáttur. Nú
þegar þú ert farinn kemur upp í
huga mér ótal margar minningar.
En aðeins lítið brot af þeim komast
hér fyrir.
Þegar ég rifja upp þessar minn-
ingar detta mér fyrst í hug allir þeir
gömlu góðu tímar sem við áttum
saman í Flatey. Daginn sem við
löbbuðum tvö saman meðfram
bjarginu og þú endurtókst ótal
sinnum milli þess sem þú hélst í
peysuna mína að ég ætti að passa
mig á lundaholunum og detta ekki
framaf. Og þú, elsku afi, dast með
annan fótinn ofaní eina holuna sem
náði þér uppá mitti. Daginn sem við
stóðum tvö saman við vitann og
tveir útlendir ferðamenn löbbuðu til
okkar og spurðu á ensku hvar væri
best að líta til að sjá hvali. Ég kunni
ekkert frekar en þú að svara á
ensku, en þú bentir strax og ég
sagði þér hvað þeir höfðu sagt, eitt-
hvert út á haf og sagðir „good, fi-
ne,yes“.
Daginn sem við vorum í Flatey
og þú ákvaðst að þú skyldir ekki
koma þangað aftur, þá gafstu mér
vinnugallann þinn, eldgamla húfu
og vettlinga. Og spurðir, af því að
ég hef alltaf viljað eiga hluti sem þú
hefur átt, hvort ég vildi ekki eiga
gamlar slitnar buxur af þér. Síðan
hlóstu eins og vitlaus værir og við
röltum saman með þær á bálið.
Síðustu jólin sem þú varst hjá
okkur, og ég gaf þér nýjan farsíma í
jólagjöf. Mikið var gaman að sjá
hvað þú varst ánægður með páfa-
gaukana tvo sem voru á skjánum.
Við sátum lengi saman og ég kenndi
þér á símann. Mér dettur líka í hug
sá tími þegar mamma var á spít-
alanum og þú varst heima að passa
okkur. Þú varst þá að byrja að
skera út listaverk og varst alltaf
með perubrjóstsykur í töskunni.
Minningin þegar við komum norður
og þú fórst með mig og Hrönn á
rúntinn, uppá kartöfluskemmu, eða
eitthvað um bæinn. Þú keyrðir allt-
af fram hjá elliheimilinu Hvammi
og sagðir „jæja, hér býr víst blessað
gamla fólkið“. Þegar ég rifja upp
þessar minningar veit ég ekki hvort
ég á að gráta eða hlæja. Ég á svo
margar æðislegar minningar og
mér fannst yndislegt að geta komið
til þín og kvatt þig almennilega. En
ég mun samt sakna þín svo sárt.
Það síðasta sem þú sagðir við mig
var „Auðvitað áttu eftir að koma
aftur“. Þú varst svo jákvæður, þér
leið vel og varst svo sáttur með lífið.
Guð blessi þig, elsku afi, við
sjáumst síðar.
Kristín og
Ragnar Valur.
Það var tilviljun að við kynnt-
umst Ragnari Hermannssyni og
verkum hans. Við litum við hjá hag-
leiksmanni á Húsavík árið 2002 og
spurðum í lok heimsóknar hvort
einhver annar á staðnum ynni í tré.
Maður á stigapalli í Dvalarheim-
ilinu Hvammi tjáði okkur að Ragn-
ar væri á göngu í plássinu og óvíst
hvenær hann kæmi aftur, en son-
ardóttir hans sem vann þarna leyfði
okkur að kíkja snöggvast inn í stof-
una hans. Við stóðum steini lostin í
gættinni því við blasti röð af stór-
fenglegum flokki manna og kvenna
í gluggakistunni. Við vorum ekki
fyrr komin heim en ég settist niður
og skrifaði listamanninum bréf þar
sem ég lét í ljós hrifningu okkar á
verkum hans og löngun til að koma
þeim á framfæri. Stuttu síðar ókum
við aftur til Húsavíkur og hittum
Ragnar í faðmi fjölskyldunnar; var
þar fastsett að safnið keypti 25 verk
og setti upp sýningu á þeim 2003.
Sú sýning var að vonum lítil, en
áhrifarík, stór glerskápur á miðju
gólfi.
Síðar gerðum við munnlegan
samning við Ragnar sem fól í sér
kaup á verkum hans og veglega sér-
sýningu við fyrsta tækifæri. Ég
sagði við hann að í fjöldanum fælist
karlmannlegur styrkur hans og per-
sónuleiki, gagnrýn hugsun, yfirsýn
og umburðarlyndi, vitnisburður um
fjölbreytileg viðfangsefni og hagleik
sem ætti sér vart hliðstæðu í menn-
ingarsögu okkar Íslendinga. Honum
fannst þetta oflof. Ég bætti því við
að safninu væri heiður að því að
eiga verk eftir hann. Þá hló hann.
Sýning Ragnars Hermannssonar
í nýjum húsakynnum Safnasafnsins
2007 vakti fádæma hrifningu enda
var hún flott og sterk. Samning-
urinn við hann rann síðan út haustið
2008 með uppgjöri, en um leið var
nefnt að safnið fengi nýrri verk sem
höfðu farið til kynnis syðra, og
hætta væri á að yrðu seld úr landi,
en það mál var óafgreitt er hann
lést. Nokkrum vikum áður hafði ég
sett upp litla sýningu á veiðimönn-
um Ragnars honum til heiðurs og
varð hann glaður við þær fréttir.
Það er fengur fyrir Safnasafnið
að eiga glæsilegt úrval af verkum
eftir Ragnar Hermannsson, geta
sett upp sýningu á þeim og borið
hróður hans áfram kynslóð eftir
kynslóð. Við erum þakklát fyrir bið-
lund og traust sem Ragnar sýndi
okkur í viðskiptum og stolt yfir því
að hafa öðlast trúnað hans, einlæga
vináttu sem aldrei bar skugga á og
andríkar samverustundir sem
leiftra í minni. Fjölskyldu hans
sendum við innilegar samúðarkveðj-
ur á sorgarstundu.
Níels Hafstein.