Morgunblaðið - 25.06.2009, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 25.06.2009, Blaðsíða 17
Fréttir 17ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2009 Danski rithöfundurinn Marianne Krogh Andersen, höfundur bókar- innar „Grænland, öflugt og aflvana“, segir, að Grænlendingar muni ekki komast af án danska styrksins en hann er rúmlega helmingur útgjalda grænlensku heimastjórnarinnar og um þriðjungur af landsframleiðslu. „Fullkomlega óháð Grænland er blekking“ Pia Vedel Ankersen, kennari við háskólann í Nuuk, er á sama máli. Segir hún, að hyrfi danski styrkur- inn, yrði um samfélagslegt hrun að ræða. Á það myndu landsmenn aldrei fallast. „Aðeins efnahagslíf byggt á olíu og öðrum jarðefnum gæti gert draum- inn um fullt sjálfstæði að veruleika,“ Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is GRÆNLAND fékk aukna sjálf- stjórn 21. júní sl. og hafa landsmenn þar með eignast sinn þjóðhátíðardag. Þá dreymir hins vegar um fullt sjálf- stæði en jafnvel oddvitar þeirra sjálfra sem og ýmsir aðrir telja, að langt sé í, að sá draumur rætist. „Við munum verða sjálfstæð þjóð, ég er viss um það, en það er ekki á dagskrá þessarar stjórnar,“ sagði Kuupik Kleist, nýr forsætisráðherra og leiðtogi vinstriflokksins Inuit Ataqatigiit. Kleist segir, að sjálf- stæðismálin muni „taka sinn tíma“ en Hans Enoksen, fyrrverandi forsætis- ráðherra, vildi, að Grænland fengi fullt sjálfstæði 2021. segir Ankersen en bætir við, að vegna fámennis sé það á mörkunum, að unnt sé að halda uppi sjálfstæðu ríki. Telur hún, að það geti dregist í 50 ár enn nema farnar verði aðrar leiðir. Í því sambandi telur Ankersen vænlegast fyrir Grænlendinga að ganga í Evrópusambandið og njóta þeirrar aðstoðar, sem það býður upp á. „Fullkomlega óháð Grænland er blekking,“ segir hún og Kleist tekur undir það: „Aukin sjálfstjórn þýðir ekki, að við ætlum að einangra okkur hér á norðurhjaranum, heldur mun- um við opna dyrnar fyrir umheim- inum og gerast virkir samstarfsmenn og þátttakendur á þeim vettvangi.“ Aukin sjálfstjórn en langt er í sjálfstæðið Helmingur grænlensku fjárlagaútgjaldanna frá Dönum Aðalgatan í Nuuk Íbúar höfuðstaðarins eru 15.000 en landsmenn allir um 57.000. Grænland er stærsta eyja heims, rúmlega tvær millj. ferkílómetra. Í HNOTSKURN » 2021 verða liðnar þrjáraldir frá því Grænland varð dönsk nýlenda. » Grænland sagði sig fráEvrópusambandinu 1985 vegna sjávarútvegshagsmuna en ýmsir spá því, að það muni leita eftir inngöngu. Úrkoman ræður vextinum PLÖNTUR, sem vaxa í hitabelt- inu, verða miklu hávaxnari en þær, sem heima eiga í tempruðu beltunum eða á norðurhjara. Eru það engin ný tíðindi en ein meginástæðan kemur þó dálítið á óvart. Plöntur, sem vaxa við miðbaug, eru til jafnaðar 30 sinnum hærri en þær, sem vaxa á norðurhjaranum. Verða þær að meðaltali 7,8 m en að- eins 27 sm á breiddargráðunni 45 til 60 og ekki nema 25 sm á milli 60. og 70. gráðu norðlægrar breiddar. Hér er um að ræða meðaltal en frávikin eru mikil. Hæstu plöntur á jörðinni er ekki að finna í hitabelt- inu, heldur í barrskógum á norð- urhveli. Þá er átt við rauðviðartrén í Kaliforníu en þau geta orðið meira en 100 metrar. Rannsókn á þessu náði til meira en 7.000 tegunda um allan heim og í ljós kom að besta forsögnin um hæð plantna er ekki hitafarið eða gæði jarðvegs, heldur það hve mikið rign- ir í votasta mánuði ársins. Það skýrir það líka hvers vegna svo lítið er um lágvaxinn gróður í regnskógum hita- beltisins. svs@mbl.is Hitafarið segir ekki allt um hæð trjáa Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is MINNST 60 manns létu lífið í sprengjutilræði í Sadr-hverfi