Morgunblaðið - 16.07.2009, Síða 12
12 FréttirALÞINGI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2009
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
FIMMTI – og næstsíðasti – dagur
annarrar umræðu um tillögur að að-
ildarviðræðum við Evrópusambandið
fór fram í spennuþrungnu andrúms-
lofti. Ræður þingmanna voru áfram
frekar um formið en efnið og þykir
ljósara en áður að naumt verður á
munum í atkvæðagreiðslunni. Í gær
stal þó senunni bakgrunnsskýrsla
Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands
um stöðu landbúnaðar Íslands innan
ESB sem unnin var fyrir utanríkis-
ráðuneytið.
Meginþræðir umræðna innan og
utan þingsalar voru tveir; landbúnað-
arskýrslan og tímasetning atkvæða-
greiðslunnar. Þeim lauk með því að
utanríkisráðherra birti skýrsluna og
samkomulag náðist um atkvæða-
greiðslu á hádegi á morgun. En það
gekk ekki áfallalaust fyrir sig.
Þingfundur hófst á því að Einar K.
Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokks, vakti máls á tilurð skýrslunn-
ar. Í kjölfarið komu þingmenn stjórn-
arandstöðunnar upp og gagnrýndu
Samfylkinguna fyrir leyndarhyggju
og að fela gögn sem koma málstað
hennar illa. Forseti Alþingis, Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir, ræddi
við Össur Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra og tilkynnti þingmönnum í
kjölfarið að skýrslan yrði kynnt þing-
mönnum.
Upp úr hádegi var ljóst að trúnaður
var á skýrslunni. Mikil ringulreið
varð þá í þinghúsinu og fundað í
hverju horni. Skýrslan var að ein-
hverju leyti kynnt í sjávarútvegs- og
landbúnaðarnefnd en þrátt fyrir það
voru þingmenn ekki ánægðir.
Þegar líða tók á daginn var ljóst að
ekki yrði af fyrirhugaðri atkvæða-
greiðslu síðdegis. Utanríkisráðherra
var svo spurður að því hvort hann
hygðist gera skýrsluna opinbera, sem
og hann gerði. Síðdegis funduðu svo
formenn og þingflokksformenn og
komust að því að umræðu skyldi ljúka
fyrir hádegi í dag og í kjölfarið verða
greidd atkvæði.
Morgunblaðið/Ómar
Skýrslan Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra tók þá ákvörðun að aflétta trúnaði á landbúnaðarskýrslunni.
Bakgrunnsskýrsla stal senunni
Andrúmsloftið á
Alþingi var
spennuþrungið
nær óbreytt og útflutningur ykist.
Þetta kemur fram í samanburðar-
skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla
Íslands, Íslensk bú í finnsku um-
hverfi, sem gerð var opinber í gær
að kröfu alþingismanna.
Í skýrslunni, sem tekin var saman
fyrir utanríkisráðuneytið, er ítrekað
að ekki beri að líta á greininguna
sem samningsniðurstöðu fyrir Ís-
land. Sú niðurstaða fáist aðeins með
aðildarsamningnum sjálfum.
Útskýrt er hvernig sameinuð
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
AFKOMURÝRNUN íslenskra
svínabænda næmi, að teknu tilliti til
norðurslóðastuðnings, um 15% við
inngöngu Íslands í Evrópusam-
bandið og þá stórauknu samkeppni
við erlenda framleiðslu sem henni
fylgdi. Sambærileg tala fyrir kjúk-
lingabændur er um 30% en afkoma
sauðfjárbænda yrði umtalsvert
betri, að því gefnu að verð héldist
landbúnaðarstefna ESB (CAP) hafi
færst frá framleiðslutengdum
styrkjum til eingreiðslna, öndvert
við íslenskan landbúnað sem búi að
mestu við framleiðslutengda styrki.
