Morgunblaðið - 07.06.2009, Page 21
jafnólíklegt og að sólin kæmi einn
dag upp í vestri en ekki austri.
Það var þá. Síðan breyttist allt –
árið 2003. Sex árum síðar hefur Ro-
wayda upplifað meira ofbeldi en hún
vill vita af. Sex árum síðar er hún
flúin frá Bagdad og flutt inn í tjald.
Lífið í Al Waleed er þrautaganga
en allt er betra en ofsóknirnar í
Bagdad. Of margir hafa verið
drepnir í kringum Rowaydu til að
hún treysti sér til að dvelja áfram á
heimili sínu. Sumu er erfitt að
gleyma – sumt verður ef til vill aldr-
ei hægt að komast yfir.
Staðfastar þjóðir fjarlægðu Sadd-
am Hussein vorið 2003 án þess að
hafa úthugsaða áætlun um hvað
ætti að koma í staðinn. Vopnaðir
öfgahópar fylltu fljótlega tómarúm-
ið – hópar sem sumir hverju vildu
palestínska flóttafólkið í burtu,
þetta væri ekki þeirra land. Saddam
var farinn, hann hafði verndað þau í
Írak – nú skyldu þau í burtu sömu-
leiðis. Áður en lögleysan og ring-
ulreiðin hófst höfðu þau hins vegar
átt ágætis líf í Írak.
Fjögurra daga gömul
Daginn sem ég smeygi mér inn í
tjaldið hennar Rowaydu með bréf
og myndir frá Línu systur hennar á
Íslandi, situr hún og gefur ungbarni
brjóst. Undan hvítu teppi glittir í
agnarsmátt höfuð með mikið svart
hár. Þetta er lítil stúlka, fædd fjór-
um dögum áður.
Móðirin situr á fallegu rúmteppi
skreyttu gulum og bláum blómum.
Við hliðina á rúminu er vagga. Á
tjaldstöng hanga bleik plastblóm en
á tjaldvegginn hefur verið saumað
plakat með mynd af strönd og
pálmatrjám. Litla fjölskyldan hefur
lagt sig í líma við að gera líf í tjaldi
Föst Flóttafólkið er strand í eyðimörkinni við landamæri Íraks og Sýrlands og næsta sjúkrahús er 400 km í burtu.
Morgunblaðið/Sigríður Víðis
Systur Rasha, Rowayda og Ronda eru systur Línu Falah á Skaga. Í fangi Rowaydu er nýfædd dóttir hennar.
Heitt Stúlka í Al Waleed þar sem steikjandi sumarhitarnir eru framundan.
21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009
Takk fyrir stuðninginn!
Álfasala SÁÁ í lok síðasta mánaðar tókst vel og gerir okkur kleift að halda áfram stuðningi við
unga vímuefnaneytendur í vanda og uppbyggingu unglingadeildar SÁÁ á Vogi.
Fyrir það viljum við þakka þeim mikla fjölda fólks sem tók þátt í Álfasölunni og þeim nærri
28.000 Íslendingum sem keyptu Álfinn – fyrir unga fólkið.