Morgunblaðið - 16.07.2009, Side 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2009
Á 79 ára afmæli Sólheima var af-
hjúpaður Engill sameiningar og
vonar á Sólheimum. Engillinn er
hluti af alþjóðlegu verkefni til að
skapa tengingu vonar og ástar um
allan heim. Engillinn á Sólheimum
er sá tólfti sem settur er upp í jafn-
mörgum löndum.
Sólheimaengill
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
SVEIN Harald Øygard, seðla-
bankastjóri, sagði á blaðamanna-
fundi í gær að jafnvel þó það hefði
verið betra ef tiltekin ákvæði í Ice-
save-samningunum hefðu verið með
öðrum hætti, breytti það ekki heild-
armati Seðlabankans. Bankinn teldi
að ekki væru líkur á að íslenska ríkið
gæti ekki staðið undir ábyrgð sam-
kvæmt samningnum og að synjun á
ríkisábyrgð vegna Icesave gæti haft
alvarlegar afleiðingar fyrir efna-
hagslífið.
Skrifleg umsögn Seðlabankans
um Icesave-samningana var birt í
gær. Umsögnin var til umræðu í við-
eigandi nefndum Alþingis á mánu-
dag og í gær fjallaði Morgunblaðið
um efni hennar.
„Það er bara fáránlegt“
Umsögn Seðlabankans inniheldur
m.a. lögfræðilegt álit sem unnið var
af Sigríði Logadóttur, aðallögfræð-
ingi bankans, og Sigurði Thorodd-
sen, lögfræðingi á alþjóða- og mark-
aðssviði bankans. Fundur þeirra
með utanríkismálanefnd Alþingis á
mánudag varð til þess að Árni Þór
Sigurðsson, formaður nefndarinnar,
lét þau orð falla að hann teldi að þau
hefðu villt á sér heimildir þegar þau
kynntu minnisblaðið fyrir nefndinni
og hann sagðist m.a. hafa velt því
fyrir sér hvort þau væru enn í vinnu
fyrir Davíð Oddsson, fyrrverandi
seðlabankastjóra. „Ég held að á
svona mikilvægri stund fyrir landið
ættum við ekki að eyða tímanum í að
ræða svona hluti eða gefa út viðlíka
yfirlýsingar. Það er bara fáránlegt,“
sagði Øygard þegar hann var spurð-
ur um þessi orð Árna Þórs.
Sigurður Thoroddsen benti enn-
fremur á að í byrjun júlí hefði fjár-
laganefnd Alþingis beðið um um-
sögn Seðlabankans um
Icesave-samningana. Þann 7. júlí
hafi verið hringt frá utanríkis-
málanefnd og lögfræðingar Seðla-
bankans beðnir um að mæta þar sem
gestir. Hann og Sigríður Logadóttir
hefðu farið á fund nefndarinnar og
gert grein fyrir tilteknum þáttum í
hinu lögfræðilega áliti sem þá var
því sem næst fullgert. Í lok fundar-
ins hefðu þau verið beðin um að setja
saman minnispunkta um það sem
kom fram hjá þeim og það hefðu þau
gert. Sigríður Logadóttir sendi enn-
fremur tölvupóst til starfsmanns ut-
anríkismálanefndar síðdegis á
mánudag, eftir að fundinum lauk, til
að undirstrika að ekki væri um að
ræða hið endanlega álit Seðlabank-
ans. Tölvupósturinn er svohljóðandi:
„Við lögfræðingar SÍ [Seðlabanka
Íslands] viljum undirstrika að minn-
isblaðið til utanríkismálanefndar er
samantekt á því sem kom fram á
fundinum þar sem lögfræðingar
mættu sem gestir og ber ekki að líta
á það sem umsögn Seðlabankans
sem slíka. Við viljum gjarnan að
þetta komi fram hjá nefndinni. Verið
er að klára vinnslu á umsögn Seðla-
bankans til fjárlaganefndar.“
Sigurður Thoroddsen benti enn-
fremur á að minnisblaðið sem nefnd-
in fékk í hendurnar væri efnislega
samhljóða því sem Seðlabankinn
birti í gær.
Breytir ekki heildarmati
Umsögn Seðlabankans efnislega samhljóða minnisblaði lögfræðinga sem var
lagt fyrir utanríkismálanefnd Ætti ekki að eyða tíma í fáránlegar yfirlýsingar
Morgunblaðið/Ómar
Lög Sigurður Thoroddsen og Sigríður Logadóttir í Seðlabankanum gær.
Svein Harald Øygard sagði að
Seðlabankinn hefði viljað fá
tækifæri til að veita nánari um-
sögn um tiltekna þætti samn-
ingsins og ýmislegt í honum
væri þess eðlis að betra væri ef
það væri með öðrum hætti.
Gott hefði verið ef Ísland hefði
rétt til að endursemja ef efna-
hagsleg staða yrði mun verri en
nú stefndi í eða ef ný lög yrðu
sett um lágmarksinnistæðu-
tryggingar innan EES.
En jafnvel þótt færustu lög-
fræðingar hefðu veitt álit sitt
væri ekki víst að niðurstaðan
hefði orðið önnur. Niðurstaða í
málinu hefði ráðist í viðræðum.
