Morgunblaðið - 25.06.2009, Blaðsíða 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
FRAMTÍÐ samstarfs Framsóknar-
flokks og Sjálfstæðisflokks í Kópa-
vogi virðist velta á því hvort Gunnar
Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri,
snúi aftur í bæjarstjórn að loknu
leyfi. Mjög skiptar skoðanir eru inn-
an framsóknarfélaganna í bænum
um hvort rétt hafi verið að halda
áfram samstarfinu við sjálfstæðis-
menn enda óttast margir að „fleira
gruggugt“ eigi eftir að koma upp úr
dúrnum er varðar Gunnar og við-
skipti bæjarfélagsins.
Í gær gengu Ómar Stefánsson,
oddviti framsóknarmanna og Gunn-
steinn Sigurðsson, bæjarstjóraefni
sjálfstæðismanna, frá samkomulagi
um áframhaldandi samstarf, en þess-
ir flokkar hafa verið í meirihluta í
bænum síðastliðin 19 ár.
Sem kunnugt er var tillaga
Freyju, félags framsóknarkvenna í
Kópavogi, um að rifta samstarfinu
felld með sjö atkvæða mun á flokks-
ráðsfundi framsóknarmanna í vik-
unni. Að sögn Unu Maríu Óskars-
dóttur, formanns Freyju, treystir
þorri framsóknarkvenna í bænum
því ekki að Gunnar komi ekki til
starfa aftur nema slík tillaga sé sam-
þykkt. Það sé þó ekki á valdi fram-
sóknarmanna að koma í veg fyrir að
hann komi aftur. „Hann er pólitískt
kjörinn og það voru kjósendur í
Kópavogi sem kusu hann. En Kópa-
vogsbúar eru almennt orðnir mjög
þreyttir á þessu pólitíska upplausn-
arástandi sem hefur verið í bænum
sl. tvo mánuði.“
Margt í samstarfi flokkanna hafi
vissulega verið farsælt en óljósara sé
um framhaldið. „Samstarfið gæti
staðið tæpt. Það fer eftir því hvaða
ákvarðanir sjálfstæðismenn taka um
málefni fyrrverandi bæjarstjóra.“
Trúnaðarbresturinn mikill
Undir þetta tekur Baldvin Sam-
úelsson, sem situr í stjórn Félags
ungra framsóknarmanna í Kópavogi.
Komi Gunnar hins vegar ekki aftur
standi samstarfið traustum fótum, að
hans mati.
Heimildir Morgunblaðsins herma
þó að framsóknarmenn séu hræddir
um að fleira „gruggugt“ eigi eftir að
koma í ljós er varðar Gunnar og við-
skipti bæjarins. Þetta staðfestir
Baldvin. „Menn óttast það mjög og
það var talað mjög frjálslega um það
á fulltrúaráðsfundinum.“ Hann
bendir á að í áskorun Félags ungra
framsóknarmanna í Kópavogi sé
meðal annars farið fram á að bæj-
arráð óski eftir óháðri rannsókn á
málefnum Klæðningar, sem unnið
hefur fjölmörg verk fyrir Kópa-
vogsbæ, en Gunnar er fyrrverandi
framkvæmdastjóri þess fyrirtækis.
Fleiri framsóknarmenn nefna
Klæðningu í þessu sambandi.
Þá hafi orðið mikill trúnaðar-
brestur í máli Lífeyrissjóðs starfs-
manna Kópavogs, þar sem Gunnar
hafi vísvitandi blekkt aðra bæjarfull-
trúa. Vegna þess sé ógerlegt fyrir
fulltrúa flokksins að starfa með hon-
um í framtíðinni.
Þá má heyra á flokksmönnum að
þeir óttast ekki eingöngu að þau mál
sem hafa komið upp og gætu komið
upp í framtíðinni skaði bæjarfélagið
og orðstír þess heldur einnig Fram-
sóknarflokkinn sjálfan, sem hafi eftir
allt saman setið í meirihluta á þess-
um tíma.
