Morgunblaðið - 18.06.2009, Blaðsíða 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2009
Eyðilegging Húsið er gjöreyðilagt eftir aðfarir gröfunnar en hún var aðeins tíu mínútur að rífa niður um helming byggingarinnar, að sögn sjónarvotta.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
HÚSEIGANDI á Álftanesi var hand-
tekinn í gær og færður til skýrslu-
töku á lögreglustöð eftir að hann
hafði stórskemmt húsið með gröfu og
grafið bílinn sinn á lóðinni. Kvik-
myndatökumenn tóku atburðinn upp
að beiðni mannsins.
„Ég var inni í bílskúr og heyrði ein-
hverja skruðninga. Þá stóð grafa upp
úr miðju húsinu. Hann var búinn að
rústa því og grafa bílinn sinn niður,“
segir Árni Már Björnsson, íbúi við
Hólmatún, sem varð vitni að eyði-
leggingunni.
„Þetta hefur verið úthugsað því
hann kom með gröfuna í gærkvöldi
og var búinn að panta myndatöku-
menn,“ bætir hann við.
Lögreglunni barst tilkynning rétt
fyrir klukkan fjögur í gær um að
maður væri með stóra beltagröfu að
brjóta niður hús við Hólmatún á
Álftanesi. Þegar lögreglumenn komu
á vettvang var maðurinn á leið í
burtu.
Bíllinn urðaður
Húsið er einbýlishús úr timbri með
bílskúr, svokallað kanadískt eininga-
hús. Það er mikið skemmt, ef ekki
ónýtt. Búið var að brjóta í sundur
helming þess. Jafnframt gróf maður-
inn holu, setti bíl þar í og gróf yfir
hluta hans.
Húsið er tæplega 180 fermetrar að
stærð með bílskúr. Brunabótamat
eignarinnar er rúmlega 50 milljónir.
Óheimilt er að rífa hús nema með
leyfi skipulagsyfirvalda. Það leyfi
mun ekki hafa legið fyrir.
Hópur fólks fylgdist með, meðal
annars nágrannar.
Kvikmyndatökumenn frá Kukli
ehf. fylgdust með framkvæmdinni, að
beiðni mannsins. Bjarni Felix
Bjarnason kvikmyndagerðarmaður
segist ekki hafa skýringar á málinu.
Fyrirtækið hafi verið beðið að mynda
framkvæmd á þessum stað. Maður-
inn hafi látið gröfuna vaða beint í hús-
ið og verið að í mesta lagi tíu mínútur.
Nágrannar mannsins telja, að
hann hafi verið búinn að missa húsið
vegna fjárhagserfiðleika.
„Það hlýtur að vera eitthvað þann-
ig. Það er sorglegt að sjá þetta gerast
í næsta húsi,“ sagði Árni Már.
Frá því atburðurinn spurðist út
hefur verið mikil bílaumferð um göt-
una. Eftir skýrslutöku hjá lögregl-
unni var manninum sleppt.
Eyðilagði húsið með gröfu
Um 180 fermetra einingahús með bílskúr og brunabótamatið um 50 millj. kr.
Urðaði einnig bílinn og fékk kvikmyndatökumenn til að fylgjast með verkinu
Morgunblaðið/Heiddi
Grafinn Maðurinn kom bíl sínum fyrir í holu á bílastæðinu og gróf yfir.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fresta
tveimur útboðum hjá Vegagerðinni
sem hafa verið auglýst og átti að opna
eftir helgi. Frestunin tengist nið-
urskurði í útgjöldum ríkisins.
Um er að ræða lagningu Arn-
arnesvegar frá nýja hringtorginu á
Reykjanesbraut og austur fyrir Fífu-
hvammsveg og Reykjabraut í Húna-
vatnssýslu. Kaflinn á Arnarnesvegi
er nokkuð stórt verk, tæplega 2 km
langur með tveimur akreinum, fern-
um gatnamótum og fjórum steyptum
undirgöngum. Reykjabraut liggur frá
hringveginum austur fyrir Steinakot
í nágrenni Húnavalla.
Útboðum
frestað
Vegagerðin bíður
vegna niðurskurðar
Hringtorgið Kafla á Arnarnesvegi
hefur nú verið frestað.
„ALLT í Fókus“ er heiti ljós-
myndasýningar sem nú stendur yfir
í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.
Sýningin er haldin í tilefni af tíu ára
afmæli ljósmyndafélagsins Fókuss.
Á sýningunni eru tæplega 100
ljósmyndir eftir þrjátíu félaga. Eins
og heiti sýningarinnar gefur til
kynna er efnið fjölbreytt.