Munurinn á umsögn bankans
og minnisblaði sem var kynnt
utanríkismálanefnd er að búið
er að setja inngang að lögfræði-
álitinu. Þar er tekið fram að
flestar athugasemdanna í álit-
inu eigi við ef sú ólíklega staða
kæmi upp að ríkissjóður gæti
ekki mætti skuldbindingum
vegna Icesave. Þar af leiðandi
beri að skoða lagalegar athuga-
semdir út frá því ígrundaða áliti
bankans að ekki séu líkur á því
að íslenska ríkið geti ekki staðið
undir ábyrgð samkvæmt samn-
ingnum og að synjun á ríkis-
ábyrgð gæti haft alvarlegar af-
leiðingar fyrir efnahagslífið.
Samið um niðurstöðu
HLUTHAFAFUNDUR
ICELANDAIR GROUP HF.
DAGSKRÁ:
1. Tillaga um breytingu á samþykktum félagsins. Svohljóðandi grein
bætist við samþykktir félagsins sem verði 5. gr. a.:
Stjórn félagsins er heimilt að hækka hlutafé með eftirfarandi hætti:
(i) Heimilt er að hækka hlutafé félagsins um allt að kr. 15.000.000.000 -
fimmtán milljarða íslenskra króna - með áskrift nýrra hluta.
(ii) Heimild þessi rennur út þann 1. júlí 2010.
(iii) Nafnverð hluta sem hluthafar geta skrifað sig fyrir er ein króna. Heimilt er að
ákveða áskriftargengi með almennu útboði nýrra hluta.
(iv) Hluthafar njóta ekki forgangsréttar til áskriftar.
(v) Hluthöfum er heimilt að greiða fyrir þá nýju hluti sem þeir skrá sig fyrir með
skuldajöfnuði að hluta eða öllu leyti, samkvæmt nánari skilyrðum sem stjórn
ákveður. Ekki skal gerð sérstök sérfræðiskýrsla vegna greiðslu með skulda-
jöfnuði, en stjórn skal þess í stað útbúa greinargerð um verðmæti greiðslunnar,
sbr. 6. gr. c. laga nr. 2/1995, um hlutafélög.
(vi) Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi í félaginu frá skrásetningardegi hlutafjár-
hækkunarinnar. Stjórn skal setja nánari reglur um fresti til áskriftar og
greiðslu hluta.
2. Kosning stjórnar félagsins
3. Önnur mál löglega fram borin
Framboð til stjórnar skal tilkynna skriflega til stjórnar félagsins, aðalskrifstofu á Reykjavíkur-flugvelli,
skemmst fimm dögum fyrir fundinn. Í tilkynningunni skal greina nafn frambjóðanda, kennitölu,
heimilisfang, upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í
félaginu, hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa
sem eiga meira en 10% í félaginu.
Óski hluthafi eftir að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á fundinum skal ósk hans komið skriflega
til aðalskrifstofu félagsins sjö dögum fyrir fundinn.
Hluthafafundur í Icelandair Group verður haldinn fimmtudaginn 6. ágúst 2009,
kl. 16:00 á Hilton Reykjavík Nordica.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
46
80
6
07
/0
9
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Glæsilegt úrval
af sparilegum
sumardressum á
ÚTSÖLUNNI
ÁRNI Þór Sig-
urðsson, formað-
ur utanríkismála-
nefndar Alþingis,
segist hafa tjáð
lögfræðingum
Seðlabankans að
teldu þau að hann
hefði vegið að
starfsheiðri
þeirra, biðjist
hann afsökunar.
Árni Þór telur þó ekki að hann hafi
vegið að honum.
Aðspurður hvort hann stæði enn
við orð sín um að þau hefðu villt á
sér heimildir, sagði Árni Þór að á
fundi utanríkismálanefndar í gær-
morgun hefði komið fram að skýrir
fyrirvarar væru gerðir við lögfræði-
álitið og vísaði til inngangsins sem
fjallað er um hér til hliðar. „Sá fyrir-
vari kom auðvitað aldrei fram þegar
þessir lögfræðingar komu fyrir ut-
anríkismálanefnd.“ Samdægurs
sendi aðallögfræðingur Seðlabank-
ans tölvupóst þar sem hún áréttaði
að minnispunktarnir væru ekki um-
sögn bankans sem slík heldur væri
hún í vinnslu.
Árni Þór benti á að á þriðjudags-
morgun hefði Morgunblaðið fjallað
um þá gagnrýni sem kæmi fram í
umsögn Seðlabankans, sem þó var
ekki fullgerð. Hann hefði dregið þá
ályktun af tölvupósti frá aðallög-
fræðingi bankans að hún hefði ekki
verið að tala í umboði Seðlabankans.
Fyrirvarinn
kom ekki
fram á fundi
Biðst afsökunar ef
vegið var að heiðri
Árni Þór
Sigurðsson
Í umfjöllun um sýninguna Íslensk
hönnun 2009 á þriðjudag var rangt
farið með nafn hönnuðar kínaprjóna,
en hönnuður þeirra er Dögg Guð-
mundsdóttir. Þá var einnig farið
rangt með starfsheiti viðmælandans,
sýningarstjóra sýningarinnar, El-
ísabetar V. Ingvarsdóttur. Hún er
hönnunarsagnfræðingur. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Rangt nafn