Morgunblaðið - 25.06.2009, Side 8
!" #
!
$ %&'() *+ , -.
, /" 0* - 1.
# 230(45) 6)) &7( $# ,8
- 230"( 6')7)9)0+3(5 :&9: ; 1.
"
#$
% %&'$('%& !
; /'5) &9()( , ;;
)
*
%*" !
)%
*%
+
8 *70() 7'(()( 8$
, -./
& 00
1+%1
,-./
& %+
1+%1 ,
,2+ ,"
2*'9 !'))(05) # 1;
3
!
4/%&54
+6%
&
&< 7= )9 3(= $ 8
> ,;
> 1
7
7 7 "
> 8#
>, -1
7!
>$ ,.
> 1#
7" !
7, ? -
? #-
>8 ;8
7"
7 )
7) )!
7) ")
7) Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
„GENGISÁHRIF koma fyrst og fremst
fram í verði á innfluttum vörum, en hlut-
fall þeirra er tæp 39%. Áhrifin geta þó
ennfremur komið fram í öðrum liðum
vísitölunnar þar sem hráefni er oft inn-
flutt í íslenskar vörur. Algengt er að fyr-
irtæki á öllum sviðum séu með rekstr-
arlán í erlendri mynt, gengisáhrifin
gegnumsýra því allt hagkerfið,“ segir
Guðrún R. Jónsdóttir, deildarstjóri vísi-
töludeildar Hagstofunnar.
Vísitala neysluverðs í júní er 344,5
stig og hefur hækkað um 1,38% frá því í
maí. Það er mesta hækkun vísitölunnar
á milli mánaða það sem af er ári. Sé hús-
næði ekki tekið með í reikninginn er
vísitalan 322,1 stig og hefur hækkað um
1,90% frá því í maí.
Liðurinn matur og drykkjarvörur
hækkaði um 1,18% í júní. Brauð og
kornvörur hækkuðu um 2,62% og ávext-
ir um 4,35%. Grænmeti, kartöflur o.fl.
lækkaði um 4,18% frá því í maí á meðan
áfengi og tóbak hækkaði verulega.
Skattahækkanir hafa áhrif
Neysluverðsvísitala er algengasti
mælikvarðinn á verðlagsbreytingar og
er prósentubreyting hennar notuð sem
mælikvarði á verðbólgu. Vísitalan hefur
hækkað um 12,2% á síðastliðnum 12
mánuðum og reiknast verðbólga því
12,2%. Áhrif innfluttrar vöru eru um 8%
af þeirri tölu.
Skattahækkanir á áfengi og tóbak
auk hækkana á díselolíugjöldum hafa
um 0,4% áhrif á hækkun vísitölunnar en
hækkun bensíngjalda bætast líklega við
um næstu mánaðamót. Áfengi og tóbak
hækkaði um 9,79% af þessum sökum og
liðurinn bensín og olíur um 7,78%.
Guðrún segir að innfluttar vörur hafi
hækkað um 22,5% á liðnum 12 mánuðum
en gengið hafi þó breyst enn meira. „Þó
verðbólgan hafi verið há á liðnum mán-
uðum hafa gengisbreytingarnar langt í
frá skilað sér inn í verðlagið,“ segir Guð-
rún.
„Við teljum að verslunareigendur hafi
reynt að halda að sér höndum og tekið á
sig hækkanir í von um að gengisbreyt-
ingarnar væru tímabundnar. Í vor fóru
að sjást spár um að gengið myndi ekki
styrkjast að ráði og jafnvel haldast veikt
í tvö til þrjú ár. Þá sjáum við í maí og
aftur núna að gengisbreytingarnar eru
farnar að skila sér inn í verðlagið,“ segir
Guðrún. Það sýni að verslunareigendur
geti ekki endalaust tekið á sig hækkanir
vegna gengisbreytinga.
Aðeins skammvinnt bakslag?
„Opinber álagning skilaði sér í meira
mæli en við reiknuðum með auk þess
sem gengisáhrifin voru sterkari,“ segir
Ingólfur Hreiðar Bender, forstöðumað-
ur Greiningar Íslandsbanka. „Við telj-
um að þetta sé skammvinnt bakslag í
þeirri hjöðnun sem hefur verið á verð-
bólgunni frá ársbyrjun þegar hún var í
rúmum 18%,“ segir Ingólfur. „Við
spáum því að verðbólgan verði komin
niður í 2,5%, sem er verðbólgumarkmið
Seðlabankans, á fyrsta fjórðungi næsta
árs þrátt fyrir þessa hækkun nú,“ segir
Ingólfur.
Hann segir þá spá byggjast á því að
vaxandi slaki sé í hagkerfinu og því lítið
sem þrýsti á aukna verðbólgu. „Vinnu-
markaðurinn er kaldur og litlar launa-
hækkanir svo ekki kemur þrýstingur
þaðan. Húsnæðisverð fer lækkandi en
það vegur töluvert í vísitölunni,“ segir
Ingólfur. „Það eina sem heldur henni
uppi er gengislækkunin annars vegar og
opinberar álögur hinsvegar. Þó svo að
krónan gefi eftir á næstunni verður það
líklega ekki jafn kröftug lækkun og í lok
síðasta árs. Þegar þau áhrif detta út úr
12 mánaða takti verðbólgunnar ætti hún
að fara lækkandi,“ segir Ingólfur.