Fókus stendur reglulega fyrir
ljósmyndasýningum, auk annarrar
starfsemi. Sýningin í Ráðhúsinu er
sú fimmta sem félagið heldur þar og
sautjánda sýning félagsins frá upp-
hafi.
Sýningunni lýkur næstkomandi
sunnudag, 21. júní.
Allt í Fókus
í Ráðhúsinu
Keðja Myndefni er víða sótt á sýn-
ingu Fókusfélaga.
Ljósmynd/Friðrik Þorsteinsson
Frjálsi fjárfestingarbankinn eignaðist íbúðarhúsið við
Hólmatún á Álftanesi á nauðungaruppboði í nóvember
en fyrri eigandi reif það að mestu í dag. Bankinn hafði
ekki fengið lyklavöldin. Gengið var í það í gær að hreinsa
byggingarefnið af lóðinni og ganga frá umhverfinu.
Haft var eftir fyrri eiganda hússins í fréttum Stöðvar
2 í gærkvöld, að honum hefði nýlega verið birt útburð-
artilkynning. Hann hefði ekki haft neinu að tapa, ekki
skipti máli hvort hann færi á hausinn vegna 60 milljóna
króna skuldar eða 120 milljóna. Með þessu gæti hann
líka vakið athygli á slæmri stöðu sinni sem skuldari.
Bjarni S. Einarsson, skipulags- og byggingarfulltrúi
Álftaness, segir að sækja þurfi um byggingarleyfi þurfi
að rífa niður hús, en engin umsókn um það hafi borist
vegna þessa húss. Hann segist hafa komið fyrst að
þessu máli sem íbúi, í gönguferð um götuna.
„Ég sá hvað var að gerast og kallaði lögreglu og eig-
endur til,“ segir Bjarni. „Ég er orðlaus yfir þessu,“ bætir
hann við.
Ingólfur Friðjónsson hjá Frjálsa fjárfestingarbank-
anum segir, að bankinn hafi eignast húsið á uppboði í
nóvember 2008 en það hafi ekki verið komið í vörslu
hans. Til hafi staðið að taka við lyklunum og vörslunni af
fyrri eiganda næstkomandi föstudag.
„Þetta kom okkur algerlega í opna skjöldu eins og
öðrum,“ segir Ingólfur.
Ingólfur og Bjarni telja húsið ónýtt. Bílskúrinn sé það
eina sem eftir standi.
Í gærdag hafði verið samið við verktaka um að
hreinsa upp húsleifarnar svo þær yllu ekki hættu og
tjóni fyrir nágranna og átti að vinna það verk síðar þá
um daginn.
Bankinn eignaðist húsið í nóvember
STEINUNN Sigurðardóttir fata-
hönnuður var í gær útnefnd borg-
arlistamaður Reykjavíkur árið
2009.
Það er menningar- og ferða-
málaráð borgarinnar sem velur
borgarlistamann ár hvert og það
var Áslaug Friðriksdóttir, formað-
ur ráðsins, sem gerði grein fyrir
valinu við athöfn í Höfða í gær.
Hanna Birna Kristjánsdóttir
borgarstjóri afhenti Steinunni
verðlaunin, sem eru ágrafinn steinn
og heiðursskjal auk verðlaunafjár.
Steinunn á að baki langan og far-
sælan feril sem tísku- og fatahönn-
uður og hafa verk hennar vakið at-
hygli og hlotið viðurkenningar víða
um heim. Hún var yfirhönnuður hjá
Gucci, Calvin Klein og La Perla en
stofnaði árið 2000 sitt eigið fyr-
irtæki, STEiNUNNI.
Steinunn tileinkaði syni sínum,
Alexander Viðari Pálssyni, verð-
launinn.
Steinunn borgarlistamaður
Morgunblaðið/Eggert
Í Höfða Hanna Birna Kristjánsdóttir, Steinunn Sigurðardóttir, Áslaug Frið-
riksdóttir og Alexander Viðar Pálsson, sonur Steinunnar.
Tileinkaði syn-
inum verðlaunin
VÍKINGAHEIMAR í Reykjanesbæ
voru opnaðir með hátíðlegri athöfn
í gær. Þar er víkingaskipið Íslend-
ingur og sýningin Víkingar Norð-
ur-Atlantshafsins sem sett er upp í
samvinnu við Smithsonian-
stofnunina í Bandaríkjunum. Verk-
efnið hefur kostað um 360 milljónir
og er það að fullu fjármagnað. Rík-
ið leggur til um þriðjung sam-
kvæmt samkomulagi sem gert var á
sínum tíma.
Ljósmynd/Víkurfréttir
Víkingaheimar formlega
opnaðir í Reykjanesbæ