Nýtt kvennablað - 01.10.1959, Blaðsíða 13

Nýtt kvennablað - 01.10.1959, Blaðsíða 13
hennar fagurrauðar. Hún rennir augunum yfir salinn og sér Sverri fram við dyrnar. Hann kemur þegar til þeirra vin- stúlknanna og heilsar þeim brosandi. Danslagið hljómar um salinn að nýju. Sverrir hneigir sig fyrir Sigrúnu og býður lienni í dans. Hún rís á faítur og liann leggur sterkan arminn þétt um mitti hennar og þau svífa út á gólfið. Ný heit og unaðs- leg tilfinning gagntekur bæði. Hann þrýstir henni að sér fast- ar og þau finna hvort annars hjartaslög. Tvær konur í sveit- inni Þórdís í Árbæ og Björg á Fossá, sitja saman inni i dans- salnum. Þær eru hættar að dansa, en koma til þess að horfa á æskugleðina. Augu þeirri fylgjast um stund með hinni dans- andi hringiðu og nema svo staðar á Sverri og Sigrúnu. Þórdís hnippir í Björgu og segir: — Þetta er glæsilegt par. ,lá, víst er það. Mikið Ijómandi er hann Sverrir myndarlegur piltur, og nú er hann orðinn búfræðingur, hafði verið fia'stur af öllum í skólanum. — .1 á, ég hef frétt það, en hver er þessi stúlka, sem hann dansar við? — Það er hún Sigrún í Nesi. — Er hún svona stórmyndarleg stúlka. Það er orðið svo langt síðan ég hef séð hana, að ég kom því ekki fyrir mig hver hún var. — Já, Sigrún er myndarstúlka, því verður ekki neitað og mesta búkonuefni. — Skelfing eru þau ánægjuleg í dans- inum, hreppstjórasonurinn og hún. Skyldu þau vera trúlofuð? •— Þau trúlofuð! Nei, áreiðanlega ekki. llann ætlar sér nú líklega eitthvað veglegra gjaforð hreppstjórasonurinn á Hamra- endum. — llann fær nú varla fallegri konu en þessa stúlku. Mér sýnist hann engu siður hamingjusamur en bún. — Hann er bara að spila með hana. Sverrir er nú heldur ættgöfugur til þess að taka að sér óskilgetna stelpn. — Það er nú komið úr móð, sem betur fer, að líta aðeins á auðinn og ættina. Nú ei það hjartað, sem ræður hjá æskunni. — Mér er sama uin ]>að, en það er alveg þýðingarlaust fyrir Sigrúnu að hanga utan í Sverri. Hann lítur aldrei á hana í neinni alvöru, enda getur hún sjálfsagt fengið pilt nær sér, sem er henni sam- boðinn. — Það er mjög trúlegt, að svona myndarleg stúlka geti fengið fleiri en einn pilt, enda þó að mér sé farin að förlast sýn, er ég þess fullviss, að hér er um sanna ást að ræða á báðar hliðar, og þú sérð til Björg mín. -— Björg svarar Þórdísi engu, en lnin gefur Sverri og Sigrúnu óhýrt auga, ]>ar sem þau svífa glöð og sæl hvort í aunars örmum eftir liinu heillandi danslagi. Kristján sonur Bjargar hefur verið kaupamaður í Nesi um tíma á hverju sumri, síðan Sigrún var um fermingu og fellur þar vel. Björg er fyrir löngu búin að ákveða, að Sigrún verði tengdadóttir sín. Stjáni sonur liennar er líka ákveðinn í því að fá Sigrúnu fyrir konu. Honum þykir búsældarlegt í Nesi og ]>ar vill hann búa. Hann veit lika, að Björn gamli á tölu- vert til og að Sigrún á að erfa það allt. En hann hefur enn ekki komið sér að því að tala hreint við liana. Eiginlega er hann hálf feiminn við Sigrúnu. Björg hugsar sér að tala ræki- lega við Kristján, þegar hún komi heim. Hann er ráðinn í Nesi í sumar, eins og að undanförnu, og nú verður liann að láta alvöruna gilda, ef hann ætlar ekki að láta allt ganga úr greipum sér. Dansleikurinn er á enda. Sigrún og Sigga eru ferðhúnar heim. Þær koma út og eru að fara. Sverrir stendur úti fyrir dyrum samkomuhússins og bíður þeirra. Hann réttir Siggu fyrst höndina og segir brosandi: — Vertu blessuð og sæl, Sigga mín, og þökk fyrir skemmtnnina. — Það er nú víst heldur lítið mér að þakka. Þú dansaðir aldrei við inig, en vertu samt margblessaður. Sigga horfir glettnislega á