Nýtt kvennablað - 01.10.1959, Blaðsíða 2

Nýtt kvennablað - 01.10.1959, Blaðsíða 2
C^oípaztt kíutoatk kouuuuaí. Mörgum er enn í fersku minni er fyrstu drengja- kollarnir sáust á stúlkunum -— eldra fólk ætlaði ekki að trúa því, að þetta væri meiningin — að slíkt ætti eftir að smita frá sér svo gífurlega að önnur hver kona klippti af sér hárið. En hvað megnar ekki tízkan og áróðurinn. Það var erfitt að bera mikla hárið — fyrirhafnarsamt og oft og tíðum ljótt og illa hirt, langt um betra að losna við það. Ekki ófyrirsynju voru þá margar konur hættar við felld og síð peysupils. Kjól- arnir komnir í staðinn, sem Káinn lýsir: „Á bakinu öllu var engin spjör....“ Danski búningurinn var tek- inn upp af því, að hann var léttari og betri. Þessi bylting á ytra útliti kvenfólksins er þó reyk- ur hjá hinni miklu breytingu hugarfarsins. Með hjónabandinu hlaut konan stöðu. Kristjana Haf- stein hlaut yngst kvenna hæztu stöðu. Hún varð amt- mannsfrú ung að árum. Nú gifta stúlkurnar sig án þess að hljóta nokkra „stöðu“. Þær vinna eftir sem áður að því starfi, sem þær höfðu. Áróður hefur verið uppi um það, að hjónabandið veiti konunni enga stöðu, væri ekki siaSa. Konan yrði að hafa eitthvert sérnám til vinnu og halda áfram því starfi, sem námið vcitti henni rétt til og hún þegar hefði hazlað sér. Þetta er fram- vindan. — Áður þótti keppikefli að komast í húsmóð- urstöðu — frá vinnumennskunni. — Nú tekur ekki tali fyrir hæfileikakonu í góðri stöðu að setjast heim í heimiliskytru, þó að hún giftist, hjónaband, það er engin staða lengur. Konan býr til mat og lagar til i íbúðinni í frístundum sínum. Fólkið giftir sig ungt og ástin dregur í búið, fljótt rís upp fínt og fallegt heimili. En þröskuldurinn lætur þó sjaldnast á sér standa. Er börnin koma verður hið tvíþætta starf kon- unnar henni ofviða. Gamlar konur hafa ekki getað í orð fært sársaukann, er þær minnast þess, að heimilum þeirra var tvístrað. Börnin sett sitt á hvern bæ, nema kannski eitt, sem oftast fylgdi móðurinni. Og jafn undrandi og þær urðu er ungu stúlkurnar klipptu af sér hárið, bættist enn á undrun þeirra, er konurnar vildu heldur senda l)örnin sín á barnaheimili og vöggustofur, heldur en vera hjá þeim heima. En óhikað gengur unga konan til verks — fer til vinnu sinnar, út í bæ, að morgni og kemur ekki heim fyrr enn eftir fullan vinnudag, bætir svo enn á sig að sinna börnunum er heim kemur. Tekur þau með sér í heimleiðinni. — Þetta er bylting í heim- ilishaldi, sem ekki verður gengið fram hjá. Konan ber uppi heimilið efnalega með manni sínum, og efna- hagnum er borgið. En í engri fátækt hefur hún lagt méira á sig en þetta. Onnur bylting í heimilislífinu var undangengin, sem minna var höfð á orði. Það var byltingin, er maðurinn fór að vinna „út í bæ“, vinna alla sína vinnu utan heimilisins. Mörg munum við heimili, þegar húsbóndinn vann hvergi nema heima, að landbúnaðarstörfum á jörðinni sinni. Við fylgdum honum út og inn við störfin, smákrakkar. Við munum, þegar hann gekk um gólf oft með börnin í fanginu, er vinnu var lokið að kveldinu. Og við munum föður- og móðurfrændur, sem kenndu okkur eftir vinnutíma að skrifa og reikna og spila kotru og smíðuðu fyrir okk- ur ýsubeinsfugla. Þá höfðu stúlkurnar svo mikið að gera innan húss, að þær gáfu sér ekki tima til að leika við börn. Allur tíminn fór í brauðabakstur og skógerð og til annarra nauðþurfta heimilisins. Vinnu- söm kona má aldrei vera að að leika við börn. Þegar einn og annar telur hollara börnunum, að móðirin sé heima, heldur en að hún vinni úti, hvarflar að mér, hve það er ákaflega mikið verra fyrir börnin, að faðir þeirra vinnur utan heimilisins. Faðir og frænd- ur höfðu tök á að gleðja og siða börnin og marg- faldan tíma til þess fram yfir móður þeirra. Hún hafði mikla hvíld af uppeldisþætti föðurins, meðan barnið gat fylgt honum og lært störf og eignast áhuga fyrir þeim. — Kemur mér í hug stakan: Að faðirinn elski soninn sinn, sú er liðin tíðin. Nú hugsar hann eins og heimurinn, en horfin hjartaprýðin. Séra Jón Auðuns, dómprófastur, vék að því í ræðu, að framfarirnar og tæknin væri á öllum sviðum og spannaði allt, nema sálarlíf einstaklingsins. En fyrir einstaklinginn með eilífa sál og mörg hugðarefni ætti að mega fórna nokkru, það ættum við að muna. Fað- irinn fór fyrst að heiman, svo móðirin. Það er óvandari eftirleikurinn. Sjálfsagt var Sveinn frá Elivogum líkastur Bólu- Hjálmari allra seinni tíma skálda. Báðir voru þeir níðskældir og létu bitna á fjölskyldu sinni ekki síður en fjarskyldum. Sveinn orti til móður sinnar: Gömul hóra og gigtveikt skinn galla stóra hefur, heimsk er Þóra og harðsnúin með herðastóra kistilinn. En Þóra lét ekki standa á svari: Gættu að því að Guð er einn gáfurnar sem léði. Ef þú yrkir svona Sveinn sál þín er í veði.

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.