Morgunblaðið - 25.06.2009, Qupperneq 23
Minningar 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2009
✝ Guðbrandur Þor-steinsson fæddist
í Reykjavík 18. maí
1928. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja 19. júní
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Steinunn Guðbrands-
dóttir, f. 9. júní 1899,
d. 23. apríl 1982, og
Þorsteinn Guðbert
Sigurðsson skóla-
stjóri, f. 14. maí 1886,
d. 19. ágúst 1954.
Guðbrandur var
þriðji elstur af 5 systkinum, þrjú
eru látin og yngsti bróður hans lifir
hann. Þau eru: Egill, f. 1920, d.
1976, María, f. 1924, d. 1988,
Guðný, f. 1934, d. 1989, Sigurður, f.
1936.
Guðbrandur kvæntist 8. mars
1952 Þóru Erlendsdóttur, Ísfirð-
ingi, f. 23 júlí 1930. Faðir hennar
var Erlendur Jónsson skósmiður
(Lindi Skó), f. 1. apríl 1894, d. 7.
september 1958. Móðir hennar var
Gestína Guðmundsdóttir, f. 14. maí
1895, d. 7. febrúar 1978. Börnin eru
fjögur: Steinunn, f. 18. júní 1952,
flokkinn. Guðbrandur rak skrif-
stofu ASÍ um tíma, þar til pólitísk
umskipti urðu og Sósíalistaflokk-
urinn varð öflugri. Síðar gerðist
Guðbrandur aðalbókari hjá emb-
ætti Lögreglustjórans á Keflavíkur-
flugvelli, það starf varð hans ævi-
starf. Guðbrandur tók einnig
aukavaktir sem lögregluþjónn.
Seinna meir tók hann að sér bók-
hald fyrir nokkur minni fyrirtæki.
Kynnist í Reykjavík Þóru Er-
lendsdóttur, sínum lífsförunaut til
59 ára. Þóra hafði komið til eldri
systur sinnar frá Ísafirði til Reykja-
víkur og þau Guðbrandur felldu
hugi saman og stofnuðu heimili.
Fyrst bjuggu þau hjá Margréti
Jónsdóttur, skáldkonu og vinkonu
foreldra Guðbrands í Þorfinnsgötu,
en síðar hjá Halldóri, bróður Þóru, í
Mávahlíð. Árið 1953 kaupa Þóra og
Guðbrandur neðri hæð á Kirkju-
vegi í Keflavík, fokhelda, af Sigurði
bróður Þóru og hefjast þau handa
við að ljúka við íbúðina. Bjuggu svo
lengst af á Faxabrautinni og nú síð-
ast í Vatnsholti. Guðbrandur og
Þóra eignuðust sumarhús, Asp-
arlund 1980 í landi Efri-Reykja í
Biskupstungum. Þau höfðu mikið
yndi af því að dvelja þar á sínum
efri árum. Þóra Erlendsdóttir lést
26. maí og var jarðsungin í kyrrþey
3. júní 2009.
Guðbrandur verður jarðsunginn
frá Keflavíkurkirkju í dag, 25. júní,
kl. 11.
Kristín, f. 11. maí
1953, m. Ken Sout-
hon, þau slitu sam-
vistum, þau eiga 2
dætur og eitt barna-
barn. Ásdís, f. 8. maí
1961, m. Óskar Fær-
seth, þau eignuðust 4
börn. Er eitt þeirra
látið. Þau eiga 5
barnabörn. Erlendur
Þorsteinn, f. 30. maí
1965, m. Rósa Braga-
dóttir, þau eiga 2
börn, áður átti Rósa
eina dóttur og á dótt-
irin 2 syni.
Guðbrandur ólst upp í Reykjavík
í kreppunni miklu, fjölskyldan var á
hrakhólum með leiguhúsnæði og
bjó víðsvegar um borgina. Hann
var 12 ára þegar Bretar hertóku
borgina og þá má segja að atvinnu-
þátttaka hans hefjist. Guðbrandur
gekk í Samvinnuskólann, þar sem
Jónas frá Hriflu var skólastjóri.
Þetta nám nýtti hann sér vel. Guð-
brandur gekk snemma í Alþýðu-
flokkinn og var krati alla tíð. Hann
var formaður FUJ og gegndi ýms-
um trúnaðarstörfum fyrir Alþýðu-
Elsku pabbi, ekki datt okkur í
hug í byrjun apríl að við yrðum
búnar að missa báða foreldra okkar
í kringum miðjan júní, þetta er búið
að vera mjög erfitt fyrir okkur og
við söknum ykkar sárt, en við hugg-
um okkur við það að ykkur líður vel
núna og eruð saman á ný. Þú
kenndir okkur gildi lífsins svo sem
að vera heiðarlegar, áreiðanlegar,
leysa öll verk vel af hendi og hugsa
vel um okkar fjölskyldur, eins og þú
gerðir. Þetta hefur verið mjög gott
veganesti fyrir okkur út í lífið.