Aðrir eru bjartsýnir, eins og Einar
Kristján Jónsson, sem er í Fram-
sóknarfélagi Kópavogs. „Ég tel að
samstarfið sé á traustum grunni,
enda er þetta orðið 19 ára hjónaband.
Og komi upp erfiðleikar í hjónabandi
þá reyna menn að leysa þá.“
Óttast fleiri mál
Skiptar skoðanir eru meðal Framsóknar í Kópavogi hvort
rétt hafi verið að halda áfram samstarfi við Sjálfstæðisflokk
Viðmælendur Morgunblaðsins segja að innan Framsóknarflokksins séu
skiptar skoðanir um hvort oddviti hans og eini bæjarfulltrúi, Ómar Stef-
ánsson, hafi staðið sig sem skyldi í sínu embætti.
„Mér eins og mörgum finnst að þetta snúist ekki bara um Gunnar heldur
slæma stjórnunarhætti,“ segir einn þeirra, Hjalti Björnsson, sem á sæti í
fulltrúaráðinu. „Ómar er formaður bæjarráðs og ber sem slíkur ábyrgð,
ekki síður en sitjandi bæjarstjóri. Hann getur ekki horft fram hjá því.“ Sem
stjórnarmaður hafi hann m.a. þegið laun fyrir að halda sér upplýstum um
málefni lífeyrissjóðsins. „Mér finnst hallærislegt að ætla að taka einn mann
og hengja hann og úthrópa. Þeir bæjarfulltrúar, sem sátu í stjórn lífeyris-
sjóðsins, hefðu allir átt að fara frá og láta sína varamenn taka við meðan
málið er rannsakað. Það eru engin vinnubrögð að sitja bara sem fastast,
óháð því hvort maður er sekur eða saklaus.“
Inntur eftir því hvort hann hyggist segja af sér sem bæjarfulltrúi segir
Ómar Stefánsson að málið sé í eðlilegum farvegi og meðan svo sé hyggist
hann ekki breyta stöðu sinni sem bæjarfulltrúi. Flosi Eiríksson, sem einnig
átti sæti í stjórn lífeyrissjóðsins, mun líka sitja áfram. „Ég sé ekki ástæðu
til að segja af mér af því að Gunnar Birgisson hafi beitt mig blekkingum.“
Vill að Ómar víki úr bæjarstjórnFramsóknarmenn óttast að fleirimál eigi eftir að koma í ljós er
varða Gunnar Birgisson sem
gætu skaðað Kópavogsbæ. Þeim
er því mikið í mun að hann snúi
ekki aftur í bæjarstjórn.
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@mbl.is
„ÉG tel fullvíst að yfir 1.000 manns
yfir 18 ára aldri hafi ekki fengið
pláss í framhaldsskóla næsta vetur.“
Þetta segir Ólafur Hjörtur Sig-
urjónsson, aðstoðarskólameistari
Fjölbrautaskólans við Ármúla. Þar
þurftu skólastjórnendur að hafna
yfir 300 eldri nemendum sem gert
höfðu hlé á námi en vildu snúa aftur
í framhaldsskóla.
„Við höfðum ekki pláss fyrir þau.
Ég hef aldrei séð annað eins. Þessi
hópur er á vergangi núna. Hann fær
hvergi inni,“ segir Ólafur. Hann get-
ur þess að reynt hafi verið að taka
við nemendum sem hafi verið í skól-
anum áður. Nánast öllum öðrum
hafi verið hafnað.
Almennt voru umsóknir um nám í
Fjölbrautaskólanum við Ármúla
miklu fleiri en í fyrra.
Gott ef þeir kæmust í skóla
Bryndís Sigurjónsdóttir, skóla-
meistari Borgarholtsskóla, segir að
hafna hafi þurft umsóknum 379
nemenda yfir 18 ára aldri eða 28
prósentum þeirra sem sóttu um. Í
fyrra hafi rúmlega 17 prósentum
nemenda eldri en 18 ára verið hafn-
að.