Gegnumsýrð af genginu
Mesta hækkun vísitölu neysluverðs á milli mánaða það sem af er ári Innfluttar vörur hafa hækkað
um 22,5% á liðnum 12 mánuðum Sérfræðingur telur hækkunina minnka líkur á lækkun stýrivaxta
Í HNOTSKURN
»Verðbólgu má útskýra sem við-varandi hækkun verðlags.
»Með verðbólgunni minnkarverðgildi peninga, þ.e.a.s.
minna magn vöru og þjónustu fæst
fyrir hverja krónu.
»Vísitala neysluverðs í júní 2009gildir til verðtryggingar í
ágúst 2009.
»Hægt er að fá heildaryfirlit yf-ir vísitölu neysluverðs og sam-
anburð við fyrri ár á vef Hagstofu
Íslands.
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2009
FR IGG K E EN N EWPORT H2 K E EN CORONADO
Léttur flísfatnaður úr Polartec® Power Stretch®,
efni sem teygist á fjóra vegu og heldur vægum
hita á líkamanum. Fæst líka í svörtu.
Flottir barnasandalar með táavörn, frönskum
rennilás og mjög góðu gripi. Fæst líka í appelsínugulu.
Barna strigaskór með góðum sóla. Með kaupum á
Coronado skónum styrkir þú National Wildlife Federation
sem vinnur að verndun dýralífs í heiminum.
bolur og buxur barnasandalar barna strigaskór
Verð bolur: 7.800 kr.
Verð buxur: 6.800 kr.
Verð: 6.200 kr. Verð: 6.500 kr.
„ÞETTA er ekki mikil lækkun
í krónum talið svo ég á ekki
von á að þetta breyti miklu,“
segir Özur Lárusson, fram-
kvæmdastjóri Bílgreina-
sambandsins, um 1,99% lækk-
un á bílum í júní samkvæmt
vísitölureikningum Hagstof-
unnar.
„Skýringin á þessari lækkun
núna er að mínu mati helst sú
að tvö bílaumboð voru nýlega með útsölu á eftirársbílum. Um-
boðin voru með gríðarlega mikla útsölu til að hreinsa út
birgðir og hreinlega til að lifa af en það er eina hreyfingin
sem hefur verið á nýjum bílum undanfarið,“ segir Özur. Hann
segir þungt hljóð innan íslenska bílageirans. „Fyrir skömmu
var stór norrænn fundur bílgreinasambanda haldinn hér á
landi. Þeir kveinkuðu sér mikið yfir 30-40% samdrætti í
heimalöndunum en setti hljóða þegar við sögðum þeim frá
90% samdrættinum hér heima,“ segir Özur.
Bílalækkun á sér skýringu
SUMARIÐ hefur sín áhrif á
hækkun vísitölunnar að sögn
Guðrúnar R. Jónsdóttur, deild-
arstjóra vísitöludeildar Hag-
stofunnar. „Ýmis tæki og tól til
tómstunda sem eru árs-
tíðabundnar vörur eru nú að
hækka. En margar þeirra
höfðu ekkert hækkað frá því í
fyrra þrátt fyrir að gengið hafi
breyst,“ segir Guðrún og tekur
dæmi af garðvörum og pottaplöntum sem fylgja sumrinu.
„Pakkaferðir, bílaleiga, gisting á hótelum, reiðhjól og fleira
eru þjónustuliðir sem einnig eru að hækka en eru bundnir við
árstíðina,“ segir Guðrún. Samkvæmt neysluvísitölureikn-
ingum Hagstofunnar hækkar liðurinn tómstundir, stærri tæki
o.fl. um 8,32% frá síðasta mánuði og pakkaferðir ferðaþjón-
ustufyrirtækja um 9,61%. Þá hækkar gisting innanlands um
7,6% og flutningar í lofti um 5,75% en sá liður hefur hækkað
um 17,26% um mánaðamótin apríl/maí.
Sumarið veldur hækkunum
„HÆKKUNIN var almennt
meiri en búist var við á mörk-
uðum,“ segir Ingólfur Bender
hjá Greiningu Íslandsbanka.
„Það mátti sjá á viðbrögðum á
skuldabréfamarkaði í morgun
[í gærmorgun] en verðbólguá-
lagið hækkaði. Óverðtryggðir
vextir hækkuðu en verð-
tryggðir vextir lækkuðu á
móti. Gatið þarna á milli, eða
verðbólguálagið, er því að aukast,“ segir Ingólfur. „Það að
óverðtryggðir vextir séu að hækka bendir til að markaðurinn
telji að minni líkur séu á að Seðlabankinn lækki stýrivextina á
næsta vaxtaákvarðanafundi hinn 2. júlí,“ segir Ingólfur. Pen-
ingastefnunefnd Seðlabankans horfi stíft í verðbólguna sem
hluta þess stöðugleika sem hún vilji ná, hækkuð verðbólga og
lækkað gengi verði ekki til að flýta fyrir stýrivaxtalækkun.
Stýrivaxtalækkun ólíkleg