Nýtt kvennablað - 01.10.1959, Blaðsíða 14
I>etta mynztur er í borðrefil eða lítið veggteppi, fallegast í
hvítan eða íjósan jafa. Saumist með góbelín yfir 3 þræði, —
lengd eftir vild. — Fæst á Vefnaðarstofu Karólínu Guðmunds-
dóttur, Ásvallagötu lOa, ásamt öðrum áður auglýstum út-
saumsvörum.
Til þeirra sem kváðu á vökunni 3. aþril.
<^ptú ^Piatíibit Ólaflfdóitit $0 dta.
Ó, þú ljóð! og ó, þú kliður,
enn til ]>inna ratar niður,
stuðlana og stássið berð.
Margt eftirminnilegt hef ég séð á þessu sumri, þar
sem ég lét verða af því að fara í Meginlandsferð á
vegum Ferðaskrifstofu ríkisins, en eitt af þeim fyrir-
bærum er heimsókn mín til frú Marsibil Ólafsdóttur
á níræðisafmæli hennar 4. september, þar sem hún á
heimili Ólafs sonar síns stóð teinrétt, gkartklædd og
tók á móti gestum, spjallaði við þá og hin vinnulúna
hönd hennar gat valdið þungri kaffikönnu og hellt í
bollann minn.
Hún talar þakklál um lífshamingju sína, en það sem
ég heyrði hana sérstaklega leggja áherzlu á var það,
að hið fyrsta af 15 börnum liennar var stúlka, og sú
stúlka var Lilja, sem varð sjötug í sumar og var þarna
stödd. Þjónustu Lilju við systkini sín og aðstoS sú, sem
hún veitti móður sinni um áratugi verður hvorki „mæld
né vegin“. — Meðfylgjandi vísur samdi ég, þegar frú
Marsibil varð áttræð, þarf því ekki að vera margorð,
aðeins taka fram það, sem að mínu áliti hefur skapað
hamingju þessarar hetju: Guðstraust, óbilandi vilja-
þrek og sú gæfa að hafa í meira en hálfa öld fengið að
vera samvistum við sinn mikilhæfa eiginmann, og eftir
andlát hans njóta aðhlynningar góðra barna.
Svo þakka ég gefna fagra fyrirmynd og bið frúnni
og öllum niðjum hennar blessunar Guðs.
Þér hetjan merk frá Haukadal
minn hugur þakkir geldur,
þér virðing hreina votta skal,
er velli áttræð heldur.
Með viljakrafti og viðnámsþrótt
þú vanda hverjum mættir.
Þú hefur fram til sigurs sótt
og sæmdir hljóta ættir.
Neistinn fer um æð og inni,
orðið kvcikir líf í sinni.
Æskubrekin enn í minni.
Ó, þú stakan fagurgerð!
gegnum liolt og hæðir sérð,
— skapar í oss hjartað hreina.
Hundrað þakkir fyrir eina.
G. St.
Þegar það fréltist að Sigurður Guðmundsson, síðar
skólameistari á Akureyri, ætlaði að hætta kennslu í
Kennaraskólanum, varð nemanda hans að orði: ,,Ég
vildi vinna til, að hann Sigurður kenndi mér, þó að
hann skammaði mig á hverjum degi.“ — Viktoría
Guðmundsdóttir.
Ég þakka fagra fyrirmynd,
þér fimmtán harna móðir,
því gata er brött á gæfutind
og grýttar margar slóðir.
En þú, sem fórnar geymdir glóð
en gleymdir eigin þörfum,
af miklum reynslu og manndómssjóð
þú miðlar þínum örfum.
Þú lítur yfir liðna tíð
og ljóss og skugga minnist,
því móðurástin hljúg og blíð
oft beizkri reynslu kynnist.
Að blessist öll þín bros og tár
sú bæn til Drottins hljómi,
en sveipist um þín silfurhár
hinn sæli friðar Ijómi.
LILJA BJÖRNSDÓTTIR.
12
NÝTT KVENNABLAÐ