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
Ó, elsku pabbi, ég enn þá er
aðeins barn, sem vill fylgja þér.
Þú heldur í höndina mína.
Til starfanna gekkstu með glaðri lund,
þú gleymdir ei skyldunum eina stund,
að annast um ástvini þína.
Þú farinn ert þangað á undan inn.
Á eftir komum við, pabbi minn.
Það huggar á harmastundum.
Þótt hjörtun titri af trega og þrá,
við trúum, að þig við hittum þá
í alsælu á grónum grundum.
Þú þreyttur varst orðinn og þrekið
smátt,
um þrautir og baráttu ræddir fátt
og kveiðst ekki komandi degi.
(Hugrún.)
Við þökkum öllu því góða fólki
sem hefur stutt okkur á þessum
erfiða tíma. Sérstakar þakkir fær
starfsfólk D-deildar Heilbrigðis-
stofnunar Suðurnesja fyrir frábæra
umönnun. Guð blessi ykkur öll.
Elsku pabbi, við erum mjög þakk-
látar fyrir hvað við fengum að hafa
ykkur mömmu lengi hjá okkur, það
eru ekki allir svo lánsamir.
Þínar dætur
Steinunn, Kristín og Ásdís.
Sambúð mömmu og pabba var
sambúð gagnkvæmrar virðingar og
trausts, sem varði til æviloka. Þau
voru orðin heilsuveil, hvort á sína
vísu, en afar samstillt náðu þau að
búa í eigin húsi þar til yfir lauk.
Fyrir rétt tæpum tveim vikum
skrifaði ég minningargrein um móð-
ur mína, Þóru Erlendsdóttur. Þar
kom fram að fráfall hennar hafði
verið föður mínum afar þungbært.
En ekki gat mig grunað að faðir
minn myndi fara á eftir henni rétt
24 dögum síðar. Faðir minn fór
sáttur, andaðist víst með bros á vör,
því væntanlega hefur móðir mín
sótt hann og nú fá þau aftur að
hvíla saman. Minningargreinar um
móður mína eru öllum aðgengilegar
á minningargreinasafni www.mbl.is.
Þær voru ekki prentaðar, þar sem
hún var jörðuð í kyrrþey.
Faðir minn fæddist í upphafi
kreppunnar miklu og bjó við þröng-
an kost en átti engu að síður góða
æsku. Ég man að hann talaði um að
þrátt fyrir fátæktina sem fylgdi
kreppunni þá var síst minni gleði
hjá börnunum á jólahátíðinni, en er
hjá okkar börnum, sem lifa við alls-
nægtaborð. Þessi æskuár mótuðu
hann fyrir lífstíð og gerðu hann að
félagslyndum jafnaðarmanni. Hann
einsetti sér að koma sér vel áfram í
lífinu og sjá vel fyrir sinni fjöl-
skyldu þannig að hún liði engan
skort. Með útsjónarsemi, dugnaði
og vinnusemi tókst honum ætlunar-
verk sitt að gera vel við sig og sína
og hann hefur alltaf stutt alla sína
niðja með ráðum og dáð.
Snemma beygist krókurinn segir
máltækið. Ég hef verið að hugsa
töluvert til baka um hvernig pabbi
mótaði mig og mín áhugamál. Man
sumarleyfin í Húsafelli, þar fórum
við í ótal fjallgöngur og spiluðum
manna á kvöldin. Fórum margar
helgarferðir í bústaðinn hans
Konna til veiða í Þingvallavatni.
Einnig var ég ekki hár í lofti þegar
ég fékk að vera kaddíinn hans
pabba hjá GS úti í Leiru. Man laug-
ardagsmorgna, þegar aðrir sváfu,
þá lagaði pabbi fyrir okkur te. Ekki
má svo gleyma bókunum. Faðir
minn var kennarasonur og því mjög
áhugasamur um bókmenntir og átti
gott bókasafn. Í fyrstu hugkvæmd-
ist mér að nota bækurnar til að
styðja við bílabrautir sem ég átti,
en fékk bágt fyrir uppátækið, fékk
svo að vísu að nota gamalt danskt
lexicon til þess brúks. Lærði svo á
námsárunum að meta innihald
bókaeignar föður míns; það sem
nema skyldi, það átti pabbi. Úrval
bóka föður míns gerði mig og í raun
okkur systkinin öll bókhneigð. Ég
lít upp til karls föður míns og hann
er fyrirmynd mín að mörgu leyti,
hann var agaður og skipulagður
maður, sem vann með fjármál og
kenndi mér m.a. lífsreglurnar á því
sviði. Aldrei skrifa upp á fyrir
neinn, nema þú sért reiðubúinn að
borga fyrir viðkomandi. Skuldaðu
helst ekki neinum neitt. Það er dýrt
að vera fátækur og svo framvegis.
