Morgunblaðið - 25.06.2009, Side 31
Hjá Bjarti Steinunn Sigurðardóttir.
RITHÖFUNDURINN Steinunn
Sigurðardóttir hefur nú gengið til
liðs við bókaforlagið Bjart og var
samningur þess efnis undirritaður í
Berlín í gær, en Steinunn er búsett
þar í borg.
Samningurinn felur í sér að Bjart-
ur kemur til með að gefa út væntan-
legar bækur Steinunnar, sem og
þær sem komið hafa út áður.
Steinunn er með nýja skáldsögu í
smíðum sem Bjartur gefur út auk
þess að annast kynningar á verkum
hennar erlendis í samstarfi við um-
boðsmenn Steinunnar.
Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá
Bjarti, segir samninginn við Stein-
unni mikinn happafeng fyrir forlag-
ið. Hún sé einn virtasti og vinsælasti
höfundur þjóðarinnar.
Starfsmenn Bjarts hlakki til að
vinna með Steinunni að nýju skáld-
sögunni og næstu bókum ásamt því
að kynna eldri verk hennar fyrir nýj-
um lesendum.
Á frönsku og þýsku
Verk Steinunnar hafa undanfar-
inn áratuginn komið út hjá Máli og
menningu, meðal annars skáldsagan
Hjartastaður, sem Steinunn fékk Ís-
lensku bókmenntaverðlaunin fyrir
árið 1995.
Steinunn gaf út fyrstu bók sína,
ljóðabókina Sífellur, 19 ára gömul en
síðan þá hafa mörg verka hennar
komið út víða erlendis, meðal annars
í Frakklandi og Þýskalandi.
Þess má svo að lokum geta að
þessa dagana les Steinunn Tíma-
þjófinn sinn sem sumarsögu í Víðsjá
á Rás 1.
Steinunn
semur
við Bjart
Forlagið gefur út
nýjar bækur hennar
sem og hinar eldri
Morgunblaðið/Kristinn
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
BJARNI Thor Kristinsson bassa-
söngvari er á niðurleið. Því fer þó
fjarri að hér sé átt við venjulega
merkingu orðasambandsins, heldur
er yfirskrift tónleika hans og
Ástríðar Öldu Sigurðardóttur í Saln-
um kl. 20 í kvöld: Á niðurleið.
Skýringin? Jú, niðurleið Bjarna á
við tónstigann, en á tónleikunum
ætlar hann að feta sig niður hann í
leit að djúpum bassatónum og merk-
ingu þeirra.
Útfyrir hefðbundinn ramma
„Hugmyndin er sú að söngurinn
stefni dýpra og dýpra eftir því sem
líður á tónleikana,“ segir Bjarni.
„Þetta er sérstök uppbygging, en
vonandi forvitnileg um leið. Mig
langaði að fara út fyrir hefðbundinn
tónleikaramma, og ég ætla líka að
spjalla við tónleikagesti. Á meðan
verður söngurinn dýpri og dýpri og
ekki aftur snúið. Við Ástríður Alda
veljum allskonar áheyrilega tónlist,
aríur, sönglög, ljóð og fleira.“
Það er spurning hversu djúpt
Bjarni fer, því það er ekki bara að
lögin dýpki hvert af öðru, heldur
hafa sum þeirra í sér innbyggðar
dýptarmælingar. „Sum þeirra
bassalaga sem stefna niðurávið
tengjast drykkju, önnur peningum,
þannig á yfirskrift tónleikanna
stundum við í tvöföldum skilningi.“
Bjarni hefur áður sest yfir nótna-
safnið sitt og skipulagt efnisskrá
tónleika með ákveðna hugmynd í
huga. Það gerði hann til dæmis eft-
irminnilega og með miklum stæl fyr-
ir hartnær tíu árum í Salnum, þegar
öll lögin á tónleikunum voru sungin í
orðastað kónga, kjána eða illmenna.
„Ég held að það sé lykillinn að góð-
um tónleikum að í efnistökunum sé
gott konsept, hvernig svo sem það
er,“ segir Bjarni.
