Morgunblaðið - 18.06.2009, Blaðsíða 44
Ljósmynd/Lilja Sif Magnúsdóttir
Afli Garðar Ólason, útgerðarmaður í Grímsey, sló ekki slöku
við á þjóðhátíðardaginn og landaði þorski úr þremur bátum.
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
GESTKVÆMT er í Grímsey þessa dagana
en fjöldi aðkomubáta á höttunum eftir ufsa
hefur þar viðveru í höfninni. Að auki fer
nú mesti annatími ferðaþjónustu í eynni í
hönd, enda fýsir marga að upplifa það
tímabil sem sólin gengur aldrei til viðar í
eynni.
„Það er búið að vera mikið af aðkomu-
bátum hér undanfarið enda mikill afli
hérna,“ segir Garðar Ólason útgerðarmað-
ur, sem stóð í ströngu á hafnarbakkanum
við að landa þorski úr tveimur bátum þeg-
ar blaðamaður sló á þráðinn til hans á
þjóðhátíðardaginn.
„Svo á ég eftir að landa úr einum í við-
bót í dag. Þú sérð hvað við höldum mikið
upp á þjóðhátíðardaginn – við erum alltaf
að reyna að afla gjaldeyris meðan hinir
leika sér og heimta meira kaup,“ segir
hann og skellihlær en segir þó flaggað á
öllum bátum í tilefni dagsins.
„Ég gæti trúað því að það væru einir tíu
aðkomubátar núna sem eru allir á hött-
unum eftir ufsa, því það á enginn þorsk-
kvóta,“ heldur hann áfram. „Svo er fullt af
línubátum hér í kringum eyjuna sem liggja
kannski á nóttinni hér í höfninni, svo það
er mikið líf og fjör.“
Og sýnt er að fjörið heldur áfram því um
helgina verður haldin sólstöðuhátíð í
Grímsey, sem laðar að fjölmargan ferða-
manninn, en á þessum tíma gengur sólin
aldrei til viðar í eynni. „Þá verða hér fleiri
hundruð manns að ég held. Svo er ætt-
armót um þarnæstu helgi og sjóstöng
helgina þar á eftir. Þannig að það er mikið
um að vera.“
Þess má geta að íbúar Grímseyjar eru
sjálfir innan við 100 manns svo fólksfjöld-
inn í eynni margfaldast við slíkar uppá-
komur á sumrin.
Gestafjöld í Grímsey
Fjöldi aðkomubáta í höfninni enda góður afli í ufsa Von á hundruðum
manns á sólstöðuhátíð um helgina Ferðamenn vilja sjá sól sem aldrei sest
FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 169. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SKOÐANIR»
Staksteinar: Bjöllutaktur byrjar vel
Ljósvakinn: David lætur til skarar
skríða
Forystugrein: Þröng sýn á vandann
Pistill: Sauðskinnsskór eru ekki
lausnin
Heitast 16° C | Kaldast 5° C
Norðan og norð-
vestan 8-15 og væta N-
og A-lands en léttir til
á Vestur- og Suður-
landi. » 10
Gallery Turpentine
verður flutt til á
Skólavörðustígnum
í haust þegar það
verður sameinað
nýrri verslun. »35
MYNDLIST»
Turpentine
flytur í haust
SJÓNVARP»
Fleiri horfðu á Popppunkt
en landsleikinn. »36
Helgi Snær Sigurðs-
son fjallar um þá
leikara sem skýla
takmörkuðum leik-
hæfileikum á bak við
fagra kroppa. »37
AF LISTUM»
Leikið með
rassinum
TÓNLIST»
Hermigervill klæðir lög
í nýjan búning. »37
ÚTVARP»
Aðdáendur Tvíhöfða geta
gubbað af gleði. »36
Menning
VEÐUR»
1. Eyðilagði íbúðarhúsið
2. Bankinn fékk ekki lyklana
3. Vaknaði með 56 stjörnur í andliti
4. Tíu sæmdir fálkaorðunni
»MEST LESIÐ Á mbl.is
ÞEIR norrænu
listamenn sem
hljóta alþjóðlegu
Carnegie-
myndlist-
arverðlaunin sitja
ekki við sama
borð þegar að
skattlagningu
verðlaunanna
kemur. Á Íslandi
greiðir verð-
launahafi tekjuskatt og útsvar af
verðlaunafénu, eins og lög gera ráð
fyrir, en lög á hinum Norðurlönd-
unum kveða á um skattfrelsi sömu
verðlauna. Þetta kemur fram í sam-
tali við Jerker Lövgren, lögfræðing í
Svíþjóð.