Þannig að ég hef mína varfærni í
fjármálum frá föður mínum.
Elsku pabbi og mamma líka, takk
fyrir allt ykkar ástríki og allt sem
þið gerðuð fyrir okkur. Það var
ríkidæmi okkar að eiga ykkur og
þið voru rík af ykkar fjölskyldu.
Söknuður og missir fjölskyldunnar
allrar er mikill, blessuð sé minning
ykkar.
Hinsta kveðja, ykkar sonur
Erlendur Þorsteinn
Guðbrandsson.
Kæri tengdafaðir, orð fá ei lýst
hve sárt mig tekur að sjá á eftir þér
svo skömmu eftir andlát Þóru þinn-
ar. Eftir stendur tómleikinn og það
verður erfitt að koma til Keflavíkur
án þess að hitta ykkur hjónin. Að
ég tali nú ekki um sumarbústaða-
ferðirnar þar sem þið voruð algjör-
lega ómissandi. Þú kunnir ógrynni
af sögum, varst hafsjór af fróðleik
og nutum við hin góðs af. Á köflum
gastu verið örlítið þrasgjarn og það
gustaði oft af þér en inni fyrir sló
hjarta úr gulli. Mér og mínum
varstu alltaf góður og að lokum vil
ég þakka þér samfylgdina.
Rósa.
Guðbrandur
Þorsteinsson
Fleiri minningargreinar um Guð-
brand Þorsteinsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengda-
faðir og afi,
JÓHANN ÞORSTEINSSON
frá Miðsitju,
Ferjuvaði 9,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn
26. júní kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Félag nýrnasjúkra.
Sólveig Stefánsdóttir,
Alma María Jóhannsdóttir, Eiríkur Jónsson,
Berglind Jóhannsdóttir, Jóhannes Ævar Hilmarsson,
Freyja Jóhannsdóttir, Oddur Sævar Andersson,
Margrét Jóhannsdóttir, Þórhallur Ottesen,
Gunnhildur Jóhannsdóttir, Stefán Ingvar Stefánsson,
Stefán Sturla Sigurjónsson, Petra Högnas,
Sigurfinnur Sigurjónsson, Elsa Björk Pétursdóttir,
Kristján Sigurjónsson, Lena Lindegarth,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
SIGURÐUR BERGMANN RUNÓLFSSON
bakarameistari,
Vallarási 1,
Reykjavík,
lést að morgni sunnudagsins 21. júní.
María Emma Suarez,
Blængur Sigurðsson,
Allan Sigurðsson.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÁGÚST HALLDÓR GUÐMUNDSSON
frá Múla,
Hlíf 1,
Ísafirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði laugar-
daginn 20. júní.
Útför hans verður gerð frá Ísafjarðarkirkju laugar-
daginn 27. júní kl. 11.00.
Erla Ágústsdóttir, Garðar Steinsson,
Rebekka Margrét Ágústsdóttir,
Ástþór Ágústsson, Józefa Nieduzak,
Trausti Ágústsson
og aðrir aðstandendur.
✝
Okkar ástkæri
RAFN BENEDIKTSSON,
Sléttuvegi 9B,
Reykjavík,
er látinn.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Hulda Hjaltadóttir,
Baldur Rafnsson, Elinóra Kristín Guðjónsdóttir,
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, Stefán Jóhann Stefánsson,
Brynhildur Björk Rafnsdóttir, Sigursteinn Magnússon,
Arnheiður Edda Rafnsdóttir, Erling Erlingsson,
Benedikt Rafn Rafnsson, Magnea Sif Agnarsdóttir,
Laufey Björg Rafnsdóttir, Justin Henry Rebbeck,
Hjalti Reynisson,
Jóna Birna Reynisdóttir,
Arnar Reynisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
HAFDÍS R. SVAVARSDÓTTIR,
Engjadal 4,
Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn
16. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Starfsfólki sjúkrahússins, félagsþjónustu Suðurnesja,
vinum og vandamönnum færum við alúðarþakkir fyrir stuðning og
hlýhug í hennar garð og okkar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kolbrún Tobíasdóttir,
Magnús Tobíasson.
Móðir mín, amma og langamma,
SIGRÚN STRAUMLAND,
lést á öldrunardeild Landspítalans mánudaginn
15. júní.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sigurlaug Straumland,
Andrés Eiríksson, Deborah Spence,
Ólafur F. Eiríksson, Valgerður Vilmundardóttir,
Sigrún Elva, Kolbrún Dögg, Kári og Freyja langömmubörn.