Lækkun um tugi prósenta
Gert er ráð fyrir að kjúklingar
myndu lækka um 70%, egg og
mjólkurvörur um 55-60% og svína-
kjöt um 35% við inngöngu og afnám
tolla. Verð á kinda- og nautakjöti til
bænda breyttist hins vegar lítið.
Fram kemur að verð til finnskra
bænda lækkaði að jafnaði um 40 til
50% eftir inngöngu landsins í sam-
bandið í ársbyrjun 1995 og tekið
dæmi af því hvernig hlutur innlends
nautakjöts hafi lækkað í 94% 2005.
Þá hafi finnskum býlum fækkað
úr 100.000 í 70.000 á tíu árum og
laun landbúnaðarverkamanna lækk-
að í fyrstu en svo hækkað á ný. Fjár-
magnskostnaður býla er sagður að
meðaltali 30% lægri í ESB.
Meira: mbl.is
Sumir bændur yrðu betur settir
Verð á kjúklingakjöti myndi lækka um 70% við inngöngu Íslands í ESB
Norðurslóðastuðningur myndi vega á móti minni tekjum hjá bændum
Morgunblaðið/Þorkell
Gæði Skýrsluhöfundar segja verð-
mæti í sérstöðu íslensks búfjár.
Orðrétt
af Alþingi
’ Allt frá 19. júní síðastliðnum erég búinn að reyna að fá þessaskýrslu afhenta en það hefur einfald-lega ekki gengið. Mér hefur verið neit-að um hana og sagt að þetta væri
vinnuplagg eða gögn sem væru í
vinnslu.
GUNNAR BRAGI SVEINSSON
’ Ég vissi ekki af tilurð þessararbakgrunnsskýrslu fyrr heldur en ígær. […] Þarna er verið að máta ís-lenskan landbúnað við þýskan ogfinnskan. Það kemur í ljós að það
myndi vera slæmt fyrir landbúnaðinn
hefði hann kjör hins þýska.
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
’Mér finnst merkilegt að Sjálf-stæðisflokkurinn leggi ekki til aðþað verði þrjár þjóðaratkvæða-greiðslur, hin fyrsta þá um hvort eigiað fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um
aðild.
ÞRÁINN BERTELSSON
’Það er eins og mig grunaði,hæstvirtur utanríkisráðherra ereinlægur aðdáandi minn, og ég hansvegna þess að ég hef lagt mig í límavið að temja mér fas hans, ekki bara
hér í ræðupúlti heldur líka útlitslega
séð. Tel ég hann vera fyrirmynd ann-
arra karlmanna, að því leyti.
HÖSKULDUR ÞÓRHALLSSON
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Öll helstu merkin í tjöldum: TNF, High Peak, Mountain Equipment og Fjallräven.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
46
57
3
06
/0
9
High Peak Ancona 4
Rúmgott 4 manna fjölskyldutjald.
Vatnsvörn 3.000 mm. Yfirlímdir saumar.
Dúkur í fortjaldi. 2 inngangar. Hæð 190 cm.
Verð 44.990 kr.
Einnig fáanlegt 5 manna, verð 52.990 kr.
High Peak Como 4
Tvískipt innratjald með fortjaldi á milli.
Stöðugt í vindi. Vatnsvörn 2.000 mm.
Yfirlímdir saumar. Hæð 190 cm.
Verð 29.990 kr.
Einnig fáanlegt 6 manna, verð 39.990 kr.
High Peak Nevada
Sígilt 3 manna kúlutjald með fortjaldi.
Vatnsvörn 2.000 mm. Yfirlímdir saumar.
Hæð 120 cm.
Verð 16.990 kr.
Tjaldaúrvalið er í Tjaldalandi
SUÐURLAN
DSBRAUT
SUÐURLAN
DSBRAUT
GNOÐAR
VOGUR
GLÆSIBÆ
R
T
B
R
1
T
B
R
2 ÁL
F
H
E
IM
A
R
Tjaldaland
Uppsett tjöld
til sýnis
alla virka daga
frá kl. 10-17.