Morgunblaðið - 25.06.2009, Page 25
Minningar 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2009
✝ Halldór KristinnVilhelmsson
fæddist í Reykjavík
24. apríl 1938. Hann
lést á líknardeild
Landakotsspítala að-
faranótt 17. júní sl.
Foreldrar hans voru
Árný Marta Jóns-
dóttir húsmóðir, f. á
Stokkseyri 1902, d.
1989 og Vilhelm Stef-
án Sigurðsson tré-
smiður, f. á Sauð-
árkróki 1905, d. 1973.
Systkini Halldórs eru
Jón Magnús vélstjóri, f. 1937,
kvæntur Steinunni Gísladóttur, og
Kristín Sigríður, f. 1949, d. 1999.
Halldór kvæntist árið 1962 Ás-
laugu Björgu Ólafsdóttur tón-
menntakennara, f. 1939. Foreldrar
hennar voru Hildigunnur Halldórs-
dóttir, f. í Reykjavík 1912, d. 1992
og Ólafur Þórðarson, f. á Ölfusvatni
í Grafningi 1905, d. 1983. Börn Ás-
laugar og Halldórs eru þrjú: 1) Sig-
urður tónlistarmaður, f. 1963,
kvæntur Stefaníu Adolfsdóttur
búningahönnuði, f. 1960, börn
þeirra eru Viktoría, f. 1993, Klara,
f. 1995, og Tómas, f. 2002. 2) Hildi-
gunnur fiðluleikari, f. 1966. 3)
Marta Guðrún söngkona, f. 1967,
þar langt og farsælt samstarf með
píanó- og orgelleikaranum Gústaf
Jóhannessyni. Halldór kom fram
með öllum helstu kórum og hljóm-
sveitum hérlendis á ferli sínum og
flutti með þeim mörg af helstu stór-
virkjum tónbókmenntanna auk fjöl-
margra nýrra íslenskra verka, en
Halldór var ötull flytjandi íslenskr-
ar samtímatónlistar. Hann var t.d. í
miklu samstarfi við Gunnar Reyni
Sveinsson tónskáld.
Halldór söng sitt fyrsta óperu-
hlutverk 1962. Hann var einn af
stofnendum Íslensku óperunnar og
söng burðarhlutverk í allflestum
uppfærslum hennar fyrsta áratug-
inn. Þá söng Halldór einnig mörg
hlutverk í óperuuppfærslum Þjóð-
leikhússins. Margar hljóðritanir
voru gerðar af Ríkisútvarpinu með
söng Halldórs. Hann var virkur í fé-
lagsmálum tónlistarmanna og var
m.a. í stjórn Samtaka um byggingu
tónlistarhúss um tíma.
Eftir farsælan feril sem ein-
söngvari sneri hann sér aftur að
trésmíðinni í meira mæli. Einnig
lagði hann stund á útskurð og
hljóðfærasmíði.
Halldór var einn af stofnendum
sönghópsins Hljómeykis, sem hóf
starfsemi fyrir 35 árum, og söng
hann sína síðustu tónleika með
þeim í janúar sl. Halldór söng einn-
ig í Kór Vídalínskirkju hin síðari
ár.
Halldór verður jarðsunginn frá
Vídalínskirkju í Garðabæ í dag, 25.
júní, og hefst athöfnin klukkan 13.
Meira: mbl.is/minningar
gift Erni Magnússyni
píanóleikara, f. 1959,
börn þeirra eru Hall-
dór Bjarki, f. 1992 og
Ásta Sigríður, f. 1998.
Sonur Arnar er Máni,
f. 1985.
Halldór lærði tré-
smíði hjá föður sínum
og lauk fyrst sveins-
prófi og síðar meist-
araprófi frá Iðnskól-
anum í Reykjavík.
Halldór starfaði við
smíðar, bæði á verk-
stæði föður síns og
afa og hjá Húsasmiðjunni, en lengst
af var hann sjálfstætt starfandi.
Halldór gekk til liðs við Pólýfón-
kórinn og söng með honum í 20 ár.
Þar kynntist hann Áslaugu eig-
inkonu sinni. Hann fékk snemma
tækifæri til að syngja einsöng með
kórnum, m.a. í passíum og óratórí-
um Bachs og Händels. Halldór hóf
ungur nám í söng, fyrst hjá Kristni
Hallssyni en árið 1962 hóf hann
nám við Tónlistarskólann í Reykja-
vík þar sem aðalkennari hans var
Engel Lund. Hann tók síðar við
kennslu af henni við tónmennta-
kennaradeild skólans og kenndi þar
frá 1982 til 2002.
