Morgunblaðið - 25.06.2009, Qupperneq 36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2009
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
SÝND M
EÐ
ÍSLENS
KU OG
ENSKU
TALI
SÝND Í KRINGLUNNI Á MORGUN
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
FLOTTASTA
HASARMYND
SUMARSINS
Frá leikstjóranum Michael Bay ásamt
stórleikurunum Shia LaBeouf, John Torturo
og kynþokkafyllstu leikkonu heims Megan Fox
„STÆRRI, FYNDNARI, FLOTTARI ...
EF ÞÚ FÍLAÐIR FYRSTU MYNDINA,
ÞÁ ÁTTU EFTIR AÐ DÝRKA ÞESSA!“
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
TRANSFORMERS 2 kl. 4D - 7D - 10D POWERSÝNING KL. 7 10 DIGITAL
THE HANGOVER kl. 4 - 6D - 7 -8D - 9:10- 10:20D 12 DIGITAL
CORALINE 3D m. ísl. tali Engin sýning í dag L 3D DIGTAL
PHEDRÉ kl. 6D LEIKRIT Í BEINNI ÚTSENDINGU L DIGTAL
TRANSFORMERS
THE HANGOVER
TRANSFORMERS 2 kl. 5D - 8D - 11D - Powersýning kl. 11 10 DIGTAL ADVENTURELAND kl. 3:40 - 5:50 12
TRANSFORMERS 2 kl. 5 - 8 - 11 - Powersýning kl. 11 LÚXUS VIP STAR TREK XI kl. 10:20 10
THE HANGOVER kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 8:10 - 8:30 - 10:20 - 10:30 - 11 12 DIGTAL STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m. ísl. tali kl. 4 - 6 L
MANAGEMENT kl. 5:50 - 8 10 HANNAH MONTANA kl. 3:40 L
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
BLÚSBRÆÐINGSSVEITIN JJ
Soul Band leikur á þrennum tón-
leikum á Akureyri, í Ólafsfirði og
Reykjavík um helgina. Það ætti að
vera mörgum tilhlökkunarefni því
sveitin hefur ekki leikið opinberlega
í fjögur ár. „Þetta er svona hljóm-
sveit sem vaknar af og til, gerir plöt-
ur og heldur tónleika,“ segir Ingvi
Þór Kormáksson sem er potturinn
og pannan í JJ Soul Band ásamt
John J. Soul, manninum sem hljóm-
sveitin dregur nafn sitt af.
Fjórða plata JJ Soul Band, Bright
Lights, kom út í fyrra og segir Ingvi
að þeir séu eiginlega að fylgja henni
eftir núna, ári síðar. „Það verða að-
allega leikin lög af nýju plötunni á
þessum tónleikum, í bland við gamla
standarda.“
Diskasölukarl og lagahöfundur
Ingvi semur öll lög sveitarinnar á
meðan Bretinn JJ Soul sér um
textagerðina og sönginn. „Við tveir
semjum tónlistina og fáum síðan
strákana með okkur til að spila.“
Strákarnir sem Ingvi vísar til eru:
Steingrímur Óli Sigurðarson
trommuleikari, Stefán Ingólfsson á
bassa, Eðvarð Lárusson á gítar og
Kjartan Valdemarsson hljómborðs-
leikari. „Það hefur nokkurn veginn
verið sami kjarninn í hljómsveitinni
frá upphafi. Ég var sjálfur á hljóm-
borðinu í byrjun en er nú bara diska-
sölukarl og sé náttúrlega um að
semja lögin,“ segir Ingvi kankvís.
JJ Soul Band hefur aldrei leikið
fyrir utan landsteinana en Ingvi seg-
ir þá hugsanlega hafa það í hyggju
þegar tími gefst til. Diskar þeirra
seljast þó eitthvað erlendis og eiga
þeir aðdáendahóp í Póllandi, Þýska-
landi, Ástralíu og Ameríku.
Öðruvísi efni á leiðinni
Ingvi og JJ Soul stofnuðu JJ Soul
band árið 1994 og kom fyrsta plata
þeirra út sama ár. JJ Soul bjó þá á
Íslandi og dundaði sér við ljóðagerð,
hann komst í kynni við Ingva sem
leist vel á ljóðin og sá að hann gæti
gert lög við þau, úr því varð bandið
sem leikur bræðing af blús, djassi og
fullorðinspoppi að sögn Ingva.
En skyldu þeir vera farnir að
vinna að næstu plötu? „Við höfum
aðeins verið að semja saman en það
verður öðruvísi efni. Það kemur í
ljós hvað það verður,“ segir Ingvi
leyndardómsfullur að lokum.
Bræðingur af blús, djassi og poppi
Ingvi Þór Kormáksson og John J. Soul stofnuðu JJ Soul Band 1994 Með
þrenna tónleika um helgina Leika meðal annars á Blúshátíð í Ólafsfirði
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Bræðingur John J. Soul og Ingvi Þór Kormáksson hafa starfað lengi saman,
annar syngur og semur textana en hinn er lagahöfundurinn.
JJ Soul Band leikur á eftirtöldum
stöðum: Græna Hattinum á Ak-
ureyri í kvöld, 25. júní, Blúshátíð,
Ólafsfirði, 27. júní og Kaffi Rósen-
berg, Reykjavík, sunnudags-
kvöldið 28. júní kl. 21.
Blúshátíð í Ólafsfirði verður
haldin í tíunda skipti dagana
26. og 27. júní. Hátíðin hefst
annað kvöld kl. 21 með tón-
leikum í Tjarnarborg. Þar
koma fram Hljómsveitin Roð-
laust og beinlaust, Manhattan,
Guito Thomas and band og
Tregasveitin. Laugardagurinn
hefst kl. 14 með lifandi tónlist á
útimarkaði við Tjarnarborg.
Ragnheiður Gröndal og Guð-
mundur Pétursson koma svo
fram á tónleikum í Ólafsfjarð-
arkirkju kl. 17.
Tónleikar laugardagskvölds-
ins í Tjarnarborg hefjast kl. 21.
Þar spila JJ-Soul Band, Johnny
and the rest og Landsliðið en
það skipa: Halldór Bragason,
Ragnheiður Gröndal, Guð-
mundur Pétursson, Jón Ólafs-
son og Birgir Baldursson.
Blús Ragnheiður Gröndal og
Guðmundur Pétursson.
Blúshátíð
í Ólafsfirði