Morgunblaðið - 25.06.2009, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.06.2009, Blaðsíða 15
Fréttir 15INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2009 ÞRÖSTUR Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri ráðgjafarfyrirtækisins Cosamajo, sem er meðal annars í ráð- gjöf og fasteignaviðskiptum í Hong Kong, er athafnamaður sem búið hef- ur í Hong Kong í 13 ár. Hann hefur miklar efasemdir um að Sjóvá og Glitnir hafi gert rétt í því að rjúfa kaupsamninginn sem Sjóvá gerði við Shun Tek í október 2006, eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær. Tap Sjóvár af samningsslitunum er yfir 3,2 milljarðar króna. „Það bendir allt til þess að það hefði verið einfalt mál fyrir þá sem voru að semja fyrir hönd Sjóvár hér í Hong Kong að ná mun hagstæðari samningum en þeir gerðu, einfald- lega vegna þess að markaðsverð á sambærilegum fasteignum í Macau er um 4.500 HK dollarar fyrir hvert ferfet. Sjóvá samdi sig út úr samn- ingnum á verði til Shun Tak sem mér sýnist vera um 3.300 HK dollarar fyr- ir ferfetið, þannig að þeir eru að semja langt undir markaðsverði. Þeir keyptu haustið 2006 á 4.400 HK doll- ara ferfetið, þannig að miðað við markaðsverð í dag, hefðu þeir átt að geta sloppið frá samningnum á sléttu, en ekki með yfir þriggja milljarða króna tapi,“ sagði Þröstur þegar Morgunblaðið náði tali af honum í Hong Kong í gær. Meðalverð 4.500 HK dollarar Þröstur segir að sambærilegar fasteignir séu núna að seljast í Macau á 4.000 til 5.000 HK dollara ferfetið Hann segist hafa upplýsingar um að eign í Turni III, í Macau, sem er sam- bærileg bygging og Turn IV, sem Sjóvá átti, hafi í aprílmánuði verið seld á 6.200 HK dollara fyrir ferfetið, sem sé nánast tvöfalt það verð sem Sjóvá samdi sig út úr samningnum á. „Það hefði nú munað miklu, ekki satt, fyrir Glitni að fara út úr samningnum með umtalsverðum hagnaði í stað 3,2 milljarða taps? Mér er þetta í raun og veru óskilj- anlegt. Eins og ég og félagar mínir hér í Hong Kong, sem eru líka í fast- eignaviðskiptum, höfum skoðað þetta mál, þá sýnist okkur að því fari fjarri að reynt hafi verið til þrautar að ná hámarksvirði út úr samningnum. Þá liggur það fyrir, að þegar verið er að selja heilan turn, eins og Turn IV, þá er hægt að fá hærra meðalverð en þegar verið er að selja einstakar ein- ingar í turninum, vegna þess að það er auðveldara fyrir fjárfesta og stærri fjárfestingarsjóði að kaupa heila turna en að kaupa eina og eina íbúð, því þannig eignir gefa þeim meiri möguleika á að hafa áhrif á verðþróun í framtíðinni. Það var allur Turn IV sem Sjóvá keypti og því hefði sú regla átt að gilda í þeirra til- viki um hærra meðalverð,“ sagði Þröstur. Aðrir fjárfestar með áhuga Hann kveðst vita að annað fjárfest- ingarfélag, sem hafi keypt Turn VI í One Central Residence í Macau og 26 aðrar íbúðir á víð og dreif í öðrum turnum, hafi haft mikinn áhuga á þessu verkefni. Þröstur segir að Glitnir og þeir sem hafi verið að vinna á hans vegum í þessu verkefni hafi vitað í marga mánuði, að hægt væri að ná mun betri samningum en nú hafi verið gerður. Hann og félagar hans hjá Cosamajo, hafi ítrekað sent Glitni upplýsingar og ábendingar um það, að mikilvægt væri að finna fjárfesta sem gætu komið að verkefninu. Aðspurður hvort hann og ráðgjaf- arfyrirtæki hans Cosamajo hafi átt einhverra hagsmuna að gæta í þess- um efnum, sagði Þröstur: „Ég og fé- lagi minn vorum að reyna að aðstoða Glitni við að koma samningnum í verð, gott verð. Við sendum þeim fullt af upplýsingum í tölvupósti, áætlanir og útfærða valmöguleika á því hvern- ig lausnir væri hægt að vinna með. Aðkoma míns fyrirtækis, ef af hefði orðið, hefði verið sú, að við hefðum fengið greidda ákveðna þóknun, ef okkur hefði tekist það sem við töldum okkur geta gert, að selja kaupsamn- inginn á verði yfir markaðsverði. Þannig hefði hagur Glitnis vænkast sem því næmi. Þrátt fyrir allar þessar tilraunir og ábendingar okkar, feng- um við aldrei neitt svar frá Glitni. Aldrei,“ sagði Þröstur Jóhannsson. Sjóvá gat fengið mun betra verð  Þröstur Jóhannsson, ráðgjafi í Hong Kong, telur að Sjóvá hafi samið af sér  Hægt hafi verið að fá 10% til 15% yfir markaðsverði fyrir Turn IV í Macau Reyndi ítrekað að ráða Glitni heilt um söluna Turnarnir One Central Residences í Macau. Turn IV er fyrir miðju. Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is Gróflega áætlað eru eigendur Sjóvár, þ.e. Glitnir, að verða af svona 40 milljónum US$, eða um 5 millj- örðum króna, að mati Þrastar Jóhannssonar. Hann telur mið- að við markaðs- aðstæður í Ma- cau nú að hægt hefði verið að semja um verð á turni IV sem væri 10% til 15% yfir markaðs- verði í stað þess að semja við Shun Tak um verð sem sé ná- lægt því að vera 25% undir markaðsverði. Þröstur segir að markaðurinn hafi verið mikið að taka við sér í Macau síðan snemma á þessu ári. Það hafi því verið nægur tími til stefnu fyrir Sjóvá til að semja betur en gert hafi verið, því svigrúm hafi verið til loka þessa árs. Hann bendir á að það hafi ver- ið yfirlýst fjárfestingarstefna hjá þeim sem stofnuðu til þess- ara viðskipta, að selja frá sér verkefnið fyrir árslok 2008, þ.e. að selja fyrir verklok og leysa til sín hagnað. Það hafi komið fram hjá Askar Capital á sínum tíma og einnig hjá Milestone. Fimm milljarðar Þröstur Jóhannsson Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is UNDANFARIN ár hafa komið fram upplýsingar um að þorskur hafi á ný tekið að hrygna við Austur- Grænland eftir áratuga lægð. Þessar niðurstöður byggjast einkum á veið- um fiskiskipa á takmörkuðum svæð- um, með góðum afla af stórum og til- tölulega gömlum fiski. Ekki liggur fyrir um hversu mikið magn er þarna að ræða. Vaxandi þorskgengd við Austur-Grænland, á sama tíma og hlýnun sjávar á sér stað á norð- urslóðum, kann að vera til marks um að þorskstofninn á þessum slóðum sé að rétta úr kútnum, segir á vef Hafrannsóknastofnunar. Rannsóknaskipið Bjarni Sæ- mundsson RE 30 var við rannsóknir við Austur-Grænland 28. apríl til 8. maí sl. Helsta markmið þessa leið- angurs, sem var í samvinnu við grænlensku Hafrannsóknastofn- unina í Nuuk, var að kanna tilvist og útbreiðslu hrygningar hjá þorski á þessum slóðum og auka þekkingu á tengslum þorsks við Austur- Grænland við önnur hafsvæði, t.d. Íslandsmið og Vestur-Grænland. Rannsóknirnar fóru einkum fram á nokkrum afmörkuðum grunnmiðum á landgrunni Austur-Grænlands, þar sem helst var talið að þorsk væri að fá á þessum árstíma og hafís væri ekki til trafala. Þessi mið, Jónsmið, Fylkismið, Heimlandshryggur og Mösting-grunn, voru þekkt fiskimið íslenskra togara um og upp úr miðri síðustu öld. Gögnum var einkum safnað með botnvörpu. Fiskurinn reyndist vera í mjög takmörkuðu æti og var horaður fiskur algengur. Eitt helsta verkefni leiðangursins var að merkja þorsk og voru merktir allt að 1000 þorskar á hverju grunni. Aðstæður til merkinga voru mjög góðar og standa vonir til að heimtur merkja á næstu mánuðum og árum muni varpa ljósi á göngur þessa fisks, t.d. á fiskimið við Ísland. Segir Hafró því mikilvægt að sjómenn fylgist vel með merkjum á þorski og sendi endurheimt merki til Hafrann- sóknastofnunarinnar. Fundarlaun eru veitt fyrir hvert merki sem skil- að er. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun Merktur þorskur Þannig líta þeir út þorskarnir sem merktir voru við Græn- land. Það eru rauðir sívalningar, sem sjómenn eiga að skila til Hafró. Þorskur merkt- ur við Grænland  Sjómenn beðnir að skila merkjunum Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Costa del Sol frá kr. 69.990 – 2 vikur – með eða án fæðis Heimsferðir bjóða frábær tilboð á allra síðustu sætunum til Costa del Sol þann 30. júní og 14. júlí í 2 vikur. Í boði er stökktu tilboð, með eða án fæðis, þar sem þú bókar sæti (og fæðisvalkost) og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Bjóðum einnig frábært sértilboð, með eða án fæðis, á Aguamarina íbúðahótelinu, einu af okkar allra vinsælasta gististað á Costa del Sol. Ath. aðeins örfáar íbúðir í boði. Gríptu þetta frábæra tækifæri og njóttu lífsins í sumarfríinu á vinsælasta sumarleyfisstað Íslendinga á ótrúlegum kjörum. Verð kr. 69.900 – 2 vikur Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi / stúdíó / íbúð í 2 vikur. Stökktu tilboð 30. júní. Brottför 14. júlí kr. 69.990 m.v. 2 full- orðna og 2 börn í íbúð í 2 vikur. Verð m.v. 2 saman kr. 79.990. Aukalega fyrir hálft fæði í 2 vikur kr. 44.000 fyrir fullorðna og kr. 22.000 fyrir börn. Ótrúlegt sértilboð - Aparthotel Aguamarina *** Verð kr. 79.900 – 2 vikur Netverð á mann, m.v. 2-4 í stúdíó / íbúð í 2 vikur. Sértilboð 30. júní. Brottför 14. júlí kr. 79.990 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð í 2 vikur. Aukalega fyrir hálft fæði í 2 vikur kr. 44.000 fyrir fullorðna og kr. 22.000 fyrir börn. 30. júní og 14. júlí Aðeins örfá sæti & íbúðir á þessu kjörum! Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is M bl 11 21 53 5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.