Halldór starfaði í KFUM og hófst
Það eru um fimmtíu ár síðan leiðir
okkar Halldórs Vilhelmssonar lágu
fyrst saman. Kynni okkar hófust í
tengslum við sameiginleg áhugamál,
söng og tónlist. Stofnaður var kór
fyrir ungt og áhugasamt fólk, sem
hlaut nafnið Pólýfónkórinn. Æfingar
fóru fram á efstu hæð Iðnskólans við
Vitastíg í þá nýrri og reisulegri bygg-
ingu. Það var ekki talið eftir sér að
labba upp alla stigana og menn blésu
ekki úr nös á þeim árum en voru til-
búnir til að hefja raddæfingar um leið
og upp var komið. Unga fólkið gerði
sér margt til gamans og á skemmt-
unum var sungið og spilað á ýmis
hljóðfæri eftir færni hvers og eins.
Þarna heyrði ég fyrst hina hljómfal-
legu bassa/barýtón-rödd Halldórs,
sem átti svo eftir að fylgja mér í
gegnum árin; á æfingum einu sinni
eða oftar í viku heilu veturna, á tón-
leikum þar sem hann var í forustu í
bassanum og ekki síst í þeim fjöl-
mörgu einsöngs-hlutverkum sem
Halldór söng í uppfærslum Pólýfón-
kórsins á stórverkum Bachs og
Händels. „Grosser Herr, du starker
König“ (Mikli Drottinn, þú voldugi
konungur) mun hljóma í eyrum mér
meðan lífsandi treinist í nösum. Hall-
dór söng oft hlutverk Krists í passí-
unum og óratoríum og gerði það af
slíkri snilld að mörgum fannst að ein-
mitt svona hefði fas og framkoma
Jesú frá Nasaret verið. Helst báru
menn brigður á að Halldór Vilhelms-
son hefði nokkurn tíma ráðist inn í
hús eða musteri og velt þar um borð-
um og stólum. Hann hefði að líkind-
um farið hægar, reynt að laða menn
til réttrar breytni með hógværum
fortölum. Ekki var þó um það efast
að Halldór hafði mjög ákveðnar
skoðanir á flestum málum og var
ófeiminn við að halda þeim fram.
Hann var hagur á tré og járn og
fékkst mikið við smíðar, enda sonur
trésmiðs. Margir leituðu til hans og
var ekki örgrannt um að hann gæfi
sér meiri tíma til að hjálpa vinum og
kunningjum en dytta að heima hjá
sér. Í nokkur ár áttum við Halldór
samleið í sönghópi, sem gaf sér nafn-
ið Hljómeyki og starfar enn í dag, því
yngri kynslóðir hafa þar tekið við
merkinu og halda því hátt á lofti.
Þriðji og síðasti kórinn, þar sem við
Halldór áttum samleið í um 20 ár, var
messukórinn í Garðasókn, sem ýmist
er kenndur við kirkju höfuðbólsins í
Görðum á Álftanesi eða kirkju ræðu-
snillingsins Jóns Vídalín, sem þar
fæddist og ólst upp. Á allra síðustu
árum unnum við svo saman, þá sjö-
tugir karlar, í stjórn félags, sem var
stofnað til að varðveita minningu um
starf Pólýfónkórsins og að útgáfu
geisladiska með upptökum af söng
kórsins í gegnum tíðina. Ég held að
ég mæli fyrir munn allra þeirra
hundraða eða jafnvel þúsunda ein-
staklinga, sem áttu samleið með
Halldóri Vilhelmssyni í tónlistinni og
félagsstörfum, þegar ég þakka al-
mættinu fyrir að hafa átt þess kost að
kynnast þvílíkum mannkostamanni,
sem Halldór var.
Samúð okkar allra er hjá eigin-
konu og fjölskyldu, en í sorginni
mega þau vera stolt af hinum
gengna, þótt hann að vísu tapaði ein-
víginu við illvígan sjúkdóm eftir
stutta en snarpa viðureign. Blessuð
sé minning hans. Ruht wohl, ruht
wohl (Hvíl í friði).
Guðmundur Guðbrandsson.
Við Halldór verðum ekki oftar
samferða á Hljómeykisæfingu.
Nokkur undanfarin ár höfum við
keyrt til skiptis á æfingar, við bjugg-
um nálægt hvor öðrum og því var
þægilegt að skiptast á að keyra. Við
vorum líka iðulega samferða í Skál-
holt, bæði fyrir sumartónleika og
þegar Hljómeyki var að taka þar
upp. Einnig vorum við gjarna her-
bergisfélagar.
Ég kynntist Halldóri fyrst sem
unglingur er ég söng í Passíukórnum
á Akureyri. Hann kom þá oft norður
og söng einsöng með kórnum. Mér
fannst það alltaf jafn eftirtektarvert
að þegar hann mætti kunni hann sinn
part algjörlega, oft á tíðum nær utan-
bókar. Þegar ég fór til náms við Tón-
listarskólann í Reykjavík kenndi
Halldór mér söng. Við urðum strax
miklir mátar og fannst mér einstak-
lega gott að njóta leiðsagnar hans.
Er ég tók við starfi sem organisti
og kórstjóri við Vídalínskirkju í
Garðabæ var ég svo heppinn að þar
var gott fólk í kórnum, þar á meðal
Halldór og Áslaug. Með okkur tókust
mjög góð kynni.
Undir niðri var Halldór mikill
húmoristi en fór ekki hátt með það.
