Morgunblaðið - 18.06.2009, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2009
ÚTSALA
YFIR 1000 VÖRULIÐIR Á LÆKKUÐU VERÐI
Nýtt kortatímabil
2 fyrir 1
af Simple
handklæðum
einfaldlega betri kostur
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19
s: 522 4500 www.ILVA.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Office 1 í greiðslustöðvun
Skuldir eru í erlendri mynt og því kom fall krónunnar mjög illa við fyrirtækið
Forstjórinn segir að gjaldþrot Pennans og A4 hafi bitnað á rekstrinum
Eftir Skúla Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
EGILSSON hf., sem meðal annars
rekur Office 1 verslanirnar, hefur
ákveðið að óska greiðslustöðvunar
meðan fjárhagur félagsins verður
endurskipulagður. Greiðslustöðv-
unin verður í samráði við stærsta
kröfuhafa félagsins, Nýja Lands-
banka Íslands. Stefnt er að því að
ljúka endurskipulagningu félagsins
fyrir lok ágúst þannig að framtíð
rekstursins og hagsmunir lánar-
drottna verði öruggir. Þetta segir í
fréttatilkynningu frá félaginu.
„Við erum komin á þennan stað
útaf utanaðkomandi aðstæðum,
undirliggjandi rekstur hjá okkur
er ágætur,“ segir Kjartan Örn Sig-
urðsson, forstjóri Egilsson hf. Fé-
lagið er að mestu leyti fjármagnað
með erlendri mynt og kom hrun
krónunnar því mjög illa við eig-
infjárstöðu þess. Skuldar félagið
nú meira en það á.
Gjalda fyrir gjaldþrot
annarra
Í kjölfar falls íslensku bankanna
og tímabundins banns við gjaldeyr-
isviðskiptum var þrengt töluvert að
Þá hafði gjaldþrot Pennans og A4
þau áhrif að birgjar hérlendis
hertu útlánakröfur sínar. Vegna
stöðu íslensku bankanna var ekki
hægt að fá fyrirgreiðslu til að
mæta þessu.
„Það hjálpar ekki seinasta félag-
inu sem stendur eftir í baráttunni
að allir birgjar eru brenndir af
gjaldþroti hinna tveggja,“ segir
Kjartan Örn um gjaldþrot Pennans
og A4 en þau hafa að hans sögn
bitnað nokkuð á Egilsson hf. Hann
segir þó að ástæður þess að svo er
komið fyrir félaginu sem raun ber
vitni séu margþættar.
Egilsson hf. Traust erlendra birgja
minnkaði og greiðslukjör versn-
uðu. Krafist var greiðslu útistand-
andi skulda og fyrirframgreiðslu.
ALDREI hefur
staðið til að Ice-
save-samningur-
inn yrði leyndar-
mál. Líklega er
það spurning um
daga hvenær
samkomulag sem
nú er unnið að
næst við Breta og
Hollendinga um
að aflétta leynd
yfir samningnum, meðal annars til
að þingmenn geti kynnt sér hann.
Þetta segir Indriði H. Þorláksson,
aðstoðarmaður fjármálaráðherra.
Í fréttum Ríkisútvarpsins í gær
kom fram að í Icesave-samningnum
væri kveðið á um að leita skyldi til
breskra dómstóla til að leysa úr
hugsanlegum ágreiningi. Indriði
segir það almenna reglu í lánasamn-
ingum milli ríkja að leitað skuli til
dómstóla í landi lánveitanda.
„Ef aðilum samninga hugnast það
ekki, er iðulega notast við bresk lög
og dómstóla, jafnvel þó Bretland hafi
enga aðkomu að viðkomandi samn-
ingi,“ segir Indriði. Breskir dómstól-
ar eiga sér langa sögu og þar er ekki
síst styrkur lagarammi um fjármál.
Þetta hafi því verið mjög eðlileg ráð-
stöfun.
