Morgunblaðið - 25.06.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.06.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is MÁLI sem saksóknari í Bandaríkjunum höfðaði gegn Gunnari Stefáni Wathne Möll- er, íslenskum stjórnmálafræðingi sem bú- settur hefur verið í Bandaríkjunum og Rúss- landi um árabil, hefur verið lokið með sátt. Gunnar Stefán þarf að greiða 25 dollara í fullnaðarsátt, gegn því skilyrði að hann fari ekki mál við bandaríska ríkið vegna málsins. Byggist sektargreiðslan á því að Gunnar Stefán hafi ekki skráð um 140 þúsund doll- ara greiðslu sem framlag til velgjörðarmála árið 1996. Niðurstaða málsins er þó sú að fyrrnefnd upphæð hafi óumdeilanlega farið til velgjörðarmála en ekki í eitthvað annað, eins og rannsókn málsins í upphafi bar með sér. Lögmaður Gunnars Stefáns, Cristina C. Arguedas hjá lögfræðistofunni Cassman & Headley í Kalifornínu, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að það væri léttir fyrir skjólstæðing sinn að málinu væri lokið með þessum hætti. „Málinu í heild var vísað frá og því lokið með 25 dollara greiðslu, vegna þess sem kallað er smávægilegra tæknilegra misfærslna. Þessi niðurstaða er ekki algeng í málum, og í henni felst viðurkenning á því að ásakanir á hendur skjólstæðingi mínum áttu ekki við rök að styðjast,“ sagði Aguedas. Sakaður um peningaþvætti Gunnar Stefán var sakaður um að hafa tengst umsvifamikilli LSD-fíkniefnafram- leiðslu með peningaþvætti, samkvæmt frá- sögnum bandarískra fjölmiðla, þar á meðal New York Post. Á meðan rannsókn málsins stóð yfir var Gunnar Stefán m.a. í haldi lög- reglu í Indlandi við skelfilegar aðstæður, eft- ir að hafa verið handtekinn á flugvelli þar í landi. Hann gaf sig síðan fram við yfirvöld í Bandaríkjunum en áður hafði hann verið eft- irlýstur á alþjóðavettvangi vegna málsins. Gunnar Stefán lauk námi í stjórnmála- fræði við Harvard-háskóla, með afburðaein- kunn, og lagði þar sérstaka áherslu á Sovét- ríkin gömlu og Rússland. Eftir að námi lauk flutti hann síðar til Rússlands, þar sem hann starfaði m.a. á sviði viðskipta. Þungar refsingar eru í Bandaríkjunum vegna þeirra sem glæpa sem Gunnar Stefán var sakaður um að eiga aðild að. Í mála- rekstri fyrir dómi í Bandaríkjunum kom fram að Gunnar Stefán kynni að hafa brotið lög þar sem hámarksrefsingin er 20 ára óskilorðsbundið fangelsi. Eftir margra ára rannsókn og síðar mála- rekstur lauk málinu með fyrrnefndum hætti. Frávísun á málinu í heild og 25 dollara sekt. Máli vísað frá gegn 25 dollurum  Máli saksóknara í Bandaríkjunum gegn Gunnari Stefáni Wathne Möller hefur verið vísað frá, gegn greiðslu 25 dollara  Með sáttinni var útilokað að Gunnar Stefán gæti farið í mál við bandaríska ríkið Morgunblaðið/Reuters Hæstiréttur Bandaríkjanna Gunnar Stefán getur ekki farið í mál við bandaríska ríkið. Í HNOTSKURN » Maðurinn sem Gunnar Stefán vargrunaður um að tengjast hét Leon- ard W. Pikard en hann var sakfelldur fyrir þátttöku í stórfelldri fíkniefna- starfsemi árið 2003. Hann afplánar nú lífstíðardóm í fangelsi. » Gunnari Stefáni var haldið í fang-elsi við skelfilegar aðstæður í Ind- landi haustið 2007. Málið kom til kasta utanríkisráðuneytis Íslands þar sem Gunnar Stefán er íslenskur ríkisborg- ari. » Gunnar Stefán var handtekinn áflugvelli í Indlandi og umsviflaust færður í varðhald haustið 2007. Síðar var handtakan