í Bag- dad í gær og alls féllu 29 manns í til- ræðum í Írak á mánudag. Hryðju- verkamenn hafa sig nú mjög í frammi í landinu en eftir tæpa viku munu Bandaríkjamenn hefja brott- flutnings herliðs frá borgum. Stefnt er að því að síðustu Bandaríkja- mennirnir yfirgefi landið árið 2011. Í Sadr-hverfi búa aðallega sjía- múslímar en rösklega helmingur Íraka er úr röðum þeirra. Sprengj- unni hafði verið komið fyrir undir gærkvöld að þarlendum tíma. „Ég sá bíla þeytast um loftið, svo mikill var krafturinn,“ sagði sjón- arvottur, Najim Ali sem er 30 ára karlmaður. Fólk í um 600 metra fjarlægð varð fyrir sprengjubrotum. Talið er að hryðjuverkamenn vilji nú minna á sig þegar verið er að hefja brottflutning erlenda herliðsins. Vilji þeir líklega sýna að öryggi í landinu sé minna en margir hafi talið en eins og oft áður er samt erfitt að sjá hvert markmið öfgamanna er Nouri al-Maliki forsætisráðherra sagði að þótt meira væri um tilræði breytti það ekki áætlunum um brott- för Bandaríkjamanna. Tilræðum fjölgar Um 60 manns féllu í sprengjuárás á markað í Sadr-hverfi í Bagdad í gær og alls féllu nær 30 manns í Írak á mánudag vélknúnum vagni sem notaður var til að flytja grænmeti og sprakk hún á annatíma á útimarkaði, um hálf-sjö í Í HNOTSKURN »Bandaríkjamenn áttu árið2004 í geysihörðum bar- dögum við uppreisnarlið í borginni Fallujah. Þar hefur verð kyrrt um langt skeið. »En í maí varð öflug veg-sprengja þrem íröskum embættismönnum að bana er þeir óku hjá í fylgd Banda- ríkjamanna. EVRÓPUSAMBANDIÐ skýrði frá því í gær að það hefði frestað um óákveðinn tíma aðildarviðræðum við Króata vegna þess að landamerkja- þrætur þeirra við Slóvena græfu undan ferlinu. Slóvenía varð aðild- arríki árið 2004 og Króatía hefur gert sér vonir um að fá aðild árið 2011. Deilan stendur um örlítið land- svæði og hafið við það og hefur stað- ið yfir frá 1991 þegar ríkin tvö lýstu yfir sjálfstæði. Þau voru bæði hluti gömlu Júgóslavíu. Hafa Slóvenar krafist þess að deilan verði leyst áð- ur en aðildarviðræður hefjist á ný. Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt til sérstakan dómstól til að útkljá málið en ekkert hefur þokast. kjon@mbl.is Króatar út í kuldann STUNDUM virðist sem ekki gangi á öðru en eilífum há- tíðum í hindúasið enda er goðafjöldinn mikill og lægra settar goðverur hvorki meira né minna en 330.000. Hér er verið að skreyta fíl í tilefni af Hátíð vagnsins en hún er haldin til að minnast þess er goðið Jagannath eða Krishna vitjaði bernskuslóðanna í borginni Mathura. Var búist við, að hundruð þúsunda manna tækju þátt í hátíðarhöldunum. svs@mbl.is Reuters FÍLL Í HÁTÍÐARBÚNINGI BARACK Obama, forseti Banda- ríkjanna, sagði í fyrradag, að hann ætti í stöðugri baráttu við tóbaks- fíknina og hefði stundum fallið fyrir freistingunni. Kom þetta fram á blaðamanna- fundi eftir að Obama hafði und- irritað lög, sem ætlað er að vinna gegn reykingum ungs fólks. „Fyrrverandi reykingamenn þekkja þetta stríð og mikilvægi þessara laga felst ekki síst í því að hlífa ungu fólki við að standa í því,“ sagði Obama og ávítaði blaðamann- inn, sem hafði spurt um reykingar hans. „Lögin snúast ekki um mig, heldur æskuna.“ svs@mbl.is Obama í einkastríði HARÐLÍNUMENN í Íran virðast nú að mestu hafa bælt niður and- ófið í landinu, samt var skýrt frá mótmælum í Teheran í gær. Mynd- in er af knattspyrnulandsliði Írans fyrir landsleik í S-Kóreu 17. júní, nokkrir leikmenn sýndu stuðning sinn við stjórnarandstöðuna með grænum armböndum. Fjórir þeirra hafa nú fengið ævilangt leikbann. Andóf á fótboltavellinum Reuters

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.