Morgunblaðið - 18.06.2009, Page 37
Kroppaleikur Þau Matthew McConaughey og Kate Hudson eru afskaplega
hugguleg á að líta en eru alveg vonlausir leikarar.
Sagan segir að leikarinnLaurence Olivier hafi undr-ast aðferðir Dustins Hoff-
man við tökur á Marathon Man.
Hoffman hafi m.a. farið fram á að
sér yrði haldið sérstaklega lengi á
kafi í vatni, í einu af pynting-
araðferðum myndarinnar, svo við-
brögð hans yrðu sem allra eðlileg-
ust. Hoffman mun einnig hafa
sofið lítið sem ekkert nóttina fyrir
tökur á atriði þar sem persóna
hans átti að vera svefnlaus og ör-
þreytt. Mun Olivier þá hafa spurt
Hoffman af hverju hann léki sig
ekki bara þreyttan. Það hefur
Hoffman sjálfsagt þótt gamaldags
aðferð.
Það hefur löngum þótt merki-legt þegar leikarar, einkum
bandarískir, láta sér ekki nægja
að túlka hlutverk sín, heldur taka
bókstaflega hamskiptum. Sem
dæmi má nefna Robert DeNiro
sem hljóp í spik með ógnarhraða
fyrir hlutverk sín í Raging Bull
og Untouchables og Christian
Bale sem grennti sig svo svaka-
lega fyrir kvikmyndina Machinist
að hann stefndi sér í hættu. Bale
var vissulega hræðilegur á að líta,
líkt og fangi í útrýmingarbúðum
nasista, og sjálfsagt hefur hann
lítið þurft að túlka vanlíðan sína.
Honum leið einfaldlega mjög illa.
Það er hins vegar spurning hvort
leikarar þurfi að ganga svona
langt til að vera sannfærandi í
hlutverkum sínum. Þarf maður að
vera vannærður til að leika van-
nærðan mann? Verður leikari að
einhverju leyti betri leikari með
því að leggja slíkar raunir á sig?
Eða hefur hann ekki nógu mikla
trú á sjálfum sér til að leika van-
nærðan mann án þess að vera
vannærður?
Bíógestum til mikillar furðu
sneri Bale svo aftur verulega
stæltur örfáum mánuðum síðar,
líkt og fyrir kraftaverk, og hlaut
auðvitað mikið lof fyrir. Enda í
raun afrek út af fyrir sig þó það
komi leiklistinni ekkert við. Hér
er ekki verið að halda því fram að
Bale sé slakur leikari, síður en
svo, en það má velta því fyrir sér
hvort slík líkamleg hamskipti
komi leiklist eitthvað við. Líkams-
beitingin er aðalatriðið, ekki lík-
aminn, ekki satt?
Leikarar sem beita slíkum að-ferðum, að grenna sig gíf-
urlega, fita eða stæla, fá iðulega
stóran plús í kladdann hjá áhorf-
endum fyrir það eitt að leggja
svona svakalega mikið á sig lík-
amlega. Sjálfsagt er þetta ekki
síður auglýsingabrella markaðs-
stjóra en uppátæki stjarnanna,
snoppufríðir og stæltir skrokkar
selja aðgöngumiða og draga líka
athyglina frá frammistöðu leik-
arans og það kemur sér vel þegar
leikarinn er slakur eða takmark-
aður. Nægir þar að nefna hinn
hörmulega lélega Matthew McCo-
naughey, hæfileikalausan sætilíus
sem virðist leika meira með vöðv-
unum en heilabúinu. Leikkon-
urnar eru líka nokkrar sem setja
má í slíkan flokk, Jessica Alba t.d.
Hún leikur eiginlega bara með
rassinum.
En þetta er auðvitað Holly-
wood. Þess vegna er Hugh Jack-
man svona vinsæll (sérstaklega
meðal kvenna) og það er nú ekki
leiðinlegt að horfa á Megan Fox.