dæmd ólögmæt. Máli íslensks ríkisborgara, Gunnars Stef- áns Wathne Möller, í Bandaríkjunum hefur verið vísað frá gegn greiðslu 25 dollara. Hann var grunaður um peningaþvætti. MÝS þykja mikill herramannsmatur í augum branduglna og þær eiga sér jafnan litla möguleika á undankomu þegar uglan steypir sér í lágflug og hremmir þær. Þessi tiltekna brandugla var í fæðuleit á Mýrdalssandi þeg- ar ljósmyndari átti leið hjá. Lúpína hefur sótt mjög í sig veðr- ið á Skógasandi og Mýrdalssandi að undanförnu. Auknum vexti hennar fylgir meira lífríki í umhverfinu og þá fer mús- um ekki síst fjölgandi. Þær eru í miklu uppáhaldi hjá branduglum og eru þær því tíðir gestir á svæðinu í leit að mat. Þær nærast þó einnig á smáfuglum. haa@mbl.is Fæðukeðjan fest á filmu á Mýrdalssandi Ljósmynd/Þórir Kjartansson Branduglan fær sér gómsæta mús í gogginn Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Verð kr. 39.990 Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum. Sértilboð 26. júní. Ath. aðeins örfá sæti á þessu sértilboði. Verð kr. 19.990 Netverð á mann. Flugsæti aðra leið með sköttum (KEF-BCN). Sértilboð 26. júní. Ath. aðeins örfá sæti á þessu sértilboði. Allra síðustu sætin! Barcelona 26. júní frá kr. 19.990 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða frábær sértilboð á flugi til Barcelona 26. júní. Gríptu þetta frábæra tækifæri og njóttu þín í borginni sem býður frábært mannlíf og fjölbreytni í menn- ingu, afþreyingu að ógleymdu fjörugu strandlífi og endalausu úrvali veitingastaða og verslana. Eftir Halldóru Þórsdóttur halldorath@mbl.is VIÐ erum orðnir ýmsu vanir, en þetta er enn eitt reið- arslagið fyrir hópinn,“ segir Jóhannes Bjarni Guðmunds- son, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Jó- hannes segir atvinnuöryggi flugmanna ekki vera neitt. Icelandair hefur boðað uppsagnir 32 flugmanna sem voru starfandi á síðasta vetri, því dregið hafi mjög úr verkefnum í alþjóðlegu leiguflugi. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Birkir Hólm Guðnason, segist í tilkynn- ingu vonast til að uppsagnirnar þurfi ekki að taka gildi. Jóhannes bendir á að þegar boðaðar uppsagnir taki gildi og þegar sumarvertíðinni með sínum 33 flugmönn- um ljúki, muni flugmönnum hjá Icelandair hafa fækkað um hátt í 130 manns frá síðasta sumri. Þegar betur áraði hafi verið yfir 300 flugmenn við störf hjá félaginu. Margir þeirra sem missa vinnuna nú hafa um tíu ára starfsaldur. Vona að hluti hópsins fái störf hjá systurfélögum Icelandair er langstærsti vinnustaður flugmanna á Ís- landi. Jóhannes segir fyrirtækið hafa viðrað hugmyndir um að bjóða hlutastörf í meiri mæli til að deyfa höggið. „Við hljótum að skoða það. En menn sem eru að upp- lifa það núna, enn eitt haustið, að missa vinnuna, þeir hljóta að huga að öðru ef það býðst.“ Því miður sé ekki um auðugan garð að gresja, hvorki innanlands né utan. „Það er sáralítið sem við getum gert, stéttarfélagið býr ekki til vinnuna. Við vonumst til þess að stjórnendur grúppunnar leiti leiða til að sjá hluta af hópnum fyrir vinnu hjá systurfélögum sínum. Hingað til hefur engin viðleitni verið í þá átt.“ „Atvinnuöryggi flug- manna er ekki neitt“ Morgunblaðið/G.Rúnar Flugmenn Áætlunarflug Icelandair verður óbreytt næsta vetur en verkefnum í leiguflugi hefur fækkað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.