Nýtt kvennablað - 01.03.1950, Side 15

Nýtt kvennablað - 01.03.1950, Side 15
Tísikiem- Vlnáttan oft TÖlt og flá, vantar hugar stilli. A. HEIMILISIÐNAÐARFÉLAG ÍSLANDS OG FERÐASKRIFSTOFA RÍKISINS efna til samkeppni um allt land um fallega minjagripi, sem bjóða mœtti erlendum ferðamönnum. Engin takmörk eru sett fyrir tegund gripanna. Kemur allt til greint, sem heppilegir minjagripir geta talizt, svo sem hverskonar hannyrðir, trésmíðagripir, málmsmíði, skartgripir, leirmunir, leðurmunir, leikföng, brúður og ýmiskonar föndur, svo fátt eitt sé nefnt. Nú verður illt að vera verkamannskona. Einu sinni var kveðið: Dável þótti varið vera vænni hrúgu af peningum: til að kenna að kókítera kvennaskólastúlkunum. Siðan hafa bætzt við margar kennslugreinar og margir skól- ar. Verkamannskonan skilur ekki allar þær ráðstafanir. meðan hún hefur varla til hnífs og skeiðar og sér ekki fram úr vand- anum. Alltaf er bætt við nýjum og nýjum skólum, án þess að leggja þá elztu niður, og nýjum og nýjum embættum, án þess að strika út þau eldri. Áður voru gömlu embættin, svo sem amtmanns embættið og landshöfðingja embættið lögð nið- ur, er önnur komu. Verkamannskonunni finnst það til fyrir- myndar. Þannig mætti ríkissjóður spara útgjöld, meðan hún þarf allt að spara, er dýrtíðin eykst daglega. Það er makalaust að i raun og veru skuli vera frágangssök fyrir sjálfstæða stúlku að ganga að eiga verkamann. Þess vegna byrja karlmenn líka á alls konar braski, að þeir vilja ekki þurfa að láta konuna sína lifa af hinum litlu verkamannslaun- um, sem aldrei leyfa höfðingsskap í útlátum, ferðalög eðá fatnað af beztu tegund, heldur kæfðan grát eftir að vængirnir eru stifðir. — B. Ó. Botnar við fyrripartinn: Ljós og skuggar skiptast á, skammt er öfga milli. NÝTT KVENNABLAÐ Bítast jarðarbörnin smá betri um magafylli. G. R. Ýmsir skrifa, en aðrir þrá auð og kvennahylli. Grímur Rögnvaldsson. í klessumálning má nú sjá met á andans snilli. ÁSTARKRANSAR. 125 g. smjör, 225 g. hveiti (tveir stórir bollar), 60 g. sykur, 1 teskeið vanille, 3 eggjarauður (hvítur og sykur). Smjörinu núið saman við hveitið og síðan eggja- rauðurnar og vanilledroparnir og örlítið af sykrinum og þeyttum hvítunum látið í. Hnoðað sem minnst. Breytt út og skorið í mjóar lengjur, þeim brugðið sam- an tveimur og tveimur (snúið saman) og gerðir úr hringar. Þeim dýft í léttþeyttu eggjahvítuna og syk- urinn. Mylja mola, svo sykurinn sé grófari. Bakað ljósbrúnt. Þannig má forma hringi úr öðru góðu deigi. — Það er mjög fallegt og fljótlegt. EINFALDUR EFTIRRÉTTUR. % lítrar mjólk, 75 gr. hrísgrjón, 1 matskeið smjör, 1 matskeið sykur, y2 teskeið „vanilje“, 10 möndlur. Sveskiur, epli eða plómur. Eins má hafa hláber. Elda á graut úr grjónunum og mjólkinni, taka grautarpottinn síðan af eldinum og hræra smjörinu, sykrinum, dropunum og söxuðum afhvddum möndl- unum saman við (sióðandi vatni verður að hplla á möndlurnar svo hýðið losni auðveldlega frá). Eplin eða sveskjurnar á að sjóða sér í lagi. Láta skal svo fyrst eplin, eða sveskjurnar í form eða skál og hella grautnum varlega ofaná . Hvolfa svo úr skálinni þeg- ar grauturinn er orðinn vel kaldur og stífur os hera hann þannig fram. Laga má þunna sósu úr epla- eða sveskjusoðinu út á. Aldrei er góS visa of oft kve'Sin, seeir máltækiS. oe haS gæti vel átt viS eftirfarandi vísu eftir Erlu. En vísan hefur þá sérstö3:t viS flestar visur aSrar, aS körlum finnst óviSkunnan- leet. aS taka sér hana oft í munn, þó þeim þyki hún annars falleg. Af. Vertu góSi guS mér hjá, ger mig fljóSaprýSi, hreina í IjóSi. huga og þrá. holla i þjóSarstriSi. NÝTT KVENNABLAÐ Kostar 12 kr. árgangurinn: gjaldd. í júní. Átta blöH á ári. — Kemur ekki út sunwrmánutiina. Ajgreiösla: Fjölnisvegi 7 í Reykjavík. — Simi 2740. Ritstj. og ábm.: GuSrún Stefánsdóttir, Fjölnisvegi 7. BORGARPRENT 13

x

Nýtt kvennablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.