Hver er það? Æ, þú veist, þessi
með rassinn. helgis@mbl.is
Að leika með rassinum
»Mun Olivier þá hafaspurt Hoffman af
hverju hann léki sig
ekki bara þreyttan. Það
hefur Hoffman sjálfsagt
þótt gamaldags aðferð.
AF LISTUM
Helgi Snær Sigurðsson
Megan Fox Ofarlega á kynþokkalistum en lítt hampað fyrir leiklistarhæfileika.
Menning 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2009
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Sannleikurinn (Stóra sviðið)
Ekki missa af Djúpinu, aðeins þrjár sýningar eftir!
Við borgum ekki (Nýja sviðið)
Uppsetning Nýja Íslands.
Söngvaseiður. Sala hafin á sýningar í haust.
Djúpið (Litla sviðið)
Munið afslátt fyrir viðskiptavini Vodafone!
Lau 20/6 kl. 19:00 stóra svið
Lau 27/6 kl. 19:00 stóra svið
Fös 3/7 kl. 19:00 stóra svið Lau 11/7 kl. 19:00 stóra svið
Fim 18/6 kl. 20:00 Fös 19/6 kl. 20:00 Sun 21/6 kl. 20:00
Fim 18/6 kl. 20:00 Ö
Fös 19/6 kl. 19:00
Fim 25/6 kl. 19:00
Fös 26/6 kl. 20:00
Fös 4/9 kl. 19:00 U
Lau 5/9 kl. 19:00 Ö
Sun 6/9 kl. 19:00 Ö
Mið 9/9 kl. 19:00 U
Fim 10/9 kl. 19:00 Ö
Fös 11/9 kl. 19:00
Fös 18/9 kl. 19:00 Ö
Lau 19/9 kl. 19:00 U
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
FYRIR áratugum kom út á vegum
SG útgáfunnar afar nýstárleg vínyl-
plata þar sem Þórir Baldursson lék
þekkt íslensk lög. Í stað söngs ljáði
Þórir laglínunum rödd hammond-
orgels síns á sinn einstaka hátt. Það
væri orðum aukið að segja að platan
hefði lifað af tímans tönn en engu að
síður fetar nú ungur maður í hans
spor. Sá heitir Sveinbjörn Thor-
arensen er gefur í vikunni út plötu
sína Hermigervill leikur vinsæl Íz-
lensk lög. HG útgáfan (hans eigin)
gefur út. Þetta er þriðja breiðskífa
hans undir listamannsnafni sínu en
lítið hefur heyrst frá drengnum eftir
að hann fluttist til Hollands þar sem
hann lærir hljóðupptöku.
„Ég hef ekkert aftengst mínum
rótum,“ segir Hermigervill að-
spurður hvort heimþráin sé kveikjan
að gerð plötunnar. „Þetta er raf-
tónlist, en þetta er ekki teknó. Ég er
að byggja þetta á miklu eldri raf-
tónlist. Frá sjöunda og áttunda ára-
tugnum. Ég er að spila á fullt af eld-
gömlum rafhljóðfærum sem ég hef
sankað að mér þarna úti.“
Lög úr plötusafni foreldranna
Hermigervill segir að lögin sé öll
að finna í plötusafni foreldra sinna.
Þarna sé hann því að votta þeirri tón-
list er hann ólst upp með á heimili
sínu virðingu. Þarna má því heyra út-
gáfur hans af lögum á borð við Sveit-
in á milli sanda, Starlight, Í bláum
skugga, Vegir liggja til allra átta,
Garden Party og Þorparinn.
„Þetta er óður til tónlistaruppeldis
míns. Það má segja að þetta séu allt
áhrifavaldar. Ég hef heyrt að það sé
móðins núna að fara aftur í ræturnar,
sérstaklega þar sem það er kreppa.