„Manni finnst að á þessum tímum
væri gott fyrir þá sem ekki hafa
vinnu að geta komið í framhalds-
skólana en plássleysið leyfir það
ekki,“ segir Bryndís.
Hún segir aðsókn að skólanum
hafa verið 21% meiri í ár en í fyrra.
„Þetta er heildaraukning þeirra sem
höfðu skólann sem fyrsta val, bæði
nýnema og eldri. Við ætluðum að
taka inn 1.100 nemendur en þeir eru
orðnir 1.202.“
Tækniskólinn þurfti að hafna um
250 eldri nemendum, að sögn Bald-
urs Gíslasonar skólameistara.
„Aðsókn að skólanum almennt var
verulega meiri en í fyrra en alls
þurftum við að hafna nærri 400
nemendum,“ segir Baldur.
Kristín Arnalds, skólameistari
Fjölbrautaskólans í Breiðholti, segir
aðsókn að skólanum hafa verið mun
meiri nú en í fyrra. „Það er aukin
aðsókn í allt nám í skólanum og
væntanlega er það út af ástandinu í
þjóðfélaginu. Við samþykktum 589
umsóknir. Við lítum á einkunnir og
svo hafa nemendur í hverfinu for-
gang. Í heildina höfnuðum við 590
umsóknum.“
Sjúkraliðanám er ein þeirra
greina sem miklu meiri áhugi er á
nú en verið hefur undanfarin ár.
„Það sóttu 29 um sjúkraliðanám í
fyrra og er það svipaður fjöldi og
undanfarin ár. Núna sóttu 62 um
sjúkraliðanámið og við tókum inn 33
eftir einkunnum,“ segir Kristín.
Þurftu að
hafna hundruð-
um eldri nema
Telur að yfir 1.000 séu án skólavistar
Morgunblaðið/Golli
Útskrift Fleiri vilja taka á ný upp
nám sem þeir höfðu gert hlé á.
Í HNOTSKURN
»Umsóknir nemenda semeru eldri 18 ára um pláss í
framhaldsskólum, voru miklu
fleiri í ár en verið hefur.
»Skólameistarar telja vístað fjölgun umsóknanna
tengist slæmu atvinnuástandi.
»Meiri áhugi var á all-flestum greinum í skól-
anum en áður.
„ÉG HEFÐI viljað starfa út ráðningarsamninginn minn
en pólitíkin er skrýtin tík,“ sagði Gunnar Birgisson í
gær á síðasta degi sínum í bæjarstjórastóli þar sem
hann hefur setið frá 1. júlí 2005. „Þetta var krafa sam-
starfsflokksins þannig að það varð ekki við það ráðið,
nema menn hefðu viljað vera í minnihluta og ég vildi
það ekki. Ég tók mína hagsmuni ekki fram yfir hags-
muni flokksins míns og Kópavogsbúa.“
Inntur eftir því hvort hann hyggist snúa aftur í bæj-
arstjórn svarar Gunnar játandi. „Um leið og þessi lög-
reglurannsókn er búin og ég verð búinn að jafna mig á
hnéaðgerðinni þá kem ég auðvitað til baka. Til þess var
ég kosinn.“ Gunnar mun kveðja starfsfólk á skrif-
stofum Kópavogsbæjar formlega á föstudag en sjálf-
stæðismenn hafa útnefnt Gunnstein Sigurðsson í hans
stað. Það er síðan bæjarstjórnar að ganga frá ráðningu
hans, en gert er ráð fyrir að á fundi bæjarráðs í dag
verði ákveðin dagsetning fyrir auka bæjarstjórnarfund
í því skyni. Fram að því mun bæjarritari, Páll Magnús-
son, gegna skyldum bæjarstjóra. ben@mbl.is
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Ætlar að snúa aftur í bæjarstjórn
Milljónaútdráttur
Þar sem eingöngu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigandi bæði að
hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
6. flokkur, 24. júní 2009
Kr. 1.000.000,-
715 F
1901 E
6266 F
12035 G
14224 G
20496 F
22528 B
37890 F
41010 B
44018 B
Til hamingju
vinningshafar