Nýtt kvennablað - 01.03.1950, Síða 10
Þetta er hræðileg tilhugsun. Strita við stærðar roll-
ur innan um aragrúa af körlum. Ég var viss með að
slengjast í réttargólfið og verða mér til skammar. 1
öngum mínum sný ég mér til Línu og spyr: „Langar
þig ekki að draga féð, Lína mín?“ — ,.Nei takk“. og ,
Lína tekur sér sem fljótast stöðu við réttarhliðið.
Annað hvort er að duga eða drepast. Ég sveifla
mér yfir réttarvegginn og arka til Guðna, sein bíður
mín, með stærðar rollugrey. Ég tek föstu laki um horn
kindarinnar og strita með hana að hliðinu til Línu.
Fyrsti sigurinn er unninn. Kindin komin út í girð-
inguna, án þess að gera mér hinn minnsta óleik, og
ég tek örugglega við þeim næstu. Þetta gengur eins og
í sögu, og fyrr en varir erum við búin að draga allt
féð úr réttinni, og án þess að ég yrði mér til nokku'rar
minnkunar.
Húsmóðirin á Nesi kemur arkandi með stóran kaffi-
kút og hýður okkur að setjast undir réttarvegginn og
fá okkur sopa. Við tökum til þakka, því við erum orð-
in glorhungruð. En Guðni herðir á eftir okkur, svo við
verðum að gleypa í okkur með hraða og fáurn ekki
nærri fylli okkar — ekki minnsta kosti ég, sem ét allt-
af á við belju. Þetta er samt ágæt hressing. Við þökk-
um húsmóðurinni fyrir og höldum svo af stað með
féð og fjárhundinn okkar, hann Milla, okkur til að-
stoðar. Það er orðið áliðið dags, og búið að draga
sundur, að mestu leyti, er heim kemur. Við hjálpum
til að smala sláturfénu og byrgja. Svo förum við þrjú,
Lína, ég og Guðni að reka lífkindurnar. Það er farið
með þær lengst upp í Hálsaland.
Lína, sem alltaf þykist vera köld og kjarkmikil er
rétt búin að kála sér í botnlausu forarfeni. Ég held
Guðni hafi dregið hryssuna hennar upp úr á aftur-
endanum. Annars sá ég varla fram fyrir fæturnar á
Léttfeta, það var svo mikið niðamyrkur, og hafði ég
því nóg með sjálfa mig, hræðslupokann.
Klukkan var að verða 11, þegar heim kom um kvöld-
ið, svo að við Lína borðum ókkur mettar og leggjumst
síðan til svefns, eftir erfiðan, en ánægjulegan starfs-
dag.
Alfhildur (17 ára).
Peysa á
8 ára
i
Peysan er prjónuð
á prjóna no. 2 og
no. 214- Brjóstvidd
72 cm, lengd 40 cm.
Bak: Uppfytjun
100 1, á pr. no. 2.
Snúningur 7 cm
önnur rétt og önn-
ur snúin. Þá skipt
um prjóna, aukið í
svo 109 séu á, og
prjónaS slétt prjón, aukið í cinni lykkju hvoru megin 8. hvern
prjón. Þegar lengdin er 25 cm. eru felldar af 6 1 og ein og ein,
hvoru megin, í næstu umferSum (alls 8) fyrir handveginn. Hald-
iS áfram þar til hann er 15 cm, þá felldar af 10 1 á hverri öxl
þrisvar sinnum, dregiS í þær 39 1, sem eftjr verSa. Framstykki:
Uppfytjun 108 1, auka og skipta um pr. er snúningurinn er
búinn, eiga þá aS vera 115 1 á pr. Ath. aS auka í meS jöfnu
millibili, siðar er aukiS i þrisvar hvoru megin. En er komnir
eru 25 cm eru felldar af 8 1 fyrir handveginn, eftir að enn
hafa verið prjónaðir 10 cm dregið í 15 miðlykkjurnar, prjón-
uð svo hver öxl fyrir sig og tekið úr hálsmegin í hverri um-
ferð unz 30 1 eru á prjón. Þegar handvegurinn er 16 cm eru
felldar af 10 1 í einu, þrisvar, fyrir öxlina.
Ermi: Uppfytjun 50 I, 6 cm snúningur. Aukið í svo 59 verði
á, um leið og skipt er um prjóna. SíSan aukiS í 1 lykkju hvoru
megin, áttunda hvora umferð þar til komnar eru 83 1. Þegar
ermin er 35 cm eru felldar af 4 4, hvoru megin, og eftir það
tekið úr annanhvern
prjón þar til 35 1 eru
eftir, þá felldar af 5.
hvoru megin, unz allt
er búið. . Breitt úr
stykkjunum, teigð til
eins og þau eiga að
vera, og votur klútur
látinn þorna yfir þeim.
Saumuð saman hægri
öxlin og ,teknar upp
á að gizka 100 1 allt
í kringum hálsm. og
prjónaður snúningur á
pr. no. 2, 2j4 cm,
felldur af. Peysan
saumuð saman og
renniiás á vinstri öxl. Mi'öjan.
★
ÞEGAR nýlega var efnt til skoðanakönnunar í Danmörku
um það, hvort meiri hluti þjóðarinnar væri með eða móti
þéringum, fór hún þannig að 50% var með þéringum og
50% á móti, eða féll með jöfnum atkvæðum.
Þjóðliátíðardagur íslendinga er 17. júní, Dana 5. júní, Svía
6. júní. Englendingar hafa engan þjóðhátíðardag, en halda
upp á afmæli konungsins 2. fimmtudag í júní. Norðmanna
17. maí, Frakka 14. júlí. Bandaríkjamanna 4. júli. Finna 6.
desember.
8
NÝTT KVENNABLAÐ