Í Icesave-samningnum er að auki
kveðið á um að ef Íslendingar standa
ekki við sinn hlut, svo sem ef ekki
tekst að greiða af láninu, geti lán-
veitendurnir, Bretar og Hollending-
ar, gengið að eigum íslenska ríkisins
að því marki sem stjórnarskrá leyfir.
Indriði segir þetta ákvæði vera
nánast staðalákvæði í milliríkja-
samningum.
„Lítils virði annars“
Líkt og í venjulegum lánaviðskipt-
um getur eigandi skuldarinnar, lán-
veitandinn, leitað réttar síns og farið
fram á fjárnám í eigum skuldarans ef
hann stendur ekki í skilum.
„Hér er ríkið að gera sig ábyrgt
fyrir þeim eignum sem það hefur.
Þess konar ákvæði geta menn fundið
í flestum ef ekki öllum lánasamning-
um milli ríkja, og raunar væri samn-
ingurinn lítils virði annars,“ segir
Indriði. halldorath@mbl.is
Spurning um daga hvenær
leynd verður létt af Icesave
Hefð er fyrir því að dómstólar í landi lánveitanda leysi úr
hugsanlegum ágreiningsmálum vegna milliríkjasamninga
Indriði H.
Þorláksson
„ÞAÐ er bara
verið að fara yfir
stöðuna og reyna
að átta sig á því
hvað gerist á
næstu dögum,“
sagði Vilhjálmur
Egilsson, formað-
ur Samtaka at-
vinnulífsins, eftir
fund með ríkis-
stjórninni í gær.
Vilhjálmi sýnist að nú sé að takast
að ná utan um ríkisfjármálin og seg-
ir hann vinnu hafna við aðkomu líf-
eyrissjóða að fjárfestingum og slíku.
Endurskipulagningu bankanna seg-
ir hann skemmra á veg komna. „Það
er í rauninni ekkert sem hönd á fest-
ir í því, það vantar alveg skýra
stefnumörkun af hálfu ríkisstjórn-
arinnar í þá átt,“ segir Vilhjálmur.
Þá segir hann að engra breytinga sé
að vænta hvað varðar gjaldeyrishöft
og stýrivexti Seðlabankans.
Svartsýnn á kjarasamninga
Vilhjálmur er ekki bjartsýnn á
kjarasamninga sem framundan eru.
„Ég myndi segja að það væru meiri
líkur en minni á að [samningurinn]
verði ekki framlengdur,“ segir hann.
Ástæðu þess segir hann vera að eng-
ar hreyfingar séu á gjaldeyris-
höftum og stýrivöxtum.
Hann segir þó að reynt verði að
ljúka samningum áður en gildandi
samningur rennur út og munu til-
lögur þar að lútandi þegar liggja fyr-
ir. skulias@mbl.is
Bankamál
skammt á
veg komin
Vilhjálmur
Egilsson
Ekkert fast í hendi
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sótti
í gær konu sem slasaðist á göngu í
Reykjadal innan við Hveragerði.
Svo virðist sem konan hafi fallið,
samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á Selfossi, en þar sem hún var
öftust í göngunni sá enginn hvernig
það vildi til.
Konan fékk höfuðhögg og vank-
aðist en þegar hún komst til meðvit-
undar aftur var hún illa áttuð. Sam-
kvæmt upplýsingum lögreglu var
nokkuð löng ganga niður að bílum og
því þótti ráðlegt að sækja hana með
þyrlu. helgi@mbl.is
Slasaðist
í Reykjadal
SKÚMINUM þykir vænt um egg sín og unga eins
og öðrum fuglum. Ræðst hann hiklaust á óboðna
gesti og kemur þá oftar en ekki á fleygiferð í
augnhæð. Þessum skúmi kippti í kynið þegar
hann varaði fuglaljósmyndara við nú í vikunni er
sá síðarnefndi hætti sér of nærri hreiðri.
Á haustin fara skúmar héðan til S-Evrópu,
þaðan til S-Ameríku og svo norður um og aftur
hingað.
Þeir sem hætta sér of nærri hreiðrum skúma fá óblíðar móttökur
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Skúmurinn snýst til varnar