„How low can you get?“ er al-
mennt orðatiltæki í ensku, og í sam-
tali við bassasöngvara gæti það verið
spurningin um hversu djúpt hann
komist, en þýðir í raun allt annað:
hversu lágt ætlarðu að leggjast?
Bjarni segir hugmyndina að baki
efnisskránni einmitt hafa boðið upp
á slíka orðaleiki, og ekki alla jafn við-
urkvæmilega.
„Tónleikarnir eiga að verða
skemmtun, án þess að ég týni lista-
manninum í mér,“ segir Bjarni.
Einar Falur Ingólfsson
Bjarni Thor á niðurleið
Fetar sig niður tónstigann í leit að djúpum tónum og merkingu þeirra
Heilræði fyrir fólk sem vill spara meðal sönglaga og aría á tónleikunum
Menning 31FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2009
Landslagsmyndir
Thomasar Graics eru
nú sýndar í Listasafni
Ísafjarðar. Mynd-
irnar eru allar teknar
úr flugstjórnarklefa
listamannsins. Bak-
grunnurinn er mál-
verkið og er nálgun ljósmyndanna þaðan. Thomas
hefur margoft komið til Íslands í leit að litum,
formi og munstri í okkar margbreytilega lands-
lagi. Flestar eru myndirnar af íslenskri náttúru
og í frétt um sýninguna segir að verk Thomasar
Graics séu fullkomið dæmi um hið margþætta eðli
ljósmyndunar þar sem bæði listrænt og skrásetn-
ingarlegt gildi er samtvinnað. Opið er á hefð-
bundnum tíma í Gamla sjúkrahúsinu.
Myndlist
Munstur og form
úr náttúru Íslands
Eitt af verkum Graics
PÁLL Rósinkranz stígur á
stokk með Bjössa Thor á Kaffi
Rosenberg í kvöld. Páll kom
fram sem blússöngvari á Jazz-
og Blúshátíð Kópavogs í byrj-
un júní og í frétt um tónleikana
segir að þar hafi hann slegið
rækilega í gegn. Bjössi Thor,
með tróið sitt og Palli end-
urtaka leikinn á Rosenberg í
kvöld og hefjast tónleikarnir
kl. 21.30. Í tríói Bjössa eru Jó-
hann Hjörleifsson á trommur og Jón Rafnsson á
bassa. Tríóið bregður líka á leik og flytur þekkt
gítarlög eins og Hocus Pocus, Sverðdansinn, Veg-
ir liggja til allra átta, o.fl. Það verður snarhækkað
í mögnurunum hjá þessu nýja tríói Bjössa Thor.
Tónlist
Rósinkranz, Thor-
oddsen, Rosenberg
Páll Rósinkranz
Fimmtudagsfyrir-
lestur um bygging-
arlist verður í Nor-
ræna húsinu í kvöld
frá kl. 20-22. Yfirskrift
dagskrárinnar er:
Byggt með náttúrunni
- ljóðræn verkefni.
Arkitektarnir Sami Rintala, Dagur Eggertsson
og Ryo Yamada kynna eigin verk, þar á meðal for-
vitnileg verk í vinnslu sem skírskota til japanskra
og norrænna byggingarhefða. Í Norræna húsinu
stendur nú yfir menningardagskráin Snerting við
Japan, en hugmyndin með henni er að stuðla að
nýjum tengslum milli Japans og Íslands. Jap-
anskir listamenn og sérfræðingar á ýmsum svið-
um sækja Norræna húsið heim.
Byggingarlist
Ljóðrænar bygg-
ingar í náttúrunni
Norræna húsið
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
KAMMERSVEITIN Ísafold er ný-
komin frá Ísafirði, þar sem hún var í
aðalhlutverki á tónlistarhátíðinni
Við Djúpið. Í kvöld kl. 20 gleður
sveitin þá sem ekki komust vestur
með tónleikum á Kjarvalsstöðum
þar sem flutt verður úrval þeirra
verka sem leikin voru við Djúpið.