Skúli Eggert Þórðarson rík-
isskattstjóri segir frávik frá skatta-
lögum á Íslandi óheppileg. Íslensk
lög kveða þó á um skattfrelsi ann-
arra norrænna verðlauna, en það
eru verðlaun Norðurlandaráðs og
Nóbelsverðlaunin.
Kristján Guðmundsson myndlist-
armaður hlýtur í ár fyrstu verðlaun
Carnegie-myndlistarverðlaunanna,
fyrstur Íslendinga.
Misræmi | 35
Misræmi
í skatt-
lagningu
Verðlaun íslenskra
listamanna skattlögð
Kristján
Guðmundsson
ÍSLENDINGAR unnu glæsilegan sigur á Makedóníu-
mönnum, 34:26, í þéttskipaðri Laugardalshöllinni í gær
og tryggðu sér með því sæti í úrslitakeppni Evr-
ópumótsins í handknattleik karla sem fer fram í Aust-
urríki í janúar á næsta ári. Íslenska liðið fór á kostum í
leiknum, sérstaklega í seinni hálfleiknum þegar það
náði mest tólf marka forskoti, 30:18. Þjóðhátíðar-
stemmning var á meðal áhorfenda sem studdu við bak-
ið á íslenska liðinu með ráðum og dáð og íslenski fáninn
var alls ráðandi á áhorfendapöllunum. | Íþróttir
Morgunblaðið/hag
STÓRSIGUR OG ÍSLAND FER Á EM Skoðanir
fólksins
’Hjálmtýr lofar í bréfi sínu að leitavitna um góðverk Ísraelsmannameðal Gaza-búa. Kannski hann heyriorðróm um Erez-iðnaðarsvæðið semÍsraelar ráku í 30 ár og veittu þús-
undum Gaza-búa atvinnu og iðnþekk-
ingu? Sömuleiðis gæti hann heyrt orð-
róm um iðngarðana á Vesturbakk-
anum, sem veitt hafa tugþúsundum
Palestínumanna launaða vinnu! » 25
HREIÐAR ÞÓR SÆMUNDSSON
’Orkan í iðrum jarðar er gríðarlegauðlind og mikil tækifæri eru tilfrekari gjaldeyrissköpunar í orkufrek-um iðnaði. Erlendir fjárfestar hafaáhuga en hlutverk stjórnvalda er að
skapa þau skilyrði að hægt sé að
hrinda hugmyndum í framkvæmd.
» 25
UNNUR BRÁ KONRÁÐSDÓTTIR
’Þrátt fyrir að frjálsa framsalið séforsenda hagræðingar í greininniverður að setja því skýrar skorður. Af hverju? Vegna þess að græðgis-væddir handhafar kvótans hafa á liðn-
um árum misnotað þessa heimild sér
til ávinnings sem nú mun koma niður á
öllum í greininni, ekki bara þeim
græðgisvæddu heldur einnig þeim
sem af hófsemi hafa rekið sín fyr-
irtæki í áranna rás. » 26
HELGI LAXDAL
’Verði þessi leið valin, mun skap-ast víðtækari sátt um auðlindina.Útgerðarmenn munu vita hvað þeirgeta veitt næstu árin. Þeir sem ætlaað selja, munu þá væntanlega selja
veiðiskipið með þeim kvóta sem það
hefur haft.
Söluverð skipa verður mun hærra en
smíðaverð þeirra og mun verðið verða
þeim mun hærra sem aflamark skips-
ins hækkar. » 26
BRAGI ÓLAFSSON
’Sýnt er að þessu fylgi áhættasem augljóst er að borgi sig ekkifyrir Ísland að taka með því að hleypaþessu út í umhverfið. Almenningur ogvísindamenn munu líklega ávallt hafa
ólíkar skoðanir á því hvaða rétt mað-
urinn hafi til að krukka í lífríkið með
þessum hætti. » 27
EYGLÓ BJÖRK ÓLAFSDÓTTIR
’Ráðherrar, alþingismenn, dóm-arar, æðstu embættismenn hinsíslenska stjórnkerfis eru á öxli hins illavalds með auðvaldsherra einkabank-anna og græðgisfyrirtækjanna sér við
hlið, sem rænt hafa þjóðina áratuga
sparnaði án afskipta þeirra sem töldu
sig hafa valdið. » 27
KRISTJÁN GUÐMUNDSSON