Morgunblaðið - 07.06.2009, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
JENNIFER ANISTON ER FRÁBÆR Í ÞESSARI RÓMANTÍSKU GAMANMYND ÞAR SEM
WOODY HARRELSON OG STEVE ZAHN FARA Á KOSTUM SEM TVEIR ÁSTFANGIR MENN SEM ERU
REIÐUBÚNIR AÐ BERJAST UM ÁST HENNAR MEÐ EINKAR FYNDNUM AFLEIÐINGUM.
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
Frá Höfundi Lost og Fringe, J.J.Abrams, kemur
STÓRMYND
sem gagnrýnendur halda vart vatni yfir!
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
HHH
“... FÍNASTA SPENNUMYND
MEÐ FLOTTUM HASARATRIÐUM...”
- V.J.V., FBL
á allar 3D sýningar merktar með grænu850 krrSPARBÍÓ
ath. STRANGLEGA BÖNNUÐ BÖRNUM
Wes Craven er mættur aftur með einhvern
ROSALEGASTA THRILLER SÍÐARI ÁRA
SÝND Í ÁLFABAKKA, AKUREYRI OG SELFOSSI
HHH
„STÓRBROTINN HASAR.“
SV MBL
TERMINATOR SALVATION kl. 8D - 10:30D 12 DIGTAL STAR TREK XI kl. 8 - 10:30 10
MANAGEMENT kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 10 STAR TREK XI LÚXUS VIP kl. 5:30 - 8 - 10:30
ADVENTURELAND kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 12 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN kl. 2 - 4 L
CORALINE 3D m. ísl. tali kl. 1:303D - 3:403D - 5:503D L 3D DIGTAL BEVERLY HILLS CHIHUAHUA kl. 1:30 L
THE LAST HOUSE ON THE LEFT kl. 8 - 10:30 16 MONSTERS VS. ALIENS kl. 1:30 L
HANNAH MONTANA kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 L NEW IN TOWN kl. 5:50
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
THE HANGOVER Forsýning kl. 10 12
MANAGEMENT kl. 6 - 8:10 - 10:20 10
GOTT SILFUR GULLI BETRA kl. 6:10D - 8D L DIGITAL
ADVENTURELAND kl. 8:10 - 10:20 12
CORALINE 3D m. ísl. tali kl. 23D - 43D L 3D DIGTAL
CORALINE 3D m. ensku tali, ótextuð kl. 63D L 3D DIGTAL
HANNAH MONTANA kl. 1:30 - 3:40 L
ALFREÐ ELÍASS. OG LOFTLEIÐAMYND kl. 3:30D (síðasta sýn.) L DIGITAL
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN kl. 1:30D L DIGITAL
Eins og nafnið gefur tilkynna fjallar heimild-armyndin Gott silfur gullibetra um glæsilegustu
frammistöðu íslenskra hópíþrótta-
manna á stórmóti; silfurverðlauna-
hafana, handboltakempurnar okkar á
Ólympíuleikunum í Beijing sumarið
2008. Myndin byrjar á slæmu gengi
„strákanna okkar“ í síðasta Evr-
ópumóti og undankeppninni fyrir Ól-
ympíuleikana þar sem við börðumst
um laust sæti og unnum það. Síðan
hefst þessi ótrúlega sigurganga í
Kína, sem byrjar á rosalegum nótum;
sigri á Rússum og Þjóðverjum og í
framhaldinu slátrum við hverri stór-
þjóðinni á fætur annarri uns komið er
í úrslitaleikinn og eina tapleikinn – á
móti heimsmeisturum Frakka.
Kvikmyndafólkið fylgist náið með
keppendunum, þjálfaranum og að-
stoðarfólkinu, þessum firna vel sam-
valda hópi sem ruddi hverri hindr-
uninni á eftir annarri úr vegi í
markvissri átt að glæsilegasta
árangri okkar manna og vakti athygli
um heimsbyggðina. Reynt er að kom-
ast að leyndarmálinu á bak við árang-
urinn, þar sem allt og allir lögðust á
eitt um að við berðumst um gullið,
nokkuð sem enginn gat ímyndað sér á
undirbúningstímanum.
Það er ljóst að Guðmundur og að-
stoðarmenn hans höfðu getuna og
kunnáttuna til að laða fram (mótív-
era) allt það besta í leikmannahópn-
um og láta hann toppa á réttum tíma.
Farið er vel og vandlega yfir mynd-
bönd af leikjum andstæðinganna,
hópurinn geymdur í hálfgerðri ein-
angrun til að forðast truflanir frá um-
hverfinu. Guðmundur og co. sömdu
skotheldar hernaðaráætlanir, leituðu
uppi veikleika andstæðinganna og
hinn heimspekilega sinnaði fyrirliði
og stórmenni í íþróttinni, Ólafur Stef-
ánsson, sá um andlega uppbyggingu
sem skilaði mikilvægum árangri.
Keppnin fór fram síðsumars, rétt
fyrir fallið mikla, bankahrunið,
heimskreppuna. Það lék allt í lyndi og
ráðamenn enn steinblindir á að við
vorum að hrapa fram af brúninni fá-
einum dögum síðar. Síðan „strák-
arnir okkar“ þjöppuðu saman þjóð-
inni og fylltu hjarta okkar gleði og
stolti hefur lítið jákvætt gerst til að
hressa upp á þjóðarsálina. En minn-
ingin um ævintýralegan árangur
snillinganna sem lyftu merki lands og
þjóðar í hæstu hæðir í Beijing verður
aldrei frá okkur tekin og nú er komin
þessi fína mynd, vel gerð, frábærlega
klippt og skorin, sem við getum glatt
okkur yfir um ókomin ár. Handbolta-
landsliðið sýndi og sannaði, líkt og
Vilhjálmur Einarsson og fleiri góðir
menn, að við eigum jafnan að taka
þátt í stórmótum, minnast Davíðs og
Golíats, Guðmundar og hetjanna
hans. Myndin Gott silfur gulli betra,
með sínum jákvæða boðskap og trú á
að ekkert sé útilokað, á að vera til á
hverju heimili. Þá getum við upplifað
hrifningarölduna sem umlék lands-
menn á þessum dýrðardögum fyrir
ósköpin. saebjorn@heimsnet.is
Sambíóin
Gott silfur gulli betra
bbbmn
Íslensk heimildarmynd. Leikstjóri: Þór
Elís Pálsson. Handrit: Þór Elís og Anna
Þóra Steinþórsdóttir. Kvikmyndataka:
Guðbergur Davíðsson. Klipping: Anna
Þóra Steinþórsdóttir. Hljóð: Gunnar
Árnason. Tónlist: Valtýr Guðjónsson.
Þulur: Hilmir Snær Guðnason. Fram-
leiðandi: Guðbergur Davíðsson. Helstu
viðmælendur: Guðmundur Þ. Guð-
mundsson og íslenska handbolta-
landsliðið. Hvíta fjallið, HSÍ og RÚV,
með styrk frá Kvikmyndamiðstöð.
81 mín. Ísland 2009.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Silfurdrengirnir „Myndin, með sínum jákvæða boðskap og trú á að ekkert sé útilokað, á að vera til á hverju heimili.“
Að gera betur en síðast