Ungu tónskáldin eru í sviðsljós-
inu; tónskáld, sem nú eru að skapa
sér nafn og voru valin úr hópi um-
sækjenda til að semja verk sér-
staklega fyrir hátíðina. Þau eru
Högni Egilsson, Viktor Orri Árna-
son og Gunnar Karel Másson Tón-
skáldin fóru öll vestur og unnu með
Ísafold á æfingatímanum fyrir há-
tíðina og þeim til halds og trausts
var danska tónskáldið Bent Søren-
sen.
Kristján Orri Sigurleifsson
kontrabassaleikari Ísafoldar segir
frumflutninginn fyrir vestan hafa
gengið ákaflega vel. „Við gerðum
þetta öðru vísi en venjan er, við
fluttum verk, þá var tónskáldið tek-
ið í viðtal um verkið og hver hugs-
unin að baki því væri, og verkið svo
flutt aftur – verkin voru því flutt
tvisvar.“
Kristján Orri segir verk Gunnars
Karels gagnvirkt. „Áheyrendur geta
kosið um það hvaða kafla þeir vilja
heyra og í hvaða röð. Fyrir vestan
fór kosningin því fram tvisvar og
áheyrendur heyrðu það á tvo mis-
munandi vegu. Hann hugsar verkið
eins og leikhús, og að það geti verið
margar leiðir að því. Stundum fá
hlustendur að kjósa, stundum
hljómsveitin, hljómsveitarstjórinn,
eða hann sjálfur,“ segir Kristján
Orri, og segir tónskáldið enn undir
feldi með það hverjum hann leyfi að
stilla verkinu upp í kvöld.
„Það kom okkur í Ísafold á óvart
hvað verk strákanna voru fjölbreytt
og persónuleg, og óhætt að lofa lit-
ríkum tónleikum á Kjarvalsstöðum.“
Tvö önnur verk eru á efnisskrá
tónleikanna. Í verki Daníels Bjarna-
sonar leikur Sæunn Þorsteinsdóttir
sellóleikari einleikshlutverk en hún
er ein af okkar efnilegustu sellóleik-
urum. „Það er mikil orka í verki
Daníels og mikið stuð. Það er byggt
á stefi eftir Davíð Þór Jónsson. Það
er skemmtilegt að hlusta á, og líka
gaman að spila það, því það er mikið
að gera hjá hljómsveitinni og reynir
líkamlega á.“ Fimmta verkið er eftir
Nico Muhly, en hann er þekktur að
samstarfi sínu við íslenska útgáfu-
fyrirtækið Bedroom Community.
„Það er í áttina að minimalisma, en
þó er meira bit í því en verkum am-
erísku minimalistanna – það rennur
ekki bara ljúflega hjá.“
Mikil orka, mikið stuð
Kammersveitin Ísafold leikur á Kjarvalsstöðum í kvöld Verk-
eftir tónskáld á þrítugsaldri Sæunn Þorsteinsdóttir er einleikari
Tónskáldin Högni Egilsson, Gunnar Karel Másson, Bent Sørensen tón-
smíðakennari og Viktor Orri Árnason á hátíðinni Við Djúpið.
Bjarni Thor Kristinsson er
óefað meðal okkar bestu
söngvara, og hefur sungið í
óperuhúsum erlendis um ára-
bil en líka hér heima.
„Ég syng í haust í nýrri upp-
færslu Meistarasöngvaranna í
Köln. Þá kem ég heim og syng
í uppfærslu Íslensku óperunn-
ar á Ástardrykknum. Eftir það
fer ég aftur til Kölnar til að
syngja í Rósariddaranum, og
þá með Kiri te Kanawa, sem
ætlar að fara að syngja á sviði
aftur. Ég verð í þessum sýn-
ingum meira og minna í allan
vetur, en syng þó líka í Rósa-
riddaranum í Barcelona. Það
er auðveldara að vera bassi í
þessum bransa, því þeir eldast
vel í honum. Þar er það enginn
mínus þótt maður bæti á sig
árum og kílóum.“
Eldast vel
Á niðurleið Bjarni Thor Kristinsson og Ástríður Alda Sigurðardóttir hvíla
sig í tónstiganum miðjum áður en lagt verður á allradýpsta djúpið.
Þetta er eins
og grískur harm-
leikur, með mig í aðal-
hlutverki. 32
»