Sverri. — Fyrirgefðu, Sigga mín, hafir þú orðið útundan, segir hann brosandi og sleppir hönd liennar. Svo snýr hann sér að Sig- rúnu. Þau takast i liendur og augu þeirra mætast. í djúpri þögn tala augu beggja því máli, sem engin tunga fær komið orðum að til fulls. Sverrir þrýstir hönd hennar fast og mjúklega og segir lágt og þýtt. — Vertu sæl, Sigrún. Ég þakka þér fyrir samveruna. — Sömuleiðis. Vertu sæll, Sverrir. Sigrún dreg- ur að sér höndina og svífur létt i spori, eins og vordísin sjálf, suður túnið í Árbæ á eftir Siggu vinstúlku sinni, sem komin er spölkorn frá samkomuhúsinu. En Sverrir stendur kyrr í sömu sporuni og liorfir brosandi á eftir henni, þar til vin- stúlkurnar hverfa honum bak við fjárhúsin suður á túninu. — Kristján, bóndasonurinn á Fossi, situr einn úti i skemmu og lagfærir reiðtygi. Hann er niðursokkinn í verk sitt og raular gamalt rímnalag fyrir munni sér. En skyndilega er skemniu- hurðinni hrundið upp. Björg móðir Kristjáns snarast inn i skemmuna og nemur þar staðar. Kristján hættir að raula og lítur á móður sína. Honum dylst það ekki, að eitthvað óvenju- legt er á seiði hjá henni. Björg færir sig að hlið Kristjáns og sezt þar. Enn ríkir þögn um stund, en svo segir Björg: — Jæja, Kristján minn, þú ert ráðinn kanpamaður í Nesi i sumar, eins og að undanförnu. — Já. Kristján horfir dálítið undrandi á móður síua. Björg brosir glettnislega til hans og heldur á- fram. — Hvernig er það með þig og stelpuna í Nesi, hefur þú ekkert reynt við hana þessi sumur, sem þú ert búinn að vera þar? — Hvað er þetta manneskja, þú heldur þó liklega ekki, að ég liafi farið að biðja hennar, sem er langt fyrir innan tvitugt. — Hún er nú orðin 18 ára, svo að þér er alveg óhætt að byrja á byrjuninni. Björg lilær. Kristján lítur niður fyrir sig og segir vandræðalega. '— Ég kann nú víst heldur lítið til þeirra hluta. — Blessaður láttu engan heyra þetta, skárri er það nú karlmennskan, að þora ekki að fara á fjörurnar við einn kvenmann. Eða ertu kannski hættur að hugsa um reit- urnar hans Björns gamla? Björg horfir næstum móðguð á son sinn. — Nei, mamma, ég ætla mér það allt með tímanum. — En það er nú ekki alveg víst, að sú litla biði eftir þér í mörg ár. Það eru kannski fleiri en þú, sem líta hana hýru auga. — Nú, svo sem eins og hverjir heldur þú? — Mér sýndist hon- um ekki leiðast að dansa við hana hreppstjórasyninum á Hamra- endum á dansleiknum í Árbæ í fyrrakvöld. — Ætli hann líti nú ekki eitthvað hærra sá mikli maður. — Auðvitað er það bara leikur að hans hálfu, en það getur nú samt liaft vond áhrif á stelpuna, æskan er viðkvæm og blóðheit á þessu skeiði. — Ég geri alvöru úr þessu í sumar. Varla verða gömlu hjónin á móti mér. Kristján hlær sigurviss. Björg slær þétt á herðar syni sínum og segir íbyggin: — Sýndu það nú í verki. að þú sért sonur móður þinnar, og láttu ekki auðinn í Nesi ganga úr greipum þér. — Þú þarft ekki að óttast það, að ég geri það, mamnia. — Ég treysti þér líka Kristján minn. Björg rís á fætur og gengur brosandi út úr skemmunni. En Kristján heldur áfram við verk sitt og raular töluvert hærra en áður. — Sigrún í Nesi er lireytt. Hún er orðin eins og í leiðslu og heyrir naumast, þó að við liana sé talað. Oft stendur hún við baðstofugluggann í Nesi og horfir dreymandi augum fram í sveitina. Hugurinn er hundinn hjá ungum, fallegum pilti, sem hún elskar. Hann er ofinn í alla hennar drauma í vöku og svefni. Hjarta hennar rúmar aðeins hann einan. Sigrún er sæl, af því að hún á hjarta hans, þótt hann hafi ekki ennþá sagt henni það með orðum. Framhald. NÝTT KVENNABLAÐ 11

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.