Þetta fann ég iðulega þegar hann
kenndi mér og á öllum ferðum okkar.
Halldór var búinn ýmsum góðum
eiginleikum. Hann var mjög stundvís
(ef við mættum ekki á réttum tíma á
æfingar var það mér að kenna!), hóg-
vær og jákvæður. Ég heyrði hann
aldrei hallmæla nokkrum manni.
Æðruleysi hans var líka einstakt,
hann var aldrei að trana sér fram,
studdi þá sem yngri voru og kom með
föðurlegar ábendingar ef honum
fannst að eitthvað mætti betur fara.
Ég heimsótti hann nokkrum sinn-
um á líknardeildina og það var alltaf
jafn erfitt að kveðja hann því ég fann
í hvert skipti að honum hrakaði.
Þrátt fyrir þessi miklu veikindi fann
ég alltaf að húmorinn var til staðar og
aldrei kvartaði hann.
Þótt við Halldór eigum ekki eftir
að fara oftar á æfingar saman er ég
viss um að hann kemur oft upp í hug-
ann á leið á æfingu. Kæri vinur, takk
fyrir samfylgdina.
Elsku Áslaug, Sigurður, Hildi-
gunnur, Marta Guðrún og fjölskyld-
ur. Megi minning um góðan mann lifa
í hjörtum ykkar og okkar allra. Guð
blessi minningu Halldórs Vilhelms-
sonar.
Jóhann Baldvinsson.
Halldór Kristinn
Vilhelmsson
Fleiri minningargreinar
um Halldór Kristinn Vilhelms-
son bíða birtingar og munu birtast
í blaðinu næstu daga.
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minn-
ingargreinar ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að ber-
ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánu-
degi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út. Greinar, sem berast eftir að útför hefur farið
fram, eftir tiltekinn skilafrests eða ef útförin hefur verið gerð í kyrrþey, eru
birtar á vefnum, www.mbl.is/minningar. Æviágrip með þeim greinum verður
birt í blaðinu og vísað í greinar á vefnum.
Minningargreinar
✝
Okkar ástkæri
HJALTI ÞÓR KJARTANSSON,
Lóurima 14,
Selfossi,
sem varð bráðkvaddur á heimili sínu föstudaginn
12. júní, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju
laugardaginn 27. júní kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á SÁÁ.
Sigríður Haraldsdóttir, Óskar Jóhann Björnsson,
Kjartan Ólason,
Andrés Pálmarsson,
Haraldur Óli Kjartansson,
Guðrún Helga Andrésdóttir,
Magnús Arnar Andrésson.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, sambýlismaður,
afi og langafi,
GUÐGEIR JÓNSSON
bifreiðarstjóri,
Hlíðargötu 21, Neskaupstað,
síðast til heimilis
Drápuhlíð 24,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Norðfjarðarkirkju föstudaginn 26. júní
kl. 14.00.
Guðný Guðgeirsdóttir, Bragi Finnbogason,
Jón Grétar Guðgeirsson, Bryndís Helgadóttir,
Marteinn Már Guðgeirsson, Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir,
Bentey Hallgrímsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær dóttir okkar, systir, mágkona og frænka,
DAGNÝ SVERRISDÓTTIR,
Sléttuvegi 9,
áður Hátúni 10,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn
16. júní.
Jarðarförin fer fram frá Grensáskirkju föstudaginn
26. júní kl. 13.00.
Þökkum starfsfólki hjartadeildar 14G fyrir frábæra umönnun.
Sverrir Halldórsson, Steinunn Ingvarsdóttir,
Hrafnhildur Sverrisdóttir, Magnús Hafsteinsson,
Guðrún G. Sverrisdóttir, Chris Frankish
og frændsystkini.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
JAKOBÍNA ÓLÖF SIGURÐARDÓTTIR,
Úthlíð,
Vestmannaeyjum,
lést á Heilbrigðisstofnuninni Vestmannaeyjum
mánudaginn 22. júní.
Útför hennar fer fram frá Landakirkju Vestmanna-
eyjum þriðjudaginn 30. júní kl. 13.00.
Sigþóra Björgvinsdóttir, Bragi Júlíusson,
Jóna Björgvinsdóttir, Leifur Ársæll Leifsson,
Björgvin Björgvinsson, Valgerður Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
föður okkar, fósturföður, tengdaföður, afa og lang-
afa,
EGILS JÓNS BENEDIKTSSONAR
fyrrv. bónda og hreppstjóra
frá Sauðhúsum,
Laxárdal, Dalasýslu,
Ögurási 3, Garðabæ.
Benedikt Egilsson, Sigrún Eyjólfsdóttir,
Jón Egilsson, Sigurborg Valdimarsdóttir,
Herdís Egilsdóttir, Brynjólfur J. Garðarsson,
Birgir Símonarson, María K. Lárusdóttir,
Johnny Símonarson, Hugrún Á. Elíasdóttir,
Helen Gunnarsdóttir, Steindór Stefánsson,
afabörn og langafabörn.