En ég er búinn að vera vinna að þess-
ari plötu í tvö ár. Þetta er búið að
vera þvílík þrautaganga. Það er allt
búið að fara úrskeiðis sem gat farið
úrskeiðis.“
Tónlist við öll tækifæri
Lögin fá mjög sérstakan blæ í
höndum Sveinbjarnar. Oft mýkri en
aðdáendur Hermigervils eiga að
venjast og því ekki spurning að hægt
er að nýta þessa tónlist við alls kyns
tækifæri. Hvort sem er í auglýs-
ingar, í lyftur eða á milli dagskrárliða
í sjónvarpi. „Þetta er tónlist við öll
tækifæri. Ég reyndi að ganga eins
langt í furðulegheitunum á þessari
plötu og ég gat. Ég býst alveg við því
að sumum finnist þetta of furðulegar
útgáfur af lögunum. En það eru svo
margir sem gefa út tökulög og gera
ekkert nýtt fyrir þau. Ég er virkilega
að reyna að fara með þessi lög í nýjar
áttir og að þau hljómi eins og ég.“
„Lögin hljóma eins og ég“
Hermigervill setur þekkt íslensk lög
í nýjan og rafmagnaðan búning
Hermigervill „Ég hef heyrt að það sé móðins núna að fara aftur í ræturnar.“
VEFSÍÐAN tonlist.is og Rás 2 hafa
undanfarið staðið fyrir valinu á 100
bestu plötum Íslandssögunnar,
hvorki meira né minna.
Valið stóð á milli 485 íslenskra
platna sem innihéldu frumútgefnar
upptökur og uppfylltu hefðbundin
skilyrði um að teljast breiðskífur eða
LP plötur. Það var 100 manna dóm-
nefnd, auk atkvæða frá almenningi,
sem úrskurðaði hvaða 100 plötur
þættu bestar í þessum hópi.
Í gær voru lokaniðurstöður svo
kunngjörðar, Ágætis byrjun Sigur
Rósar þótti besta plata Íslandssög-
unnar. Á hæla hennar fylgdu svo Lif-
un með Trúbroti og Á bleikum nátt-
kjólum Megasar og Spilverks
þjóðanna.
Samskonar listi 2001
Samskonar könnun var gerð upp-
úr aldamótum við útgáfu bókar
Gunnars Lárusar Hjálmarssonar,
Dr. Gunna, Eru ekki allir í stuði?
Þar voru valdar bestu plötur síð-
ustu aldar og Ágætis byrjun kom sér
fyrir í efsta sæti þess lista. Í næstu
sætum voru Debut með Björk og Á
bleikum náttkjólum.
Þrettán þeirra platna sem rötuðu
á topp 20 árið 2001 er að finna á hin-
um nýja lista yfir 20 bestu plöturnar
en þá komu að sjálfsögðu ekki til
greina plötur sem komið höfðu út
eftir aldamót. Fimm plötur á listan-
um nú komu út eftir árið 2001.
Ágætis
byrjun
best allra
Ágætisbyrjun Besta plata Íslands-
sögunnar kom út fyrir 10 árum.
Vali á 100 bestu
plötum Íslands-
sögunnar lokið
1. Ágætis byrjun - Sigur Rós
2. Lifun - Trúbrot
3. Á bleikum náttkjólum - Megas &
Spilverk þjóðanna
4. Hinn íslenzki Þursaflokkur -
Þursaflokkurinn
5. Sumar á Sýrlandi - Stuðmenn
6. Debut - Björk
7. Gling-Gló - Björk Guðmunds-
dóttir & Tríó Guðmundar Ing-
ólfssonar
8. Ísbjarnarblús - Bubbi Morthens
9. Með suð í eyrum við spilum
endalaust - Sigur Rós
10. Sturla - Spilverk þjóðanna
11. Me and Armini - Emilíana Torrini
12. Hana nú - Vilhjálmur Vilhjálms-
son
13. Fishermańs Woman - Emilíana
Torrini
14. Lifés Too Good - Sykurmolarnir
15. Með allt á hreinu - Stuðmenn
16. Einu sinni var - Vísur úr Vísna-
bókinni - Björgvin Halldórsson
og Gunnar Þórðarson
17. Lög unga fólksins - Hrekkjusvín
18. Kona - Bubbi Morthens
19. Mugimama is this monkeymusic
- Mugison
20. Takk - Sigur Rós
20 bestu plötur
Íslandssögunnar